Tíminn - 28.05.1977, Page 3
Laugardagur 28. mal 1977
3
Útlendi
svipurinn á
andliti íslands
að minnka:
Skilti
fjar-
lægð
frá flugstöð
og aðalvegi á
Keflavikur-
flugvelli
Þessi braggabygging, sem hýst hefur yfirstjórn varnarlibsins á Keflavikurflugvelli, mun hverfa
af sjónarsviðinu fyrir haustið. Þá flyzt aðalstjórn hersins I gamla sjúkrahúsið
HV-Reykjavik. — Við erum byrj-
aðir að taka niður „útlenda svip-
inn” af andliti Keflavíkurflug-
vallar, ef svo má að orði komast.
Byrjunin er sú, að nú er búið að
taka niður það merki, sem mest
meiddi augu manna þarna, það er
merki öryggislögreglu hersins,
scm á var skráð Iceland Security
Police, eða eitthvað nálægt þvi,
með mynd af islandi i bakgrunni.
Égveitekki hvenær fánarnir, það
er bandariski og alþjóðiegir,
verða færðirfrá flugstöðvarbygg-
ingunni, en það ætti aö verða
fljótlega, sagði Páll Asgeir
Tryggvason hjá varnamáladeild
utanrikisráöneytisins, i viðtali við
Timann i gær.
— Siðan er það stærra verk-
efni, kostnaöarsamara og tekur
lengri tima að koma rafmagns-
og simaleiðslum þarna i jörð,
sagði Páll Asgeir ennfremur, en
það verður væntanlega ekki langt
þar til framkvæmdir við það hefj-
ast. Bandarikjamennimir hafa
sjálfir sýnt þvi áhuga undanf arið,
að koma þessu i jörö.
Þetta skilti, sem tekið var nið-
ur, var stærsti bletturinn, þar
sem það stóð við aöalveginn upp
að flugstöðinni.
Annars er nti verið að gera átak
i snyrtingu flugvallarins i Kefla-
vik. Við erum núna að hreinsa
burt mikið af alls kyns drasli,
sem sumt hefur legið þarna frá
striðslokum.
Það verður auðveldara i fram-
tiðinni að halda umhverfi vallar-
ins snyrtilegu, þar sem þeir hafa
nú fengið heimild til þess að fá
málmapressu.
Nú, svo er alltaf rifið eitthvað
af þessum kumböldum sem ein
kennt hafa herstöðina og lætur
nærri að tuttugu til þrjátiu af
þeim hverfi árlega. Fyrir þann 1.
september i ár verður rifið hús-
næöi það sem yfirstjórn varnar-
liðsins hefur verið i, Headquart-
ers, eins og þeir kalla það, en nú
er einmitt veriö aö innrétta fyrir
hana húsnæði i gamla sjúkrahús-
inu, þar sem möguleiki opnaðist.
Annars er til þess stefnt, sam-
kvæmt samningnum frá 1974, að
aöskilja þetta alveg og byggja
flugstöð uppi i Miðnesheiðinni. t
þeim efnum stendur á okkur, þvi
við eigum erfitt með að veita þvi
fjármagni sem þarf i slika bygg
ingu, að minnsta kosti enn.
Að fengnum þessum upplýsing-
um sneri Timinn sér tfi Heimis
Hannessonar, formanns feröa-
málaráðs, en sem kunnugt er
hefur Ferðamálaráö haft for-
göngu um það aö lagað yrði til á
Keflavikurflugvelli, og ummerki
þess að þar sé bandarisk herstöð
afmáð eftir þvi sem hægt er viö
aðalveginn frá og að flugstöðinni.
— Það er okkur mikið fagnað-
arefni, aö varnarmáladeild skuii
nú vera byrjuö að taka niður eitt-
hvað af þessum skiltum, sagði
Heimir, og vonum við að fram-
kvæmdir við snyrtingu staðarins
haldi nú áfram.
Að okkar mati er mikilsvægt að
erlendir og alþjóðlegir fánar, svo
og annað það sem ekki tengist is-
lenzku alþjóöaflugi, hverfi frá
flugstöðinni og er ánægjulegt aö
nú skuli þetta verk hafiö, þótt
mönnum hafi fundizt það ganga
nokkuð seint framan af.
Fyrsta skóflustungan að nýju flugstöövarbyggingunni á Miðnes-
heiði, var tekin i aprilmánuði siðastliðnum. Við það tækifæri var
þessi mynd tekin.
Kristinn
Finn-
bogason
fimm-
tugur
KRISTINN Finnbogason,
fra'mkvæmdastjóri Timans,
er fimmtugur i dag.
