Tíminn - 13.11.1976, Blaðsíða 17

Tíminn - 13.11.1976, Blaðsíða 17
Laugardagur 13. nóvember 1976 TÍMINN 17 Frönsk félög hafa áhuga á íslenzkum knatt- spyrnumönnum FRANSKA blaöiö „Le Figaro” sagöi frá þvi fyrir síuttu, aö frönsk 1. deildarliö heföu áhuga á að senda „njósnara” til Is- lands, til aö kanna hvort þeir komi auga á islenzka knatt- spy rnumenn, sem þau gætu haft not fyrir. Blaðið segir, að það séu tvö félog, sem hafa áhuga á islenzk- um knattspyrnumönnum — Metz og Troyés. ,,Le Figaro” • • • segir, að það sé vitað,- að margir góðir knattspyrnumenn séu á lslandi, sem hefðu áhuga á að gerast atvinnumenn á megin- landi Evrópu. Blaöið segir, að ef af þessu verði, þá muni „njósnarar” frá þessum félög- um fara til tslands næsta sum- 'ar, eða þegar knattspyrnan á ls- landi standi sem hæst- og i þvi sambandi er talað um iandsieik Islands og N-lrlands i Reykja- vik 11. júni. „Karl Ben. hefur beint okkur inn á rétta braut... — og myndað lið," sagði Björgvin Björgvinsson, eftir stórsigur Víkings yfir FH Víkingsliðið, sem sýnt hefur misjafna leiki að undan- ólafur2 Svavar2, Ingimar2 Jón förnu virðist skyndilega hafa losnað úr álögum - eftir ^gGúfJ4!'‘cuitoundur 2, Arn- að Karl Benediktsson tok aftur við st|ornmm hja Viking- ar lt jón Arni 1 og Arni 1. um. Undir stjórn Karls hafa Víkingar lagt Valsmenn og FH-inga að velli með stuttu millibili. Víkingar voru í miklum vígamóði, þegar þeir mættu FH-ingum á fimmtu dagskvöldið í Laugardalshöllinni, þar sem þeir unnu stórsigur (35:26) á FH-ingum. ................. BJÖRGVIN BJÖRGVINS- SON.... sést hér skora mark i landsleik gegn A-Þjóöverj- um. Björgvin hefur átt mjög góða leiki með Vikingsliöinu gegn Val og FH. — (Tima- mynd Róbert) V ---------------------------- verður jöfn og spennandi i vetur, þar sem liðin eru mjög álika að styrkleika, sagði Björgvin. Leikur Vikings og FH var mjög jafn framan af, og var staðan 15:13 fyrir Vikinga i hálfleik. Þeir tóku siðan mikinn fjörkipp i byrj- un siðari hálfleiks og fljótlega náðu þeir 10 marka forskoti — 26:16 — og gerðu þar með út um leikinn sem lauk méð sigri Vik- ings (35:36) eins og fyrr segir. Þorbergur Aðalsteinsson átti á- gætan leik hjá Vikingsliðinu — hann skoraði 10 mörk i leiknum. Þá voru þeir Björgvin og Ólafur1"1 Einarsson einnig drjúgir ög Rós- miyidur Jónssön varði oft af stakri prýöi. Eins og áöur voru þeir Geir Hallsteinsson og Viðar Simonarson afkastamestir hjá FH. Mörkin i leiknum skoruðu: Vik- ingur: — Þorbergur 10, Ólafur Einarsson 8 (2), Björgvin 4, Viggó 4, Jón 2, Magnús 2, Ólafur J. 2, Erlendur 2 og Einar 1. FH: — Viðar 9 (3), Geir 8 (3) Guðmundur Árni 3, Þórarinn 3 (1), Helgi 2 (2) og Guðmundur M. 1. Haukar lögðu Framara Haukar skutust upp á toppinn við hliðina á Valsmönnum þegar þeirunnu góðan sigur (18:15) yfir Fram-liöinu i bragðdaugum leik. Mörkini leiknum skoruðu: Hauk- ar: — Hörður 5 (2), Sigurgeir 3, — Karl BeneSiktsson á heiður- inn'af þeim breytingum sem hafa orðið á Vikingsliðinu á skömmum tima, hann hefur hrist leikmenn- ina upp úr sleninu og náð að mynda lið — og beina þvi á rétta braut, sagði Björgvin Björgvins- son, landsliðsmaðurinn snjalli úr Vikingi. — Karl hefur komið með nýjar hugmyndir og pússað upp og end- urbætt leikkerfi, sem Vikingsliðið hefur notað undir hans stjórn