Tíminn - 31.03.1977, Side 5
Fimmtudagur 31. marz 1977.
5
Harma, að stofnlána-
sjóðinn dagaði uppi
Laugardaginn 19. marz 1977 var
aöalfundur Landvara, lands-
félags vörubifreiðaeigenda á
flutningalciðum, haldinn i
Reykjavik. Eftir að formaður og
framkvæmdastjóri höfðu flutt
skýrslu stjórnar, þar sem hæst
bar taxtamálin og lánamál
félagsmanna, þá var gcngið til
stjórnarkjörs. Skipa nú stjórnina
eftirtaldir aðilar:
Formaður: Aðalgeir Sigur-
geirsson, Húsavik og
meðstjórnendur: Ólafur Ólafs-
son, Hvolsvelli og Þórður Þórðar-
son, Akranesi. t varastjórn:
Kristján Hansen, Sauðárkróki og
Jóhann Ingimundarson, Borgar-
nesi.
Eftir umræður um hags-
munamál félagsins var meðal
annars eftirfarandi ályktun
samþykkt:
„Aðalfundur Landvara haldinn
i Reykjavik 19. marz 1977
harmar, að frumvarp um
stofnlánasjóð vörubifreiða á
flutningaleiðum skuli hafa dagað
uppi i neðri deild Alþingis á s.l.
vori eftir að hafa verið samþykkt
i efri deild.
Vegna nefndar, sem Landvari á
fulltrúa i, er semja skal frumvarp
til laga um stofnlánasjóð vegna
kaupa á vörubifreiðum, lang-
ferðabifreiðum og stórvirkum
vinnuvélum vill aðalfundurinn
leggjá' áherzlu á, að fyrir-
huguðum stofnlánasjóði sé fyrst
og fremst ætlað það hlutverk að
leysa þarfir landsbyggðarinnar
varðandi fólks- og vöruflutninga
og varar við þvi, að inn i fyrir-
hugaðan stofnlánasjóð verði
blandað öðrum aðilum.”
75% ábót
í sólar-
ferðum
„Hátiðahöldin hefjast yfirleitt
strax á barnum á Keflavikur-
flugvelli, og annar þáttur fer
fram uin borð i flugvélinni á
suðurleið. t venjulegu áætl-
unarflugi Flugleiða eru settar
230 smáflöskur af áfengi um
borð i vélina, en þessi
skammtur er fjögur hundruö
flöskur i sólarlandaferðum.”
Þetta er lýsing á viðbúnaði i
svonefndum sólarferðum, tek-
in úr timaritinu F’rjálsri
verzlun.
Styrktar-
hljómleikar
Karlakórs
Reykjavíkur
HINIR árlegu styrktarfélaga-
hljómleikar KARLAKÓRS
REYKJAVÍKUR verða haldnir
i Háskólabiói dagana 4., 5. og 7.
april nk. og hefjast kl. 19 alla
dagana.
Hljómleikarnir verða óvenju-
legir að þvi leyti þessu sinni, að
erlendur einsöngvari syngur
með kórnum, en það er finnski
óperusöngvarinn BORIS BOR-
OTINSKIJ.
BORIS BOROTINSKIJ var
hér á ferð i fyrra með Karla-
kórnum Muntra Musikanter i
boði KARLAKÓRS REYKJA-
VIKUR og varð svo vinsæll fyrir
söng sinn, að þess eru fá dæmi
hér á landi um óþekkta erlenda
einsöngvara. Þvi var það að
KARLAKÓR REYKJAVIKUR
bauð honum að koma nú og
skemmta áheyrendum aftur.
BOROTINSKIJ er bassa-
barritón. Hann hefur numið
söng og tónlist við þekkta skóla i
Finnlandi og Sviþjóð og einnig
hjá kunnum óperusöngvurum.
Hann útskrifaðist frá SIBELIUS
AKADEMI 1969 og STATENS
MUSIKDRAMATISKASKOLA i
Stokkhólmi 1972. Siðan hefur
hann sungiö við Borgarleikhúsið
i Malmö i nokkur ár, svo og
óperuna i Stokkhólmi, auk þess,
sem hann hefur sungið i og með
kórum i Finnlandi við og við.
Söngskrá KARLAKÓRS
REYKJAVIKUR er mjög fjöl-
breytt eins og áður og setur
söngur BORIS BOROTINSKIJ
að sjálfsögðu sérstakan svip á
hljómleikana. — Þá ber að geta
þess, að kórinn mun nú flytja
aftur verk norska tónskáldsins,
John Person’s, sem hann samdi
sérstaklega fyrir KARLAKÓR
REYKJAVKUR með styrk frá
Norræna Menningarsjóðnum og
flutt var að Kjarvalsstöðum i
fyrra á Norrænum Músikdög-
um.
Söngstjóri er að vanda Páll
Pampichler Pálsson. Nokkrir
hljóðfæraleikarar aðstoða, en
einnig mun Hreiðar Pálmason
syngja einsöng.
KARLAKÓR REYKJAVIK-
UR hélt upp á 50 ára afmæli sitt
i fyrra með miklum glæsibrag
og vill nota tækifærið til þess að
senda nú öllum vinum og vel-
unnurum sinar beztu kveðjur og
þakklæti og þá sérstaklega rik-
is- og borgaryfirvöldum fyrir
kærkominn stuðning fyrr og sið-
ar.
12323 [iníwró^J
40 sidur
suntiudaga
Hér er fermingargjöfin
Weltron útvarpsklukkan
Svissnesk völundarsmíð
Hér er fermingargjöfin, sem uppfyllir
kröfur gefandans og óskir þiggjandans.
Sambyggt útvarpstæki og vekjaraklukka,
sem alltaf gengur hárrétt.
Útvarpstækið nær þremur bylgjum,
langbylgju, miðbylgju og FM-bylgju, og
við það er hægt að tengja hlustunartæki.
Klukkan sjálf er mikil völundarsmíð, ná-
kvæm í gangi með stórum, lýsandi tölum
og'sýnir jafnvel sekúndur.
Vekjarann má stilla á tvo vegu, annað
hvort fer útvarpið sjálfkrafa í gang eða
venjulegur sónn. Fyrir þá, sem eiga erfitt
meö að vakna má stilla tækið þannig, að
sónninn endurtaki sig aftur og aftur.
Þeir, sem vilja sofna út frá músík,
geta stillt tækið þannig, að útvarpið slökk-
vi sjálfkrafa á sér innan klukkutíma (0-60
mín.) og fari síðan í gang morguninn eftir
á tilsettum tíma.
Ef rafmagnslaust verður, er vararaf-
hlaða í tækinu, sem tekur sjálfkrafa við
og tryggir vakningu á réttum tíma.
Weltron útvarpsklukkan fæst i hvítu
og grænu og kostar kr. 36.500. Auk þess er
hægt að fá hana með greiðsluskilmálum.
eltron
ÚTVARPSKLUKKAN
fermingargjöfin sem vekur ánægju.
VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10. SÍMAR: 27788,19192,19150.