Tíminn - 02.02.1977, Blaðsíða 19
MiOvikudagur 2. febrúar 1977.
19
flokksstarfið
Viðtalstímar
alþingismanna og
borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins
Alfreð Þorsteinsson,borgarfulltrili, verður til viötals að Rauöar-
árstig 18 laugardaginn 5. febrúar kl. 10-12.
Sauðórkrókur
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn á Sauðárkróki
föstudaginn 4. febrúar kl. 21.00.
Ólafur Jóhannesson og Páll Pétursson mæta á fundinum og ræða
stjórnmálaástandið og svara fyrirspurnum.
Allir velkomnir.
FUF Reykjavík
Framhaldsaöalfundur Félags ungra framsóknarmanna 1
Reykjavik veröur haldinn að Rauöarárstíg 17 Reykjavík
miðvikudaginn 2. febrúar kl. 20,30. — Stjórnin.
Norðurlandskjördæmi vestra
Þjóðmálanámskeið
Framsóknarfélögin á Norðurlandi vestra efna til þjóðmálanám-
skeiða þar sem leiöbeint verður um ræðugerö og ræöuflutning,
fundarstjórn og fundarreglur og mismunandi fundarform verða
kynnt. Þá verða flutt framsöguerindi um tillögur ungra manna
um nýskipan kosningalaga og um þróun og efling byggöar í kjör-
dæminu. Frjálsar umræður verða síðan um þessi mál.
Námskeiðin verða sem hér segir:
Hvammstanga
Föstudag 4. febr. kl. 20.00 Ræöugerð og ræöuflutningur. Leiö-
beinandi Sveinn Jónsson
Föstudagur 4. febr. kl. 22.00 Þróun og efling byggðar I V.-Hún.
Framsaga Gunnar Sæmundsson.
Laugardagur 5. febr. kl. 14.00 Fundarstjóri og fundarreglur.
Leiðbeinandi Sveinn Jónsson.
Laugardagur 5. febr. kl. 16.00 Nýskipan kosningalaga. Fram-
saga Sveinn Jónsson
Blönduós
Föstudag 4. febr. kl. 20.00 Ræöugerö og ræöuflutningur. Leiö-
beinandi Pétur Einarsson.
Föstudagur 4. febr. kl. 22.00. Nýskipan kosningalaga. Framsaga
Pétur Einarsson.
Laugardagur 5. febr. kl. 14.00. Fundarstjórn og fundarreglur.
Leiðbeinandi Pétur Einarsson.
Laugardagur5 febr. kl. 16.00 Þróun og efling byggöar 1 A-Hún.
Framsaga Valgarð Hilmarsson.
Siglufjörður
Föstudagur 4. febr. kl. 20.00 Ræöugerö og ræöuflutningur. Leiö-
beinandi Magnús Ólafsson
Föstudagur 4. febr. kl. 22.00. Nýskipan kosningalaga. Framsaga
Magnús ólafsson.
Laugardagur 5. febr. kl. 14.00. Fundarstjórn og fundarreglur.
Leiöbeinandi Magnús Ólafsson.
Laugardagur 5 febr. kl. 16.00. Þróun og efling byggöar á Siglu-
firði. Framsaga Bogi Sigurbjörnsson.
Blönduós
Almennurstjórnmálafundur verður haldinn i Félagsheimilinu á
BHýnduósi fimmtudaginn 3. febr. kl. 21.00.
Ólafur Jóhannesson og Páll Pétursson mæta á fundinum og ræða^,
stjórnmálaviðhorfið og svara fyrirspurnum. * r
Allir vel^omnir. . . *
Frá Kjördæmissambandi
framsóknarmanna
Akveðið er að skoðanakönnun fari fram á næsta sumri, um 4
efstu sæti á framboðslista framsóknarmanna i Vestfjarðakjör-
dæmi, fyrir næstu alþingiskosningar.
1 skoðanakönnuninni verður valið um frambjóðendur.
t framboði til hennar getur hver sá verið sem kjörgengur er viö
væntanlegar alþingiskosningar, enda hafi hann meðmæli minnst
25 flokksmanna i kjördæminu til framboðs.
Framboð skulu hafa borist fyrir 30. marz n.k. til formanns Kjör-
dæmissambands framsóknarmanna i Vestfjaröakjördæmi póst-
hólf 48 Flateyri.
Austurríki - Vínarborg
Farið verður til Vinarborgar 21. mai nk. og dvalið þar fram yfir
hvitasunnu.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni Rauðarárstig 18. Simi 24480.
Bingó
Bingó verður haldið i Sjálfstæðishúsinu Akureyri sunnudaginn 6.
feb. n.k. S.U.F.
