Tíminn - 28.05.1977, Side 8
8
Laugardagur 28. mal 1977
M jólkurvinnsluáhöld
Ingólfur Davíðsson:
175
Byggt og búið
í gamla daga
Litum fyrst á trafaöskju og
ýmsa búshluti, varðveitta i
Byggðasafni Borgarfjarðar,
Borgarnesi. Trafaöskjur voru
oft fagurlega skreyttar eins og
myndin glöggt sýnir. Þær voru
notaðar til að geyma i lin o.fl.
smáhluti kvenna. Ef mikið var
dekrað við einhvern var sagt að
hann byggi i trafaöskjum!
Litum svo á trémunina sem
flestir áttu heima i búrinu i
gamla daga. Birtugjafinn var
lýsislampinn (kolan), sem lýsti
þjóöinni i þúsund ár. ,,Ljósið
kolunnar lék um Snorra, lýsti
sagnaheim feðra vorra”. Ég
man eftir kolunni i fjósveggn-
um, steinoliulampi var kominn i
baðstofuna. Strokkurinn var
mikið þarfaþing áður en skil-
vindan kom. Ég vaknaöi stund-
um sem barn við þægilegt
strokkhljóðið — og sumir þótt-
ust hafa heyrt það i ,,álfaklett-
um” á duggarabandsárum sin-
um! t kútnum var geymd sýra
til drykkjar o.fl. Saltað kjöt i
stóra kúta. Borðað var úr askin-
um. Menn sátu gjarnan með
hann á hnjám sér, lyftu upp lok-
inu og átu úr honum bæði átmat
og spónamat. ,,Að hafa asklok
fyrir himin” var sagt um þröng-
sýna menn. Vel þurfti að þrifa
askinn og gæta þess að hann
gisnaði ekki. Sama er að segja
um mjólkurfötur og aðrar tré-
fötur, það var nákvæmnisverk
mikið að hirða þær. Leirtau og
blikkfötur var mikil framför og
létti mikið á húsmæðrum. Trog-
Trafaaskja
ið mun vera mjólkurtrog, en af
þeim voru til fleiri gerðir.
Mjólkurbakkar voru og viða til
og þá með tappa og sponsi. Dall-
ar eins og sá með sleifinni i voru
af ýmsum stærðum og gerðum
— og til margs notaðir: grautar-
dallar, skyrdallar o.s.frv.
Lifrarhnallur liggur hjá, hann
var m.a. notaður til að stappa
lifur i kollu á haustin. Nú hafa
söxunarvélar fyrir löngu leyst
hnallinn af hólmi. Kútarnir
halda velli, en eru þó stundum
úr plasti i seinni tið, og auðgert
að þrifa þá. En plastið verður að
vera svo vandað að tryggt sé, að
ekki leysistsmám saman úr þvi
varasöm efni.
Vikjum úr búri Borgfirðinga
og höldum til Hafnarfjarðar. Að
Suðurgötu 15 verður fyrir fallegt
gamalt hús vert skoðunar. Það
reisti Böðvar Böðvarsson
bakarameistari 1908 og kallaði
Vinaminni. Stefán Eiriksson
myndskeri skar út á það dreka-
myndir. Þær eru farnar en ein
mun vera til á safni?
Loks er svipmynd af báta-
höfninni i Hafnarfirði 1. septem-
ber 1976. Þar má lita margar
laglegar fleytur, og i baksýn
næsta fjölbreyttarbyggingar á
ýmsum aldri. Lika skip dregin i
land handan við bátapollinn.
Það er friðvænlegra i Hafnar-
firði nú en þegar Englendingar
og Þjóðverjar börðust þar um
verzlun og útgerðaraðstöðu á
fyrri öldum.