Tíminn - 13.04.1977, Page 10
10
Miövikudagur 13. apríl 1977
Flokkseigendafélagið
Einhver ihugunarveröasti
félagsskapur á landi hér er
flokkseigendafélag Alþýöu-
bandalagsins. Þessi félags-
skapur er mjög agaöur af
löngu starfi og hárösnúnum
kenningum, en dagskipunin hin
siöari árin hefur veriö sú, aö
láta lltiö á sér bera út á við en
treysta þvi betur tökin á
flokknum á bak viö tjöldin.
Þessi klika samanstendur aö
mestu leyti enn af þeim
mönnum, sem alizt höföu upp til
forystu i Sósfalistaflokknum á
sinni tiö og höföu lært hin
byltingarsinnuðu fræöi f skóla
flokksins.
Þaö mun ekki heiglum hent að
komast inn i þetta félag, og hafa
þó ýmsir reynt. Þannig var
Hannibal Valdimarssy ni
strengilega haldið utan viö þetta
félag öll þau ár sem hann átti
samleið meö Alþýöubanda-
laginu, og allan timann hélt
klfkan uppi stööugri skothriö á
hann innan flokksins. Skothriöin
var linnulaus, en þeir settu
hljóödeyfi á byssuhlaupin lengi
framan af. Þaö var ekki fyrr en
á sögufrægum fundi i Tónabiói,
aö slikt hljóölæti þótti oröiö
óþarft. Ekki er aö efa aö þeir
Hannibal, Finnbogi bróöir hans,
Magnús Torfi og Björn Jónsson,
ásamt fleiri, gætu frætt þjóöina
talsvert um einkennilegar
starfsaöferöir flokkseigenda-
félagsins ef þeir vildu.
En enda þótt margir yrðu frá
aö hverfa og fengju ekki inn-
göngu i þetta merkilega félag,
þá er þaö þó ekki svo aö þvi hafi
ekki auönazt nokkur blóbgjöf á
siðari árum. Er þaö einkum
hyggnir fjáraflamenn, sem
hlotnazt hefur heiöurinn á
siöasta áratug. Hjá þvi hefur og
ekki farið aö þeirra gætti
nokkuö i starfseminni. Þegar
tekin var saman stefnuskrá
fyrir Alþýöubandalagiö fyrir
nokkru hlaut flokksformaöurinn
þannig aö minnast þeirra sér-
staklega i formálanum þar sem
ekki þótti hlýöa aö helga þeim
sérstakan stefnuskrárkafla, og
kennir þó ýmissa grasa i
þessum marglita samsetningi. t
formálanum er þó aöeins getiö
nokkurra af þeim fjáraflafyrir-
tækjum, sem upp hafa risiö og
alveg látið hjá liöa aö rekja til-
vist gömlu heildsölu- og inn-
flutningsfyrirtækjanna frá
Nýsköpunarárunum.
útsmogin
f járaflastarfsemi
Almenningur á þess engan
kostaö gera sér fulla grein fyrir
f járaflastarfsemi flokks-
eigendafélags Alþýöubanda-
lagsins. Hinu veröur hann þó
ekki leyndur aö hér ganga út-
smognir kapitalistar um garða.
Þeir eru meira að segja svo út-
smognir aö þeir hafa hagsmuni
alþýöunnar sér aö veifu, og má
reyndar segja aö þeim þyki
betra aö veifa röngu tré en
öngu. I formálanum, þar sem
flokksformaöurinn, Ragnar
Arnalds, tileinkar þessum
mönnum stefnuskrána og
flokkinn 1 veröugu þakklætis-
skyni, er auk fyrirtækjanna
getiö um stjórnarformenn og
helztu fasteignir, sem fjárafla
mennirnir hafa dregiö i búiö.
Mjög ófullkomiöyfirlit hljóðar á
þessa lund:
titgáfufélag Þjóöviljans
Prentsmiöja Þjóöviljans hf.
Miögarður hf.
Prent hf.
Sigfúsarsjóöur Sigurhjartar-
sonar
Samtún hf.
