Tíminn - 02.02.1977, Blaðsíða 16

Tíminn - 02.02.1977, Blaðsíða 16
16 MiBvikudagur 2. febrúar 1977. Jens Jónsson Jens Jónsson frá Fjalla-Skaga er látinn. Hann lézt á heimili sinu Garðsvik á Svalbarösströnd 16. des. 1976. Hann var fæddur 6. sept. 1890 á Fjalia-Skaga i Dýra- firði, sonur hjónanna Jóns bónda þar (f. 13. sept. 1856, d. 17. des. 1935) Gabrielssonar, bónda á Efstabóli i önundarfirði, Jóns- sonar bónda á Mosvöllum Guð- laugssonar, og konu hans Jensinu Jensdóttur bónda á Kroppsstöö- um i önundarfirði, Jónssonar Guðlaugssonar. Þau hjón voru þvi bræðrabörn, en amma þeirra hjóna var Margrét, dóttir Guð- mundar eldri Hákonarsonar, bónda á Brekku á Ingjaldssandi ogkonu hans Borgnýjar Jónsdótt- ur bónda á Hrauni á Ingjalds- sandi. Guðmundur var fæddur 1768, en drukknaði i mannskaöan- um mikla 6. mai 1812, 44 ára. Margrét var fædd 23. ágúst 1797, átti 13. okt. 1824 Jón bónda á Mos- völlum, Guðlugsson. Sú saga er höfð eftir Jensinu Jensdóttur á Kroppsstöðum, að Guðlaugur þessi haf i f lutzt austan undan Eyjafjöllum á seinni hluta átjándu aldar til önundarf jarðar með einhverjum presti, sem þá hafi verið að taka við prestakall- inu. — Nú vill svo til, að árið 1783 flyzt að Holti og tekur við presta- kallinu af séra Jóni Eggertssyni, séra Jón Sigurðsson prófasts i Holti undir Eyjafjöllum. Séra Jóni þessum er veittur Staður i Grunnavik árið 1773, þar var hann prestur i 6 ár, tn þá fær hann veitingu fyrir Arnarbæli i ölfusi. Þaðan flutti hann svo að Holti i önundarfirði 1783 eins og fyrr segir. Hvar á þessum fyrr- nefndu stöðum Guðlaugur kemur til séra Jóns, er ekki hægt að segja með vissu, en hugsanlegt er, að hann hafi fylgt séra Jóni að austan og staðnæmzt svo i ön- undarfiröi, þvi oft voru hjú lengi i sömu vistinni á þeim árum. Jens ólst upp hjá foreldrum sin- um á Fjalla-Skaga, en þaö var talið eitt af bezt stæöu og m yndarlegustu heimilum sveitarinnar á þeim tima, enda voru þau hjón vel gefin og stjórn- söm. Sérstaklega heyrði ég það sagt um húsmóðurina, Jensinu, hvað hún hefði verið stjórnsöm og þó hjúum sinum notaleg I öllum viðurgjörningi og atlæti. Hef ég það eftir einum vinnumanni þeirra, sem vann á þvi heimili i mörg ár. Húsbóndinn var sagður hæg- geröur maður, mjög vel greindur ogfróðurum margt. Stjórnsamur var hann um það sem til hans kom. Sjóróðrar voru mikið stundaðir frá Fjalla-Skaga vor og sumar, var þá oft mannmargt á Skagamölum enda sjósókn frem- ur hæg þaðan og fisksælt. Jón bóndi sótti fast róðrana og var mjög aflasæll, enda frábær stjórnari hvort heldur var á rúm- sjó eða viö brimlendingu. Svo veöurglöggur var hann að af bar, og munu fáir eða engir hafa tekið honum fram á þvi sviði. Þvi kynntist ég, sem þetta rita, á sið- ustu sjósóknarárum hans frá Fjalla-Skaga. A þessu heimili ólst Jens upp og eins og jafnan til sveita á Vest- fjörðum, tók hann snemma þátt i öllum störfum til lands og sjávar. Þetta var mörgum unglingum góöur undirbúningsskóli fyrir SJÁIST með endurskini framtiðina enda reyndist það svo fyrir Jens. Þegar séra Sigtryggur Guð- laugsson stofnaði unglingaskóla sinn á Núpi er Jens i fyrsta ár- gangi