Tíminn - 06.10.1976, Page 8
8
TÍMINN
Miðvikudagur 6. október 1976
5000 lestir
af kjöti
verða seldar
til útlanda
FJ-Reykjavik. 1 haust er áætlað
að slátra um einni milljón fjár
að því er Sambandsfréttir hafa
eftir Agnari Tryggvasyni,
framkvæmdastjóra Búvöru-
deildar Sambandsins. Heildar-
kjötmagnið i fyrra var 13.750
lestir, en að sögn Agnars er
áætlað að kjötmagniö nú verið
um 5-7% meira en sl. haust.
Þegar er hafinn útflutningur á
kjötframleiðslunni i ár. Búiö er
aö senda 200 lestir af dilkakjöti
til Færeyja, en kjötiö þangaö er
afgreitt beint frá höfnum á
Austurlandi. Þá eru 650 lestir aö
fara til Noregs, svo aö samtals
er búið aö afgreiöa og ganga frá
sölu á 850 lestum af dilkakjöti til
útlanda. Norömenn hafa lofað
aökaupa a.m.k. sama magnog i
fyrra, en þá keyptu þeir 2750
lestir af Islenzku dilkakjöti.
Verðþróunin má einnig teljast
hagstæð, þvi aö i Færeyjum
hefur oröiö 7% veröhækkun frá
þvi I fyrra, og I Noregi 10%
hækkun.
Af kindakjötsframleiðslu
haustsins I fyrra voru samtals
seldar úr landi 4300 lestir, en I ár
er áætlað aö flytja út 5000 lestir.
Að þvi er Agnar segir eru menn
nú nokkuö bjartsýnir á áfram-
haldið, enda þótt markaður sé
nú nokkuð erfiður vegna þess
ástands, sem veriö hefur I
Evrópu eftir óvenjumikla
þurrka og mikla neyöarál átrun
af þeim sökum, vegna þess ein-
faldlega, eö ekki var til fóöur
fyrir griþina.
Djúpivogur:
Sjálfvirkur sími í
byrjun nóvember
Óli Björgvinsson, Djúpavogi. —
Opinberar framkvæmdir hafa
veriö nokkrar á Djúpavogi i sum-
ar. Oliumöl var borin á allt að 500
metra vegakafla fyrir utan bila-
stæöi. Nýtt skólahús var tekiö I
notkun i haust. Er þaö 320 fer-
metrar að stærö og mun kosta um
35 milljónir króna. Veriö er aö
ljúka viö nýjan hafnarbakka með
steyptu plani. Er áætlaö, aö þaö
verk kosti 8 millj. króna. Vatns-
veituframkvæmdir hafa og verið
á döfinni ásamt ýmsum lögnum
rafmagns og slma. Nýtt sim-
stöövarhús hefurrisiö I bænum og
kemst sjálfvirka sambandiö á I
byrjun nóv. í byggingu eru nú
tvær leiguibúöir á vegum hins
opinbera. — Búiö er aö salta I um
400 tunnur af sild hér i bæ. Mána-
tindur hefur veriö á spærlings-
veiöum og var aflinn 200 tonn siö-
astliöinn mánuö. Slátrun er hafin.
Veröur 12-13 þúsund sauökindum
slátraö, og er þaö magn svipaö og
I fyrra.
Síldarsölur erlendis:
Heildarverðmæti
í ár rúmar 430
milljónir
gébé Rvik — A timahilinu frá 27.
september til 2. október s.l. seldu
fimmtán islenzk skip siidarafla
sinn i Danmörku. Alls var
heildarafli þessara skipa 932,9
iestir að verðmæti 72.607.446.- kr.
og var meðaiverð á kg kr. 77,82.
Smávegis af aflanum fór i
bræðslu. Sildarsölur erlendis á
þessu ári, eða frá 24. mai til 2.
október, eru aö verðmæti
433.264.659.- milljónir króna og
aflamagniö þennan tima var
6.051,1 tonn.
Meöalverö sildarafla þeirra
króna
fimmtán skipa, sem seldu sild i
Danmörku i siöustu viku, var allt
frá kr. 75 til rúmlega kr. 80.
Skarðsvik SH seldi þann 29.
september rúm 109 tonn fyrir
8.593.312.- kr. og var þaö stærsta
salan þá vikuna.
A timabilinu 18. april til 4. októ-
ber á siðastliönu ári var slldarafli
islenzku skipanna i Noröursjó
10.165,2 tonn sem seldur var i
Danmörku, aö verömæti
407.001.266.- kr. og var meöal-
verðiö þá rúmar fjörutiu krónur.
lYuugicouiiiuu i nitiiuriusðiuuuröAugi. ihiibhijuu.
Uppskeran mikla í Hallormsstaðarskógi:
Hvert kíló
20 þús.
kr. virði
JK-Egilsstöðum. — Eins og
áður hefur verið sagt frá I
Timanum er fræfall I skógum
á Austurlandi langt umfram
venju eftir ljúft og hlýtt sum-
ar. Er nú byrjað að safna
könglum I Hailormsstaðai-
skógi, og búast menn við að fá
geysimikið af fræi i ár. Er
mjög mikils vert fyrir skóg-
ræktina aðfá innlent fræ af úr-
valskvæmum, auk þess sem
það skiptir miklu máli fjár-
hagslega, þar eð hvert klló-
gramm af innfluttu trjáfræi
kostar tuttugu þúsund krónur.
