Tíminn - 18.12.1976, Page 1

Tíminn - 18.12.1976, Page 1
Mistilteinn flotaforingjans mun hitta hann sjdlfan - Sjá Baksíðu „ „ ■NCIIIJ! Aætlunarstaðir: Bíldudalur-Blönduós-BúðardalXjr 'Flateyri-Gjögur-Hólmavík Hvammstangi-Rif-Reykhólar Sigluf jörður-Stykkishólmur : Súgandaf jörður Sjúkra- og leiguflug um allt land 1 Simar: 2-60-60 oq 2-60-66 287. tölublað — Laugardagur 18. desember—60. árgangur BARÐA BRYNJUR * i j ii LANDVELAR Hf Síðumúla 21 — Simi 8-44-43 Einvígi Kortsnojs og Petrosjans á íslandi? ★ Hort vildi tefla einvígi sitt við Fischer hér á landi 0 Kortsnoj Gsal-Reykjavik — Likur eru taldar á þvi að eitt hinna fjög- urra áskorendaeinviga i skák fari fram hér á landi i marz- mánuðin.k.,—og þá i Reykja- vik að sögn Einars S. Einars- sonar forseta Skáksambands Islands, en Timinn hafði heyrt ávæning af þvi, að þetta stæði til — og staöfesti forseti Skák- sambandsins þetta I samtali við Timann i gær. Einvigið sem hér um ræðir á að vera á milli sovézku stór- meistaranna Kortsnojs og Petrosjans — en óvist er þó að þessir tveir stórmeistarar tefli saman, þvi Kortsnoj er sem kunnugt er landflótta og hefur sovézka skáksambandið svipt hann sinum titlum. Af þessum sökum er óvist hvort Sovét- menn senda Petrosjan á móti Kortsnoj. Staðgengill Petrosj- anser Tal, einnig sovézkur, en Vestur-Þjóöverjinn Hiibner er næstur i röðinni — og myndi hann þá tefla við Kortsnoj, ef svo færi, aö Sovétmenn neit- uöu aö senda fulltrúa sinn i einvfgið viö Kortsnoj. Að sögn Einars S. Einars- sonar forseta Skáksambands- ins voru áskorendaeinvigin boðin út á FIDE-þinginu i Haifa, sem haldið var sam- timis Olympiumótinu. Ekkert land bauð þó i einvigi Kortsnojs og Petrosjans sök- um þess að sá fyrrnefndi hafði flúið land sitt og sovézk stjórn- völd svipt hann titlum. Einar Q Petrosjan kvað Alþjóðaskáksambandið hins vegar hafa beint þeim til- mælum til islenzka skáksam- bandsins að þaö tæki að sér að sjá um einvigi þessara stór- meistara. — Viö litum svo á, að póli- tisk þrætuepli eigi ekki heima viö skákborðiö og litum á þessa tvo keppendur, Kortsnoj og Petrosjan, sem einstakl- inga og skákmenn fyrst og fremst, sagði Einar. Utanrikisráðuneytinu hefur aö sögn Einars verið kunngert þetta fyrirhugaða einvigi á Is- landi, en ákvörðun um það er alfarið i höndum stjórnar Skáksambandsins. Tlminn innti Einar eftir þvi hvort Sovétmenn myndu ekki lita á þetta sem ögrun i sinn garö, og kvaðsthann aö sjálfsögðu ekki geta svarað til um það, en sagöi hins vegar að svo gæti farið að einvigið gæti haft ein- Frh. á bls. 9 Frumvarp um rann- sóknar- lögreglu ríkisins orðið að lögum AÞ-Reykjavlk — Frumvarp ólafs Jóhannessonar dóms- málaráöherra um rannsókn- arlögreglu rlkisins var af- greitt sem lög frá Alþingi i fyrradag. Smávægilegar breytingar voru gerðar á frumvarpinu i meöferð þingsins. Scm kunnugt er, lagði dómsmálaráðherra frum- varp þetta fram á siðasta þingi, en þá tókst ekki að af- greiða það. 10 ára samn- ingur við EBE? - ríkisstjórninni hefur borizt tilboð um gagnkvæmar veiðiheimildir gébé Rvík — ,,Það hafa verið lögö fram fyrstu frumdrög að samningum á sviði fisk- verndunar til langs tima, og þar hefur sú hugmynd m.a. komið fram að hann gildi i 10 ár,” sagði Tómas Tómasson, sendiherra I Brussel I gær- kvöld, þegar hann var inntur eftir niðurstöðum tveggja daga viðræðna islenzku nefndarinnar við Efnahags- bandalagið. Tómas sagði aö EBE hefði lagt fram tilboð um gagnkvæmar veiðiheimildir til skamms tima og að rikis- stjórnin hefði þegar fengið það tilboð til umfjöllunar. „Einar Ingvarsson, aöstoðarmaður sjávarútvegsráöherra og ég’, munum halda viðræðunum áfram n.k. mánudag um þetta frumdrag samninganna, en það mun taka langan tima að ganga frá þessu, eða næstu vikur og ég tek fram að viö er- um alls ekki að bjóða neitt, lieldur að athuga hvernig slik- ur samningur gæti litið úr”, sagði Tómas. Tómas sagði ennfremur að sennilega myndu viöræðurnar á mánudaginn verða þær slð- ustu fyrir hátlðar. ,,Það er unniö geysilega I Efnahags- bandalaginu þessa dagana þar sem þeir eru aö binda enda- hnút á slna eigin fiskveiðipóli- tlk, hvernig henni verði hagaö. Þeir vonast til að það liggi fyr- ir á mánudag eða þriöjudag,” sagði Tómas að lokum. Tillögur flugvalla nefndar: gébé Rvik — i gærmorgun skilaði flugvallanefnd Halldóri E. Sigurðssyni samgönguráðherra tillög- um sinum varöandi úttekt á islenzkum flugvalla- og öryggismálum. Gera tillögurnar eingöngu ráð fyrir endurbótum á búnaði hinna 36 áætlunarflugvalia landsins á sex ára timabili og er kostnaöaráætlunin um 900 milljónir kr. á ári. Aætlaður kostnaður við endurbætur á áætlunar- flugvöllum er 4,862 milljarðar, og kostnaður við gerð og búnað annarra flugvalla er áætlaður 295 milljónir og kostnaður viö endurbætur á búnaöi fyrir leitarflug, þ.e. flug- leiösögukerfið, flugum- ferðaþjónustu' og veður- þjónustu er 81 milljón kr. Heildarfjárfestingakostn- aður framkvæmdanna allra, er þvl áætlaöur sam- tals fimm milljaröar og fjögur hundruð milljónir króna. Sjá nánar á bls. 2.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.