Tíminn - 01.02.1977, Blaðsíða 17

Tíminn - 01.02.1977, Blaðsíða 17
Þribjudagur 1. febrúar 1977 17 Kristbjörg Jóhannsdóttir Fædd 23. júii 1897 Dáin 13. desember 1976. Kristbjörg Stefania Jóhanns- dóttir andaöist á sjúkrahúsinu á Húsavik 13. desember s.l. á 80. aldursári, og var jarðsett frá Raufarhafnarkirkju 18. s.m. Kristbjörg var fædd að Núpi i öxarfirði, dóttir hjónanna Mar- grétar Vigfúsdóttur frá NUpi og Jóhanns Baldvinssonar frá Þjófs- stöðum i Núpasveit. Fyrstu barnsárin bjuggu foreldrar henn- ar á Núpi, en fluttu um aldamót að Rifi á Sléttu, þar sem þau bjuggu sæmdarbúi eftir það alla sina búskapartið, og var Jóhann þar vitavörður. Systkini Krist- bjargar voru Björgvin, Utgeröar- maður á Raufarhöfn, látinn fyrir allmörgum árum, og Ingibjörg- húsfreyja á Rifi, nú búsett á Raufarhöfn. Ung aö árum kynnt- ist Kristbjörg manni slnum, AgUsti Magnússyni, Einarssonar, Steinsstöðum við Smiöjustig i Reykjavik, en þau voru þá bæði við nám i kvöldskóla Asgrims Magnússonar á Bergstaðastig i Reykjavik. Þau giftust 1917 og hófu þá búsetu á Raufarhöfn, þar sem Agústrak verzlun i tvö ár, en veitti siðan forstöðu um 9 ára skeiö útibúi Kaupfélags Norður- Þingeyinga á Raufarhöfn til 1927. Um árabil var AgUst hafnsögu- maður á Raufarhöfn og áhalda- og „lagerstjóri” hjá Sildarverk- smiðjum rikisins þar á staðnum. En gerðist uppúr 1950 aftur verzlunarmaður hjá útibúi K.N.Þ. á Raufarhöfn og siðar Kaupfélagi Raufarhafnar og var þarsiðustu 15starfsár ævi sinnar. Hann lézt haustið 1970. Þeim hjónum var 8 barna auðið, i aldursröð: Jóhann Magnús, Ivar, Baldvin, Karl, Geir, Guðný, Hilmar og Gunnar. Ivar lézt frá þremur ungum börnum i blöma lifsins, og tóku þá afi og amma tvö þeirra í fóstur og uppeldi, Ivar og Eyrúnu önnu, en 17 ára gamall fórst Ivar yngri, bráðefnilegur piltur, af raflosti. Þeir einir, sem reynt hafa, vita hvað slikur ást- vinamissir veldur þungum trega. Niðjar þeirra eru nú 50 talsins. Agúst og Kristbjörg byggðu litið timburhús, Sæból á Raufarhöfn, og þar komu þau upp öllum sinum barnaskara. Nútimafólk skilur ekki, hvernig var hægt að veita svo mörgum lifsbjörg viö þeirra tima aöstæður, en reynslan sýnir, að það var fært, þegar allir stóðu saman. Ég kynntist fyrst persónulega tengdaforeldrum minum, erég og kona min, Guðný, dvöldum hjá þeim sumarlangt 1950. Auk okkar voruþá á heimili þeirra tvö börn Ivars og þrir bræður Guðnýjar útivinnandi heima auk tilfallandi gesta. Frá þvi ári áttum við að jafnaði þar einhverja sumardvöl, um ára skeið, með vaxandi dætrahóp. Aldrei varð ég þess var, að húseigendum þætti að sér þrengt, og ekki var þar gert upp á Ágúst Magnússon og Kristbjörg Jóhannsdóttir. milli manna. Mig undraði þá og oft siöar, hvað samstaöa fjöl- skyldunnar i Sæbóli var traust og sfflin. Vinnutimi tengdamömmu var þá sem jafnan áður og siðar, langur. Venjulegur vinnudagur entist varla til nauðsynlegra starfa, og önnur störf, sem ekki voru beint viðkomandi matseld og húshaldi, stóðu oft frameftir nóttu. Þótt hún væri önnum kafin, var jafnan timi aflögu fyrir ömmubörnin, og ekki amaðist Ágúst afi við þeim heldur. Kristbjörg var diki gefin fyrir aö dveljast utan heimilis, enda þar alltaf nóg að gera. Þó gaf hún sér tima til að vera til staðar, þegar tvær elztu dætur okkar voru bornar i heiminn, önnur austur á Héraði, hin vestur i Skagafiröi. 