Tíminn - 15.03.1977, Side 11
Þriöjudagur 15. marz 1977
iÍLCTil'lÍlí'
n
Otgefandi Framsóknarflokkurinn,
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn-
arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Auglýsingastjóri:
Steingrímur GIslason.Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu
vib Lindargötu, slmar 18300 — 18306: Skrifstofur I Aöal-
stræti 7, slmi 26500 — afgreiösiuslmi 12323 — augiýsingá-
' simi 19523.. Verö I lausasölu kr. 60.00. Askriftargjald kr.
1.100.00 á mánuöi. Blaöaprenth.f.,
Graskögglamálið
Á nýloknu Búnaðarþingi voru að vanda rædd
mörg sameiginleg hagsmunamál landbúnaðarins
og þjóðarbúsins. Eitt hið stærsta þeirra var tvi-
mælalitið graskögglamálið. Landbúnaðarráð-
herra skipaði á siðastl. vori nefnd til að gera til-
lögur um þetta mál og var formaður hennar Hjalti
Gestsson ráðunautur. Alit nefndarinnar var til
meðferðar á Búnaðarþingi og hlaut þar góðar
undirtektir. Samkvæmt þvi virðist ljóst, að gras-
kögglar með meiri eða minni iblöndun annarra
efna, geti komið i stað meginhluta innflutts fóður-
bætis. Á árunum 1974-1976 voru að meðaltali flutt-
ar inn um 60 þús. smál. af kjamfóðri. Til þess að
ná framangreindu marki þarf að fimmfalda af-
köst innlenda fóðuriðnaðarins, og auka fram-
leiðslu úr 8 þús. smál. upp i 40 þús. smál. á ári.
í nefndarálitinu kemur fram, að rétt sé að gera
ráð fyrir þvi að þessi breyting taki alllangan tima
og leggur nefndin til, að þessi umrædda fram-
leiðsluaukning verði að fullu komin til fram-
kvæmda árið 1990. Árleg meðaltalsafkastaaukning
þarf að verða um 1400-2500 lestir og rækta þarf um
8500-9000 hektara lands. Þá þarf að byggja
allmargar verksmiðjur, og ef hver þeirra væri
álika stór og sú verksmiðja, sem nú er i Gunnars-
holti, þyrfti 11 slikar. Fjárfesting við þær fram-
kvæmdir væri 1.800-2.260 milljónir kr. Árleg fjár-
festing yrði þvi um 160-180 millj. kr. miðað við
verðlag nú, en hins vegar er bent á það i nefndar-
álitinu að þessar tölur myndu lækka verulega, ef
tollar og söluskattur af efni i verksmiðjurnar yrðu
felldir niður, eins og nefndin leggur til. Þá vill hún
gefa graskögglaverksmiðjunum kost á raforku á
sama verði og áburðarverksmiðjunni, til þess að
lækka framleiðslukostnaðinn.
Til þess að ná framangreindum markmiðum
leggur nefndin til, að fjár verði aflað með þvi að
stofna fóðuriðnaðarsjóð. Tekjur sjóðsins verði
hreyfanlegt gjald af cif-verði innflutts kjamfóðurs
allt að 6% og jafnhá upphæð úr rikissjóði árlega og
kjarnfóðurgjaldið nemur. Hlutverk sjóðsins verði
að veita styrki og lán til stofnunar fóðuriðnaðar og
styðja rekstur nýrra verksmiðja i byrjun.
Einnig leggur nefndin til að Byggðasjóður taki
upp fastan lánaflokk til fóðuriðnaðar, og nemi lán
Byggðasjóðs allt að 20% af stofnkostnaði. Stofn-
lánadeild landbúnaðarins láni um 15% af stofn-
kostnaði. Lán og styrkir Fóðuriðnaðarsjóðsins og
framlög stofnana, bænda og einstaklinga verði um
65% af stofnkostnaði.
Tvimælalaust er hér um að ræða eitt mesta
framfaramálið, sem biður úrlausnar á næsta ára-
tug.
Góður árangur
Nokkuð hefur verið rætt að undanförnu um
kostnað við slátrun og heildsöludreifingu á
sauðfjárafurðum. í þeim umræðum hefur það
komið fram og hefur þvi ekki verið mótmælt, að
hvergi i vestrænum löndum mun vera minni
munur á verði þvi, sem neytendur greiða fyrir
landbúnaðarvörur, og þvi verði, sem fram-
leiðendur fái fyrir vörurnar, en á Islandi. Þetta er
glæsilegur árangur af samvinnu bænda um
vinnslu og sölu afurðanna. Mestu ræður hér
umboðssölufyrirkomulagið, sem tryggir, að
bændur fái sinn hlut af söluverðinu. Að sjálfsögðu
er hér ekki reiknaður með i útsöluverðinu 20%
söluskattur, sem rikissjóður innheimtir.
ERLENT YFIRLIT
Ráðherrum stefnt
fyrir landsdóm
Söguleg ákvörðun italska þingsins
Sleppur Rumor?
