Tíminn - 13.04.1977, Blaðsíða 2

Tíminn - 13.04.1977, Blaðsíða 2
2 Miðvikudagur 13. aprll 1977 Rýmingar- SALA Vegna þess að búðin hættir MEÐAL ANNARS í SKÓDEILD Verð áður kr. 2.660—Verð nú kr. 1.990 Verðáður kr. 5.560—Verðnúkr. 3.500 Verð áður kr. 5.980 — Verð nú kr. 2.800 Verðáðurkr. 3.500—Verðnúkr. 2.500 Sendum gegn póstkröfu íslenzkur togari í landhelgi: DÆMDUR I 1.6 MILLJ. KR. SEKT — afli og veiðarfæri gerð upptæk gébé Reykjavik. — Varöskipið Ægir stóð togarann Arsæl Sig- urðsson II HF 12, að meintum ó- lögiegum veiðum SV af Surtsey að morgni föstudagsins langa. Farið var með togarann til Hafnarfjarðar, þar sem réttar- höld hófust á laugardagsmorg- un og lauk þeim ekki fyrr en um miönættisama dag. Dómur féli á þá leiö, að skipstjóranum var gert að greiða 1,6 milljónir króna i landhelgissjóð og voru afli og veiðarfæri gerð upptæk. Aflinn var um þrjátiu tonn, en hann, ásamt veiðarfærunum, var metinn á 1,7 milljónir króna. Auk þess var skipstjóra gert aö greiða málskostnað. Guðmundur L. Jóhannesson, fulltrúi bæjarfógeta I Hafnar- firði, kvað upp dóminn, en með- dómarar hans voru tveir fyrr- verandi skipstjórar, Arni Sig- urðsson og Þorsteinn Einars- son. Arsæll Sigurösson II var að veiðum SV af Surtsey, en þar er friðað svæöi fyriröðrum veiðum en I net og handfæri. Varðskipið kom að togaranum, þar sem hann var með trollið i sjó, og samkvæmt mælingum varð- skipsmanna, mun togarinn þá hafa veriö 0,4 sjómilur inni á friðaöa svæðinu. t fyrstu fram- kvæmdu varðskipsmenn radar- mælingu, og samkvæmt henni mun togarinn hafa lengst verið inni á friöaða svæðinu 2,8 sjó- milur og 2 sjómilur inn á karfa- svæðinu. Mælingar voru einnig gerðarmeð giróáttavita,sem þó mun ekki hægt að byggja á, þar sem skekkja reyndist i honum. Samkvæmt fjarlægðar- og lóranmælingum, reyndist tog- arinn vera 2,3 milur inni á frið- aða svæðinu og 1,5 milu inni á karfasvæðinu. Auk þess að vera staðinn að ó- löglegum veiðum, mun togarinn einnig hafa verið með of smáa möskva fyrir karfaveiðisvæðið, en þar er lögleg möskvastærð 155 mm. siðustu 8 metrana i trollinu. Hins vegar var möskvastærð togarans 135 mm. Hlaut skipstjórinn þvi dóm fyrir hvort tveggja, landhelgisbrotið og ólöglega möskvastærö. — Togaramenn munu hafa talið sig hafa verið á mörkunum fyrir utan friðaða svæðið, og stangast framburður þeirra á viö framburð þeirra fjögurra varðskipsmanna, sem mættu fyrir réttinum. Það kom ekkert fram við réttarhöldin, sem mælti gegn þvf aö mælingar varðskipsmanna væru réttar og þvi varð okkar niðurstaða sem fyrr segir, sagði Guðmundur L. Jóhannesson fulltrúi. Varðskipsmenn kæröu togar- ann fyrir meintar ólöglegar veiðar, og ennfremur fyrir aö vera með of smáa möskva á karfasvæðinu. Siðan barst bæjarfógetai Hafnarfirði ákæra frá ríkissaksóknara, en þaðan er togarinn, og var málið tekið þar fyrir sl. laugardag eins og fyrr segir. Varnargarð- urinn i Mývatns- sveit gébé Reykjavik — Aætlaö er að hefja vinnu við varnargaröinn hér I sveitinni strax eftir páska, en um 6-7 millj. króna hefur ver- ið veitt til þessa verks. Gerð varnargarðsins hófst s.I. haust og hefur verið unnið við hann fyrirþrjárog hálfa millj. króna, eða 1/3 hluti verksins. Vega- gerðin sér um þessar fram- kvæmdir, og eru þegar komnar á staðinn vinnuvélar og vinnu- skúrar. Það átti að hefja vinn- una I slðustu viku, en vegna ó- hagstæðs veöur var það ekki hægt. Efnið I garöinn er tekiö rétt norðan viö þrær Kfsiliðj- unnar. — Þannig fórust Jóni Ulugasyni, oddvita og formanni Almannavarna Mývatnssveit- ar, orð nýlega. Jón sagði einnig, aö nú væru að hefjast framkvæmdir við byggingu fimm íbúðarhúsa fyr- ir Kröfiuvirkjun I þéttbýlis- kjarnanum við Reykjahllð. Verktaki er Ölafur Gunnarsson, Húsavlk, og er áætlaö að húsin, sem öll eru einbýlishús, veröi Ibúðarhæf fyrir árslok. — Fjög- ur húsanna eru rúmir 130 fer- metrar, en eitt er 146 fermetrar að stærð. Auk þess fylgja þeim öllum bllskúrar, sagði Jón Illugason. Það fór aldrei svo Það fór aldrei svo, að ekki félli páskasnjór, enda var ungviöiö I höfuð- staðnum búiö aö biöa hans vetrarlangt. Aö vlsu er heldur lítið viðnám I svona snjóföli, en tækifærið var gripiö fegins hendi, eins og myndin sýnir. — Tlmamynd: Róbert. Ferðagjald- eyririnn: Breytt tilhögun Viöskiptaráðuneytiö hefur ákveðið að gjaldeyrisyfir- færslur til þeirra, er fara I skemmtiferðir til útlanda skuli hækka úr kr. 50.0001 kr. 75.000 á mann. Jafnframt falla niður heimildir feröa- skrifstofa til þess að selja matarávlsanir og kynnis- ferðir gegn greiðslu i is- lenzkum krónum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.