Þessi fjáraflafélög hafa þaö
helzt aö markmiði á ytra borði,
aö ann.°.st urn fjárreiöurnar sem
til þarf aö halda úti Þjóðvilj-
anum og opinni flokksskrifstofu
ásamt starfsmönnum. Nýlega
reisti flokkseigendafélagiö
Þjóðviljanum veglegt hús af
mikilli rausn og sniöugum klók-
indum, en ekki er alveg ljóst
hvort enn eitt hlutafélagið var
stofnaö um þaö hús eöa ekki.
Reyndar eiga þessi félög iöu-
lega hlut hvert i ööru, og munu
fjármunirnir leka þar inn og út
um gafla eftir þörfum og henti-
semi félagsskaparins. óreyndir
kapitalistar geta vafalltið
margt lært af bragöarefunum
sem stjórna Alþýöubanda-
laginu. Auk fjármálalegra
transaksjóna geta menn ekki
siður lært af þeim, hvernig
halda á uppi svo mjúklegri
auglýsingastarfsemi aö þaö
viröist hvltt sem i raun og veru
er svart. Mönnum skal þó tekinn
vari fyrir þvi sérstaka loddara-
bragði, aö rugla svo litskynjan
manna aö þaö viröist blátt, sem
er i raun og veru rautt aö lit.
Nýliðar með
samskotabauka
A sinum tima gekkst Kristinn
heitinn Andrésson fyrir þvi aö
stofnaö var bókmenntafélag
fyrir alþýðu. Þegar flokks-
eigendafélagiö haföi lokið þvi
verki að hreinsa út Hannibal og
aðra slíka úr flokknum og haföi
náö tryggilegu taki á Alþýöu-
bandalaginu tók þaö aö litast
um eftir nýjum verkefnum. í
ljós kom, aö tökin höföu linast á
útgáfufyrirtækinu Máli og
menningu. Æföum höndum
fjölluöu þessir menn um þetta
vandamál, og má þvi bæta þeim
félögum, sem þar er um að
ræða, viö listann yfir fjárafla-
félög kllkunnar. Þar er aö geta
þessara fyrirtækja:
Bókmenntafélagiö
Mál og menning
Bókaverzl. Máls og menningar
Heimskringla hf.
Vegamót hf.
Prentsmiöjan Hólar hf.
Eyöublaöatækni hf.
Flokkseigendafélag Alþýöu-
bandalagsins ástundar
marxistlsk fræöi i tómstundum
sinum, hefur lært hitt og þetta á
langri leið en engu gleymt af
þeim lærdómum sem kenndir
voru og þóttu góð latina fyrr á
árum. Þáttur i þessum lær-
Þjóöviljahúsiö
dómum er svo nefnd dialektlsk
stjórnlist. Félaginu hefur orðiö
þaö ljóst, aö ekki tjóir lengur að
berja bumbur byltingarinnar
fyrir öðrum en námsfólki.
Frammi fyrir almenningi hefur
þvi veriö tekiö annaö ráö. Nú
skal Alþýöubandalagiö heita
sameiningarflokkur „allra
vinstri manna” á Islandi, segir
flokkseigendafélagið og glottir
aö svo fagurlegu tiltæki. Og þvi
er ekki aö leyna, aö enn hafa
nokkrir fundizt sem bitu á
agniö. A sinni tiö var þaö
sameiningarflokkur fyrir
sósialista, og Héöinn Valdi-
marsson og fleiri fengu aö
kenna á þvi. Seinna var þaö
sameining alþýöunnar og
verkalýössinna, og Hannibal og
hans menn supu seyðið af þvi.
Nú er þaö sameining „allra
vinstri manna” sem höfö er á
orði, og um þessar mundir eru
nýliöarnir aö ganga um meö
samskotabauka flokkseigenda-
félagsins á þeim fjölskrúöugu
samkomum, sem þaö efnir til I
þvi skyni að auka veg sinn.
