Tíminn - 01.02.1977, Blaðsíða 20
20
mmm
Þriftjudagur X. febrúar 1977
57.422 þúsund áhorfendur á Old Trafford sáu...
Lou Macari skora
sigurmark United
|— gegn Lundúnaliðinu Queens Park Rangers
★ Port Vale og Chester komu á óvart í ensku
bikarkeppninni
Langflestir áhorfendur á leikj-
um laugardagsins voru vitaskuld
á Old Trafford i Manchester, eöa
57.422, og sáu þeir heimaliöiö
vinna nauman sigur á Q.P.R., 1-0.
Markiö kom þegar á 16.
minútu, þegar Mcllroy átti
þrumuskot aö marki, sem Parkes
gat aöeins slegiö frá, en þá kom
Macari aövifandi og skallaöi
knöttinn inn. Eftir markiö sótti
Q.P.R. mikiö og Leach og Eastoe
áttu báöir góö færi, sem fóru I
súginn. 1 seinni hálfleik var þaö
aftur á móti United, sem hrein-
lega átti leikinn og hvaö eftir
annaö lék Gordon Hill á Shanks
bakvörö Q.P.R. og gaf góöar
sendingar fyrir markiö. En fram-
Gordon
til
Everton
Everton hefur nú ráöiö sér
nýjan framkvæmdastjóra.
Hann er Gordon Lee, sem hef-
ur veriö maöurinn aö baki vel-
gengni Newcastle aö undan-
fiirnu. Brian Glough haföi
lengi veriö bendlaöur viö
Everton, en hann hefur lýst
þvi yfir, aö hann ætli sér aö
taka Nottingham upp i 1.
deild, og þess vegna hafnaöi
hann boöi Everton. Gordon
Lee var samningsbundinn
Newcastle, en taliö cr, aö hann
muni fá helmingi hærri laun
hjá Everton en hann fékk hjá
Newcastle.
Ó.O.
herjar Manchester voru ekki i
essinu sinu i þessum leik, þannig
aö sigur þeirra var naumur, en
veröskuldaöur.
1 þessari umferö féll út siöasta
utandeildarliöið, Northwich Vic-
toria. Liðið lék viö Oldham á
Maine Road I Manchester aö viö-
stöddum 28.635 áhorfendum. Old-
ham var allan timann sterkari
áöilinn og mörk frá Halom (2) og
Valentine geröu út um vonir Nor-
thwich um áframhaldandi
keppni. Rétt fyrir leikslok tökst
Collier aö skora fyrir Northwich
og rétta þannig aðeins hlut liös-
ins.
Það sem mest kom á óvart i
þessari umferö voru sigrar
tveggja þriðju deildar liöa yfir
liöum úr annarri deild. Port Vale
vann veröskuldaðan sigur yfir
Burnley á heimavelli sinum Vale
Park. Mörk þeirra geröu Tartt og
Brownbill, en mark Burnley kom
úr vitaspyrnu á siöustu mfnútu
leiksins — Flynn skoraöi. Chester
vann 1-0 sigur á Luton meö siö-
asta sparkinu i leiknum, er liðin
mættust á The Stadium i Chester.
Edwards skoraöi markiö, og tæp-
lega 11.000 áhorfendur fóru heim
glaöir I bragöi.
Eins og búizt var viö vann
Liverpool auöveldan sigur á Car-
lisle á Anfield. Toshack var nú
aftur með Liverpool og breytti
það mjög leik liösins til batnaöar.
Keegan og Toshack skoruðu fyrir
Liverpool i fyrri hálfleik, og
Heighway bætti við þriöja mark-
inu f seinni hálfleik. Ahorfendur
voru 45.358.
Colchester náöi jafntefli á móti
Derby á síðustu minútu, þegar
liöin mættust á Layer Road I Col-
chester. Hales náði forystunni
fyrir Derby á 23. minútu eftir
sendingu frá James. Þaö var svo
búið aö leika tæplega fimm
minútur af þeim tima, sem
dómarinn bættivið vegna meiösla
og tafa, þegar Colin Garwood
skoraði fyrir Colchester. 14.030
áhorfendur voru á þessum leik og
voru þeir mjög ánægðir meö leik
Framhald á bls. 23
SIGUR ARSENAL TRYGGÐ-
UR...Trevor Ross og David
O’Leary, tveir af ungu
strákunum hjá Arsenal, sjást
hér fagna siöari marki „Sup-
er-Mac”.
ARSENAL KOMIÐ
f BIKARHAM...
Það voru þeir Malcolm Macdonaldog Frank Stapleton,
sem sáu um það, að Coventry spilar ekki meira í bikar-
keppninni á þessu ári. Super-Mac skoraði tvisvar í leikn-
um og átti auk þess f jöldann allan af tækifærum, sem
hann misnotaði. Stapleton, bezti maður vallarins, skor-
aði sitt fyrsta mark á sjö vikum, og var maðurinn á bak
við auðveldan sigur Arsenal.
En þaö veröur aö geta þess hér,
aö Coventry lék án þriggja af sin-
um beztu mönnum, Yorath, Wall-
ace og Ferguson voru allir
meiddir, Stapleton tók forystuna
fyrir Arsenal á 24. minútu, þegar
„Skemmtilegasti
leikur ársins...
hann skallaöi inn sendingu frá
Nelson. Á 40. mlnútu stökk hann
aftur hærra en vörn Coventry og
skaliaöi knöttinn fyrir fætur Mac-
donalds, sem þurfti aöeins aö
pota boltanum inn. Staöan i hálf-
leik var þannig 2-0 Arsenal I vil.
