Tíminn - 23.04.1977, Blaðsíða 3
Laugardagur 23. april 1977
3
Þar standa dýr
og vönduð tæki
ónotuð með öllu
— vegna skorts á húsnæði fyrir gosefnanefnd og
rannsókna og athuganastarf hennar
HV-ReykjavIk. — Þessi ofn kom
hingað tii okkar haustiö 1976, þah
er að segja siðastliðið haust, en,
eins og þið sjáið, stendur hann
enn ónotaður þarna úti I horni,
þar eb við höfum alls ekki hús-
rými til þess að koma honum I
gagnib og hefja athuganir með
honum.sagði Aðalsteinn Jónsson,
verkfræðingur hjá Rannsókna-
stofnun iðnaðarins, en hann á
Ofninn stendur úti i horni, af-
girtur með leirbrennsluofni á
einn veg, ofni sem notaður er
við rannsóknir á perlusteini á
annan veg, veggjum á þriðja
og fjórða veg. Dýrt tæki og
vandað, ónotað með öllu, þar
sem ekki virðist hægt að fá
húsnæði tii að koma þvi fyrir.
jafnframt sæti f gosefnanefnd, i
viðtali við Tfmann i gær.
Ofn sá, er um er rætt, er raf-
bræösluofn, hingað fenginn á veg-
um gosefnanefndar, fyrir atbeina
einnar af fyrirgreiðslustofnunum
Sameinuöu þjóðanna, nánar til-
tekið Iðnþróunarstofnunar Sam-
einuðu þjóðanna (UNIDO).
Þessi ofn er einkum til þess
ætlaöur að bræða I honum berg til
athugana á ýmsu þvl sem fram-
leiða má úr bráönu bergi, meðal
annars sementi, ýmiss konar
trefjum og fleiru.
Gosefnanefnd hefur engan fast-
an samastað fyrir athuganir sln-
ar og rannsóknir, heldur eru þær
unnar hjá hinum ýmsu stofnun-
um, aðallega Rannsóknastofnun-
um iönaöarins og byggingar-
iðnaöarins.
Hjá Rannsóknastof nun
miUj-
nna
son, Skammadalshóli, Einar
Sigurfinnsson, Hveragerði, Flosi
Björnsson, Kvískerjum,
Guðbrandur Magnússon, Siglu-
firði, Indriöi Indriðason,
Reykjavlk Jón Glslason
Reykjavlk, Jón Guðmundsson,
Fjalli, Jón J. Skagan,
Reykjavik, Magnús Sveinsson,
Reykjavlk, Siguröur Olason,
Reykjavlk, Skúli Helgason,
Reykjavík, Stefán Jónsson,
Höskuldsstöðum og Þórður
Tómasson, Skógum.
Styrkir til ýmissrar menning-
arstarfsemi og ferðastyrkir eru
veittir eftir þvl sem fjárveiting
endist og eru án sérstaks
umsóknarfrests. A þessu ári er
gert ráð fyrir kr. 1.510.000 I þessu
skyni.
Svo sem kunnugt er, er
Menntamálaráð Islands stjórn
Menningarsjóðs, en það var
stofnað með lögum hinn 12. april
1928. Hlutverk menningarsjóðs
eru einkum bókaútgáfa og veiting
styrkja til stuðnings listamönnum
og menningarstarfsemi. Núver-
andi Menntamálaráð var kjörið á
Alþingi 1 desember 1974 og skipa
það Kristján Benediktsson for-
maður, Baldvin Tryggvason
varaformaöur, Aslaug Brynjólfs-
dóttir ritari, Matthias Johannes-
sen og Björn Th. Björnsson.
Eins og sjá má af þessari mynd, er ákaflega þröngt um aðstöðu til rannsókna i þessu herbergi.