1 báðum tilfellum voru samgönguerfiðleikar aö vetrarlagi. En það leit út fyrir, aö það væri jafn sjálfsagt og að skreppa i sild, bjarta sumarnótt. Hún var listræn til handanna svo af bar, enda oft fengin til aö leiö- beina á þvi sviöi. Og ekki eru auö- taldar þær flikur sem hún hefur sniðið og saumaö fyrir sig og aðra, eða leiöbeint með um dag- ana. Fram undir fermingaraldur fengu dætur minar, fjórar, jóla- kjólana frá ömmu. Arlega af nýrri gerð og úr breytilegum efn- um. „Módel” kjólar, sem pössuðu svo vel, aö engan gat grunaö ann- að en þær hefðu staðið við hné ömmu sinnar þar til siðasta pifa eða tala var fest. Hvernig slikt sjónminni starfar get ég ekki út- skýrt, þvi aldrei varð ég var við, að hún tæki mál af telpunum, þó að hún sæi þær um tima aö sumri til mörg árin. Ég gat þess áður, að samstaða fjölskyldunnar á Sæ- bóli var tengd sterkum böndum. Strax og ég, eini tengdasonurinn, var kominn i fjölskylduna fannst tengdamömmu ekki hlýða, að ég ætti samastað á Raufarhöfn, ann- ars staöar en i hennar húsum og hélzt svo fram til hinztu stundar. Breytti þar engu, hvort ég var einn á ferð eða meö fjölskyldu, og að ég átti á Raufarhöfn nákomið frændfólk i mörgum húsum og systur búsettar á staðnum. Mörg undanfarin ár átti Kristbjörg viö slitsjúkdóma aö striða. Haustið 1975 varð hún fyrir sjúkdóms- áfalli, sem skerti mjög minni hennar á köflum. Við vorum þeirrar ánægju aönjótandi að hafa hana á okkar heimili siðast-> liðinn vetur. Það var þægilegt að koma heim aðdagsverki loknu og njóta þeirr- ar kyrröar og góðu áhrifa, sem stöfuðu af návist hennar. En hug- ur hennar var þá jafnan bundinn við norðurslóðir, Rif og Raufar- höfn, og þar vildi hún eiga hinztu stundir. Henni, sem hafði helgað alltsittlif velferö fjölskyldunnar, fannst óbærilegt aö vera upp á sina komin, og þráði að komast i sjálfsumsjón á Raufarhöfn. Og haföi viö orð að gamalt fólk, sem væri orðið það lélegt, að geta ekki ferðazt upp á eigin spýtur, ætti aö hafa vit á að halda sig heima. Þótt minni hennar væri stopult á stundum, þá brást þaö aldrei, hvaö þaö varöaði, að prýði heimilis skal vera til sóma. Á siöasta sumri smádvinaði lifsneistinn. Hún andaöist á sama sjúkrahúsi og Agúst maður henn- ar 6 árum áður, og var jarðsett i fögru veðri á Raufarhöfn. Tengdamanna haföi við orð, að um sig látna væri ekkert aö segja, nema að hún væri fædd aö Núpi, ólst upp á Rifi og bjó á Raufar- höfn. Þaö getur satt veriö, Núpur er eitt fegursta bæjarstæði I einni grösugustu sveit á Islandi, brim- niður og kraftur úthafsöldunnar viö Rifstanga er ógleymanlegt, sólbjartar og kyrrar sumarnætur á Raufarhöfn gefa stund til að hugsa. Við slikar aöstæöur hljóta menn að ná þroska. Með þessum linum vil ég flytja, þó i litlu sé, þakklæti mitt og fjöl- skyldu fyrir það, sem okkur var veitt. Og persónulega vil ég þakka það, sem ég hef af tengda- foreldrum minum lært. Blessuð sé minning þeirra. Arni G. Pétursson. Sigurður Jónsson Fæddur 29. mai 1903 Dáinn 16. janúar 1977 25. janúar s.l. var Sigurður Jónsson, húsasmiðameistari, Bergstaðarstræti 55 til moldar borinn. En hann lézt 16. janúar þessa mánaðar. Sigurður haföi mjög lengi átt við mikla van- heilsu að striða og má segja að hann hafi verið alls óvinnufær siðustu 10 ár ævi sinnar, þótt vilj- inn væri fyrir hendi. Sigurður fæddist á Bjarnastöð- um, tsafiröi við Isafjarðardjúp 29. mai 1903. Foreldrar hans voru Jón Sigurðsson bóndi á Bjarna- stöðum og kona hans, Guðrún Þorsteinsdóttir fædd i Bjarnar- eyjum á Breiðafiröi. Þau eignuð- ust alls sjö börn, en nú eru þau Jóna Kristjana, kennslukona og Gunnar, húsvörður i Verzlunar- skóla Islands á lifi. Guörúnmóðir Siguröar dó nokkrum dögum eftir fæöingu