Tíminn - 28.05.1977, Qupperneq 36
brnado
28644 PTyi'TiH.I 28645
fasteignasala öldugötu 8
Fasteignasalan sem sparar hvorki
tima né f yrirhöf n til aö veita yður sem
bezta þjónustu
Sölumaður: Finnur Karlsson Valgarður Sigurösson
mmmmmmmmmmm heimasími 4 34 70 lögfræðingur ■ '■ "
HREVFILL
Slmi 8-55-22
V-í
L
dburðordreifari
góð vinnslubreidd
nákvæmar stillingar
einnig fyrir sáningu
Guðbjörn Guðjónsson
Hoildverzlun Siöumúla 22
Simar 85494 & 85295
arinn
Maí
kominn
í heima-
höfn
Amerísk undrakona
fengin að Kröflu
Við höldum þóokkar aðferðir vænlegri, segja jarðfræðingar
JH-Reykjavik — A miðvikudag-
inn kom GuAmundur Einarsson
verkfræðingur norður i Mý-
vatnssveit, i för meö banda-
riskri konu, Frances Kay Farr-
elly, sem hann hafði fengiö
hingaö til iands til þess að vera
sér til ráðuneytis um jarðfræði-
legar gátur i tengsium við
Kröfluvirkjun.
Kona þessi, sem er á sjötugs-
aldri, er þó ekki jarðfræðingur,/
heldur ifeðlisfræðingur, og er
talin gædd einhvers konar hæfi-
leikum til þess að skynja, hvað i
jörðu býr.
Guðmundur og hin banda-
riska kona höfðu skamma við-
dvöl i Mývatnssveit, því ab þau
fóru aftur suður i fyrradag, en
gerðu þar þó athugunar á
Kröflusvæðinu, sprungusvæðinu
og i Bjarnarflagi. Hafði konan
meðferðis svartan kassa og
töskur. Þá kallaöi Guðmundur
og jarðfræðinga, sem voru þar
nyrðra, Karl Ragnars, Valgarð
Stefánsson og Ingvar Birgi
Friðleifsson, á fund með kon-
unni, þar sem rætt var um
möguleika til gufuöflunar.
— Þið skuluð lesa grein, sem
birtist i Timanum fyrir tiu ár-
um, sagði Guðmundur Einars-
son verkfræðingur, er Timinn
náði taliafhonum. Þar segirfrá
enskum manni, Georg de la
Warr, sem gerði upp úr heims-
styrjöldinni siðari tæki, sem
ætluö erufólki til hjálpar við a.ð
stilla hugann til skynjunar af
þessu tagi eftir sérstöku kerfi.
Það eru tæki, sem þróazt hafa i
framhaldi af þessu, sem konan
notar. Aður en hún kom hingað
hafði hún fengið uppdrætti af
Mývatnssveit til þess að gera á
frumkannanir. Konan er hér á
landi enn, sagði Guðmundur að
lokum, en að svo stöddu get ég
ekkert sagt um niðurstööur
hennar.
Jarðfræðingar, sem Timinn
talaði við i gær, virtust ekki
trúaðir á, að aðferðir konu þess-
arar tækju fram þeim aðferö-
um, sem jafnaði er beitt.
— Svona fólk er óneitanlega
notaö, bæöi i Þýzkalandi og
Bandarikjunum, til dæmis við
leit að vatni, oliu og gulli, en
raun visindi eru þetta ekki, sagði
einn þeirra.
— Við höldum nú, að okkar
aðferðir séu vænlegri til árang-
urs, þótt þeim kunni að vera
áfátt, sagði annar.
Samninga-
málin:
Engin
hreyf-
in g
enn
gébé Rcykjavik. — Engir
fundir voru með aðalsamn-
inganefndum i gærdag.
Sáttasemjari rikisins hafði
boðað samningafund kl.
16:30 i Tollstöðinni, en samn-
inganefnd ASÍ var þar aðeins
i hálfa klukkustund. Nýr al-
mennur samningafundur
hefur verið boðaður kl. 16 i
dag.
Verkamannasamband Is-
lands var á sáttafundi með
atvinnurekendum i gær. Hlé
var gert á þeim fundi meðan
stjórnarfundur Dagsbrúnar
stóð yfir, og siðan hélt
Verkamannasambandið
fund innbyrðis. A meðan
biðu atvinnurekendur eftir
frekari viðræðum við þá. Lit-
iö eða ekkert hefur frétzt af
fundum þessum, en þaö eru
sérkröfurnar sem þar eru á
dagskrá. Það liggur þó næst
þvi að álita aö einhver á-
greiningur sé um sérkröf-
urnar innan Verkamanna-
sambandsins.
