Tíminn - 31.03.1977, Qupperneq 8
8
Fimmtudagur 31. marz 1977.
FYRIRLESTRAR UM
SJÚKDÓM í HESTUM
Háskólinn hefur boðiö Dr.
Ewald Isenbiigel, kennara við
dýralæknadeild háskólans
i Zuric i Sviss þriðjudaginn eftir
páska (12. april). Erindin hefj-
ast kl. 8.30 um kvöldið. Ahuga-
menn um þessi málefni eru vel-
komnir að hlýöa á erindin.
Dr. Isenbugel varði á sinum
tima doktorsritgerð um sögu,
einkenni og ræktun islenzka
hestsins. Hann var kosinn fyrsti
forseti Evrópusambands eig-
enda íslenzkra hesta (F.E.I.F.).
sem stofnað var vorið 1969, og
hefur verið endurkosinn æ sið-
an.
Þetta kvöld verða hald-
in alls 3 fræðsluerindi,
þvi að auk erinda Dr. Isenbug-
els, flytur dr. Stefán Aöalsteins-
on, búfjárfræðingur við Itann-
sóknastofnun landbúnaðarins,
erindi um litaerföir islenzkra
hesta. Annað erindi Dr. Isen-
biigels fjallar um þátt hestsins I
menningarsögunni, en hitt er-
indi hans f jallar um helztu sjúk-
dóma , sem islenzkir, hestar fá
á meginlandi Evrópu.
Auk þbssara erinda i Háskól-
anum flytur Dr. Isenbúgel 2 er-
indi á kvöldfundum á eftirtöld-
um stöðum:
1. Selfossi, miðvikudaginn 13.
april fyrir hestamannafélögin á
Suðurlandi. Hestamannafélagiö
Sleipnir á Selfossi annast undir-
búning fundarins.
2. I Reykjavik (Fákshúsinu),
fimmtud. 14. april. „Fákur” sér
um undirbúning.
3. A Akureyri, föstudaginn 15.
april fyrir hestamannafélögin á
Norðurlandi. Hestamannafél.
Léttir annast undirbúning
fundarins.
Fyrra erindið fjallar um tölt-
hesta ýmissa landa.en hið sið-
ara um islenzka hestinn á
meginlandi Evrópu.Bæði erind-
in eru skýrð með ljósmyndum
og kvikmyndum. 011 erindin
hefjast kl. 8 1/2 að kvöldi. Þýð-
andi erindanna verður Pétur
Behrens, Keldnakoti, Arn.
Hvað er lagmeti?
gébé Reykjavik — Lagmeti eru
sjá varafurðir i loftþéttum
umbúðum, en langmest af þvi
lagmcti sem nú cr á boðstólum, er
niðursoðið. Um tuttugu fyrirtæki
munu vera aðilar að Sölustofnun
lagmetis, en samkvæmt
upplýsingum frá Islenzkri iðn-
kynningu segir, að um ellefu fyr-
irtæki framleiði lagmeti hérlend-
is i dag. Langstærsti hluti fram-
leiðslunnar er sild og sildarafurð-
ir og munar þar mest um gaffal-
bitana. Ennfremur má nefna
þorskafuröir, lifur og hrogn,
kaviar (grásleppuhrogn), rækju,
hörpudisk, loðnu, murtu, reykta
sild (kippers) og svo auövitað
fiskbollur og fiskbúðing, sem
einkum er framleitt fyrir innan-
landsmarkað. Allar þessar
tegundir eru til sýnis á matvæla-
kynningunni I Iðnaðarhúsinu,
sem stendur yfir þessa dagana.
Orðið lagmeti, telst til nýyrða i
málinu, en vinnsluaðferðin er
ekki ný af nálinni hérlendis. Sögu
hennar má rekja aftur til ársins
1858, þegar baróninn á Hvitár-
völlum hóf útflutning á niður-
suðuvörum frá Borgarnesi og
seldi þaðan niðursoðinn lax og
ýsu.
Síðan lá niðursuöuiðnaöur niðri
á íslandi fram til ársins 1907, aö
Niðursuðuverksmiðja tslands tók
til starfa á tsafirði og framleiddi
einkum niðursoðinn kola og
heilagfiski. Að nýju tók svo niður-
suðuiðnaðurinn fjörkipp á árun-
um milli heimsstyrjald-
anna og síðan aftur upp úr siöari
heimsstyrjöldinni. Langmest af
islenzku lagmeti, að fiskbollum
og fiskbúðingi undanskildum, er
flutt út og annast Sölustofnun lag-
metis söluna á erlendum mark-
aði, en skiptir sér ekki af heima-
markaði.