Gunnars bróður Sigurð- ar. Þá var Sigurður aöeins tveggja ára gamall. Þar sem öll börnin voru á unga aldri, þá hafði Jón faðir þeirra enga möguleika á að halda fjölsk. saman. Börn- in dreiföust á þau sveitaheimili I nærliggjandi héruöum, sem gátu tekið við þeim. Reyni maður að setja sig i spor fjölskyldna sem svo stóð á fyrir, þá kemur strax upp I hugann hvilikt áfall andlát annars foreldris hefur oft verið ' fyrir fjölskyldur þeirra tima. Hjónin Sigurbergur Magnússon og Elin Þórunn Dósóteusardóttir Sveinshúsum i Vatnsfirði, tóku Sigurð i fóstur, en þau hjón voru barnlaus. Þau reyndust Sigurði Helga Hannesdóttir fyrrverandi húsfreyja að Dvergsstöðum i Eyjafirði F. 20. ianúar 1892 D. 7. janúar 1976 Helga fæddist að Syðri-Ey i Vindhælishreppi á Skaga. For- eldrar hennar voru hjónin Hannes Magnússon og Sigriöur Jónas- dóttir. Þau hjón eignuðust aðra dótturauk Helgu, Ragnheiði, sem lengi starfaði i verzlun Gefjunar i Reykjavik, en hún lézt árið 1973. Frá Syðri-Ey fluttist fjölskylda Helgu að Árbakka við Skaga- strönd. Þetta voru hennar bemskuslóðir, sem ávallt siðan voru henni kærar i minningunni. Helga bar gæfu til þess a ö nem a við Kvennaskólann á Blönduósi og bæta þannig ýmsu við þá menntun, er hún þegar hafði ööl- azt i heimahúsum. Vorið 1913 verða þau þáttaskil i lifi Helgu, aö hún réöst sem kaupakona að Reykhúsum i Eyjafirði til hjónanna Hallgrims Kristinssonar og Mariu Jónsdótt- ur. Auk þess að stunda búskap i Reykhúsum, var Hallgrrimur á þessum tima kaupfélagsstjóri Kaupfélags Eyfiröinga og raunar einn aðalforystumaður sam- vinnuhreyfingarinnar á tslandi, sem leiddi til þess, að 1917 varð hann fyrsti forstjóri Sambands íslenzkra samvinnufélaga. Arið 1906 hafði Hallgrimur ráö- ið til sin sem ráösmann, Indriöa Helgason, ættaðan úr Eyjafirði og gegndi hann þvi starfi allt til ársins 1917. I Reykhúsum lágu þvi saman leiðir þeirra Helgu og Indriða. Felldu þau hugi saman og giftust 5. febrúar árið 1915. óhætt er að segja, aö þeim, sem Indriöa þekktu, ber saman um, að hann var vikingur til verka og hinn bezti drengur. Ætiö var mikil vin- átta og gagnkvæmt traust milli þeirra Reykhúsahjóna, Hall- grims og Mariu, annars vegar og og Helgu og Indriöa hins vegar. Oll sin búskaparár bjuggu þau Helga og Indriði i Eyjafirði. Fyrstu tvö árin voru þau i Reyk- húsum, en fluttu þaöan að Espi- hóli og bjuggu þar i tvibýli viö eigendur jarðarinnar, Guðnýju, systur Indriða og mann hennar Jósep Helgason, til ársins 1921. Þáfestaþau kaupá jörðinni Botni og búa þar til ársins 1931, er þau fluttust að Dvergsstöðum, og þar búa þau svo þar til Indriði lézt árið 1939, sjötugur aö aldri. Þeim Helgu og Indriða varð sex barna auðið, sem öll eru á lifi. Þau eru Maria, Þorbjörn, Jóhann og Sigurlaug, sem búsett eru I Reykjavik, Hallgrimur, sem búsetturer I Kristnesi iEyjafiröi, og Páll, sem búsettur er á Akra- nesi. Aður en Helga giftist átti hún soninn Ara Björnsson, sem búsettur var á Akureyri, en hann lézt áriö 1965. I stuttu máli má um búskapar- sögu Helgu og Indriða segja, aö hún var spegilmynd af lifi flestra annarra bændafjölskyldna i land- inu á þessum árum, þegar skuggi kreppunnar grúfði yfir, og ekki er beinlinis hægt aö segja, aö björgulegt hafi þá verið að hefja búskap, en meö itrustu hagsýni, vinnusemi og elju tókst þeim aö sjá fjölskyldu sinni farborða, og búnaðist þeim þvi sæmilega á þeirrar tiðar mælikvarða. Þótt oftast yrði að leggja svo aö segja nótt við dag viö búskap og heimilisstörf, fann Helga tima af- lögu til félagsstarfa, og