skólans. Þaðan fer hann svo i Flensborgarskóla og tekur þaðan gagnfræðapróf 1910. For- maður frá Suðureyri i Súganda- firðier hann orðinn 1915. Þá voru gerðir þaðan út litlir vélbátar, 4-8 lesta, á þessum fleytum var sótt út áhaf þóum hávetur væri. — 21. nóv. 1915 gekk hann að eiga Astu Sóllilju (f. 5. jan. 1892, d. 28. jan. 1936) Kristjánsdóttur bónda i Breiðadal neðri i önundarfirði, Jónssonar og siðari konu hans Sólbjartar Jónsdóttur. Börn þeirra hjóna eru: Jón Óskarf. 3. okt. 1916, bóndi á Lækjarósi i Dýrafirði, siöar á Litla-Hóli i Hrafnagilshreppi i Eyjafirði og nú bóndi i Garðsvik á Svalbarðs- strönd. Aslaug Sólbjört, f. 23. ág. 1918, húsfr. á Núpi i Dýrafirði. Jensina, f. 24. ág. 1918, kennari og rithöfundur Reykjavik. Sigriður f. 8. nóv. 1922, húsfr. á Kalastöð- um i Hvalfirði. Gabriel f. 17. apr. 1924, sjómaður i Reykjavik. Kristján Svavar f. 3. febr. 1931, bilstj. i Reykjav. Soffia Gróa, f. 29. júni 1935 hjúkrunarkona í Reykjavik. Mörgum árum siðar, eftir að Jens var kominn til sonar sins, Jóns á Lækjarósi, átti hann dreng, Gunnbjörn með Kristjönu Sveinsdóttur ættaðri frá Þing- eyri. Ólst Gunnbjörn upp hjá þeim hjónum, Jóni hálfbróður sinum og Rósu konu hans, og reyndust þau honum eins og hann væri eitt af þeirra börnum. Barnakennari var Jens i Mýra- hreppi i þrjú ár, 1919-1922, en það ár fer hann að búa á Minna-Garði i sömu sveit. Konu sina missir hann 1936. Eru þá yngri börnin i ómegð, það yngsta á fyrsta ári. Þrátt fyrir þetta mikla áfall býr hann enn i nokkur ár meö aðstoð eldri barnanna, eða til ársins 1943 að hann hættir búskap og flytur til elzta sonar sins. Minni-Garður er litil jörö og landþröng. Þar gat þvi ekki verið um stórbú að ræða, en gottvar að koma að Minna-Garði og eiga við- ræður við Jens og móður hans, Jensinu, og finna hlýju heimilis- ins og glaðværð leika um sig. Það er lika heillandi útsýn frá Minna- Garði bæði til hafsins og inn til fjarðarins. Bærinn stendur undir kjarrivaxinni hlið á móti suðri og sól. Það var þvi skjólsælt heima við bæinn og björkin ofan við tún- iö laufgaðist snemma á vorin og sendi angann sina niður yfir heimilið, þegarsólin vermdihana eftirdöggvota nótt. Þessi friðsæld umhverfisins setti svip sinn á heimilið og innbúa þess. Þetta fundu þeir, sem lögðu leið sina heim að Minna-Garði. Það fer ekki hjá þvi, að umhverfiö setur svipmót á sin fósturbörn. Hlýjan og fegurð litla bæjarins hefur að nokkru mótazt i hugblæ barnanna i Minna-Garði ásamt umhyggju foreldra ogömmunnar góðu, sem vafalaust hefur sagt þeim marg- ar og fagrar sögur. Þessi uppeldisáhrif hygg ég að komi fram i barnasögunum henn- ar Jennu Jens og raunar öllum börnunum hans Jens. Þegar Jens hætti búskap, fór hann að vinna við múrverk og náði þar umtalsverðri leikni, enda laginn og vandvirkur að hverju verki sem hann gekk. — A þeim árum átti hann heimili hjá Jóni Óskari, sem þá var bóndi á Lækjarósi. Þaðan lá leiöin með honum til Akureyrar og siðan til Garðsvikur, þar sem hann var i skjóli sonar sins og tengdadóttur Rósu Hálfdánardóttur, sem reyndist honum sem bezta dóttir. Þaö fannst á Jens, að hann var þakklátur