Tíminn - 24.02.1977, Page 11
Fimmtudagur 24. febrúar 1977
11
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. KKstjórar: j
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn-
arfulltníi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri:
Steingrimur Gislason.Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu
i viö Lindargdtu, simar 18300 — 18306. Skrifstofur i' Aöal-
stræti 7, simi 26500 — afgreiöslusimi 12323 — auglýsingá- í
' simi 19523.. Verö i iausasölu kr. 60.00. Áskriftargjáld kr. <
i * 1.100.00 á mánuöi. ' Blaöaprenth.f.,
Verksvið Búnaðar-
félags íslands
í ræðu þeirri sem Ásgeir Bjarnason, formaður
Búnaðarfélags íslands, hélt við setningu Búnað-
arþingsins á þriðjudag, minntist hann þess m.a.,
að 140 ár væru liðin siðan Hús- og bústjórnarfélag
Suðuramtsins var stofnað. Þessi félagsskapur
var upphaf Búnaðarfélags íslands, sem hefur
verið heildarfélagsskapur hreppabúnaðarfélaga
og búnaðarsambanda siðan 1899. 1 ræðu sinni
rifjaði Ásgeir upp verkefnin, sem Hús- og bú-
stjórnarfélag Suðuramtsins hefðu sett sér en þau
væru býsna lik þeim, sem Búnaðarfélag íslands
ynni að nú, þótt aðstaðan hefði tekið breytingum
i timans rás. Helztu verkefni Búnaðarfélags Is-
lands væru nú þessi:
„1. Að hafa forgöngu i starfáncfi félagsskap
bænda til eflingar landbúnaðinum.
2. Vera málsvari bændastéttarinnar og beita
sér fyrir nýmælum i löggjöf og breytingum á
eldri lögum, er til framfara horfa og snerta
bændastéttina eða landbúnaðinn.
3. Vinna að tæknilegum framförum i landbún-
aði með þvi að hafa á hendi leiðbeiningastarf-
semi i sem flestum greinum hans, og hlutast til
um, að gerðar séu hagnýtar rannsóknir og til-
raunir á öllum sviðum landbúnaðarins.
4. Vera ráðunautur rikisstjórnarinnar i land-
búnaðarmálum.
5. Hafa á hendi framkvæmd mála, er Alþingi eða
rikisstjórn felur þvi.
6. Hafa yfirstjórn Búreikningastofu rikisins og
embættis veiðistjóra og umsjón með Land-
græðslu íslands, s.s. tilskilið er i lögum svo og
annarra stofnanna, eftir þvi sem ákveðið er
hverju sinni.
7. Eiga og reka djúpfrystingastöð fyrir búfjár-
sæði og annast eða hafa umsjón með afkvæma-
prófunum kynbótagripa.”
Það fellur svo undir Búnaðarþing, þar sem full-
trúar búnaðarsambanda koma saman, að ræða
um þessi verkefni og móta stefnuna i þeim. Sér-
stakt verkefni Stéttarsambands bænda er svo að
fjalla um verðlagsmálin og kjaramál bændastétt-
arinnar.
Tímabær fundarhöld
Ásgeir Bjarnason vék að þvi i setningarræð-
unni á Búnaðarþingi, að landbúnaðurinn hefði
sjaldan verið meira i sviðsljósinu en að undan-
fömu. Bændur hafa haldið fjölmenna fundi og
sett fram óskalista sinn. Þeir vilja af eðlilegum
ástæðum njóta sömu lifskjara og aðrar stéttir.
Verðbólgan hefur þrengt að þeim eins og
mörgum öðmm, m.a. vegna þess að verðgildi
fjármagnsins minnkar óðum. Bændur hafa lært
af þeirri bitru reynslu, þvi þeir fá framleiðslu
sina að hluta til seint borgaða, og ná allflestir
aldrei kaupi þvi, er þeim ber út úr búum sinum,
Engan þarf þvi að undra þótt það komi hljóð úr
horni og það þótt fyrr hefði verið. Verst eru frum-
býlingar settir þvi margs þarf búið með og þeir
verða að leggja út háar fjárhæðir, sem þurfa ef
vel á að fara, að vera méð góðum kjörum, svo
þeir geti byrjað búskap með sómasamlegum
hætti.
