Tíminn - 07.06.1977, Qupperneq 23
ÞriOjudagur 7. júní 1977
23
flokksstarfið
ORÐSENDING
frá Vöru- og ferðahappdrætti
Framsóknarflokksins
Allir þeir, sem fengið hafa heimsenda miða og eiga eftir að gera
skil, eru beðnir vinsamlega að senda greiðslu sem fyrst.
Skrifstofan, Rauðarárstig 18, er opin til kl. 7 Ikvöld. Einnig geta
þeir, sem fengiö hafa sendan giróseðil með miðunum greitt i
næstu peningastofnun eða á pósthúsi.
Umboðsmenn um allt land eru sérstaklega hvattir til að hraða
miðasölu og senda skil.
Dregið verður i happdrættinu 10. júni nk. og drætti ekki frestað.
Happdrættið.
Leiðarþing
í Austurlandskjördæmi
Tómas Arnason alþingismaður og Vilhjálmar Hjálmarsson ■
ráðherra halda leiðarþing á Fljótsdalshéraði sem hér segir:
Þriðjudaginn 7. júni' kl. 9 i barnaskólanum á Egilsstöðum
Miðvikudaginn8. júnikl.2ibarnaskólanum á Eiðum
sama dag kl. 9 i Lagarfossvirkjun fyrir Hróarstungu og Hjalta-
staðaþinghá
Fimmtudaginn 9. júni kl. 2 á Arnhólsstöðum i Skriðdal
Föstudaginn 10. júni kl. 9 að Skriðuklaustri
Laugardaginn 11. júni kl. 2á Skjöldólfsstöðum
sama dag kl. 9 i Samkomuhúsinu i Jökulsárhlið
Sunnudaginn 12. júni kl. 2 á Rauðalæk
sama dag kl. 9 á Iðavöllum
Norðurlandskjördæmí eystra
Alþingismennirnir Ingvar Gislason, Stefán Valgeirsson og Ingi
Tryggvason halda almenna landsmálafundi sem hér segir:
Þriðjudaginn 7. júni kl. 21.00 i Ólafsfirði.
Miðvikudaginn 8. júni kl. 21.00 i Sólgarði Eyjafirði.
Sunnudaginn 12. júni kl. 13.00 á Hrafnagili.
Vínarborg
Þar sem fjölmargir, sem áhuga höfðu á að komast með i
siðustu Vinarferð, gátu ekkifengið far hefur verið ákveðiö
að efna til annarrar ferðar i byrjun septembermánaðar.
Nánari uppýsingar á skrifstofunni, Rauðarárstig 18.
Framsóknarfélögin i Reykjavik.
0 Gunnar 60 ára
Hjarðarfellið 1912 og setið alla
jöröina til ársins 1937. Þá seldi
hann þriðjung jaröarinnar Alex-
ander syni sinum er reisti þar ny-
býliö Hvamm og bjó þar til 1944.
Þá flutti hann með fjölskyldu
sinni að Stakkhamri, en við
Hvammi tók systir Gunnars,
Ragnheiður, og maður hennar
Hjálmur Hjálmsson og bjuggu
þau þar i rúman áratug, en
Hjálmur lézt frá konu og börnum
fyrir aldur fram. Skömmu siðar
brá Ragnheiður búi og seldi
Gunnari jörðina Hvamm. Þorkell
bróðir Gunnars keypti sama áriö
og faöir hans lézt, 1950, þann hlut-
ann af Hjarðarfellinu, sem for-
eldrar hans höföu búiö á eftir að
Gunnar hóf búskap. Þorkell var
húsasmiður að mennt og hugðist
jafnframt búskap eftir atvikum
stunda þá iðn i heimahéraði.
Hann byggði glæsilegt Ibúðarhús
fyrir sig á Hjarðarfelli, en lagði
ekki mikla stund á búskap og
dvaldist oft langdvölum að heim-
an, unz hann flutti frá Hjarðar-
felli og seldi þeim hjónum jaröar-
hluta sinn árið 1962. Þá haföi höf-
uðbólif verið sameinaö aftur, og
flutti Gunnar með fjölskyldu sinni
úr bráðabrigðahúsnæöinu i hið
glæsilega hús, er Þorkell byggði,
og býr þar enn.
Þetta stutta búskaparyfirlit
sýnir, aö oft hefur Gunnar átt
annríkt við bústörfin og fram-
kvæmdirnar, einkum á fyrri ár-
um, en hann stóð ekki einn, konan
með afbrigðum dugleg og börnin,
er þau uxu úr grasi, létu ekki sinn
hlut eftir liggja, og siðustu árin
hvilir búiö einkum á herðum Ast-
hildar og tveggja elztu sona
þeirra hjóna.
Félagsmálaforysta á Snæfells-
nesi hefur lengi fylgt Hjarðarfelli.