En á 56. minútu fékk Coventry
sitt eina tækifæri I ieiknum og
skoruöu þeir úr þvi. Bobby Mc-
Donald sendi góöa sendingu fyrir
markiö, og Tommy Hutchison
skallaöi knöttinn inn. En siöan tók
Arsenal leikinn aftur i sinar hend-
vann auðveldan
sigur (3:1) yfir
Coventry á
Highbury
ur og 20 minútum sföar skallaöi
Hudson knöttinn fyrir fætur Mac-
donald eftir hornspyrnu frá
Brady. Eins og í fyrra skiptiö
þurfti Macdonald aöeins aö ýta
knettinum inn.
Arsenal er nú eina liöiö frá
London, sem er eftir i bikarnum,
en ef þeir halda áfram aö spila
knattspyrnu eins og þeir sýndu á
laugardaginn, gæti svo fariö aö
þaö veröi Lundúnaliö, sem hamp-
ar bikarnum á Wembley i mai
n.k.
Ó.O.
— á Pottman Road", sagði Bobby Robson
framkvæmdastjóri Ipswich, sem hafði
heppnina með sér
Varnarleikur
West Hom
— dugði ekki gegn Aston Villa
á Villa Park
Mark frá George Bur-
ley með siðasta spark-
inu i leiknum, kom i veg
fyrir að 2. deildar lið
Wolves ynni sigur á Ips-
wich á Portman Road,
en þar hefur Ipswich
ekki tapað allt keppnis-
timabilið. Fram-
kvæmdastjóri Ipswich
sagði eftir leikinn að sér
hefði létt mikið við
markið og hann væri
ekki hræddur við leikinn
Ólafur
Orrason c
ENSKA KNATT- ,
SPYRNAN
gegn Úlfunum
á Molineux i kvöld. Þá
myndi lið Ipswich sýna
hvað i þvi býr.
Ipswich sótti án afláts allan
leikinn, en vörn Wolves var föst
fyrir meö McAlle sem bezta
mann, og einnig var Gary Pierce
frábær i markinu. Skyndisóknir
Wolves voru ávallthættulegar, en
maöurinn á bak viö þær flestar
var Willie Carr. Eftir um 25
mfnútna leik sendi hann mjög
góöa sendinguá Richards, og skot
hans var komiö yfir marklinuna,
þegar Cooper tókst að slá boltann
Ut. Þrátt fyrir mikil mótmæli
leikmanna Wolves dæmdi dómar-
inn ekki mark. En aöeins fimm
minUtum siðar var Richards aft-
ur á ferðinni og nú lék enginn vafi
á þvi, aö knötturinn hafnaði í net-
inu.
Það voru svo aöeins eftir 15
mfnútur af leiknum, þegar Paul
Mariner tókst aö jafna metin fyr-
ir Ipswich, eftir sendingu frá Os-
borne. En Richards haföi ekki
sagt sittsiöasta orði leiknum og á
81. minútu skoraöi hann óverj-
JOHN RICHARDS...skoraöi bæöi
mörk úlfanna og eitt, sem á
furöulegan hátt var dæmt af.
andifram hjá Cooper i marki Ips-
wich. Leit Ut fyrir aö þetta væri
Urslitamark leiksins þar til á siö-
ustu minútu, að Burley tókst aö
jafna meö siðasta sparki leiksins,
eins og áöur er greint frá.
West Ham kom til Villa Park
greinilega meö þvi hugarfari aö ná
jafntefli og reyna sföan aö ná ein-
hverju út úr leik á Upton Park. Og í
fyrri hálfleik tókst þeim aö halda
marki sinu hreinu og langt fram
eftir seinni hálfleik. En eftir aö
Aston Villa skoraöi sitt fyrsta
mark, var allur vindur úr liöi West
Ham og spurningin var aöeins sú
hve mörg mörk Aston Villa skoraöi
áöur en yfir lyki.
Fyrsta markiö kom á 58. minútu.
Varnarmenn WestHam gættu allir
Andy Gray, þegar sending kom
fyrir markiö frá Little, en viö þetta
varö Deehan frfr og skallaði hann
auöveldlega framhjá Day f marki
West Ham. Hroðaleg mistök hjá
fyrirliða West Ham leiddu til ann-
ars marks Villa. Hann gaf knöttinn
beint fyrir fætur Deehans fyrir
miöju marki viö vitateig og Deehan
þakkaði fyrir sig með föstu skoti,
sem Day átti ekki möguleika á aö
verja. Skömmu fyrir leikslok skor-
aöi Mortimer siöasta mark Aston
Villa, þegar hann vippaði knettin-
um hárfint yfir Day. Fyrir utan
þetta komust þeir Gray og Little
báðir einir inn fyrir vörn West
Ham, en mistókst báöum aö koma
knettinum fram hjá Day. Maöur
leiksins var tvimælalaust Dennis
Mortimer sem sá maöur, sem allt
spil Aston Villa snerist i kring um.
Liöin voru þannig skipuð:
Aston Villa: Burridge, Gidman,
Robson, Phillips, Nicholl, Morti-
mer, Deehan, Little, Gray, Cow-
ans, Carrodus.
West Ham: Day, Lock, Lampard,
Green, T. Taylor, Bonds, A. Taylor,
Radford, Jennings, Brooking,
Robson.
Ó.O.