A heimamarkaði hefur islenzkt
lagmeti ekki náð þeirri fótfestu,
sem æskilegt væri, en tryggur og
stór heimsmarkaður er slikum
iðnaði nauðsynlegur og talinn for-
senda þess að hann geti oröið
öflugur.
Atvinna viö lagmetisiðju er
nokkuð sveiflukennd, en láta mun
nærri, að i ár séu þar um 500 árs-
störf, enda litur út fyrir að sala á
islenzku lagmeti erlendis muni
tvöfaldast þetta ár, miðað viö ár-
ið 1976.
TVENN LOG
SAMÞYKKT
MÓ-Reykjavik. — Tvenn lög
voru samþykkt á Alþingi I
gær. Annars vegar voru það
lög um fávitastofnanir, en hin
lögin voru staðfesting á bráða-
birgðalögum um almanna-
tryggingar frá þvl á siöasta
sumri.
Frumvarpið, sem samþykkt
var um fávitastofnanir var
breyting á lögum frá 1967 en
þar var ákvæði um að þroska-
þjálfaskóli væri rekinn i
tengslum við aöalfávitahæli
rikisins. í þeim lögum var
einnig ákvæði um að forstööu-
maður aðalfávitahælis rlkis-
ins skuli vera skólastjóri skól-
ans, en vera um leið undan-
þeginn kennsluskyldu.
Nú hefur fávitastofnunum
fjölgað og því er ekki talið eiga
lengur við að binda starfsemi
skólans algerlega við eina á-
kveðna stofnun. Jafnframt er
talið, að nauðsynlegt sé að
setja ákvæði i lög um menntun
skólastjóra, en engin ákvæði
eru þar um i lögunum frá 1967.
1 þeim lögum, sem samþykkt
voru I gær er ákvæði um að
skólastjóri Þroskaþjálfaskól-
ans skuli hafa lokið háskóla-
prófi i uppeldis- og sálarfræði
og hafa lokið sérkennaraprófi
frá viðurkenndum háskóla.
Skólastjórinn á einnig að hafa
staðgóða þekkingu á uppeldi
og umönnun fólks með sér-
þarfir.
Álag á útsvar
til sjúkrasamlaga
Lögin um breytingu á al-
mannatryggingum voru stað-
festing á bráðabirgöalögum
frá þvi i ágúst sl., en þau voru
sett vegna þess, að i ljós kom,
að skýr ákvæði vantaði i lög
frá 31. des. 1975um hvaöa aðili
skyldi leggja á svokallað
sjúkratryggingagjald. Einnig
kom i ljós að álag þetta var
lagt á tekjulitla elli- og ör-
orkulifeyrisþega, en slikt var
ekki tilgangur laganna.
o
Polu
Vinni Mecking biðskákina frá i
gærkvöldi er hann orðinn jafn
Polugajevski að vinningum,
5,5:5,5. 12. einvigisskák þeirra
verður þvi hrein úrslitaskák, eins
og hér heima. En litum á skák
þeirra frá i gær.
Hvitt: Polugajevski
Svart: Mecking
Akranes og
nágrenni
Innlend og erlend sófa-
sett. AAargar gerðir.
Vcrð frá kr. 171.000
Til fermingargjafa:
Skatthol, kommóður,
skrifborð með plötu-
geymslu, skrifborðs-
stólar o. fl.
10% staðgreiðslu af-
sláttur.
Húsgagnaverzlunin
STOFAN
Stekkjarholti 10,
Sími 93-1970
1. d4 Rf6
2. c4 e6
3 Rf3 b6
4. g3 Bb7
5. Bg2 Be7
6. 0-0 0-0
7. Rc3 Re4
8. Rxe4 Bxe4
. 9, Rel BxB
10. RxB d5
11. Da4 Dd7
12. DxD RxD
13. cxb5 exb5
14. Bf4 Bf6
15. Hfdl c5
16. Be3 Hfd8
17. Rf4 Rf8
18. dxc5 d4
19. Bd2 bxc5
20. Hacl Be7
21. Rd3 Rd7
22. e3 Hac8
23. exd4 cxd4
24. Hxc8 Hxc8
25. Kfl f6
26. Hcl HxH
27. BxH Kf7
28. b3 Ke6
29. Ke2 g5
30. Bd2 Kd5
31. Bb4 Bxb4
32. Rxb4 + Kc5
33. Rd3+ Kd5
34. g4 Re5
35. f3 Rc6
36. Rf2 Rb4
37. a3 Rc2
38. Re4 Ke5
39. a4 Rb4
40. Rc5 Kd6
31. Rd3 biö
Varmadælur
hlöðu af ákveðinni stærð og
gerð, og standa vonir til, að
samsetning og orkunýtingar-
prófunum verði lokið fyrir 1.
