Tíminn - 06.01.1977, Blaðsíða 3

Tíminn - 06.01.1977, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 6. janúar 1977. 3 l-H'lvTlllV. FYRSTUR ERLENDIS krona. Meðalverðið var mjög þokkalegt, eða kr. 142.- pr. kg. Sex- tiu prósent aflans var þorskur, en hitt aðallega karfi og ufsi. Á næstu dögum munu fleiri is- lenzkir togarar selja i Þýzkalandi. Afla úr landað mynd: Róbert. hrotunni fyrir vestan i Reykjavik. — Tima- r Utgerðarfélag Akureyringa: Aflaverðmæti 4 tog ara rúmar 76,9 mi eftir aflahrotuna ó Halamiðunum um r ■ • Og þá fækkar eldri húsum borgarinnar um eitt. 1 gær var byrjað að rifa niður hús- ið í Aðalstræti, sem bruninn varði í á nýársnótt. Telja má vist að einhverjum þyki sjónarsviptir að þvi, en úr þvi sem komið var ekki um margt að ræða, því bruna- rústireru engum augnayndi. • • aramotin gébé Rvik. — Þetta var allt góður fiskur sem togarar ÍJtgerðarfé- lags Akureyringa fékk á Hala- miðunum á dögunum. Það fæst ekki svona gótt verð nema fyrir góðan fisk, sagði Vilhelm Þor- steinsson framkvæmdastjóri tJA I gærkvöldi og bætti við, að hann gæti trúað að þetta væri e.t.v. mesta aflaverðmæti sem togarar hafa landað hér á landi. Heildar- verðmæti þeirra fjögurra togara sem lönduðu á tfmabilinu 2.-5. janúar, var rúmlega 76,9 milljón- ir króna og var meðalverð þeirra allra yfir sjötiu krónur. Ekki kvaðst Vilhelm vilja gefa upp hver hásetahluturinn á skipunum var, og sagði að litið væri að marka að miða við svona ,,topp- túra”, þvi það væri langt frá þvi að gefa rétta hugmynd um með- altölu hásetahlutsins. Hér á eftir fara aflatölur og verðmæti togara OA, en rétt er að geta þess, að öll verðin eru á hinu nýja fiskverði, sem tók gildi um s.l. áramót, en það var rúmlega 9% hærra en gamla verðið. Heild- artölurnar sem upp eru gefnar, miðast allar við skiptaverðið. Sólbakur var i veiðiferð frá 28.12. -2.1 og landaði á Þingeyri 147,7 tonnum, að verðmæti rúm- lega 10,7 millj. kr. og verð pr. kg. var kr. 72.95 Kaldbakur var I sinni veiðiferð á tímabilinu 15.12. -2.1 og landaði á Akureyri 285,6 tonnum, verðmæti rúmar 20,1 millj. kr., verð pr. kg. kr. 70.52. Svalbakur var í veiðiferð frá 21.12.-2.1 og landaði á Húsavik 314,5 tonnum að verðmæti tæpar 22,4 millj, kr. verð pr. kg. kr. 71.&2. Harðbakur var I sinni veiðiferð frá 22.12-2.1 og landaði á Akureyri 324,4 tonnum að verð- mæti rúmar 23,6 millj. kr. meðal- verð pr. kg. kr. 72.81. u „Vonumst til að útboð geti farið fram fljótlega — segir Viggó Maack, skipaverkfræðingur hjó Eimskip HV-ReykjavIk. — Það hefur nú mest litið gerzt i sambandi við útboð þessi hjá okkur. Þaö er svo margt, sem tefur, en hins vegar er búið að fara fram á að fá að gera þetta, og við erum aö vona, að við getum látið útboðið fara fram innan skamms, sagði Viggó Maack, skipaverk- fræðingur hjá Eímskipafélagi tslands, f viðtali við Tlmann I gær. Eins og Timinn skýröi frá fyrir nokkru, hefur verið ákveðið, aö Eimskipafélagið bjóði út smiði á að minnsta kosti fjórum nýjum skipum, hugsan- lega sex, sem búin væru mjög fullkomnum búnaði, meö tilliti til fermingar og affermingar. Skipin verða þannig úr garði gerð, að hægt veröur að aka bif- reiöum út og inn um skut þeirra, beint af eða á bryggju, og sömu- leiöis verður hægt að flytja gáma til og frá borði meö lyft- urum. SCHUTZ KOAAINN TIL STARFA AFTUR Gsal-Reykjavik — Karl Schlitz, vestur-þýzki rannsóknar- lögreglumaðurinn, sem hefur dvalið að undanförnu f jólaleyfi i heimalandi sinu, er nú aftur kominn til starfa við sakadóm Reykjavikur — en sem kunnugt er hefur Schiitz unnið að lausn Geirfinnsmálsins ásamt tiu manna starfshóp lögreglumanna og Erni Höskuldssyni saka- dómara. Karl Schútz kom til landsins í fyrradag og mætti til vinnu sinnar i sakadómi i gærmorgun. Eins og frá hefur verið greint i Timanum, mun SchUtz aðeins hafa hér skamma viðdvöl, enda rannsókn Geirfinnsmálsins á lokastigi. Mun hann að öllum likindum halda heimleiðis i lok þessa mánaðar. 