Guðbjartur faðir Gunnars gegndi
flestum trúnaöarstörfum, sem
einn bóndi getur tekiö aö sér fyrir
byggðalag sitt, var i hrepps-
nefnd, sýslunefnd, hreppstjóri, i
fasteignamatsnefnd sýslunhar og
búnaöarþingsfulltrúi frá 1938 til
1950. Félagsmálastörfin hafa ekki
siður fallið I hlut Gunnars, enda
hefur hann I senn köllun og hæfi-
leika til sllkra starfa. Fyrst var
hann til forystu kallaður i ung-
mennafélagsskapnum, var for-
maður Ungmennasambands
Snæfellsnes- og Hanppadalssýslu
frá 1942-46. Hann hefur átt sæti I
stjórn Búnaöarsambands héraðs-
ins siðan 1943 og lengi verið for-
maður þess, i stjórn og formaður
Ræktunarsambands Snæfellinga
frá stofnun þess 1945, formaður
Búnaðarfélags Miklaholtshrepps
um tveggja áratuga skeiö. Gunn-
ar var driffjöður i stofnun Sauð-
fjárræktarfélags Miklaholts-
hrepps og formaður þess frá
stofnun 1952 um tuttugu ára skeið.
Vann félagið þrekvirki i kynbót-
um fjárstofnsins á þvi timabili og
þátttaka I þvi var óvenju almenn
og vakandi. Sýslunefndarmað-
ur var hann kosinn 1950. Gunnar
var kjörinn fulltrúi á Búnaöar-
þing 1950 og hefur átt þar sæti
óslitiö siðan. Hann var kjörinn
endurskoöandi reikninga Búnað-
arfélags íslands frá 1957 til 1967.
Gunnar var formaður bygginga-
nefndar Laugagerðisskóla, og er
hluturhans af kunnugum við und-
irbúning, fjárútvegan og fram-
kvæmd verksins talinn ómetan-
legur. Þá vann hann einnig frá-
bært starf við aö fá hraðað
dreifingu raforku um byggöir
Snæfellsness sem héraðsbúar fá
seint fullþakkað.
Gunnar var kjörinn fulltrúi á
aðalfund Stétarsambands bænda
1945, en 1963 var hann kosinn for-
maður stjórnar Stéttarsambands
bænda og hefur hann gegnt þvi
mikilvæga starfi af frábæri kost-
gæfni fram á þennan dag. Hann
hefur auk þess, sem hér er talið,
átt sæti I fjölda nefnda um land-
búnaðarmál, veriö varaþingmað-
ur fyrir Vesturlandskjördæmi um
skeið og sat þá ööru hvoru á Al-
þingi. Þá er hann i stjórn margra
annarra helztu fyrirtækja og fé-
lagssamtaka landbúnaðarins og
formaöur I stjórn margra þeirra,
svo sem Framleiðsluráös land-
búnaðarins, bændafulltrúa Sex
manna nefndar, Aburðarverk-
smiöju rikisins og Grænmetis-
verzlunar landbúnaðarins, en i
stjórn Kaupfélags Borgfirðinga,
Mjólkursamsölunnar I Reykja-
vik, Bændahallarinnar, Stofn-
lánadeildar Búnaðarbankans,
Bjargráðasjóðs, Framleiönisjóös
landbúnaðarins og Lifeyrissjóðs
bænda. Þrátt fyrir öll þessi störf
auk búskaparins heima þekkja
bændur landsins og þjóðin öll
Gunnar fyrst og fremst sem for-
mann Stéttarsambands bænda.
Þvi hefur hann helgað krafta sina
af huga og hjarta. Aðeins afreks-
maöur getur leyst af hendi, og
það með sóma, öll þau störf, sem
Gunnari Guðbjartssyni hefur ver-
iö trúað fyrir, enda býr hann yfir
hæfileikum og skapgerð atorku-
mannsins, en hefur að sjálfsögðu
sinar takmarkanir eins og allir
dauðlegir menn.
Gunnar er fluggáfaður félags-
hyggjumaður, ráðrikur, en sann-
gjarn og ber ætiö fyrst og fremst
fyrir brjósti hag þeirra, sem
minnst mega sin i samfélaginu.
Hann er metnaöargjarn og svo
vandur aö viröingu sinni og svo
ósérhlifinn, að hann mætir hvergi
svo á fundi að vera ekki vandlega
undirbúinn, jafnan með skrifaöa
ræðu þrungna af staöreyndum og
rökum. Virðingar sinnar vegna
treystir hann aldrei á hæfileikana
eina sér, þótt af miklu sé aö taka i
þeim efnum. Eini veikleiki Gunn-
ars i félagsmálum er, hve erfitt
hann á með að rabba um vanda-
málin I léttum tón við samstarfs-
menn sina, hvort heldur um sam-
herja eða andstæðinga er að
ræða, komst þannig aö skoöun
þeirra og undirbúa á þann veg til-
lögur til lausnar vandamálanna.