Það verður eitt af helztu verkefnum Búnaðar-
þings nú að ræða þau mál sem hæst hefur borið á
bændafundum, eins ög t.d. lánamálin og málefni
frumbýlinga.
Þ.Þ.
ERLENT YFIRLIT
Verður Healey eftir-
maður Callaghans?
Þess vegna varð hann ekki utanríkisráðherra nú
Denis Healey
ÞAÐ kom mörgum á óvart, aö
Callaghan forsætisráöherra
skyldi ekki skipa Denis He-
aely I embætti utanrlkisráö-
herra viö fráfall Croslands
heldur skipa i þaö ungan mann
og litt reyndan, David Owen.
Frá þeim tíma er Verka-
mannaflokkurinn komst I
stjórnaraöstööu 1964 eftir aö
hafa veriö i stjórnarandstööu I
13 ár, hefur DenisHealey þótt
sjálfsagöasta utanrikisráö-
herraefni flokksins, enda haföi
hann búiö sig sérstaklega und-
irþaö á árunum, sem flokkur-
inn var i stjórnarandstööu. En
bæöi Wilson og Callaghan hafa
gengiö framhjá honum.
Haustiö 1964 skipaöi Wilson
hann i embætti varnarmála-
ráöherra, en þaö hlutverk
þótti þá sérstaklega vanda-
samt, þar sem stefnt var aö
ýmsum breytingum i sparnaö-
arskyni. Healey gegndi þessu
embætti þangaö til flokkurinn
beiðósigur I þingkosningunum
1970. Hann hlaut þann vitnis-
burð aö vera hæfasti varnar-
málaráöherrann, sem hafði
gegnt þvi embætti frá lokum
siðari heimsstyrjaldarinnar.
Þegar Verkamannaflokkurinn
komst til valda aö nýju
snemma árs 1974, þótti víst aö
nú yröi Healey loks utanrikis-
ráöherra, en svo fór þó ekki,
heldur skipaöi Wilson hann
fjármálaráðherra, sem var
langsamlega erfiöasta og
vandasamasta ráöherraemb-
ættiö, eins og ástatt var þá.
Hann þykir hafa reynzt vel i
þvi starfi og þykir ekki annar
leiötogi Verkamannaflokksins
liklegri til aö hafa gert betur.
Sennilega er þaö skýringin á
þvi, aö Callaghan flutti hann
ekki nú I embætti utanrlkis-
ráöherra, sem Healey hefur
iiklega alltaf haft mestan á-
huga á. Jafnframt kann
Callaghan aö hafa ætlaö hon-
um enn stærra hlutverk, eins
og siðar veröur vikiö aö.
ÞVl er nú almennt spáö I Bret-
landi, aö áriö 1977 veröi Bret-
um efnahagslega erfitt. Sjálf-
ur lét Healey þaö nýlega I ljós I
viötali viö blaöamann aö enn
ætti ástandiö eftir aö versna
áöur en þaö færi aö batna. í
janúar siöastl. var hallinn á
utanrikisviðskiptunum meiri
en nokkru sinni fyrr og liklegt
þykir , aö enn aukist atvinnu-
leysiö. Hins vegar spá flestir
aö á árinu 1978 muni árangur-
inn af efnahagsaögerðúm
Healeys fara aö bera
árangur og jafnframt komi
þá vænlegur gróöi af
oliuvinnslu i Norðursjó til
sögunnar. Rætist þessar
spár muni hlutur Healeys
verða góöur, ef stjórninni
tekst aö halda velli fram á
næsta ár, en enn eru 2 1/2 ár
eftir af kjörtimabilinu. Calk
aghan verður þá farinn .aö
nálgast sjötugsaldurinn og
sama gildir um Foot, sem er
leiötogi vinstri arms flokksins
og reyndist Callaghan skæö-
astur keppinautur, þegar
þingflokkurinn valdi forsætis-
ráöherra á siðastl. vetri eftir
brottför Wilsons úr embætt-
inu. Tveir þeirra, sem þá
kepptu um forsætisráðherra-
embættiö eru úr sögunni eöa
þeir Crosland, sem er látinn,
og Roy Jenkins, sem hefur
gerzt formaöur stjórnamefnd-
ar Efnahagsbandalagsins og
þvi sagt af sér þingmennsku.