Kristinn hefur gefið sig
mjög að félagsmálum um
langt skeið. Hann var lengi
formaður Framsóknarfélags
Reykjavikur, og formaður
fulltrúaráðs Framsóknarfé-
laganna i Reykjavik hefur
hann verið um árabil. Hin
siðustu ár hefur hann verið
framkvæmdastjóri Tfmans.
Timinn árnar Kristni
Finnbogasyni og fjölskyldu
hansallra heilla á fimmtugs-
afmælinu.
Róttæk breyting á kennslu-
háttum Fiskvinnsluskólans
— tók fyrst til starfa 1971
KJ-Reykjavik — Framundan er
nokkuð róttæk breyting á Fisk-
vinnsluskólanum. Hann veröur
á næsta skólaári gerður að
hreinum sérskóla og mun láta
aðra framhaldsskóla um hinar
almennu námsgreinar. Er þetta
skref stigið I samræmi við aðrar
breytingar á skólakerfinu og
hugsaö sem aðlögun að fjöl-
brautaskólakerfinu. Fisk-
vinnsluskólinn er tiltölulega nýr
i okkar menntakerfi, tók tii
starfa árið 1971 og útskrifaöi
fyrstu fiskiðnaðarmennina 1974
og fyrstu fisktækna árið 1976,
eða fyrir réttu ári.
Skólastjóri Fiskvinnsluskól-
ans er Sigurður B. Haraldsson
og formaður skólanefndar dr.
Jónas Bjarnason. Aöalsetur
skólans er aö Trönuhrauni 8,
Hafnarfirði þar sem fram fer
bókleg kennsla. Verkleg
kennsla fer fram I kennslu-
frystihúsi skólans í húsi Bæjar-
útgeröar Hafnarfjarðar og
verkleg kennsla I saltfisk- og
skreiöarverkun á enn öörum
stað.
Samtals hafa 108 nemendur
lokiö námi hjá skólanum, eða
eru enn við nám. Við fiskiönað-
inn starfa núna 30 fiskiönaöar-
menn og fisktæknar útskrifaöir
frá skólanum, en aörir 10 sem
útskrifast hafa stunda önnur
störf. í skólanum eru nú 68
nemendur og þar af 3 Færeying-
ar, 22 ljúka fiskiönaöarmanna-
námi nú I vor, þar af 6 sem áöur
höfðu lokiö stúdentsprófi. Miðaö
við venjulegan námstima verða
menn fiskiönaöarmenn eftir 3 ár
en eölilegt nám fisktækna tekur
4 og 1/2 ár.
Auk þess að útskrifa fiskiðn-
aöarmenn og fisktækna er á
vegum skólans haldin námskeiö
öðru hvoru fyrir starfsfólk I
fiskiðnaði, t.d. fiskmatsnám-
skeið.
Þáttur i lokaprófum
nemendanna eru ákveðin verk-
efni sem þau vinna, t.d. hefur
einn nemandi, Sverrir Sverris-
son, kannaö möguleika fólks
meö sérþarfir á aö vinna viö
fiskvinnslu. Nemendur skólans
sjálfir eru einnig framleiöslu-
skapandi, þar sem þeir vinna að
framleiðslustörfum meöfram I
verklegu námi. Laun fyrir þessa
vinnu fara öll I vinnulaunasjóö
og hefur hann veriö notaöur til
að fjármagna feröir til útlanda,
m.a. til Rússlands og Banda-
rikjanna.
Meö breyttum kennsluháttum
i skólanum veröa almennar
námsgreinar ekki kenndar
lengur I skólanum og er ætiazt
til aö þær séu fullnumdar I öör-
um framhaldsskólum. Þetta
hefur mikla kosti f för meö sér
t.d. fyrir stúdentsmenntaö fólk
sem nú gefst kostur á 2 ára hag-
nýtu fisktæknanámi og
nemendur utan höfuðborgar-
svæðisins, sem lokið geta hluta
námsins heima fyrir. Náms-
leiöir veröa jafnframt fjöl-
breyttari og hægt aö koma inn I
skólann á mismunandi undir-
búningsstigi og velja sér náms-
leið I samræmi viö það. Til að
byrja með a.m.k. geta þó þeir,
sem eru 25 ára og eldri og hafa
starfaö við fiskvinnslu I 5 ár eða
lengur, stundaö nám við
skólann og útskrifazt sem fisk-
iönaöarmenn án þess aö nema
hinar almennu frumgreinar.
Eins og sjá má I Námsvisi
skólans eru kenndar þar hinar
fjölbreytilegustu námsgreinar,
t.d. örveirufræöi, matvæla-
fræöi, fiskmat, fiskvinnslufræöi
o.m.fl. fyrir svo utan margvis-
lega starfsþjálfun.
Sverrir Sverrisson, nemandi Fiskvinnsluskólans, að kanna möguleika fatlaðra á að vinna viö
fiskvinnslu.