F.I. Reykjavik. —Mai Hf-346hinn
nýi skuttogari Hafnfirðinga kom
frá Noregi f gærdag og sigldi inn I
Hafnarfjarðarhöfn uni kl. 15:30.
BHðskaparveður var og fjöldi
fólks á bryggjunni. Stefán Jóns-
son, forseti bæjarstjórnar, ávarp-
aði viðstadda, minntist gamla
Mai, sem hann sagði hafa veriö
eitt hið glæsilegasta sjóskip ts-
lendinga á sinum tima og óskaði
nýja skipinu farsældar um alla
framtfð.
Mai Hf-346 var afhentur i Nor-
egi þann 14. mai sl. og tók Guð-
mundur Guðmundsson, formaður
útgerðarráös Bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar við honum. Skip-
stjóri á hinum nýja skuttogara er
Guðmundur Jónsson.
Skuttogarinn Mai siglir inn i Hafnarfjaröarhöfn I gærdag.
Mörg höfuð á hverri skepnu:
Ein f jórlemba — þrjár þrílembur
SJ-Reykjavik — Þaö var ein ær
fjórlembd hér hjá okkur og ein-
ar tiu þrilembdar, sagði Þor-
steinn Loftsson, bóndi að Hauk-
holtum i Hrunamannahreppi, I
viðtali viðTimann.— Ærin, sem
var fjórlembd, heitir Snoppa og
hefur oftast áður verið þri-
lembd. Við tókum strax eitt
lambiö frá henni og gerðum
hana þar með að þrflembu, en
ég taldi aUt of mikið fyrir hana
að hafa fjögur lömb.
Eins er með þrilemburnar við
höfum yfirleitt gert þær að tvi-
lembum og setteitt lambið und-
ir einlembur. Það er töluvert
mikiö um, að kindur séu þri-
lembdar hér í nágrenninu, og
það er ágætt, ef mann vantar
lamb undir á.
Sauðburöurinn hefur gengið
nokkuö vel að Haukholtum, og
er farið að setja fé út úr húsum.
— Veðrið er gott og mikill
raki, svo menn eru orðnir bjart-
sýnir á gróðurinn, sagði Þor-
steinn Loftsson. Við þurfum lika
að fá góða sprettu en við vorum
komnir með vont hey
Arnarflug tekur vél á leigu
,Mikill og fríður farkostur’
KJ-Reykjavik. — „Þetta er af-
skaplega mikill og fríður farkost-
ur, Bocing 720B þota, miklu kraft-
meiri og þó sparneytnari en fyrri
vélar sem viö höfum verið með”,
sagði Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Arnarflugs, um
nýju leiguvélina þeirra i viðtali
við Timann i gær.
Hin ný ja vél Arnarflugs er leigð
af bandariska flugfélaginu West-
ern Airlines og kom til landsins i
fyrrinótt. Þotan er hin glæsileg-
asta að sjá, i litum Arrarflugs, og
mun strax fara aö fljú ;a fyrir fé-
lagið, en Flugleiðir hifa undan-
farið annast flug fyr i Arnarflug,
fyrst vegna leiguflugs Arnarflugs
fyrir brezka flugfélagiö Britannic
og siðan vegna bilunar á þotu
Arnarflugs. Að sögn Magnúsar
Gunnarssonar hefur samstarfið
við Flugleiðir verið þokkalegt og
ekkert undan þvi að kvarta.
Magnús hafði annars það um
nýju vélina að segja, að fyrir utan
gott útlit og þægindi fyrir farþega
og áhöfn væru flugeiginleikar
þotunnar mjög góðir. Flugþol
hennar er meira en eigin vélar
Amarflugs og hún þarf styttri
braut, t.d. kom hún alla leið frá
Minneapolis i Bandarikjunum og
til Keflavikur án millilendingar.
Innréttingin er mjög skemmtileg
og rýmra um farþega, sagði
Magnús einnig — en vélin tekur
149 i sæti. Hún er nú á leigusamn-
ingi, en möguleikar eru á kaup-
um.
Um eigin vél Arnarflugs sagði
Magnús að bilunin á henni væri
ekkert einstakt fyrirbrigði, en
viðgerðin er kostnaðarsöm og
timafrek. Taldi Magnús að skoða
yröi hlutfall eiginlegs verðmætis
vélarinnar og viögerðarkostnað-
arins, meta hvort tveggja I ró og
næði, fá tilboð I viðgerðina og at-
huga siðan hvað gera skal. Hann
Framhald á bls. 35
■ — Veíztu hvað
N menn scgja uni
\ samningaþrasið á
j Loftleiöum?
I — Nei, hvað ætli ég
jf viti um þaö?
— Aö iiú sé kominn
>s~| timi til þess að fara
^ C. að gjalda Torfalög-
'íi&• in.
PALLI OG PESI