undanfarin ár. Þá er markvarzl- an miklu betri eftir aö Rósmund- ur Jónsson kom aftur i markið — og þar með fylgist allt að, sagði Björgvin. Björgvin sagðist vera mjög bjartsýnn á framhaldið hjá Vik- ingum. — Það er ekki að efa, að baráttan um meistaratitilinn STAÐAN Staöan er nú þessi I 1. deildar- keppninni i handknattieik: Valur...........5 4 0 1 113:86 8 Haukar..........5 4 0 1 103:92 8 1R..............5 3 1 1 106:106 7 Vikingur........5 3 0 2 124:115 6 FH..............5 2 0 3 118:117 4 Fram............5 1 1 3 100:109 3 Þróttur.........5 0 3 2 87:103 3 Grótta..........5 0 1 4 97:120 1 Markhæstu menn: Höröur Sigmarss., Haukum.... 43 Geir Hallsteinss., FH........35 Þorbjörn Guömundss. Val......31 Jón Karlss., Val.............30 Konráö Jónss., Þrótti....1... 28 Viöar Símonars., FH .........28 Paddon aftur til Norwich Tottenham kaupir nýjan bakvörð frá Carlisle GRAHAM Paddon — hinn gam- aikunni leikmaöur Norwich, sem hefur leikiö meö Lundúnarliöinu West Ham undanfarin ár, er nú aftur kominn til Norwich. Norw- ich borgaöi 110 þús. pund fyrir Paddon, sem náöi ekki aö festa rætur hjá Lundúnaliöinu. Hann haföi sýnt mjög góöa leiki meö Norwich-liöinu áöur en hann var seldur til West Ham. Tottenham hefur fest kaup á John Gorman, sem hefur leikiö sem bakvörðurhjá Carlisle. Tott- enham borgaði Carlisle 60 þús. pund fyrir Gorman, sem leikur sinn fyrsta leik með nýja félaginu gegn Bristol City i dag. TOMMY BOOTH hefur neitað að fara frá Manchester City til Notthingham Forest, sem var til- búið að borga 50 þús. pund fyrir hann. DAVID CROSS, sem Coventry keypti frá Norwich á 150 þús pund fyrir þremurárum -^eða um leið og Norwich seldi Paddon til West Ham.hefur neitaö aö fara tii West Ham, sem var tilbúið að greiða 100 þús. pund fyrir Cross. IAN ROSS, fyrrum fyrirliði Aston Villa hefur verið lánaður frá Villa til Northampton i mán- uð. GRAHAM PADDON... sést hér I Norwich-peysunni, sem hann mun klæðast á nýjan leik. Erfiður róður Valsmanna — sem mæta hinu öfluga liði frd Moskvu — 1. maí í Laugarda RÓÐURINN veröur erfiður hjá Valsmönnum, þegar þeir mæta 1. mai frá Rússlandi i Evrópu- keppni bikarhafa i Laugardals- höllinni i dag. Valur giimir þá viö eitt allra sterkasta félagsliö Evrópu, scm hefur „innan- borös” mjög sterka og leik- reynda leikmenn. Það er ekki hægt aö búast við sigri Valsmanna, en ef þeim tekst vel upp, þá eiga þeir örugglega eftir að velgja Rúss- unum undir uggum — sérstak- lega ef Ólafur Benediktsson verður i essinu sinu. Handknatt- leiksunnendur fá nú tækifæri til að sjá eitt bezta félagslið heims leika i Laugardalshöllinni, en það er nú orðið nokkuð langt sið- shöllinni kl. 3 í dag an sterk félagslið hafa komiö hingað til að leika. Það er þvi ekki að efa, aö handknattleiksunnendur fjöl- menna i Laugardalshöllina til að hvetja Valsmenn — og von- andi láta þeir vel i sér heyra. Valsmenn hafa staðið i samningaviðræðum við Rúss- ana um það, hvort þeir sjái sér ekki fært að leika báða leikina i Reykjavik. Rússarnir hafa tekiö vel i það, en þeir eru samt ekki tilbúnir að gefa ákveðið svar, fyrr en eftir leikinn i dag. Ef þeim tekst nú að vinna góðan sigur á Valsmönnum, eru mikl- ar likur á þvi, að þeir leiki einn- ig siðari leikinn hér — á morg- un.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.