0 Tómas
hann fyrst, aö árið 1974 þegar
þessir sjóðir höföu starfað i 2-3 ár
verður söguleg breyting á
byggöaþróuninni. Það ár gerist
það i fyrsta sinn aö fjölgun verður
meir á landsbyggðinni, en á
Reykjavikursvæðinu. Enginn vafi
væri á að starfsemi fram-
kvæmdastofnunarinnar hafi haft
þar mikil áhrif, og þó fyrst og
fremst starfsemi Byggðasjóðs,
þar á meðal verulegar lánveiting-
ar til skuttogarakaupa og fjár-
veitingar til hraðfrystihúsaáætl-
unarinnar.
Benti þingmaðurinn á, að
reiknað á verölagi i júni 1976 hefði
það fjármagn, sem varið var til
Hraðfrystihúsaáætlunarinnar
O Sjúkraliðar
utan Reykjavikur, Ak^. eyri
fremst i flokki.
A Akureyri hefur sjúkraliða-
nám farið fram i Fjórðungs-
sjúkrahúsinu sl. 10 ár og þaðan
brautskráðust fyrstu sjúkralið-
arnir vorið 1966. Á sl. vori átti
deildarstjóri ráðuneytisins i
hjúkrunarmálum fund með
skólastjóra Gagnfræöaskóla
Akureyrar og hjúkrunarfor-
stjórum Fjóröungssjúkrahúss-
ins, þar sem ræddir voru mögu-
leikar á sjúkraliöanámi þar i
skólanum i náinni samvinnu við
sjúkrahúsið.
1 5. bekk Gagnfræðaskólans
fer i vetur fram undirbúnings-
nám undir sjúkraliðanám og
ætti að vera hægt, ef nóg aðsókn
verður af hálfu nemenda, að
ljúka þvi i þessum tveim stofn-
unum.
Aö þessu er nú unniö i
menntamála- og heilbrigöis-
mála ráðuneytinu.
Ingi Tryggvason lagði á það
áherzlu, aö nám sjúkraliða yröi
komiöá á Akureyri á nýjan leik.
Það væri eitt mesta hagsmuna-
mál dreifbýlisins að hafa skóla
til þess að geta menntað sitt
fólk. Vænti hann þess, aö Akur-
eyri yrði lika látin njóta þess að
þar var nám i þessari grein haf-
ið hér á landi.
OByggðasjóður
Lán til sveitarfélaga eru
aðallega vegna gatnageröa og
jarðhitaleitar.
Byggðasjóöur lánar ein-
göngu til annarra landshluta,
en Reykjavikur og Reykjanes-
svæðisins, nema lán til ný-
smiði og viöhalds skipa eru
einnig veitt til þeirra lands-
hluta. A þingsiðu Timans í dag
er úrdráttur úr ræðu Tómasar
þar sem hann ræddi um starf-
semi Byggðasjóös og Fram-
kvæmdastofnunarinnar.
numið 14-15 milljörðum kr. Þetta
mikla fjármagn heföi stuðlað aö
betri nýtingu hráefnis og væri hér
um ákaflega þýöingarmikinn þátt
i islenzkum þjóðmálum að ræöa,
sem vonandi ætti eftir aö hafa
mjög mikil áhrif.
Ekki á móti uppbygg-/
ingu landsbyggðarinn-
ar.
Albert Guðmundsson flutnings-
maður tillögunnar tók það fram,
að hann væri alls ekki á móti upp-
byggingu landsbyggðarinnar, en
hann lét i ljós ótta um að verið
gæti að byggðaröskunin væri aö
snúast við þannig, að nú væri
byggðin 1 Reykjavik farin aö
verða i hættu á sama tima og
byggð blómgaðist viða um land.
Þvi vildi hann láta kanna þessa
hluti nú þegar lögin um Fram-
kvæmdastofnunina væru orðin
fimm ára. Hér væri ekki um nein
mótmæli að ræða gegn uppbygg-
ingu landsbyggðarinnar heldur
eingöngu um könnunartillögu.
Kreppir skórinn annars
staðar að
Steingrimur Hermannsson
vitnaði i lögin um Framkvæmda-
stofnun rikisins en ræddi siöan al-
mennt um starfsemi stofnunar-
innar og tilgang.
Vakti hann athygli á þvi hvort
ekki væri orðin nauösyn aö skoða
lögin um stofnunina, þvi að vera
mætti að skórinn kreppti viðar aö
en á þeim sviðum, sem stofnunin
á að taka til meöferðar. T.d. á
sviöi þjónustu og einnig á sviði
ibúöarhúsabyggingar. Væri mikil
nauðsyn að kanna hvort ekki sé
orðin full þörf á að lána til þeirra
þátta, ekki siður en til atvinnu-
uppbyggingar á viökomandi stöö-
um.
Margir fleiri tóku til máls um
tillögu Alberts.
O Kröfur
við Hæstarétt Islands að hann
tilnefni oddamanninn.
