Tíminn - 23.04.1977, Blaðsíða 9

Tíminn - 23.04.1977, Blaðsíða 9
Laugardagur 23. april 1977 9 (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Auglýs- ingastjóri: Steingrlmur Glslason. Ritstjórnarskrifstpfur I Edduhúsinu viö Lindargötu, slmar 18300 — 18306. Skrif- stofur I Aöalstræti 7, simi 26500 — afgreiösluslmi 12323 — auglýsingaslmi 19523. Verö I lausasölu kr. 60.00. Askriftar- gjald kr. 1.100.00 á mánuöi. Blaöaprent h.f. Vinstri og hægri Oft er rætt um hægri flokka og vinstri flokka, án þess að menn geri sér nógu nána grein fyrir þess- um hugtökum. Jón Sigurðsson gerði þessu nýlega góð skil i grein, sem nýlega birtist hér i blaðinu. Þar sagði m.a. á þessa leið: ,,Einsog kunnugt er hefur það lengi fylgt stjórn- málaumræðum að menn bera fyrir sig orð og hug- tök, sem eru engan veginnskýr eða ótviræð, og leggur hver sina merkingu i orðin en áheyrendur eiga erfitt með að fylgja umræðunum eftir . Meðal hugtaka af þessu tagi eru hugtökin „hægri-vinstri”, og ekki hefur ástandið batnað fyrir það, að nú vilja ýmis öfl eigna sér t.d. vinstra-hugtakið i blekkingarskyni. Þessi stjórn- málahugtök urðu til á árum frönsku stjórnarbylt- ingarinnar miklu fyrir tæpum tvö hundruð árum og við aðstæður gersamlega ólikar þeim sem nú eru i þjóðmálum. Til íslands bárust hugtökin frá Dönum um siðustu aldamót. Þá var i Danmörku, og er reyndar enn starfandi stjórnmálaflokkur, sem bar og ber enn heitið Vinstriflokkurinn. Um þessar mundir eru flestir sammála um að Vinstri- flokkurinn verði að teljast hægra megin við miðju danskra stjórnmála og segir það sina sögu um ör- lög vinstra-hugtaksins þar i landi. Þegar hugtakið „vinstri-stefna” barst til íslands lögðu menn almennt i það þá merkingu, að það fæli i sér umbótastefnu, framfarahug, áhuga á lýðræð- isþróun, samhjálp og kjarabótum til handa al- þýðu. 1 þvi fólst ekki byltingarstefna og um það hafði ekki verið soðin upp nein njörvuð hugmynda- fræði. Þegar Framsóknarflokkurinn var stofnaður árið 1916 kom það þess vegna mjög til greina að hann héti Vinstriflokkur eða Vinstrimannaflokkur. Og það hefur siðan verið s.vo, að Framsóknarmenn hafa verið kallaðir vinstrimenn og þetta heiti hafa þeir sjálfir notað alla tið. Það var alltaf viðurkennt að til vinstri i stjómmálum væru einnig aðrar fylk- ingar, en þær kenndu sig fyrst og fremst við jafnaðarstefnu, sameignarstefnu eða annað þvi um likt og þótti helzt til „hægfara borgaralegur” keimur af vinstri-nafnbótinni einni saman. Á fyrstu árum Framsóknarflokksins var ekki siður talað um að hann væri „milliflokkur”, og var þá við það átt, að annars vegar ætti hann i höggi við hægrisinnuð ihaldsöfl en hins vegar við bylt- ingarsinnaða marxista. Það lá með öðrum orðum i augum uppi að vinstristefnan stæði öfganna milli i islenzkum stjórnmálum. Hugtökin „vinstristefna” og „milliflokkur” fela þannig ekki i sér mótsögn, heldur höfðar hið fyrra til hugsjóna flokksins um þjóðfélag framtiðarinnar, en hið siðara til stöðu hans i flokkakerfi þjóðarinnar”. Farsælasta stefnan 1 