Tíminn - 02.02.1977, Qupperneq 5
Miðvikudagur 2. febrúar 1977.
5
Árásarliðið sem ræðst
um borð i geimskip
Geira, reyn.ist
vera vélmenni!:
Nú skulum við gera okkur
grein fyrir því sem þarf að
gera í þessum leik.
Gróður jarðar
önnur útgdfa þýðingar Helga Hjörvars
Bókaklúbbur Almenna bókafé-
lagsins hefur sent frá sér fyrstu
bók ársins 1977. Er það Gróður
jarðar — Markens gröde — eftir
Knut Hamsun — önnur útgáfa —
en fyrsta útgáfa bókarinnar, sem
kom út hjá AB 1960 er löngu upp-
seld. Þýöandi er Helgi Hjörvar.
Gróður jarðar er sú bók, sem
færði Knut Hamson Nóbels-
verðlauniná sinum tima, og hefur
frá þvi hún fyrst kom út i Noregi
1917 verið talin i hópi merkustu
skáldsagna á Norðurlöndum.
Brezki rithöfundurinn H.G. Wells
kvað meira að segja s.vo fast að
orði, að Markens gröde væri eitt
eftirminnilegasta verk heimsbók-
menntanna fyrr og siðar.
Gróður jarðar segir frá land-
nemunum Isak og Ingigerði, sem
brjóta land i óbyggðum og vinna
sigur, þó ekki fyrr en eftir mikla
erfiðleika og átök við fólk og
óbliða náttúru.
Þýðandinn Helgi Hjörvar
kemst svo að orði i grein, sem
hann ritaði um þaö leyti sem fyrri
útgáfa bókarinnar kom út: ,,Þó
hefur það oröið einmæli siðan i
fjóra áratugi, að Gróður jaröar
beri algerlega af bókum Ham-
suns að varanlegum boðskap og
innfjálgu gildi. Hinn magnaði
boðskapur meistarans um lif-
taugina milli manneskjunnar og
gróðurmoldarinnar hefur gagn-
tekið allar þjóöir, sem bókina
hafa fengið.”
Gróður jarðar er 387 bls. að
stærð, prentuð i Prentsmiöju
Arna Valdimarssonar hf. og
bundin i Bókbandsstofunni örk-
nni hf.
Sigöldu-
virkjun
■ gang
seinni
hluta
þessa
mánaðar
F.I. Reykjavik. — Aðalprófun
vélarinnar fer fram um miðj-
an mánuðinn, en þá veröur
vatni hleypt á og hún tengd
netinu, sagði Halldór Jóna-
tansson, settur framkvæmda-
stjóri Landsvirkjunar i sam-
tali við Timann i gær, er við
fræddumsthjá honum um fyr-
irhugaða gangsetningu fyrri
vélasamstæðunnar við Sig-
öldu.
Kvaðst Halldór búast við
þvi, að vclin kæmist i gagnið
seinni hluta þessa mánaðar,
pról'un einstakra hluta færi
fram við og við og hefði gengið
ágætlega.
Sjónvarpið:
Mynd um
nagladekk
Einars
Einarssonar
í sjónvarpsþættinum um nyj-
ustu tækni og visindi i kvöld verö-
ur m.a. fjallað um islenzka hug-
mynd. Hugvitsmaður i
Reykjavik, Einar Einarsson
hefur um allmörg ár unnið að
hönnun vetrarhjólbarða með
nöglum sem ýta má út eða draga
inn eftir þörfum. Enn hefur ekki
fengizt framleiðandi að þessum
börðum enda hefur skortur á aö-
stöðu hamlað uppfinningamann-
inum að ganga frá þeim tilf jölda-
framleiðslu, en i þessari mynd,
sem örn Harðarson hefur tekiö og
hlotiö fyrir viðurkenningu á
alþjóðasýningu kvikmynda um
tækni og visindi, sjáum við nýju
hjólbarðana i notkun.
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
ReykjalundarÖ
O
o
o
o
o
OOOOOOOOOOOOOOOOQOOOOOOOOOOOOQ.
Nýr forstjóri
ARNI Einarsson, sem verið hefur
forstjóri Vinnuheimilisins að
Reykjalundi, lætur nú af störfum
hjá fyrirtækinu eftir hartnær 30
ára farsælt starf, en Arni varð 70
ára fyrir skömmu. Við starfi
Ama tekur Björn Astmundsson,
sem verið hefur skrifstofustjóri
og aðstoðarframkvæmdastjóri
undanfarin ár. Björn er 31 árs að
aldri og lögfræðingur að mennt.
Kona hans er Guðmunda Arnórs-
dóttir og eiga þau 3 börn.
ÚRSMÍÐAFÉLAG ÍSLANDS vill vekja athygli á að
vörugjald (18%)
hefur verið felltí
niður á
úrum
Kynnið yður
verð og
gæði
y
0$
Ö
V0'
>°v
,e<° ;,A<' * <00"
8
o
o
o
O
O
O
O
O
O
O
O
o
o
OOOOVerðlag á úrum er nú mjög hagstætt hér á landiOOOO*