þeim hjónum og börn- um þeirra fyrir þá hlýju og þá alúð, sem þau bjuggu honum á gamals aldri, þegar starfsþrekið var þorrið. — Gamlir sveitungar minnast hans meö hlýhug og þakklæti fyrir gott samstarf og samveru. Börnum hans og barna- börnum votta ég innilegustu sam- úð mina. Gisli V.Vagnsson Mýrum lesendur segja Á að menga mesta landbúnaðarhéraðið með erlendri álbræðslu? Að undanförnu hefur það ver- ið allmikið á dagskrá að býggja álvier á ýmsum stöðum við strendur landsins, og um leið að bæta hafnaraðstöðu eða gera hafnir á viðkomandi stööum. Eyjafjörður var mikið á dag- skrá um skeið i þvi sambandi, en mótmælaalda reis gegn þvi að þar yrði gertálver. Mörgum er annt um sitt góða og fagra landbúnaöarhérað, og þar hefur verið starfræktur mikill iönað- ur, sem margfaldar verðmæti framleiðslunnar. Þyrftu önnur byggðarlög aö fylgja fordæmi Eyfirðinga og koma á fót slikum iðnaði. Nú er það m.a. Þykkvibær, sem er i sviðsljósinu i sambandi við álver. A fyrstu árum mjólkurbúsins á Selfossi var Þykkvibær ein mesta mjólkurframleiðslusveit hér um slóðir, þvi þar var störin úrSafamýri lyftistöng meöaná- burðarskortur var og ræktunin skammt á veg komin. Það hafði tekizt með miklu haröfylgi á timum handverk- færa og hestverkfæra að stifla Djúpós, er byggðin var aö ein- angrast vegna þess að árnar geröu sér farveg norðan við þorpið. Varð stundum að reka kýrnar yfir sundvatn til að koma þeim á haga. ,,Hann Eyjólfur minn óð upp i klof, en ég óð upp i ósköp” var haft eftir einni konunni um hið erfiða engjaferðalag þeirra hjóna. En þorpsbúum og fleirum tókst með miklum dugnaði að stifla straumvatnið og veita þvi i Hólsá til sjávar. Flestir höföu tvöfaldan kraft eða meira við framkvæmdirnar. Jafnvel van- færar konur báru kekkina að á þunga sinum og Torfi á Ægis- siöu tók fallhamarinn einn og setti á hestvagn, svo hægt væri að flytja hánn á staðinn og reka niður staurana i straumvatniö, segir i annálum frá þeim tima. Það tókst að bjarga byggðinni og búskapuróx og dafnaði, fyrst með auknum og almennum kúa- búskap, þvi störin úr Safamýr- inni var mikil og góð, og siðan með geysilegri kartöflurækt, hinni mestu á landinu. Það hefur sennilega fáa órað fyrir þvi þá, að það myndi vofa yfirþessu sveitarfélagiaftur, að landbúnaður legðist niöur og Norðlendingar myndu fram- leiða neyzlumjólk handa Þykkvbæingum, en Sunnlend- ingar sneru sér að álbræðslu og eimyrju. Það er furðulegur áhugi að koma upp álbræðslum sem við- ast, en þær geta verið dulbúnar hergagnaverksmiðjur, og það er og á að vera andstætt hugs- unarhætti Islendinga að vinna við slíka framleiðslu. Æskilegra er að við Þykkvabæ risi áburð- arverksmiðja til aö byggja upp og efla landbúnaðinn, en ekki álver sem mengar i kringum sig, spillir ræktun og ræktunar- möguleikum i mesta landbún- aðarhéraði landsins og dregur fólk frá hagnýtum störfum. Höfnin sem gerð verður ætti lika fremur að vera fyrir flutn- inga og fiskiskip, enda mun auð- veldara að gera höfn fyrir slík skip en álflutningsdrekana. Hernám og herseta hefur kannski mengað hugi margra landsmanna, og sumir vilja meta meira hið útlenda. En