Dialektisk stjórnlist
Þaö kann aö vera, aö ein-
hverjir af nýliöunum ætli sér
svo mikinn hlut aö þeim veröi
veitt innganga I félagið. Af
reynslu áratuganna sem aö baki
eru verður aö telja slikt óhugs-
andi. Hins vegar fer félagiö
vinarhöndum um þá meðreiðar-
sveina sina sem vel láta aö
stjórn. Aörir sæta öörum
kostum.
Þaö kann aö vera aö mörgum
viröist sem svo af skrifum
Þjóöviljans undanfarin ár, aö
þar sé orðinn mikill ruglingur á
hugtökum. Þar ægir öllu
saman: sérhagsmuna-
viðhorfum nýju menntamanna-
stéttarinnar, hagsmunabaráttu
launafólksins kröfum smá
kapitalista, umhverfisvernd,
þjóöernisstefnu, hefðbundnum
marxisma og þokukenndum
hróöri um vinstri sinnaöa
meöreiöarsveina. En þessi
ruglingur er aöeins á ytra boröi.
Honum er ætlaö þaö hlutverk
eitt aö vera digur ormur á
önglinum. Flokkseigendafélag
Alþýöubandalagsins hefur
ekkert ruglazt I rlminu. Þaö
hefur hin kommúnistisku
sjónarmið þvi fastar fyrir
augum sem þaö skemmtir sér
meir yfir þeim ruglingi sem þaö
veldur auötrúa sálum. Samein-
ing „allra vinstri manna”
Islandi er aöeins þáttur i þeirri
dialektisku stjórnlist aö villa
um fyrir fólki.
Starfshópar ræða
við aóila
vinnumarkaðarins
Mó-Reykjavik — Rikisstjórnin
hefur sett á fót nokkra starfs-
hópa til þess aö kanna ýmsa
málaflokka og ræða viö aöila
vinnumarkaöarins vegna þeirra
kjarasamninga, sem nú standa
fyrir dyrum. Jón Sigurösson
forstööumaöur Þjóöhagsstofn-
unar hefur forustu fyrir þessum
hópum og er tengiliður milli
þeirra.
Tiigangurinn meö þessum
vinnuhópum er fyrst og fremst
sá aö gefa rikisstjórninni
skýrslu um hvað sé fyrirsjáan-
legt og hvers sé að vænta varö-
andi þau atriði, sem kröfur hafa
komiö fram um hjá aðilum
vinnumarkaöarins.
Meöal þeirra hópa sem starf-
andi eru er vinnunefnd, sem
ræöir viö launþegasamtökin um
verölagsmál. Georg Ólafsson
verðlagsstjóri er formaður
þeirrar nefndar, en meö honum
i nefndinni eru alþingismenn-
irnir Halldór Asgrímsson og
ólafur G. Einarsson. Sú nefnd
kemur saman til fyrsta fundar i
dag.
Þá eru starfandi vinnuhópar
til þess aö kanna húsnæöismál,
skattamál og lifyrissjóöamál og
fleiri málaflokka, sem snerta
kröfugerö launþegasamtak-
anna.
Enn
landris og
skjálftar
gébé Reykjavik — Enn er óbreytt Frá þvf kl. 15 á mánudag til kl.
ástand viö Kröfluvirkjun, jarö- 15 i gær, mældust alls 103 jarð-
skjálftar mældust vera um og yfir skjálftar á mælum i Reykjahliö.
eitt hundraö talsins á sólarhring Norðurendi stöövarhússins, miö-
yfir páskahátföina, og landris aö viö suöurendann, er nú kominn
heldur enn áfram. Einstaka jarö- i rúma 12 mm, en aldrei hefur
skjálftar hafa veriö þaö sterkir, hann mælzt meiri frá gosinu i
aö menn hafa fundið greinilega til Leirhnjúk um áriö. Jarðvlsinda-
þeirra, og i gærmorgun mældist menn þora engu aö spá um fram-
einn vera 3,1 stig á Richter og vindu mála á jaröskjálftasvæö-
fannst hann greinilega i Mývatns- inu, enda á þessi þróun sér enga
sveit. hliöstæðu.