SA ATBURÐUR geröist
siöastl. fimmtudag á
sameiginlegum fundi beggja
deilda italska þingsins, aö
samþykkt var aö svipta tvo
fyrrverandi varnarmálaráö-
herra ítaliu þinghelgi og
ákæra þá fyrir sérstökum
landsdómi vegna ásakana um,
að þeir heföu þegiö mútur af
ameriska fyrirtækinu Lock-
heed Aircraft Corporation
meðan þeir voru varnarmála-
ráöherrar, en þaö var á árun-
um 1968-1970. Hér er um aö
ræöa þá Luigi Gui, sem nú á
sæti i öldungadeildinni fyrir
Kristilega flokkinn, og Mario
Tanassi, sem á sæti i fulltrúa-
deildinni fyrir sdsialdemó-
krata, og var nýlega orðinn
formaöur þeirra, þegar hann
var fyrst ákæröur og lét hann
þá af formennskunni. A sam-
einuðum fundiitalska þingsins
eiga sæti 630 fulltrúadeildar-
menn og 332 öldungadeildar-
menn. Þaö var samþykkt meö
487 atkvæöum gegn 451 aö
ákæra Gui en meö 513 gegn 425
aö ákæra Tanassi. Jafnframt
var ákveöið aö ákæra niu
menn, sem voru háttsettir
embættismenn á þessum
tima,fyrirmeinta aöildþeirra
aö umræddum mútum. Meöal
þeirra er Diulio Fanali hers-
höföingi, sem var æösti yfir-
maður flughersins á þessum
tima.
Þaö hefur aldrei gerzt áöur,
aö Italska þingið hafi svipt
þingmenn þinghelgi eöa
ákveðiö aö ákæra fyrrverandi
ráöherra. Atökin urðu lika
hörð á þinginu og stóöu um-
ræður nær samfleytt i viku.
Báðir lýstu þeir Gui og Tan-
assi sig saklausa. Aðalverj-
andi Gui á hinum sameigin-
lega þingfundi var Aldo Moro
fyrrv. forsætisráöherra, en
aðaiverjandi Tanassi var Giu-
seppi Saragat, fyrrum forseti
italska rikisins.
UPPHAF þessa máls var
það, aö bandarisk þingnefnd
uppíýsti, að Lockheed-flug-
vélaverksmiðjan heföi beitt
stórfelldum mútum til aö
tryggja sölu á flugvélum sin-
um erlendis. Einkum heföi
þessari aöferö þd veriö beitt i
Japan og á ítallu. Upp-
ljóstranir þessar vöktu strax
mikið uppnám i Japan og hafa
m.a. leitt til ákæru á hendur
Tanaka fyrrv. forsætisráð-
herra. Á Italiu vakti máliö i
fyrstu ekki eins mikið upp-
nám, en þó fór svo, aö sérstök
þingnefnd var skipuö til aö
rannsaka málavexti. Hún skil-
aöi áliti i janúarmánuöi
siöastl. og lagði til, aö áöur-
greindir menn yröu ákæröir. í
nefndinni uröu mikil átök um,
hvort ekki ætti einnig aö
ákæra Mariano Rumor fyrrv.
forsætisráöherra, en þaö var
fellt i nefndinni meö eins at-
kvæöis mun. Sá orörómur
komstfljóttá kreik, aö einn af
þremur mönnum, sem gegndu
forsætisráöherraembættinu á
þessum tima, heföi einnig
þegiö mútur, en þessir menn
voru þeir Rumor, Moro og
Leoni,sem nú er forseti Italiu.
Fljótlega þótti uppvist, aö
Moro væri ekki neitt viö þessi
mál riöinn, en grunur féll
aöallega á Rumor. Mikill
ágreiningurvarö lika um þaö I
nefndinni, hvort ekki ætti
einnig aö ákæra hann.
ÞAÐ vakti lika strax mikla
andstööu i þinginu, aö Rumor
skyldi sleppa. Litill flokkur,
Radikali flokkurinn, hófst
strax handa um aö safna
undirskriftum meöal þing-
manna undir áskorun um, aö
hann skyldi einnig ákærður.
Kommúnistaflokkurinn lýsti
strax fylgi sinu viö undir-
skriftirnar, en Kristilegi
flokkurinn snerist öndveröur á
móti. Ekki fengust nema 375
undirskriftir, en 477 heföi
þurft til þess, aö Rumor yröi
ákæröur. Þaö var Sósialista-
flokkurinn, sem bjargaöi hon-
um meö þvi að neita aö taka
þátt i undirskriftunum. Sú af-
staöa hans hefur vakið allmik-
ið sundurlyndi meöal
óbreyttra liösmanna hans.
Þótt Rumor hafi þannig
sloppiö aö sinni, munu and-
stæöingar hans hafa huga á,
aö láta málið gegn honum ekki
falla niöur. Radikali flokkur-
inn hefur einnig krafizt frekari
rannsóknar á þvi, hvort Leoni
forseti hafi veriö eitthvaö við
mútumáliö riöinn.
Þ.Þ.
Forsætisráöherrarnir þrfr Leoni, Moro og Rumor
Þ.Þ.