Tíminn - 07.06.1977, Síða 1
— eða hvað?
Hin nýja fæðingardeild
Landspitalans kemur i
góðar þarfir. Þar geta 35
konur legiö i einu, og á
fyrstu fimm mánuöum
þessa árs fæddust þar 770
börn á móti 686 á sama
tima árið 1976. Siðan um
mánaöamótin höfðu 32
börn bætzt við, svo að i
gær höfðu alls fæözt þar
802 börn á þessu ári.
— Það er kannski
nýjungagirni, sem á ein-
hvern þátt i þeim hvað
margt kvenna kemur
hingaö, sagði starfsstúlka
i fæðingardeildinni við
Timann i gær. Nú vilja
þær allar liggja hér i
þessari nýju deild, þegar
þær ala börn sin.
—Timamynd: Gunnar.
„Spillir
fyrir”
— segir aðalsamninga-
nefnd ASÍ um tilboð VSÍ
gébé Reykjavik — Vinnu-
veitendasamband . islands
lagði fram nýja tillögu til
lausnar yfirstandandi kjara-
deilu, en á sunnudag er rétt-
ur mánuður liðinn siðan VSÍ
lagöi fram fyrri tillögu sina.
Hclztu breytingar á afstöðu
VSÍ eru þær, að i stað 8.500
kr. upphafshækkunar, verði
sú upphæð kr. 12.000 og siðan
komi áfangahækkanir 1.
september 1977, 1. janúar
1978 og 1. júli 1978, þrjú þús-
und krónur i hvort skipti. Þá
er i tillögunni gert ráö fyrir,
að visitölubætur greiöist sem
jöfn krónutala til 1. marz
1978, en prósenta eftir þaö.
Þá hefur samningstimanum
verið breytt, og er hann nú
áætlaður i nýjustu tillögun-
um til 1. mai 1979. Aöal-
samninganefnd ASl telur til-
lögugerðina spilla verulega
fyrir lausn kjaradeilunnar
og að hún sé „algjört
hneyksli.”
Alþýðusamband Islands
hefur látið gera linurit, sem
sýnir umræðugrundvöll
Framhald á bls. 13»
Gefur land
við GuUfoss
H V-Reyk javik. —
Náttúruverndarráö tók
i gær við sérstæöri gjöf
frá Einari Guðmunds-
syni, bónda í Brattholti
i Hreppum.
Gjöf sú, er um ræðir,
er spilda úr jörð Ein-
ars, Brattholti, þar
sem land jarðarinnar
liggur að Hvítá, upp
með ánni, allt upp
fyrir Gullfoss.
KötLuhlaup:
Hætta á flóðum bæði
á Skóga-og Sólheima
sandi, svo og í Vík
KEJ — Reykjavík — Jú, það
mun rétt vera að Kötluhlaup
er talið hafa hlaupiö niður
Sólheima og Skógasand eftir
landnámstið, sagöi Guðjón
Petersen, fulltrúi hjá
Almanna vörnum, þegar
Timinn hafði samband við
hann i gær og innti hann eftir
þessum málum og ástandi
almannavarna i þvi sam-
bandi. — Siðan þetta var
Ijóst hölum við vaktað
vestursandinn jafnframt,
bætti hann við, og siðast þeg-
ar ' við lokuðum Mýrdals-
sandi lokuðum við jafnframt
Skóga- og Sólheimasandi og
þá i fyrsta skipti. Guðjón
áleit almannavarnir standa
vel að vigi á svæðinu, þjalf-
aö lið væri fyrir hendi og
góður viöbúnaöur.
Guðjón tjáði okkur enn-
fremur, að almannavarnar-
nefnd Vikurkaupstaöar hefði
fyrir tveimur til þremur ár-
um farið fram á byggingu
nýs varnargarðs nær Vikur-
byggð, sem verndaði hana
gegn hlaupum úr Kötlu.
Fjárveitingu til þessa
varnargarðs var á sinum
tima synjað, enda treysti al-
mannavarnir rikisins sér
ekki til þess að mæla með
gerð sliks garðs. A vegum
hennar gerði hins vegar Þor-
biörn Karlsson siðla árs 1974
úttekt á flóðhættu i Vik
vegna Kötluhlaups, annars
vegar flóðhættu af hafi og
hins vegar hættu af flóði um
Múlakvisl og áfram milli
Höfðabrekkujökuls og fjalls
og vestur sandana. Niður-
staðan var sú, að ástæða
væri til að styrkja þær varnir
sem fyrir eru við Höfða-
brekkujökul, og þannig væri
hægt að fyrirbyggja aö
hlaupið kæmist þá leiðina. f
skýrslu Þorbjörns kemur
einnig fram, að siðan 1918
hefur hlaðizt upp þaö mikill
sandbakki fyrir framan Vik,
að ekki ætti að vera hætta á
flóði af hafi.
— Það fer ekki á milli
mála, að orkan sem leysist
úr læöingi vex með hverri
jarðskjálftahrinu sem geng-
ur yfir, sagði Guðjón Peter-
sen að iokum og bætti þvi
við, að gamlar sögur segöu
frá þvi að rétt fyrir hlaup
yrðu menn jarðskjálftanna
varir i byggö, en slikt átti sér
einmitt stað rétt fyrir jarð-
skjálftana 2. júni sl.
Timinn hafði i gær sam-
band við Pál Einarsson jarð-
eðlisfræðing, sem staðfesti
að rannsóknir Sigurðar Þór-
arinssonar og Einars i
Sammadalshóli bentu ein-
dregið til þess að Katla hefði
á sögulegum tima hlaupið á
vestursöndunum og undir
Mýrdalsjökli væri að likind-
um veigameiri eldstöð en áð-
ur var kannski talið. Hann
gat þess einnig, að menn
væru óneitanlega meira á
verði nú en oft áður, enda
viss stigandi i skjálftavirkni
auk þess sem mönnum væri
hreinlega ekki ljóst hvort gos
gæti orðið án skjálfta. t þvi
sambandi sagði hann, að til
væru kenningar um að smá-
gos hafi orðið i Kötlu árið
1955, en þá kom hlaup úr
jöklinum, og meira en hinar
algengari smáskvettur i árn-
ar.
Siðasta gos i Kötlu var
annars eins og kunnugt er
gosiö 1918, og með tilliti til
hegðunar eldstöðvarinnar
fram til þessa má gera ráð
fyrir nýju gosi nánast
hvenær sem er. Hins vegar
er eðli Kötlugosa ekki full-
komlega þekkt né heldur
hlaupin, og spurningin er
hvort af þessu tvennu geti
stafað meiri hætta en við
yfirleitt reiknum með. Þó
ber þess að geta, aö jökullinn
er nú minni en oftast áður og
þvi er ekki að búast við jafn-
miklu vatnsmagni úr honum
og t.d. 1918.
Verkfallsdagur i Reykjavík - bls. 2
iéÍSjfi
' x . ,. v ;
••
HOTEL
KLA
auðarár
g 18
Gisting
Morgunverður
121. tölublað—Þriðjudagur 7. júni 1977—61. árgangur
Slöngur — Barkar — Teng
wMSSSSSBSaSMM
SMIÐJUVEGI 66
Kópavogi — Sími 76-600.
Nýj-
unga-
girni
Fertugasti sjómannadagurinn - bls. 12