var hún meðal stofnenda kvenfélagsins Iöunnar i Hrafnagilshreppi og fyrsti formaður þess félags. Eftir lát Indriöa starfaði Helga m.a. á Kristneshæli og Heklu á Akureyri. Um tima bjó hún hjá- Hallgrimi syni sinum og i Reykjavik, en siöustu æviárin dvaldist hún á Kristneshæli. Ég átti þvi láni að fagna að búa i næsta nágrenni við þessa ömmu mina nokkur af hennar siðustu æviárum. Samveru- og viðræðu- stundir okkar urðu þvi miður of fáar, en alltaf varö ég fróðleik og skemmtan rikari eftir hverja heimsókn til hennar. Þeir eigin- leikar ömmu minnar, sem mér eru hvað minnisstæöastir og raunar tengdust þessum heim- sóknum, voru frásagnarhæfileik- ar hennar og frásagnargleði. Henni lét einkar vel aö segja frá liönum tima, fólki og fyrirbærum, og fundvis var hún á hinar gamansömu hliðar mannlifsins i frásögnum sinum. Alls ekki var þó hægt aö segja, aö hún liföi ein- göngu Ifortiðinni.þvihún fylgdist ætiö vel með þvi, sem var að ger- ast á liöandi stundu. Einn eigin- leiki hennar, sem ég minnist einnig mjög vel, var, hversu auö- veldlega hún gladdist af litlu og gott var að gera henni til hæfis, t.d. með þvi aö ljá henni lesefni, en lestur var eitt hennar mesta yndi, einkum ef um var að ræða þjóölegan fróðleik, ævisögur og dulræn fyrirbæri. Ég minnist ömmu minnar j)ó ef til vill bezt sem einnar af þessum mörgu hetjum hversdagslifsins, er eyddu sinum manndómsárum við kröpp kjör, konu, sem ekki mátti aumt sjá, konu hógværðar, sem þó gat vel látið i ljós ákveðn- ar skoöanir sinar tæpitungulaust, konu einlægrar trúar og ekki sizt konu, sem naut þess að gleðja vini sina og vandamenn og liðsinna þeim. Indriði Hallgrimsson eins og þau væru hans eigin for- eldrar meðan þeirra naut við. Fóstri Sigurðar, eins og hann gjarnan nefndi hann, var lærður trésmiður og bátasmiður. Sigurð- ur byrjaði þess vegna ungur aö hjálpa fóstra sinum og hóf i raun og veru sitt trésmiöanám hjá honum. Sigurður var siöan tvo vetur i Núpsskóla, Dýrafirði, en rúmlega tvitugur hélt hann siöan til Reykjavikur og hélt þar á- fram námi sinu I trésmiði hjá Arna E. Rasmussyni, húsasmiða- meistara. Hjá honum var hann þegar hann lauk sinu sveinsprófi. Eftir að Sigurður varð húsa- smiðameistari, byggði hann nokkur hús hér i Reykjavik á kreppuárunum I félagi við kunn- ingja sinn. Siðan vann hann viða sem trésmiður meöan heilsan leyfði. Einnig haföi hann alltaf sitt eigið trésmiðaverkstæði, þar sem hann vann mest seinni ár ævi sinnar að undanskildum 3-4 árum, en þá rak hann verzlun á- samt konu sinni. Ég kynntist Sigurði tengdaföð- ur minum fyrir um þaö bil þrett- án árum siðan. Ég fann strax, að hann var einstaklega góður faðir, mjög barngóður og traustur. Sig- urður var mjög hófsamur i allri umgengni og ávallt vinsamlegur i öllu viömóti, en var frekar litiö fyrir margmenni. Hann var frek- ar seintekinn, en mjög góður vin- ur vina sinna. Sigurður haföi frá mörgu að segja og sagði mér meöal annars oft frá uppvaxtar- árum sinum við tsafjarðardjúp. Hann minntist m.a. oft á lognið i Isafirðinum, innsta firöinum viö Djúpið. Lognið er einmitt eitt af þvi sem gerir marga Vestfirði svo heillandi. Sigurður kvæntist Jóninu Mar- gréti Jónsdóttur frá Þóroddsstöð- um I ölfusi þann 8. júni 1940. Þá hófst nýtt tímabil i ævi þeirra beggja, sem átti eftir að færa þeim mikla gæfu. Attu þau gott heimili og voru góð heim að sækja. Þau eignuöust tvær dætur auk þess sem Jónina Margrét átti eina dóttur áður en Framhald á bls. 23

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.