Honum hættir til að velja heldur
hinn kostinn að trúa á mátt sinn
og megin, þaulhugsa málið einn,
oft um andvökunætur, og leggja
svo fram á næsta fundi, gagnoröa
tillögu, sem hann hefur samið
einn. Þessi þáttur I skapgerö
Gunnars hefur stundum skapað
nokkurn kala hjá sumum sam-
starfsmönnum hans, þótt ætiö
fyrirgefist það fyrr eða siðar
vegna aödáunar hlutaðeigandi
samstarfsmanna á dugnaði og
skyldurækni hans. Það er ekki of-
sögum sagt, að bændur landsins
séusammála um, að Gunnari hafi
fariö vel úr hendi forystan I hags-
munamálum bændastéttarinnar.
Allir gera sér ljóst, aö enda þótt
meöalhlutur bænda úr afla
þjóðarbúsins sé minni en lög og
réttur segja fyrir um, að þá heföi
enginn leitt bændastéttina lengra
fram til sigurs en Gunnar á
Hjarðarfelli á þvi timabili, sem
hann hefur gegnt formannsstarf-
inu. En oft hefur verið við ramm-
an reip að draga, sem of langt
mál yrði að rifja upp hér.
Þvi er ekki að neita, að alloft
hefur Gunnar orðið fyrir ádeilum
á fundum frá einstaklingum I
bændastétt, en hver gerir svo öll-
um liki, og i hópi fjölmennrar
stéttar finnast jafnan nokkrir,
sem vanþakka allt, sem vel er
gert.
En Gunnar Guðbjartsson, hefur
ekki staðið einn að sigrum sinum i
starfi. Við búið og heimilið hefur
eiginkonan og börnin veriö hans
gæfa og styrkur. Við störf hans
fyrirbændastéttina, stendur hann
i ómetanlegri þakkarskuld við
ótal samstarfsmenn sina, en þó
sérstaklega fyrirrennara sinn I
starfi, Sverri Gislason bónda i
Hvammi, sem var fyrsti formað-
ur Stéttarsambandsins, og tókst
vegna frábærs félagsmálaþroska,
vitsmuna og drengskapar aö
móta stefnu og starf Stéttarsam-
bandsins á giftusamlegan hátt.
Þá eiga framkvæmdastjórar
þeir, sem Gunnar hefur starfað
mest með, þeir Sæmundur Friö-
riksson, framkvæmdastjóri Stétt-
arsambands bænda og Sveinn
Tryggvason, framkvæmdastjóri
Framleiðsluráðs landbúnaðarins,
ómældan hlut að velgengni Gunn-
ars I starfi.
Þótt Gunnar á Hjaröarfelli sé
mikill af starfi sinu sem félags-
málaforingi bænda, þá var hann
að minum dómi mestur á meðan
hann var enn efnalitill bóndi i litlu
viöbyggingunni við gamla húsiö á
Hjaröarfelli með glæsilega konu
og ung efnileg börn I smárúmum
slnum, er á kvöld var liðiö, og
húsbóndinn og húsfreyjan full af
eldmóði hugsjóna um framfarir
og bættan hag, ekki einungis
sinna nánustu heldur bændastétt-
arinnar allrar og þjóðarinnar i
heild. Þá var ánægjulegt aö gista
hjá þeim hjónum og ræöa sauö-
fjárrækt og önnur framfaramál
við bóndann. Ég átti þar
ógleymanlegar stundir við stofn-
un Sauðfjárræktarfélags Mikla-
holíshrepps.
Ég árna Gunnari á Hjarðarfelli
og fjölskyldu hans allra heilla á
þessum timamótum og óska þess,
að bændur og þjóðin öll fái sem
lengst notið starfskrafta hans.
Halldór Pálsson.
FRAAALEGÐ
námskeið fyrir frystihús
ísafirði og Hallormsstað
Nýtingareftirlit: Rekstrartækni s.f. gengst fyrir námskeiði í notk-
un aðferða og eyðublaða sem notuð hafa veríð
með góðum árangri í daglegu nýtingareftirliti
f rystihúsa.
Þjálfun: Námskeiðið er þjálfun í notkun einfaldra að-
ferða, en kennslugögnin má síðan nota sem fyr-
irmynd í raunverulegu starfi.
Leiðbeinendur: Gisli Erlendsson, tæknifræðingur
Már Sveinbjörnsson, tæknifræðingur
Staður og timi: Hótel Edda, ísafirði, 9. og 10. júní n.k.
Sumarhótelið, Hallormsstað, 14. og 15. júní n.k.
Þátttaka og Vinsamlegasttilkynnið þátttöku í sima (91) 37850
upplýsingar: (91) 37330.
^
] rekstrartækni sf.
Skipholti 70 ■ Simi 3-78-50 & 3-73-30