áðurnefndri grein Jóns Sigurðssonar segir ennfremur á þessa leið: „Þegar litið er um öxl kemur það i ljós, að vinstristefna milliflokksins hefur reynzt farsælust þeirra hugmynda og hugsjóna, sem gætt hefur i stjórnmálum þjóðarinnar. Nú viðurkenna allir gildi mismunandi rekstrarforma i atvinnurekstri, nauðsyn almannasamtakanna i landinu, þörfina fyrir veruleg rikisafskipti i efnahagsmálum, tryggingum, skólamálumog á fleiri sviðum. Á sið- ustu árum hafa meira að segja ótrúlegustu öfl tek- iðbyggðastefnuna upp á sina arma i orði kveðnu... Og þannig mætti halda áfram að telja atriðin úr fyrstu stefnuyfirlýsingu Framsóknarmanna”. Þ.Þ. Osigur Indiru veikti stöðu hans kosningaúrslitin myndu staö- festa þaö. Sú var lfka yfirleitt skýring þeirra, sem voru tald- ir þessum málum kunnugast- ir. Þetta var m.a. byggt á þvi, aö andstæöingar hans væru margklofnir. Þaö óvænta geröist hins vegar, aö niu helztu andstööuflokkar Bhuttos sameinuöust, þrátt fyrir mjög ólík sjónarmiö og stofnuöu hina svonefndu Þjóö- arfylkingu, sem venjulega gengur undir skammstöfun- inni PNA, en flokk sinn nefnir Bhutto Þjóöarflokkinn og hefur hann skammstöfunina PPP. Þegar líöa tók á kosn- ingabaráttuna, benti margt til þess, aö úrslitin gætu oröiö tvisýn. Niöurstaöan varö samt sú, aö flokkur Bhuttos fékk um 165 þingmenn kjörna af um 200 alls. Stjórnarandstaöan taldi hér brögö i tafli og heföi flokk- ur Bhuttos notaö aöstööu sina til aö falsa úrslitin. Viöbrögö þeirra uröu þau, aö krefjast strax nýrra kosninga og neita aö taka þátt i störfum hins ný- kjörna þings. (Jrslit þingkosn- inganna i Indlandi hafa mjög ýtt undir þessa kröfu þeirra, og jafnframt hafa þeir bætt þeim kröfum viö, aö Bhutto viki strax og embættismanna- stjórn sjái um nýjar kosning- ar. Bhutto hefur neitaö þessu, en reynt aö ná samkomulagi um mi'lileiöir, en þvi hefur stjórnarandstaöan hafnaö. 1 kjölfariö hafa fylgt margvis- leg mótmæli i stærstu borgun- um og er taliö aö um 200 manns hafi þegar falliö i þess- um átökum. Bhutto hefur þvi látiö herlög og útgöngubann ganga i gildi i þremur stærstu borgum landsins. Augljóst viröist, aö þar hafa andstæö- ingar Bhuttos meirihluta, en fylgismenn hans benda á, aö þar séu samanlagt ekki nema 7-8 milljónir Ibúa, en ibúar landsins séu milli 70 og 80 millj. og búi meirihluti þeirra i sveitum og þar eigi Bhutto aöalfylgi sitt. 1 skjóli þessa hyggst hann stjórna áfram meö haröri hendi, eins og hann raunar geröi áöur en hann efndi til þingkosninganna. Næstkomandi þriöjudag á hiö nýkjörna þing aö koma saman til fyrsta fundar og er ekki ó- sennilegt, aö þaö geti hert á- tökin. Andstæöingar Bhuttos leggja margir hverjir aö hern- um aö taka völdin, eins og hann hefur oft áöur gert, en sennilega munu hershöföingj- arnir ekki álita þaö fýsilegt, eins og sakir standa. Þ.