Tíminn - 06.01.1977, Side 8

Tíminn - 06.01.1977, Side 8
II li 8 Fimmtudagur 6. janúar 1977. Hrólfur Ingólfsson fyrrv. sveitarstjóri: Gjaldskrá Landssímans er löngu úrelt og ástand símaþjónust- unnar ófullnægjandi á ýmsum sviðum Sjötugur Landssimi tslands var6 sjötugur á þessu ári. Lagning simans var stórvirki á sinum tima og olli byltingu i landinu á mörgum sviðum. Ekki var þó eining um framkvæmdir þessar siöur en svo. M.a. fjölmenntu bændur til Reykjavikur til aö reyna aö hefta framgang máls- ins, en á þeim tima voru bænd- urnir hiö sterka afl i þjóðfélag- inu. En Hannes Hafstein ráöherra var fastur fyrir og lét ekki bifast — og siminn var lagöur. Ég hefi alltaf dáðst aö Hannesi og virt hann fyrir það, hvernig hann tók á simamálinu og leiddi þaö far- sællega i höfn. Það er ekki nóg að hafa sima Enn i dag er deilt um simann, ekki þó um þaö, hvort viö eigum að hafa sima, heldur um ástand hans og simagjöldin. Sú var tiðin, aö gott þótti að hafa handknúinn slma, en tækn- inni hefur fleygt fram og nú er svo komið, aö mikill meirihluti þjóöarinnar hefur sjálfvirkan sima. En ánægjan með sjálfvirka simann er misjöfn. Þaö getur veriö ári erfitt aö ná sambandi gegnum þann sjálfvirka. Maöur getur þurft aö velja númer 10- 15, jafnvel 20 sinnum þegar álagiö er mikiö, þar til sam- band næst, og oft gefst maður hreinlega upp viö að ná sam- bandi. Hér I Mosfellssveitinni, þar sem ég bý, er ástandiö þannig, að oft kemur fyrir, að Brúarlandsstööin „springur”. baö lýsir sér þannig, aö þegar maöur lyftir simaáhaldinu kemur ekki sónn heldur pip, sem merkir, að stööin sé á tali. Stööin er m.ö.o. of litil, enda veit ég ekki hvernig unnt á aö vera að koma fyrir sómasamlegri simstöö og pósthúsi fyrir ca. 2000 manna byggöarlag, i hús- næöi pósts og sima hér i Mos- fellssveit. Og ég dreg i efa, aö þetta sé einsdæmi, þó ég sé mál- inu ekki svo kunnugur, aö ég þoriaöfullyrða neitt þarum. En ég hefi notað sima viöar en hér heima og auk þess talaö viö marga, og flestir hafa sömu söguna að segja um erfiðleika á aö ná sambandi. Siminn viröist m.ö.o. allur hálfsprunginn. Niöurstaðan af þessu er þá aö sjáifsögöu sú, aö ekki er nema hálft gagn af að hafa sjálfvirkan sima, þegar svona erfitt er að ná sambandi. Hvað kostar að hafa sima? Efalaust eru simreikningar fólks mjög misháin. Fasta- gjaldiö er i sjálfu sér ekki hátt eöa kr. 11.600 á ári + sölu- skattur kr. 2.320, sem ekki rennur til Landssimans. En fastagjaldiö er aðeins fyrir ákveöna notkun og þaö sem framyfir er veröur aö greiðast aukalega. Og þaö er þessi liður, sem er helmingi þjóöarinnar mjög dýr, en ég skipti simnot- endum i tvo hópa og mun rök- styöja þaö nánar. Réttara væri þó aö bæta þriöja flokknum viö, sem liklega nýtur lökustu kjara, en þaö eru þeir sem hafa sveita- sima frá sjálfvirkri stöö. Gjaldskrá simans mun upp- haflega og að einhverju leyti enn hafa byggst á fjarlægðum, en nánar verður vikið aö þvi siðar. Svæði 91 er lang ódýrast Þaö er liklega af tækni- ástæöum, að simanum er skipaö i svæði sem merkt