Tíminn - 07.06.1977, Blaðsíða 2

Tíminn - 07.06.1977, Blaðsíða 2
2 Þriðjudagur 7. júni 1977 Fyrir marga var verkfallsdagur- inn I Keykjavik á föstudaginn við- bót við helgina. Margir Reykvik- ingar lögðu enda ieið sina út úr bænum og þegar ekið var um borgina eftir hádegi þennan verk- fallsdag fannst manni eins og dag- urinn héti laúgardagur eða sunnudagur - en ekki föstudagur. En vitandi það að það var verk fallsdagur, þá mátti auðvitað giöggt sjá>að áhrifa verkfallsins gætti viða. Verzlanir voru lokað- ar, fyrirtæki lokuð og við höfnina, þar sem að öllu jöfnu er skarkali og margar vinnandi hemdur á lofti — þar rikti þögn þennan dag. Verkfallsréttur verkamannsins er sterkt vopn, sem þó er aöeins gripiö til þegar nauösyn ber til Og þaö er auövitaö af illri nauö- syn sem lögö er niöur vinna til þess aö árétta kröfur um bætt kjör og launajöfnuö. En vegna þess hve allsherjar verkfall ASl er geysilega viötækt, sameinar þaöverkamenn, —og þvf er verk- Guðmundur J. Guðmundsson að tafli I Lindarbæ verkfallsdaginn. Eðvarð Sigurðsson fylgist með. Timamyndir: Gunnar fallsdagur aö öörum þræöi hátíö- isdagur. 1 Lindarbæ viö Lindargötu var opið hús fyrir verkafólk, og þar var margt um manninn á föstu- daginn. Þar var kaffi á boðstólum og margar tegundir af meölæti. Þarna sátu menn og röbbuöu saman um lifiö og tilveruna, um þvermóðsku atvinnurekenda og um gang viöræöna — og fleira og fleira. Nokkrir tóku I spil og aðrir tefldu. Guömundur Jaki sat þarna og tefldi og rétt eftir aö okkur Timamenn bar aö garöi, heyröist í honum: „Þetta þýöir ekki, ég gef helv.... skákina”. Svo hristi hann höfuðið, stóö upp, settist niöur aftur og hélt áfram að tefla. Meöal þeirra, sem fylgdust meö taflinu var Eövarð Sigurösson formaöur Dagsbrúnar, og viö spurðum hann hvort mikiö væri um verkfallsbrot. Kvaö hann nei viö þvi, en sagöi þó aö þess væru dæmi. Við Tlmamenn litum inn hjá iðnnemum þennan dag og einnig komum viö aö máli viö Emil Guö- mundsson hótelstjóra á Hótel Loftleiöum. Fara frásagnir þess- ar hér á eftir. _ Gsal — Verkfallsverdir iönnema: Þurftu að fara á sömu staðina oft „Erfiðast aö gefa fólkinu að borða” „Það er talsvert um verk- fallsbrot og erfitt við þau að eiga i mörgum tilvikum, enda eru það gegnumsneytt sömu staðirnirsem við erum að kljást við”, sagði Jónas Sigurðsson, sem varð fyrir sviirum á skrif- stolu Iðnnemasambands ts- lands er við litum þar inn á föstudaginn. 15 iönnemar voru viö verk- fallsvörzlu þennan dag og bárust skrifstofu lönnema- sambandsins allmargar kvart- anir vegna gruns um verkfalls- brot, að sögn Jónasar. Hann sagði að verkfallsverðir hefðu einnig fariðá ákveðna staði þar sem reynslan i undangengnum verkföllum hefði verið slæm, en kvartanir kvað hann bæði koma frá sveinum og hinum verka- lýðsfélögunum. „Við höfum þvi miður þurft að fara itrekað á sömu staðina i dag, og I sumum tilvikum hefur verið læst og okkur er ekki hleypt inn”, sagði hann. begar hann var spurður að þvi til hvaða bragða væri gripið islikum tilvikum, sagði hann að kallaðir væru til verkfallsverðir annarra verkalýðsfélaga og sveinafélaga. „Það er reynt að tala við menn gegnum glugga og fá þá til að leggja niður vinnu, en stundum hefur það ekki boriö árangur og þá hefur þrautalendingin oröið sú að orð- ið hefur nauðsynlegt að brjótast inn. Til þess hefur þó ekki kom- ið i dag, en t.d. i verkfallinu i fyrra varð að gripa til þessara róttæku ráðstafana”. Jónas sagði, að iðnnemar hefðu átt að mæta til vinnu verkfallsdaginn, en þarsem að- eins væri um að ræða einn verk- fallsdag og hann á föstudegi, hefðu margir atvinnurekendur iðnnema gefið þeim fri. ,,Að- staða iðnnema”, sagði Jónas, „er verri en hins almenna laun- þega vegna ægivalds meistara þeirra, sem i sumum tilvikum fá iðnnema til að vinna gegn þeirra vilja með hótunum ein- um. Dæmi