Tíminn - 13.04.1977, Page 6
6
Miðvikudagur 13. aprfl 1977
— Viðskiptavinur okkar þarf að
vita hvort hcimilistryggingin nær
yfir þaö slys á heiinili hans, aö
inn brotsþjófur datt i stiganum
þegar hann var að bera sjón-
varpstækið út?
— Mitt privat álit er það, að mér
finnst pianóiö miklu geöslegra
þegar það stóð bara þarna og
safnaði ryki.
I
Nei, heyrðu nú Rollo, gaztu nú
ekki beðið andartak þangað til
maturinn þinn væri tilbúinn?
Ég held ég kveiki f vindlinum
semna.
Gæludýr
prinsessunn
ar af
Alwar
Gæludýr prinsessunnar af Alwar
Heimili prinsessunnar af Alwar heitir Phool-
baghhöll i jaðri eyðimerkur, um 100 milur frá
New Delhi. Hún þarf ekki að hafa áhyggjur af
svo veraldlegum hlut sem vekjaraklukku. Hún
vaknar við öskrin í uppáhalds ljónynjunni
sinni, September, sem sefur i næsta herbergi
við húsmóður sina, svo og geltið i finu ættar-
töluhundunum sinum á neðri hæðinni. Og ef
þessi hávaði dugar ekki til að prinsessan vakni
þá bjargar sennilega blástur frá 10 filum úti i
garðinum og blaðrið i fjölda af öpum. Fjöl-
skylda prinsessunnar er ein af þeim rikustu i
Indlandi og ekki veitir af auðæfum, ef nægja á
til að halda uppi öllum þessum skara af gælu-
dýrum. Þrjú hundruð manns þarf til að sjá um
þessi dýr. Konur með blæjur (sjá mynd) sitja
ogtina maura úr feldi hundanna. Ljónynjan og
hundarnir fá beinlaust kjöt, flatbaunir, hveiti-
búðing og grænmeti, matreitt með hvitlauk og
lauk. Fyrir svefninn fá þau 1 litra af mjólk og
tvö hrá egg hrærð út i. Þarna eru 100 af beztu
kapphlaupa hestum Indlands. Auk þess eru alls
konar fuglarog jafnvel kameldýr. Öll þessi dýr
njóta frelsis og letilifsins daglangt, en á kvöld-
in er að minnsta kosti einkaherbergi ljónynj
unnar