eru 91-99. Svæði 91 nær yfir Hafnarfjörö, Garöabæ, Kópavog, Reykjavik, Seltjarnarnes og 3 af 4 hreppum Kjósarsýslu, en á þessu svæöi býr fullur helmingur þjóöar- innar. Auk þess er á þessu svæöi margt, sem öll þjóðin þarf aö hafa meiri og minni samskipti við. Þar er yfirstjórn rikisins og öll ráðuneytin og ég held hver einasta rikisstofnun, höfuð- stöövar allra bankanna, svo til öll inn- og útflutningsfyrirtækin og svona mætti lengi telja. Viö alla þessa aðila og efalaust marga fleiri þarf fólk á svæöum 92-99 aö hafa meiri og minni samskipti. Aöur er sjálfvirki siminn kom til sögunnar voru langlinusam- töl reiknuö i viötalsbilum, sem voru 3 minútur og var verö viö- talsbilanna verðlagt eftir vega- lengdinni milli staöanna. Þessar 3 minútur hafa sennilega veriö ákveðnar sem einhvers konar meöaltal af stystu sam- tölum. Nú er simanotkun mæld i skrefum, sem hvert og eitt kostar 9 kr. meö söluskatti, en eru mislöng, eftir þvi — já, eftir hverju, ég skil þaö ekki til fulls, en að einhverju leyti fer það eftir vegalengdum eins og upp- haflega var. Samkvæmt þessu skrefakerfi geta nær allir á svæöi 91 talaö viö framangreinda aöila i Reykjavik i heilan dág, ef þeir hafa tima og nenna þvi, en aörir ekki nema 6 — sex — sekúndur. Og svo koma að sjálfsögöu ýmis milliskref. Og þaö er einmitt þarna, sem hundurinn liggur grafinn. Allir á svæði 91, aö undanskilinni Mosfellssveitinni og Kjalarnes- inu, geta talað sin á milli — og þeir eru 114-116 þúsund — og viö alla aðila og stofnanir i þjóöfé- laginu fyrir 9 krónur hvert sim- tal. Þegar kemur á hin svæöin verður annaö uppi á teningnum. Tökum t.d. simanotanda á Isa- firði, Akureyri, Vopnafiröi eða Seyðisfirði, sem þarf nauösyn- lega að hringja i stofnun eöa fyrirtæki og reiknum með meðai „viðtalsbili” eöa 3 minútum. Þá kostar simtalið þennan aðila ekki 9 kr. heldur 270 krónur. Ef við hér i Mos- fellssveit þurfum að hringja niður I Arbæjarhverfi kostar það 27 kr. viðtalsbilið. Fyrir Sandgerðing kostar það 135 kr. og fyrir Vestmannaeying 162 kr. Ekki er fallegra um að litast á ýmsum öörum sviðum gjald- skrárinnar. T.d. kostar „við- talsbilið” milli Sandgeröis og Keflavikur 27 kr„ milli bórs- hafnar og Raufarhafnar 162 kr., Akraness og Borgarness 135 kr„ Hellu og Hvolsvallar 36 kr„ Patreksfjarðar og Tálkna- fjarðar 54 kr„ Selfoss og Hvera- geröis 36 kr., Akureyrar og Dal- vikur 135 kr., og Seyöisfjaröar og Reyöarfjarðar 135 kr. Þessidæmi eru tekin af handa- hófi úr gjaldskrá á bls. 8 og 9 I gildandi simaskrá og varla hafa gjöldin lækkaö siöan hún kom út. Sjálfsagt má finna margt fleira fróðlegt i gjaldskrá Landssima Islands, sem aö verulegu leyti virðist byggö á sama grundvelli og fyrir 70 árum, þó sjálfsagt meÖ æöi mörgum frávikum, sem kunna aö hafa skekkt hana eitthvað á hinum sjötuga grunni. I byrjun aldarinnar var tsland aö mestu leyti bændaþjóðfélag. Aðeins fáir voru meö nokkurn rekstur. Simanotkun hefur ekki verið mikil fyrstu árin eöa jafn- vel áratugina. I dag er þetta gjörbreytt, siminn er orðinn al- menningseign