Tíminn - 07.06.1977, Blaðsíða 1

Tíminn - 07.06.1977, Blaðsíða 1
— eða hvað? Hin nýja fæðingardeild Landspitalans kemur i góðar þarfir. Þar geta 35 konur legiö i einu, og á fyrstu fimm mánuöum þessa árs fæddust þar 770 börn á móti 686 á sama tima árið 1976. Siðan um mánaöamótin höfðu 32 börn bætzt við, svo að i gær höfðu alls fæözt þar 802 börn á þessu ári. — Það er kannski nýjungagirni, sem á ein- hvern þátt i þeim hvað margt kvenna kemur hingaö, sagði starfsstúlka i fæðingardeildinni við Timann i gær. Nú vilja þær allar liggja hér i þessari nýju deild, þegar þær ala börn sin. —Timamynd: Gunnar. „Spillir fyrir” — segir aðalsamninga- nefnd ASÍ um tilboð VSÍ gébé Reykjavik — Vinnu- veitendasamband . islands lagði fram nýja tillögu til lausnar yfirstandandi kjara- deilu, en á sunnudag er rétt- ur mánuður liðinn siðan VSÍ lagöi fram fyrri tillögu sina. Hclztu breytingar á afstöðu VSÍ eru þær, að i stað 8.500 kr. upphafshækkunar, verði sú upphæð kr. 12.000 og siðan komi áfangahækkanir 1. september 1977, 1. janúar 1978 og 1. júli 1978, þrjú þús- und krónur i hvort skipti. Þá er i tillögunni gert ráö fyrir, að visitölubætur greiöist sem jöfn krónutala til 1. marz 1978, en prósenta eftir þaö. Þá hefur samningstimanum verið breytt, og er hann nú áætlaður i nýjustu tillögun- um til 1. mai 1979. Aöal- samninganefnd ASl telur til- lögugerðina spilla verulega fyrir lausn kjaradeilunnar og að hún sé „algjört hneyksli.” Alþýðusamband Islands hefur látið gera linurit, sem sýnir umræðugrundvöll Framhald á bls. 13» Gefur land við GuUfoss H V-Reyk javik. — Náttúruverndarráö tók i gær við sérstæöri gjöf frá Einari Guðmunds- syni, bónda í Brattholti i Hreppum. Gjöf sú, er um ræðir, er spilda úr jörð Ein- ars, Brattholti, þar sem land jarðarinnar liggur að Hvítá, upp með ánni, allt upp fyrir Gullfoss. KötLuhlaup: Hætta á flóðum bæði á Skóga-og Sólheima sandi, svo og í Vík KEJ — Reykjavík — Jú, það mun rétt vera að Kötluhlaup er talið hafa hlaupiö niður Sólheima og Skógasand eftir landnámstið, sagöi Guðjón Petersen, fulltrúi hjá Almanna vörnum, þegar Timinn hafði samband við hann i gær og innti hann eftir þessum málum og ástandi almannavarna i þvi sam- bandi. — Siðan þetta var Ijóst hölum við vaktað vestursandinn jafnframt, bætti hann við, og siðast þeg- ar ' við lokuðum Mýrdals- sandi lokuðum við jafnframt Skóga- og Sólheimasandi og þá i fyrsta skipti. Guðjón áleit almannavarnir standa vel að vigi á svæðinu, þjalf- aö lið væri fyrir hendi og góður viöbúnaöur. Guðjón tjáði okkur enn- fremur, að almannavarnar- nefnd Vikurkaupstaöar hefði fyrir tveimur til þremur ár- um farið fram á byggingu nýs varnargarðs nær Vikur- byggð, sem verndaði hana gegn hlaupum úr Kötlu. Fjárveitingu til þessa varnargarðs var á sinum tima synjað, enda treysti al- mannavarnir rikisins sér ekki til þess að mæla með gerð sliks garðs. A vegum hennar gerði hins vegar Þor- biörn Karlsson siðla árs 1974 úttekt á flóðhættu i Vik vegna Kötluhlaups, annars vegar flóðhættu af hafi og hins vegar hættu af flóði um Múlakvisl og áfram milli Höfðabrekkujökuls og fjalls og vestur sandana. Niður- staðan var sú, að ástæða væri til að styrkja þær varnir sem fyrir eru við Höfða- brekkujökul, og þannig væri hægt að fyrirbyggja aö hlaupið kæmist þá leiðina. f skýrslu Þorbjörns kemur einnig fram, að siðan 1918 hefur hlaðizt upp þaö mikill sandbakki fyrir framan Vik, að ekki ætti að vera hætta á flóði af hafi. — Það fer ekki á milli mála, að orkan sem leysist úr læöingi vex með hverri jarðskjálftahrinu sem geng- ur yfir, sagði Guðjón Peter- sen að iokum og bætti þvi við, að gamlar sögur segöu frá þvi að rétt fyrir hlaup yrðu menn jarðskjálftanna varir i byggö, en slikt átti sér einmitt stað rétt fyrir jarð- skjálftana 2. júni sl. Timinn hafði i gær sam- band við Pál Einarsson jarð- eðlisfræðing, sem staðfesti að rannsóknir Sigurðar Þór- arinssonar og Einars i Sammadalshóli bentu ein- dregið til þess að Katla hefði á sögulegum tima hlaupið á vestursöndunum og undir Mýrdalsjökli væri að likind- um veigameiri eldstöð en áð- ur var kannski talið. Hann gat þess einnig, að menn væru óneitanlega meira á verði nú en oft áður, enda viss stigandi i skjálftavirkni auk þess sem mönnum væri hreinlega ekki ljóst hvort gos gæti orðið án skjálfta. t þvi sambandi sagði hann, að til væru kenningar um að smá- gos hafi orðið i Kötlu árið 1955, en þá kom hlaup úr jöklinum, og meira en hinar algengari smáskvettur i árn- ar. Siðasta gos i Kötlu var annars eins og kunnugt er gosiö 1918, og með tilliti til hegðunar eldstöðvarinnar fram til þessa má gera ráð fyrir nýju gosi nánast hvenær sem er. Hins vegar er eðli Kötlugosa ekki full- komlega þekkt né heldur hlaupin, og spurningin er hvort af þessu tvennu geti stafað meiri hætta en við yfirleitt reiknum með. Þó ber þess að geta, aö jökullinn er nú minni en oftast áður og þvi er ekki að búast við jafn- miklu vatnsmagni úr honum og t.d. 1918. Verkfallsdagur i Reykjavík - bls. 2 iéÍSjfi ' x . ,. v ; •• HOTEL KLA auðarár g 18 Gisting Morgunverður 121. tölublað—Þriðjudagur 7. júni 1977—61. árgangur Slöngur — Barkar — Teng wMSSSSSBSaSMM SMIÐJUVEGI 66 Kópavogi — Sími 76-600. Nýj- unga- girni Fertugasti sjómannadagurinn - bls. 12

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.