Eftir eru þá af keppinautunum
þeir Anthony Benn, sem ekki
myndí nást samkomulag um,
og Denis Healey yröi þá væn-
legasta forsætisráöherraefni
flokksins aö visu ekki sérlega
vinsæll en virtur vel. Þaö
styrkir Healey aö hann hefur
hvorki skipað sér ákveðiö til
vinstri eöa hægri i flokknum
og hefur þvi stuöning miöju
manna, sem geta oröiö lóöiö á
vogarskálinni. Rætist spárnar
um aö efnahagsástandiö fari
aö batna á næsta ári, mun þaö
þakkaö Healey meirá en
nokkrum öörum, en
hlutverk hans hefur veriö
aö koma efiöum efnahags-
aögeröum gegnum þingiö
þar sem meirihluti Verka-
mannaflokksins hefur veriö
iitill, og fá verkalýös
hreyfinguna til aö fallast á
þær, og sætta sig jafnframt viö
tiltölulega litlar kauphækkan-
ir meöan þær væru aö bera á-
rangur. Náist tilætlaður ár-
angur, veröur staöa Healeys
sterk og hann talinn eins kon-
ar bjargvættur þjóöarinnar.
Slik viöurkenning myndi vart
hafa hlotnazt honum, ef hann
heföi látiö af embætti fjár-
málaráöherra nú.
Þess ber svo aö gæta, aö
embætti utanrikisráöherra er
ekki eins mikilvægt nú og þaö
var meðan Bretland var
heimsveldi. Frá gamalli tiö
hefur veriö litiö á embætti
fjármálaráðherra sem mikil-
vægasta ráöherraembættið
næst á eftir forsætisráöherra
embættinu. 1 samræmi við þaö
hefur fjármálaráöherra Uka
fastan bústaö, Downing Street
11, en forsætisráöherrann býr
I Downing Street 10, eins og
kunnugt er.
DENIS HEALEY veröur sex-
tugur i ágústmánuöi næstk.
Hann lagöi stund á félagsfræöi
og mannréttindi I Oxford og
þótti mikill námsmaöur. 1 siö-
ari heimsstyrjöldinni starfaöi
hann I verkfræöinga-deild
hersins á ýmsum vig-
stöövum og haföi hlotiö
majórstign áöur en henni
lauk. Fljótlega eftir striös-
lokin gekk hannn I þjónustu
Verkamannaflokksins og
vann viö þá deild á skrifstofu
hans, sem fjallar um alþjóöa-
mál. Þessu starfi gegndi
hann um sjö ára skeiö,
eöa þangaö til hann náöi
kosningu á þing 1952. Hann
hefur átt sæti á þingi
fyrir sama kjördæmi stöö-
ugt siöan. Á árunum 1951-
1963 skrifaði hann marga rit-
linga og bækur um utanrikis-
mál og varnarmál, m.a. um
málefni Nato. Einnig ritaði
hann greinar um ensk stjórn-
mál, sem birtust I erlendum
blööum. Hann varö svo ráö-
herra 1964, eins og áöur er
rakiö.
Healey hefur haft þaö orö á
sér, aö hann séfremur óþiöur i
framkomu og þykir þaö hafa
heldur spillt fyrir honum, en
gáfur hans og dugnaður hafa
bætt það upp. 1 tómstundum
sinum hefur hann fengizt
verulega viö ljósmyndatækni
ogframköllun og segist ekkert
minni sérfræöingur á þvi sviði
en Heath á tónlistarsviöinu!
Ef til vill skrifi hann þvi bók
um myndatökur, þegar hann
lætur af ráðherrastarfi.
Þ.Þ.