Ég brá mér inn i Hallorms-
staöarskóg, og voru þá starfs-
menn Skógræktar rfkisins aö
safna fræi af blágrenitrjám,
sem eru meö elztu trjám þar.
Hákon Bjarnason skógræktar-
stjóri sýndi mér afkvæmi
þessara trjáa, sem vaxin eru
af fræi, sem sáð var árið 1947,
og eru hin hæstu þeirra nú orð-
in um fjórir metrar. Þessi
trjátegund er ættuð frá Kólo-
radó I Bandarikjunum, þar
sem hún vex hátt til fjalla, um
þrjú þúsund metra yfir
sjávarmáli.
Mest kapp er þó lagt á að
safna fræi af sitkagreni.
Könglarnir, sem teknir eru
af trjánum, eru þurrkaðir og
hitaöir að nokkrum tima liön-
um, og þá losnar fræiö úr
þeim.
Þórarinn Benedikz sagöi
mér, aö þeir skógræktarmenn
myndu einnig safna fræi á
Egilsstööum, Austfjöröum og
viðar á leiö sinni til Reykja-
víkur, er þeir halda brott úr
Hallormsstaðarskógi, þar á
meöal I Suöursveit.
Fjögur
slóturhús
með viður-
kenningu
sem útflutn-
ingsslúturhús
fyrir Banda-
ríkjamarkað
ASK-Reykjavlk. — Bandarikja-
menn gera miklu meiri kröfur i
sambandi viö sláturhús en aörar
þjóöir, sagöi Agnar Tryggvason
framkvæmdastjóri Búvörudeild-
ar SIS I samtali við Timann. —
Okkur er það visst metnaöarmál
aö sem flest af okkar sláturhús-
um uppfylli þær kröfur er þeir
gera, þvi þaö þýðir aö varan er
óaðfinnanleg.
Nú er veriö aö taka i notkun
nýtt frystihús hjá Kaupfélagi
Hvammsfjarðar I Búöardal, og
þar meö er gert ráö fyrir, áð
sláturhús þess fái viðurkenningu
sem útflutningshús fyrir Banda-
rikjamarkaö. Sömuleiðis fær
sláturhús Kaupfélags Skag-
firðinga á Sauöárkróki væntan-
lega sllka viöurkenningu nú I
haust. Sláturhús i landinu meö
viöurkenningu fyrir Bandarikja-
markaö verða þá alls fjögur, þvi
fram til þessa hafa aðeins slátur-
húsin i Borgarnesi og á Húsavik
haft þessi réttindi.
Nú eru fyrirhugaðar fram-
kvæmdir viö nýtt sláturhús á
Egilsstööum, i framhaldi af
byggingu nýs mjólkurbús Kaup-
félags Héraðsbúa þar á staönum,
sem væntanlega veröur tekið i
notkun á næsta ári. Þar mun á
næstu tveim til þremur árum risa
nýtt og fullkomið útflutnings-
sláturhús, sem i framtíðinni mun
leysa af hólmi fjögur eldri slátur-
hús á félagssvæði Kaupfélags
Héraösbúa.
„Dagur
iðnaðarins"
ó f jórum
stöðum
Gsal-Reykjavik — islenzk iön-
kynning hefur ákveöiö að halda
,,Dag iðnaöarins” á fjórum stöö-
um fyrir áramót, á Akureyri 22.
október, á Egilsstööum 29. októ-
ber, i Borgarnesi fyrrihluta
nóvember og I Kópavogi siöari
hluta nóvember.
Sérstök undirbúningsnefnd
skipuö af bæjarstjórn Akureyrar
undirbýr daginn á Akureyri og
hefur nefndin gert drög aö dag-
skrá fyrir vikuna 17.-24. október,
þótt föstudagurinn 22. október
veröi nefndur „Dagur iönaöar-
ins” á Akureyri.
Aöilar aö islenzkri iönkynningu
eru sem kunnugt er Félag isl. iön-
rekenda, Iönaöarráöuneyti.
Landssamband iönaðarmanna,
Landssamband iönverkafólks,
Neytendasamtökin og Samband
isl. samvinnufélaga.
Ovenjumikið af þorskseiðum
hamla rækjuveiðum í Húnaflóa
gébé Rvik — Undanfarna viku
hefur rannsóknarskip
Hafrannsóknastofnunarinnar,
Dröfn, veriö viö rækjuleit og
rannsóknir á Húnaflóa. Komiö
hefur I Ijós, aö mikið magn af
þorskseiöum kemur I rækju-
vörpuna, eöa alit upp i þúsund
stykki i togi. Einnig hefur
nokkuö af ýsu og sild komið i
vörpuna hjá Dröfn. Aö sögn
fréttaritara blaösins á Skaga-
strönd, en hann haföi sam-
band viö leiöangursstjórann,
Ingvar Hallgrimsson um borö
íDröfn nýlega, þá hefur aldrei
áöur veriö þörf á því aö tak-
marka veiði á rækju i Húna-
flóa, vegna hættu á aö fá of
mikið af seiöum I vörpurnar.
Hins vegar er full þörf á þvi
nú, og rækjubátarnir viö fló-
ann, sem ætluðu aö byrja
veiðar s.l. mánaöamót, hafa
Framhald á bls. 19.