Þ. Veröur ósigur Indiru Bhutto aö falli? BHUTTO drekkur whisky, hrópaöi mikili mannfjöldi ný- lega I kór á útifundi I Lahore, þegar hann meö fullt vatns- glas I hendi reyndi aö sann- færa áheyrendur sina og sagöi: Hérnasjáiöþiö, Bhutto ' drekkur vatn. Mikill hluti fundarmanna lét samt ekki sannfærast, heldur hrópaöi hiö gagnstæöa. Svo viröist, aö Bhutto hafi látiö sér þetta aö kenningu veröa, þvi aö skömmu siöar lét hann loka öllum áfengisútsölum i land- inu og eiga nú ekki aörir en út- lendingar kost á þvi aö kaupa áfengi I Pakistan. Hér lét Bhutto undan kröfum þeirra flokka I Þjóöarfylkingunni svonefndu, sem halda þvi fram, að reglum múhameös- trúar sé ekki nægilega fylgt fram i landinu, en strangt á- fengisbindindi er ein þeirra. AÐURNEFNDhróp.sem voru gerð aö Bhutto, beindust aö þvi, aö hann þótti halda illa á- fengisbindindi á yngri árum sinum og var m.a. sagöur um skeiö hafa hneigzt að áfengis- drykkju. Bhutto, sem er fædd- ur 5. janúar 1928, er sonur riks landeiganda og hélt sig riku- lega Iuppvextinum, eins og þá var titt um indverska höfö- ingjasyni. Eftir aö hafa tekið stúdentspróf heima I Indlandi, hélt hann til Bandarikjanna og lagöi stund á félagsfræöi við Berkeley-háskólann I Kali- forniu. Mikið orö fór þá af gáf- um hans og lærdómi og þvi stóöu honum nær allar dyr opnar er hann hélt heim til Pakistans, sem þá var nýlega komiö til sögunnar eftir skipt- ingu Indlands. Þritugur aö aldri hlaut hann embætti verzlunarmálaráöherra, en siöar varð hann utanrlkisráð- herra og vakti þá m.a. veru- lega athygli á allsherjarþingi Sameinuöu þjóöanna og þótti þar sem annars staöar likleg- ur til mikils frama. Fyrir um þaö bil 10 árum lenti hann þó I deilum viö hershöföingja- stjórnina, sem þá var I Pakistan, og var haföur i fangelsi um skeiö. Eftir aö honum var sleppt lausum, myndaði hann nýjan flokk, sem 1971 hlaut mest fylgi i kosningum i Vestur-Pakistan, sem nú er Pakistan. I Aust- ur-Pakistan báru hins vegar skilnaöarsinnar algeran sigur úr býtum og leiddi þaö til Ali Bhutto skiptingar á Pakistan, styrj- aldar við Indland og stofnunar Bangladesh. Eftir þessar ó- farir gafst herforingjastjórnin I Pakistan upp og Bhutto var falin stjórnarforustan. A þeim fimm árum, sem siöan eru liö- in, hefur Bhutto þótt takast stjórnin allvel, en segja má að hann hafi tekiö viö landinu i rústum. Hagvöxtur hefur orö- ið verulegur eöa um 5% á ári. Einkum hefur landbúnaöar- framleiöslan aukizt verulega, en Bhutto hefur lagt mikla á- herzlu á hana. Verulegar ráö- stafanir hafa veriö geröar til aö jafna lifskjörin, m.a. meö þvi aö ganga á hlut hinnár riku landeigendastéttar, sem Bhuttotilheyrir.Mesthefur þó sennilega áunnizt á sviöi utan- rikismála. Bhutto hefur komiö á nánu samstarfi viö önnur riki múhameöstrúarmanna og bæöi sambúðin viö Kina og Vesturveldin veriö styrkt. Þá haföi heldur batnaö sambúö viö Indland og áttu bæöi Bhutto og Indira Gandhi sinn þátt I þvi. ÞEGAR Bhutto tilkynnti nokkuð óvænt fyrir siöustu áramót, aö hann myndi efna til þingkosninga 7. marz i ár, töldu flestir fréttaskýrendur það merki um, aö hann teldi sig oröinn fastan 1 sessi og aö ERLENT YFIRLIT Bhutto er orðinn ótraustur í sessi

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.