og eiginlega hverjum manni nauðsynlegur eins og nú háttar i þjóðfélaginu. Hér er þörf úrbóta Eins og sést af framan- greindum dæmum, hlýtur að vera mikill mismunur á sima- kostnaöi landsmanna eftir bú- setu. Að visu eru færri skref innifalin i fastagjaldinu á svæöi 01, en það gerir hvergi nærri aö vega upp á nóti hinum háu gjöldum annarra svæða. I þessu sambandi vil ég taka það skýrt fram, að meö þvi sem ég segi i greinarkorni þessu, er ég ekki á nokkurn hátt aö ásaka simnotendur á svæði 91. Þeir setja ekki gjaldskrá simans, heldur borga þaö sem upp er sett eins og aðrir. Hins vegar held ég að fáum dyljist, aö þörf sé á að endurskoða gjaldskrá Landssimans. Hvaö er hægt að gera? I fyrsta lagi þarf að umbylta gjaldskrá Landssimans og endurskipuleggja hana frá grunni. Veröi þá stefnt að þvi, að simagjöld komi sem jafnast niður á landsmönnum, en ekki veröi 30 sinnum dýrar fyrir fólk i dreifbýlinu að reka erindi sim- leiðis i Reykjavik en t.d. fyrir Hafnfirðinga. Veröi gjöld dreifbýlisins lækkuö til muna, er hætt viö, að tekjur Landssimans lækki um of og hann verði enn siður fær um það en nú, að rækja þjónustu- hlutverk sitt, en þaö má ekki ske. Til aö fyrirbyggja of mikla tekjurýrnun af þessum sökum, finnst mér aö ætti aö setja „þak” á skrefin á svæöi 91, þannig aö þau yröu t.d. 3 eöa 5 Hrólfur Ingólfsson eða 10 minútur, en ekki ótak- mörkuð eins og nú er. Þetta myndi ábyggilega hækka tekj- urnar verulega. Háttvirtir alþingismenn A liðnum árum hafa ýmsir ágætir alþingismenn unniö að leiöréttingu þessara mála, bæöi utan þings og innan, en árangur oröið lítill sem enginn. Astæö- una tel ég vera þá, aö málið hefur verið lagt fyrir Alþingi vegna óska og hagsmuna eins ákveöins byggöarlags eöa tak- markaðs svæöis. Þá hefur risiö upp fjöldi þingmánna og lýst þvi yfir, aö lika þyrfti lagfæringar við á þessum stað og hinum lika. Að lokum hafa staðirnir verið orönir svo margir, sem ég rengi ekki, aö ekkert hefur orðið úr neinu. En þetta getur ekki gengið svona lengur. Það þarf aö taka fast i taumana, ekki meö þvi aö reyna að ota fram hagsmunum eins byggðarlags eða landshluta umfram annan (þó ég þægi aö simareikningurinn minn væri lægri) heldur, eins og ég hefi drepið á, meö þvi að stokka gjaldskrána og þjónustu Lands- simans yfirleitt, upp frá rótum. Og það á að vera hlutverk Al- þingis. Vil ég beina þvi til hátt- virtra alþingismanna — a.m.k. þeirra, sem sitja á þingi fyrir dreifbýliskjördæmi, að sam- þykkja nú á þessu þingi þings- ályktunartillögu, sem leiði til þess að svo veröi gert. Trúi ég þvi ekki að óreyndu, að flutn- ingsmenn vanti. Þessi endurskoðun verður aö framkvæmast af sérfróðum mönnum fyrst og fremst þó ég telji ekki heppilegt, aö starfs- menn Landssimans veröi þar i meirihluta. En fyrir alla muni reynið þið að halda málinu utan við pólit- íkina, bæði flokkspólitik og hreppapólitik. Tóbaksauglýsingar í sjónvarpi Eru ekki i gildi hér á landi lög um bann við tóbaksauglýs- ingum? Ég veit ekki betur en svo sé. Þó ber ég þessa spurningu