Tíminn - 07.06.1977, Page 6
6
Þriöjudagur 7. júnl 1977
— Ég kutnst á „flöt” f dag.
— En gaman, mamma komin
meö dúkku handa mér!
Þetta er heldur sjaldséö sjón nu
á dögum.
Prá kvikmyndahátíðinni í Cannes
Þaö er oröin föst hefö aö áriega koma kvikmyndafram-
leiöendur saman I Cannes, skiptast á skoöunum, sýna
kvikmyndir og þær ganga kaupum og sölum, verölaun eru
veitt og oft kemur nýtt fölk meö fram f dagsíjósiö — nýjar
stjörnur eru uppgötvaöar. Þarna safnast aö margs konar
fólk, sem áhuga hefur á þessum málum, og ekki sizt
striplast þarna i Miöjaröarhafssólinni ungar stúlkur, sem
aöeins biöa eftir aö einhver kvikmyndajöfurinn komi
auga á þær. Þessi onga stúlka, sem viö sjáum hér á mynd-
inni hefur aö minnsta kosti vakiö áhuga ljósmyndara
þarna i Cannes en ljósmyndarar eru þar á þessum tima
eins og mý á mykjuskán. Viö vitum ekki nafn á stúikunni,
né heldur hvernig málin hafa gengiö hjá henni, kannski er
hún nú „komin á samning”, eins og sagter.
Hátiöin var i ár haldin um miöjan mai, og var fjölsótt
mjög. öll hótel full, gott veöur og hátíöablær á fólki. Einn
Amerikani sagöi, er hann var beöinn aö segja sitt álit á
Cannes sem miöstöö kvikmyndamanna: „Þetta er finn
staöur. Fyrirtækiö heima borgar feröina fyrir mig. Ég
sóla mig hér og hitti gott og skemmtilegt fólk i mfnum
„bransa”, en feröin er þó þaö dýr, aö maöur getur ekki
fariö fram á fria ferö fyrir maka lfka, — svo þetta er
frjálslegra en ella. Og svo eru þa ö allar biessaöar litlu
stúlkurnar! Mikiö eru þær fallegar hér i ár! Hér komum
viö ameriskum myndum á Evrópumarkaö, og hingaö
koma menn lika frá Austurlöndum og Noröurlöndum og
vföar aö.” Sýningar standa yfir allan daginn f fjölmörgum
sýningarstööum, þvf aö um 600 myndir voru sendar á
hátföina, — en aöeins 66 voru boðnar þangaö!