mai, og varmadæla þessi, sem
notar hálft fjóröa kilóvatt,
verði reynd á Hvanneyri i
sumar.
Oruggt er lika talið, að meö
varmadælu og notkun raf-
magns væri kleift að hrað-
þurrka hey til framleiðslu á
grasmjöli og graskögglum
meö hagstæöari orkunotkun
heldur en nú tiðkast meö oliu-
kyntum þurrkunarsamstæð-
um.
I gær voru siðustu fundir Al-
þingis fyrir páskafri þing-
manna og voru mörg mál á
dagskrá, en páskafri þing-
manna verður til 13. april.
A fundi sameinaðs þings
voru fjórar tillögur til þings-
ályktunar sendar til allsherj-
arnefndar. Það voru tillögur
um ellilifeyrisþega, flugsam-
göngur við Vestfirði, veitingu
prestakalla og launakjör
hreppstjóra.
t efri deild var frumvarpið
um mat á sláturafurðum sam-
þykkt að lokinni þriðju um-
ræðu og sent neðri deild. Þá
mælti Ólafur Jóhannesson við-
skiptaráöherra fyrir frum-
varpi til laga um heimild fyrir
rikisstjórnina að staöfesta
fyrir tslands hönd breytingar
á og viðauka viö stofnskrá Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins.
t neðri deild var frumvarp
alþingi
um virkjun Blöndu og frum-
varp um virkjun Hvitár i
Borgarfirði afgreitt til
nefndar að lokinni fyrstu um-
ræðu og Gunnar Thoroddsen
félagsmálaráðherra mælti
fyrir frumvarpi til laga um
byggingalög og fylgifrum-
varpi þess, sem er breyting á
skipulagslögum. Þessi frum-
vörp voru bæði afgreidd til
nefndar að lokinni umræðu.
Þá var frumvarpið um ráð-
stafanir til þess að draga úr
oliuveröhækkunum á hitunar-
kostnað Ibúða afgreitt til
þriðju umræðu.
Loks mælti Jónas Arnason
fyrir frumvarpi sinu um
fuglaveiðar og fuglafriöun og
Sigurlaug Bjarnadóttir fyrir
þingsályktunartillögu sinni
um tónmenntarfræðslu i
grunnskóla.
M.Ó.
Lítill loðnuafli
gébé Reykjavik — Bræla hefur
verið á loðnumiöunum á utan-
verðum Eyjafirði undanfarna
tvo sólarhringa en þrátt fyrir
óhagstætt veður hafa skipin
reynt að athafna sig.
A þriðjudag fengu þessi
skip afla; Gisli Arni 400 tonn
og Sigurður 400 t sem landaö
á Siglufiröi og Súlan 160 tonn,
sem landað var á Krossanesi.
1 gærmorgun fengu þrjú skip
slatta Loftur Baldvinsson 50
tonn og Pétur Jónsson 80 tonn,
sem landað var á Siglufiröi og
á Krossanesi landaði Hákon
160 tonnum i gær.
Enn eru 18-20 skip aö loðnu-
veiðum en búast má viö að ef
brælan helzt lengur, þá fari
þau að snúa sér að öörum
veiðum, neta- eða togveiöum.
Eins og er, liggja flest skipin i
vari eða reyna aö kasta þegar
veðrinu slotar aðeins. Norð-
austan hvassviöri var á þess-
um slóðum i gær.
Kvöídverðlaun
eiöf^0
HEILDAR-
VERÐLAUN:
Sp
r»io
Ferð til Vínarborgar
Húsið opnað kl. 8 og byrjað að spila kl. 8,30 p q daga) fyrir tvo
Framsóknarfélag Reykjavíkur
21. maí n.k.