fram, og er það vegna þess aö svo er að sjá, að stjórnendur sjónvarpsins viti þaö ekki, — eöa láti sem þeir viti þaö ekki. Astæöan til þess, að ég tek svo til oröa, er sú, aö á sjón- varpsskjánum hafa aö undan- förnu birzt tvær auglýsingar þar sem tóbaksreykingar eru snar þáttur i auglýsingunum. Þessar auglýsingar eru frá Happdrætti háskólans og H/F Myndiðjunni Astþóri. Sú siöarnefnda byrjar meö þvi, aö glaðhlakkalegur maöur réttir hálfreyktan vindil að sjónvarpsáhorfendum um leiö og hann blæs frá sér reykjar- stróki. Þetta tel ég hneyksli og alveg ósamboöiö sjónvarpinu aö taka svona'áuglýsingar til birtingar, — stofnun, sem á aö heita menningartæki, og sem aö sjálfsögöu er þaö aö ýmsu leyti. Ósjálfrátt vaknar hjá manni sú spurning, hvort erlendir tóbaksframleiöendur leggi ekki fé i framannefnda aug- lýsingu, og e.t.v. fleiri rdikar. Annað eins hefur gerzt bæöi i sambandi viö tóbak og önnur eiturefni. Þessi sama — eða svipuö — auglýsing frá áöurnefndu fyrirtæki var margsýnd i sjón- varpinu um áramótin 1975- 1976. Af sérstökum ástæöum varö ekkert af þvi, að ég fyndi aö þessu þá, en nú get ég ekki þagaö. Um auglýsingar frá Happ- drætti háskólans er svipaða sögu aö segja, og þá er ég hefi lýst hér á undan, þó ber minna á vindlinum nú um þessi ára- mót heldur en áramótin 1975- 1976, en þá var beinlinis beöið um aö kveikt yröi i vindlinum. Auk þess voru þá fengnir (fyrir kaup?) þrir sómamenn til þess að vera með skrípalæti fyrir framan áhorfendur sjónvarpsins. Mér finnst, aö Happdrætti háskólans sé svo nátengt æðstu menntastofnun þjóöar- innar,aðþaðættiaö vera fyrir neðan virðingu þess að bjóöa fólki þetta. Eöa finnst ykkur þaö ekki góöir háskólaborgar- ar, ef þið hugsiö máliö vel? Eöa er með þessu móti aðeins veriö að höfða til okkar al- múgamannanna? Þessar auglýsingar minna alitof mikiö á bandariskar skrumauglýsingar til þess aö þær örvi fólk til aö kaupa happdrættismiöana, ef það hefur ekki ætlaö sérþaðáður. Ég vil þvi i fullri vinsemd benda á, hvort það myndi ekki verka betur aö auglýsa þann- ig, aö tvö smekklega klædd ungmenni væru sýnd á sjónvarpsmyndinni meö eftir- farandi texta: „Vilt þú ekki styöja Háskóla tslands?” En svo að ég viki aftur aö hlut sjónvarpsins í útsendingu áöurnefndra auglýsinga, þá tel ég, að þaö beri a.m.k. helminginn af ábyrgöinni á þvi, aö þær eru sendar út. Þaö væri yfirklór aö skjóta sér á bak við þaö, aö leyfilegt sé aö auglýsa tóbak innan dyra, þótt i fljótu bragði sýnist, aö þaö væri hægt. Siöustu orö mín um þetta skulu þvi verða þau, að biöja forráðamenn sjónvarpsins að hætta útsendingum á þeim auglýsingum þar sem á ein- hvern hátt er höföaö til tóbaksnotkunar, þvi nú er, sem betur fer, hafin - barátta gegn tóbaki og öörum eitur- efnum, og þaö má ekkert gera, sem dregur úr þvi, aö sú bar- átta beri árangur. í þvi efni ætti þaö aö vera skylda sjónvarpsins og Há- skóla Islands aö vera þarna i fararbroddi. Sigurjón Valdimarsson Heimilis ánægjan eykst með Tímanum -

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.