frá i dag um slikan yfirgang höfum við, en það er hjá stóru fyrirtæki, þar sem 10 iðnnemar vinna. Þar voru þeim sett þau skilyrðiað þeir yrðu að sópa og vera i tiltekt, ellegar vinna fyrir sjálfa sig kauplaust. Ef þeir yrðu ekki við öörum hvorum „kostinum” yröi tekið fyrir það i eitt skipti fyrir öll að þeir fengju að vinna á verkstæð- inu fyrir sjálfa sig og myndi það bann gilda fyrir lifstið.” Jónas sagði að þótt ýmis vandamál hefðu skotið upp koll- inum á verkfallsdaginn, væru þau þó litil samanborið við vandamál sem áður hefðu kom- ið upp í verkföllum. _Gsal. „Við höfum verið hérna tvö frá miðnætti, ég og K'ristin Norðmann, móttökustjóri, og við gerðumst þvi allfölleit á vangann”, sagði Emil Guð- mundsson hótelstjóri Hótels Loftleiða, þegar við litum við i mdttöku hótelsins á föstudag- inn. Emil sagði, að um helming- ur gistirýmis væri bókaður og gestirnir væru 145. Hann sagði, að mikið hefði verið að gera, en enginn sérstök vandamál hefðu skotið upp kollinum, vegna verkfallsins. — Það sem hefur verið erfiö- ast, sagði Emil, er aö gefa fólk- inu að borða þjóna þvi eins og það á heimtingu á. Morgunverð- ur er yfirleitt tilbúinn kvöldið áður, þannig að engin vand- kvæöi voru meö hann og eins var kaltborð i hádeginu i dag og þaö var matreitt daginn áður, eins og alltaf. Kvöldverðurinn Framhald á bls. 12 veiðihornið Góð veiði i Noifðurá A hádegi i gær voru alls 79 laxar komnir úr Noröurá aö sögn Guömundar Guömunds- sonar, matreiðslumanns i veiöi- húsinu. Þyngsti laxinn reyndist vera 14 pund en hann fékk Kjartan Sveinsson, arkitekt úr Reykjavik, á laugardaginn var. Meöalþyngd þessara laxa, sem þegar hafa fengizt er þó um 8-10 pund. Þegar veiöin hófst, var mikið vatn i ánni og hún kol- mórauð eftir miklar rigningar. Guömundur sagði að i gær hefði vatnið minnkað mikið og væri nú orðiö alveg tært. Hins vegar flilBH lllli lliMB———IIIIHl ■ Wll I ' »11 I|F llll'lil III ill II l Illllil III hefur nokkur kuldi veriö viö ána um helgina og minnkaði veiöin þá að sama skapi. Samkvæmt bókum Veiði- hornsins frá i fyrra, sést að fyrstu niu dagana sem veitt var, fengust 55 laxar og var sá þyngsti þeirra 18 pund. Fyrstu sex dagarnir nú hafa þvi gefið meiri lax en fyrstu niu dagarnir i fyrra, eða 79 laxa - sem komnir voru á hádegi I gær, eins og fyrr greinir. Að venju var það stjórn Stangaveiðifélags Reykjavikur sem hóf veiðina i Norðurá og veiddu þeir á tiu stangir og fengu alls 59 laxa. Veiði hafin i Þverá i Borgarfirði Veiðin hófst i Þ'verá I Borgar- firöi á laugardaginn, 4. júni. Hér er þá aöeins átt viö neöri hluta Þverár, en efri hlutann, sem kallaöur er Kjarrá, leigir veiði- félagiö SWICE, en aö þvi eru aö- ilar bæði Islendingar og Sviss- lendingar. Þeir hafa ekki hafiö veiöi enn, en sennilega hefst hún þar um 10. júni. Fyrsta daginn veiddust 24 laxar úr neðri hluta Þverár aö sögn Rikharös Kristjánssonar að Guönabakka. Annnan daginn eða á sunnudag, veiddust aöeins sjö laxar, en þá var mjög kalt og hvasst viö ána og héldust menn litt við veiðarnar. 1 gær hlýnaði verulega I veöri og lægði, enda voru komnir 39 laxar á land á hádegi. Veitt er á sjö stangir I neðri hluta Þverár, en á sex stangir i efri hlutanum i sumar. Að sögn Rikharðar i gær, var vatnið mjög gott í ánni, bæði tært og mátulega mikið. Veið- arnar i neöri hlutanum hefjast nokkrum dögum fyrr en á siðas- tliönu sumri, en þá hófust þær 11. júni. Samkvæmt framan- skráðu, þá voru komnir úr neöri hlutanum, alls 66 laxar á hádegi i gær. Stærð laxanna var frá niu til fimmtán pund. I fyrrasumar var Þverá i Borgarfiröi i ööru sæti hvaö fjölda laxa snerti. Fengust i allt, úr báöum hlutum árinnar, 2.330 laxar. Af einstökum ám á land- inu i fyrra var aðeins Laxá i Kjós meö fleiri laxa, en þar veiddust 2.383 laxar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.