Tækjum, sýnishornum og ýmsu öðru ægir saman, svo að vart er manngengt á milii. Þarna fara
nú fram rannsóknir á málningu (steinplöturnar til vinstri) og Hmi, en þolþess er reynt I ramman-
um fyrir miðri mynd.
iðnaðarins eru athuganir fyrir
gosefnanefndina unnar i afþiljuðu
herbergi, um sjötlu fermetra að
flatarmáli, þar sem upphaflega,
þegar húsið var byggt, átti aö
vera kaffistofa og bókasafn.
1 þessu litla herbergi stendur
þessi rafbræðsluofn nú ónotaöur
og hefur gert I hálft ár eða meir.
Hann stendur úti I horni, bak viö
ofn, sem notaöur hefur verið til
athugana á þensluhæfni perlu-
steins, og er girtur alveg af meö
leirbrennsluofni.
1 herbergi þessu fara ýmiss
konar athuganir fram fyrir rann-
sóknastofnunina sjálfa, svo og
ýmsa aðra aöila. Þar standa nú til
dæmis yfir miklar rannsóknir á
málningu og llmi, og svo þröngt
er um þær athuganir, aö gæta
þarf varúöar þegar gengið er á
milli tækjanna á gólfinu, þar sem
rétt er manngengt á milli.
Aðalsteinn skýröi blaöamanni
Tlmans frá þvl I gær, aö eitthvaö
hefði veriö reynt aö fá húsnæði
fyrir þessi tæki gosefnanefndar
og rannsóknir á hennar vegum,
meðal annars hefði komiö til tals
aö fá hús, sem Orkustofnun hefur
haft þarna á Keldnaholti, en óvlst
væri enn hvernig þaö mál færi.
Þeir aðilar, sem Tlminn haföi I
gær samband við og eiga sæti I
gosefnanefnd, töldu þaö til lítils
aö endurtaka opinberlega þær
umkvartanir sem þeir hafa haft
fram aö færa til þessa, enda heföi
lltiö gagn verið að þeim. Hins
vegar bentu þeir á, að það væri
ekki til mikils að kaupa dýr og
vönduð tæki til landsins, ef þau
yröu svo aö standa mánuðum,
jafnvel árum saman ónýtt með
öliu, vegna þess aö hvergi er hægt
að fá þak yfir þau, eða aðstöðu til
að vinna með þeim.
Framleiðsla á ýmiss konar efn-
um meö rafbræöslu hefur færzt
nokkuð I aukana undanfarin ár,
og meöal annars sagði Aöalsteinn
Tlmamönnum frá þvl I gær, aö I
Frakklandi væri þegar komin á
stofn verksmiðja, sem framleiddi
sement meö sllkri aðferö.
Hátídarsýning á Straumrofi
hjá Leikfélaginu í kvöld
— vegna
afmælis
Halldórs
Laxness
gébé Reykjavlk — i kvöld hefur
Leikféiag Reykjavikur hátiðar-
sýningu á Straumrofi, vegna 75
ára afmælis höfundarins,
Halldórs Laxness. Þetta er
allefta sýning á leiknum, sem
var frumsýndur 16. marz s.l.
Uppselt er fyrir löngu á þessa
sýningu.
Leikstjóri að Straumrofi er
Brynja Benediktsdóttir, en með
aðalhlutverk fara Margrét
Helga Jóhannsdóttir, Jón Sigur-
björnsson, Arnar Jónsson og
Ragnheiður Steindórsdóttir.
Leikurinn var áður fluttur 1934
I Iðnó og hefur ekki veriö settur
á svið aftur fyrr en nú. Þetta er
fyrsta leikrit Laxness og sér-
stætt meðal verka hans. „Veru-
leika mannlegrar sambúbar er
snúið I goðfræðilegt munstur”,
eins og höfundur segir I leik-
skrá.
Frá vinstri: Leikararnir Arnar
Jónsson, Margrét Helga Jó-
hannsdóttir og Jón Sigurbjörns-
son I hiutverkum sinum.