1 samtali við Timann i gær sagði örn Höskuldsson sakadómari, að hann gæti ekkert um það sagt hvenær rannsókn Geirfinns- málsins lyki og málið yrði sent rikissaksóknara. Skipaður héraðsdýra- læknir á Húsavík Hinn 31. desember s.l. skipaði forseti lslands, að tillögu land- búnaðarráðherra, Bárð Guð- mundsson, héraðsdýralækni á tsafirði, i embætti héraðsdýra- læknis á Húsavik frá 1. janúar 1977 að telja. aviðavangi Byggðaþróun — byggðajafnvægi Kristján B. Þórarinsson, ritstjóri Framsóknar- blaðs Kjósar- sýslu, ritar at- hyglisverða grein i blað silt nýlega, sem hann nefnir „Byggðaþróun — byggðajafn- vægi”. í grein sinni segir Kristján B. Þórarinsson m.a.: „Það cr ekki langt siðan Framsóknarmenn voru sak- aðir um pólitiskar veitingar, þegar þeir voru að berjast fyr- ir uppgyggingu atvinnuvega útiurn land og leggja grunn að byggöastcfnunni. Nú „vilja allir Lilju kveðið hafa” þegar séð er og reynt er, hvernig tekizt hcfur aö koma i fram- kvæmd skipulögðu byggðar- starl'i i hinum dreifðu byggð- arlögum landsins. Fyrir ekki meiren rúmum 5 árum var at- vinnuleysiö i flestöllum byggðarlögum utan suðvest- urhornsins slikt, að til stór- vandræöa horföi. Frystihús, skólar og ýmsar stofnanir fcngu enga fyrirgreiðsiu hjá lánastofnunuiium, en af þvi leiddi. aö ekki varð um eöli- lega endurnýjun aö ræða, heldur flaut að feigöarósi, þegar bráðnauðsynlegar framkvæmdir voru látnar af- skipalausar og hrörnuðu og létu eftir vegna elli, eöa þá að ekki var hægt að fylgja eftir sjálfsögðum kröfum um full- nægjandi aðbúnað.” Vörn snúið í sókn Siðar i grein sinni segir Kristján: „Af þessu leiddi, að fólk flæmdist burt úr heimahéruð- um, þangað sem atvinnu var að fá, sums staðar gátu kaup- félögin leyst hluta af vandan- um og er þaö sjálfsagl þeim mikið að þakka, að ekki fór mikið verr en varð vegna þessa fólksflótta, sem hægt hefði verið að aftra ef stjórn- völd hefðu þá liaft skilning á nauðsynlegri byggöajafnvæg- isstefnu. Arið 1971, þegar Framsókn- arflokkurinn komst i stjórn á ný, var þróuninni snúið ræki- lega viö, eða svo rækilega að undrun sætir, úrræðaleysi eymd og vonleysi var snúið upp i stórkostlega byggða- sókn. Sagt var 1971, að gott sumar kæmi með nýju stjórn- inni. en það kom rniklu fleira, sem hefur varpað birtu og yl i lif islendinga. Til dæmis er búið að byggja eða eru i bygg- ingu, ný og fullkomin hafnar- mannvirki, byggð hafa veriö, cöa eru i byggingu, nýjar og fullkomnar heilsugæzlustöðv- ar. Samhliða þessu hafa verið keyptir nýir og fullkomnir skuttogarar, þeim hefur verið dreift viös vegar uin landið, þarsem þeir hafa skapað fólki mikla og örugga atvinnu.” Hrist upp í úreltu dómskerfi Þá segir Kristján cnn frem- ur i grein sinni: „Margt fleira mætti telja, cn þetta er bara brot af þvi, seni hefur verið gert, eða er I framkvæmd, t.d. dómsmál- akerfið, það er veriö að hrista upp i gömlu og úreltu dóms- kerfi, sem viö fengum i arf frá Dönuin. 1974 fékk Frantsókn- arflokkurinn þvi framgengt á Alþ. aö 2% af þjóöartekjun- um rynnu i byggðasjóð. Þaö fé hefur verið notað meðal ann- ars tii að standa straum af byggingu 1000 nýrra leigui- búöa, sem dreiföar eru viðs vegar um landið, eða þar sem þörfin var einna inest. Þetta skeði á þeim rúmu 5 árum, sem liðin eru siðan Frarn- sóknarflokkurinn komst i stjórn 1971 og margt fleira.” a.þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.