I frétt Landsvirkjunar segir,
að enda þótt ágreiningsefnum
Energoprojekt og Landsvirkj-
unar hafi veriö visað til gerðar-
dóms og samkomulag ekki
náöst á fundunum i sl. viku
munu aðilar halda samkomu-
lagstilraunum áfram meö það
fyrir augum að ná annað hvort
samkomulagi um kröfurnar i
heild eða að nokkru leyti og þá
miðað við að um þær yrði aö
öðruleyti fjallað af gerðardómi.
Verulega ber i milli i hlutaöeig-
andi ágreiningsefnum Lands-
virkjunar og Energoprojekt, en
meðan ekki er séð fyrir endann
á yfirstandandi samkomulags-
tilraunum er ekki unnt að gera
opinberlega grein fyrir einstök-
um kröfuliðum eða fjárhæðum
þeirra, segir i fréttinni.
o Grunaður
•
H«ukur Guðmund«son
rannsóknarlögreglumaður.
Hjá bæjarfógetaembættinu
vorukærurnar skráðar og sið-
an sendar rannsóknarlögregl-
unni i Keflavik, en s3, er anrt-
aðist afgreiðslu kæranna hjá
bæjarfógeta, mun ekki sér-
staklega hafa tekið eftir nafni
Hauks á kæruskránni.
Erfitt hefur verið að afla
upplýsinga um það, hver hafi
tekið við kærunum hjá rann-
sóknarlögreglunni og hver
hafi fengið þær til meöferðar,
en þó bendir margt til þess aö
það hafi veriö Haukur Guð-
mundsson. Mun hann allavega
hafa haft með höndum ein-
hvern þátt rannsóknarinnar.
Sömuleiðis hefur veriö erf-
itt að grafast fyrir um það,
hvenær bæjarfógetaemb-
ættinu i Keflavik verður það
ljóst að kæra á hendur Hauki
Guðmundssyni hafi verið send
athugasemdalaust til rann-
sóknarlögreglunnar meö ósk
um rannsókn. Heimildir
blaðsins herma þó aö siöari
hluta sumars 1976 hafi bæjar-
fógetaembættiðfarið að kanna
hvað hafi orðið af umræddri
kæru. Mun þá hafa komið i ljós
að kæran var bókuð á kæru-
skrá rannsóknarlögreglunnar,
en án þess að nafn hins kærða
hafi verið tilgreint, eins og
venjan er. Kæran hafi aðeins
haft númer, og við hana hafi
veriö skrifað að málið hafi
verið afgreitt frá rannsóknar-
lögreglunni einhvern tima i
júnfmánuöi 1976.
Ekki munu starfsmenn bæj-
arfógetaembættisins hafa
kannast viö það aö hafa fengið
þetta mál aftur frá rannsókn-
arlögreglunni og þvi gengið
fastar eftir þvi en áður, að öll
gögn málsins yröu send emb-
ættinu. Segirheimild blaðsins,
að Haukur hafi gefið hin
undarlegustu svör við þessari
eftirgrennslan embættisins og
hafi það styrkt þá skoðun
manna, að eitthvað væri óeðli-
legt við rannsókn málsins hjá
rannsóknarlögreglunni.
Það mun svo hafa verið I
byrjun þessa árs, aö gögn
málsins komu til bæjarfó-
getaembættisins-og þá send i
pósti! Mun bæjarfógeti þegar
hafa talið að rannsaka bæri
meðferð þessa máls hjá rann-
sóknarlögreglunni og nú hefur
hann, einsog að framan grein-
ir úrskurðað sig frá málinu.
Við þetta er að bæta, að ekki
alls fyrir löngu fundust á póst-
húsinu á Húsavik frumrit
hinna kærðu ávtsana Hauks
Guðmundssonar. Voru það
starfsmenn pósthússins, sem
fundu ávisanirnar, og var full-
trúa bæjarfógeta þar gert við-
vart, sem sendi þær til bæjar-
fógetans 1 Keflavfk.
Heimild blaðsins hermir, að
ávisanir Hauks, sem kærðar
voru hafi verið sex talsins og
hafi fjárhæð þeirra numið um
400 þúsundum króna.
Mcint brot Hauks Guð-
mundssonar er ekki vegna
þess, að hann hafi gefið út
innistæðulausar ávisanir —
sem hann hefur greitt upp aö
fullu — heldur málsmeðferö
kærunnar hjá rannsóknarlög-
reglunni i Keflavik og hugsan-
leg afskipti hans af þeirri
rannsókn.
Ef sannast á Hauk, að hann
hafi haft einhver óeðlileg af-
skipti af eigin kæru, hefur
hann brotiö af sér i opinberu
starfi, auk þess sem hann hef-
ur nfðst á lögregluheiti sinu.
Setudómari i málinu haföi
ekki verið skipaður i gær-
kvöldi, en ákvörðun er
væntanleg i dag, að sögn
Baldurs Möller ráðuneytis-
stjóra.
Auglýsið í
Tímanum