mikið verkefni er hér framund- an i fullvinnslu landbúnaðar- og sjávarafurða, og jarðefnaiðnað- ur er einnig á dagskrá. íslendingar hafa fagnað sigr- um i sjálfstæðisbaráttu og land- helgismáli, og ættu þvi að vera mótfallnir þeirri öfugþróun aö auka erlendan atvinnurekstur á Islandi, en hafa fremur hug á að efla fslenzka atvinnuvegi og is- lenzk þjóðþrifafyrirtæki. Stefán Runólfsson, Berustöðum. Sjónvarpsauglýsing Happ drættis Hóskóla íslands Sigurjón Valdimarsson skrif- ar nokkurð orö i Timann þann 8. þ.m. um tóbaksauglýsingar i sjónvarpi. Tekur hann sem dæmi auglýsingu Happdrættis Háskóla Islands. Get ég vel tek- ið undir aðfinnslu hans um þá smekkleysu. Til viðbótar þvi sem hann segir um þá auglýs- ingu og það lögbrot, sem hann telur auglýsinguna vera, langar mig til að benda á hversu mikil smekkleysa sú auglýsing er að ööru leyti og algerlega ó- samboðin þeirri stofnun, sem á að teljast ein mesta menningar- stofnun þjóðarinnar. 1 þessari auglýsingu eru tveir bjálfar sýndir svo auðnuleysis- legir að vart getur verra orðið. —• Hér á ég ekki við að mennirn- ir séu bjálfar í eðli sínu. — Þá er athöfn 'þeirra ekki menningar- legri. Þar er allt öfugt og bjána- legt, og auk þess viðhöfð hrein svik og prettir i þeirri athöfn. Annar þátttakandinn er sá auli, að hann ber ekki skyn á pretti félaga síns, sem er lika auðsæi- lega kjáni, en hefur þó nokkurt hrekkjavit og beitir þvi. Ég tel þessa menningarleysu auglýs- ingarinnar enn meiri ljóð á ráði þeirra sem að henni standa heldur en nokkurn tima vindil- stubbinn. Þeir, sem stjórna Happdrætti Háskóla Islands ættu að sjá sóma sinn og kippa þessari auglýsingu út, þvi að hún er þeirri stofnun, sem hún á að þjóna, til skammar. Guðmundur P. Valgeirsson. Fyrirspurn til þeirra, sem hlut eiga að móli Það hefur vakið talsverða athygli flugliða, að okkar ágæti flugmálastjóri hefur ekki talið ástæðu til þess aö svara fyrir- spurn blaðanna viövikjandi veizlu aldarinnar, sem hann af litillæti sinu, hélt kollegum sin- um, nokkrum skrifstofumönn- um á liðnu sumri. Það hefur aldrei verið efast um gestrisni þessa manns, enda gert á reikn- ing skattborgaranna, en okkur leikur forvitni á að vita hve miklu varsóaö i þessu tilfelli, og þá siðast en ekki sizt, hver það var, sem lagði til daglegar morgungjafir og hvort það sé misskilningur að almenningur hafi greitt þær. Þess má geta, að flugmála- stjóri Þýzkalands hafði á orði, aö sér væri mikill vandi á hönd- um, þar sem næsta þing ætti að halda bar og þar eð fjárhagur þýzku þjóðarinnar væri ekki sambærilegur hinum islenzka, þá væri honum úthlutaö fé fyrir einum málsverði á mann, og það væri vissulega erfið staða hans sem gestgjafa, eftir að hafa sótt slika höfðingja heim. I framhaldi af þessari fyrir- spurn má gjarnan geta þess, að heyrzthefur, að einhver gamall Amerikani sé á launum hjá Flugmálastjórn, sem tæknileg- ur rágjafi, og er að veltast fyrir mönnum hvort Islendingar eigi ekki hæfa menn menntaða á þeim sviðum, sem þessi tækni- ráðunautur á að annast, hver svo sem þau eru. Nokkrir flugmenn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.