Tíminn - 06.01.1977, Side 1

Tíminn - 06.01.1977, Side 1
• Schutz kominn aftur — Sjd bls. 3 Ákveðið hver verður skip- stjóri bílaflutningaskipsins línurnar skýrast eftir fundinn í dag, segir Þórir Jónsson HV-Reykjavik. — Þetta liggur nú ekki alveg ljóst fyrir ennþá, en eftir fund, sem haldinn verður i há- deginu á morgun, er liklegt að línurnar fari nokkuð að skýrast. Ef af skipa- kaupunum verður, verður stofnað sérstakt félág um rekstur þess, hingað til höfum við aðeins safnað hlutafé. Sem eðlilegt er hefur ekki enn verið beinlinis ráðinn mannskapur á skipið, en hinu er ekki að neita að ákveðinn skipstjóri reiknar með þvi, á eðlilegum for- sendum, að taka við stjóm á þvi, sagði Þórir Jónsson, i viðtali við Timann i gærr. Undirbúningur að kaupum á bilaskipi til landsins er nú langt kominn. Svo langt að nú liggur fyrir hver skip- stjóri þess veröur og hefur hann sagt upp störfum sinum hjá Eimskipafélagi íslands. Mun það vera einn af reyndustu skipstjórum Eimskipafélagsins, Valdi- mar Björnsson, sem stýrir Bakkafossi. Um aðra áhafnameðlimi erekki vitað enn. Timanum bárust i gær fregnir af þvi að þeir menn sem visað var frá störfum við Eimskipafélagið fyrir nokkru siðan vegna lit- sjónvarpsmálsins svo- nefnda, myndu taka við störfum við skipið, en það hefur ekki fengizt staðfestst. Kröflusvæðið Fleiri varúðarráð- stöfunum bætt við gébé Rvik — Það hefur verið farið yfir allar áður gerðar áætlanir og ákvarðanir varð- andi varúðarráðstafanir, ef skapast skyldi hættuástand á Kröflusvæðinu, og hefur nú til viðbótar veriö bætt þremur nýjum við, sagöi Guðmundur Einarsson verkfræðingur, en hann er formaður 3ja manna samstarfsnefndarinnar, sem fjallar um öryggismál á Kröflusvæðinu. Sagði hann, að ákveðið hefði vcrið aðbæta við vaktmanni á sjálfu virkjunar- svæðinu, sem skyldi hafa vakt frá kl. 11 á kvöldin til 7 á morgnana. Var fyrsta vaktin i gærkvöldi og nótt. — Vakt- maðurinn hefur talstöð og get- ur hann haft samband sam- stundis við gosvaktina i Reykjahliö ef eitthvað skeður, einnig getur vaktin haft sam- band við manninn ef skjálfta- mælarnir sýna skyndilega breytingu, sagði Guðmundur. — Vaktmaðurinn hefur góða möguleika til að sjá undir eins hvar eða hvort gos hefur kom- ið. Þetta er fyrst og fremst gert til þess að stytta við- bragðstfmft.. Nú, þá höfum við samið við Miðfell hf. að hafa alltaf jarðýtu og veghefil til- búna til notkunar, þannig að hægt sé að halda veginum til Kröflu opnum, hvernig sem viðrar. Sama gildir um aðra vegi i nálægðinni, viö höfum haft samband viö Vegagerð- ina á Akureyri i sambandi við það, sagði Guðmundur. — Við teljum að þaö hafi verið tekið tillit til allra nauö- synlegra varúðarráðstafana, sem hægt er til að fylgjast, fyrst og fremst, með mæling- um á landrisinu, svo og jarð- skjálfamælunum. Einar Agústsson, utanríkisróðherra Málaleitan fráfarandi for- manns EBE ástæðulaus — ekkert getur gerzt fyrr en Alþingi kemur saman F.l. Reykjavik. — Ég get vel skiliö að fráfarandi for- maöur Efnahagsbanda- lagsins vilji gjarnan hafa gert eitthvnð i þessu máli og tek þvi brcfi hans ekkert illa, sagði Einar Agústsson, utan- rikisráðherra i samtali við blaðið I gærkvöidi, en honum hefur borizt bréf frá utanrikisráðherra Hollands . og fráfarandi formanni Efnahagsbandalagsins þess efnis að islcndingar reyndu að styrkja samskipti sin við Efnahagsbandalagið nteð því að brezkir sjómenn fcngju að veiða dálitið hér við land. Annars finnst mér þessi málaleitan algerlega ástæðulaus þvi að viö stöndum i vtöræðum við Efnahagsbandaiagið og það veröur að fara eftir okkar hagsmunum eingöngu i hvað verður ráðizt, sagði Einar ennfremur. Aðspurður kvaö utanrikis- ráðherra engan asa verða viðhafðan tii svars þessa bréfs Hollendingsins. Ekkert gæti gerzt fyrr en Alþingi kæmi saman að nýju. Þessi mynd er úr stjórn- stöð tilkynningarskyldunnar i húsi SVFl við Grandagarð. Sigursveinn Þórðarson, skipstjóri, var á vaktinni, er okkur bar að, og hafði hann augsýnilega ærinn starfa við það eitt að svara fyrir- spurnum manna alls staðar að af landinu um ástvini úti á sjó. önnur upplýsinga- þjónusta er geysilega mikil og hringja ýmsar stofnanir daglega. Tilkynningarskyldan fer þannig fram að strand- stöðvar senda SVFl telex- skeyti um staðsetningar skipanna. Lenda þessar upp- lýsingar siðan inn á spjald- skrá stjórnstöövarinnar og eru þær algjört leyndarmál. Sagði Sigursveinn að þessi boðleið gengi vel, en þó væru vissir hlutar landsins með afar slaka fjarskipta- þjónustu og benti hann sér- staklega á norðaustur-hornið og Breiðafjörð i þvi sambandi. Um þrjú leytið i gær áttu aðeins tvö stór skip eftir að tilkynna sig og kvaðst Sigur- sveinn þvi áhyggjulaus. Mis- brestur vildi frekar verða á þvi, að minni bátar gleymdu sér og væri þeim yfirleitt send aðvörun i útvarpinu kl. 16:15,ef ekkert hefði bólaöá skeytum frá þeim fyrir þann tima. Tilkynningarskyldan á að vera hjó SVFÍ— Sjá Bak 'ÆNGIRr Aætlunarstaðir: Bíldudalur-Blönduóc Búðardalur ' Flateyri-Gjögur-Hólmavík Hvammstangi-Rif-Reykhólar Sigluf jörður-Stykkishólmur Súgandaf jörður Sjúkra- og leiguflug aV, ^ um allt land \ Símar: 3 2-60-60 oq 2-60-66 3. tölublað —Fimmtudagur6. janúar 1977—61. árgangur Verslunin & verkstæðið FLUTT á Smiðjuveg 66 Kóp. (Beint andspænis Olis i ne6ra Breiðholti,-þú skilur?) Síminn er 76600 , LAHDVÉIAR HF.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.