Tíminn - 10.06.1977, Qupperneq 15
Föstudagur 10. júnl 1977
E&Micnuriic;
15
®nii§a@Y;
7.00 Morgunútvarp. Veöur-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Baldur Pálmason lýk-
ur lestri „Æviminninga
smaladrengs” eftir Arna
Ólafsson (10). Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög milli atriöa.
Spjallaö viö bændur kl.
10.05. Morgunpoppkl. 10.25.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Hallé hljómsveitin leikur
Ljóðræna svítu op. 54 eftir
Grieg, Sir John Barbirolli
stjórnar / Sinfóniuhljóm-
sveit útvarpsins I Moskvu
leikur „Klettinn”, sin-
fóniska fantasiu fyrir
hljómsveit op. 7 eftir Rakh-
maninoff, Rozhdestvensky
stjórnar / Einar Svein-
björnsson Ingvar Jónasson,
Hemann Gibhardt, Ingemar
Rilfors og Sinfónluhljóm-
sveitin I Málmey leika
Sinfóniu concertante fyrir
fiðlu, viólu, óbó, fagott og
hljómsveit eftir Rosenberg,
Janos Furst stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veöurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Viö vinnuna:
Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Nana”
eftir Emile Zola.Karl Isfeld
þýddi. Kristín Magnús Guö-
bjartsdóttir les (23).
15.00 Miðdegistónleikar. Nýja
Fllharmoniusveitin leikur
Leikhúsforleik I D-dúr op. 4
nr. 5 eftir Pietro Antonio
Locatelli, Raymond
Leppard stjórnar. Annie
Jadry og Fontainebleau
kammersveitin leika Fiölu-
konsert nr. 6 I A-dúr eftir
Jean-Marie^ Leclair,
Jean-Jacques Werner
stjórnar. Pierre Pierlot og
Antiqua Musica kammer-
sveitin leika Konsert I D-dúr
op. 7 nr. 6 fyrir óbó og
strengjasveit eftir
Tommaso Albinoni,
Jacques Roussel stjórnar.
Wurttemberg kammer-
sveitin i Heilbronn leikur
Sinfónlu nr. 7 I B-dúr eftir
William Boyce, Jörg Faer-
ber stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.30 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Byrgjum brunninn. Þór-
ir S. Guðbergsson félags-
ráögjafi talar um leikföng.
Ingi Karl Jóhannesson flty-
ur formálsorö aö þessum
erindaflokki um barna-
verndarmál.
20.00 Sinfónia nr. 2 I C-dúr eft-
ir Anton Rubinstein. Sin-
fóniuhljómsveitin I Westfal-
en leikur, Richard Kapp
stjórnar.
20.45 Sállækningar með tón-
list. Um áhrif tónlistar á
sálarlif og likama og dæmi
um tónlist, sem notuö er til
sállækninga. — Slöari þátt-
ur. Umsjón: Geir Vil-
hjálmsson sálfræöingur.
21.30 tJtvarpssagan: „Jómfrú
Þórdis” eftir Jón Björnsson.
Herdis Þorvaldsdóttir les
(30).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Vor I verum” eftir Jón
Rafnsson. Stefán ögmunds-
son les (22).
22.40 Afangar. Tónlistarþátt-
ur sem Asmundur Jónsson
og Guöni Rúnar Agnarsson
stjórna.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
framhaldssagan framhaldssagan framhaldssagan framhaldssagan
Frú Harris fer
til Parísar @
eftir PaufGallico
Allir aðrir viðskiptavinir hennar voru vel stæðir, en
ungtrú Penrose var fátækogframgjörn. Ef frú Butter-
f ield hefði nú ekki komizt yfir allt saman? Enn var árla
dags. Lyklarnir að íbúðinni voru í nýja krókódílsskinns-
veskinu, sem nú var komið upp úr ferðatöskunni. Frú
Harris sagði við sjálfa sig: — Veslingurinn litli. Klukk-
an er ekki orðin svo margt. Ef til vill koma einhverjir
f ínir herramenn í heimsókn. Ég ætla rétt að Iíta inn fyrir
og koma henni á óvart með því að laga dálítið til. Hún tók
strætisvagninn og skömmu síðar stóð hún í húsasundinu
og stakk lyklinum í lásinn.
Hún var varla búin að opna dyrnar að íbúðinni, þegar
hún heyrði gráthljóð. Frú Harris flýtti sér inn í litlu dag-
stofuna, þar sem hún fann ungfrú Penrose liggjandi i
sófanum með andlitið grafið í púða og hágrátandi.
Frú Harris gekk til hennar, lagði höndina með samúð á
titrandi öxl hennar og sagði: —Svona, svona, barn, hvað
er að? Það getur ekki verið óskaplega alvarlegt. Ef þér
eruð í klípu, get ég kannski hjálpað yður.
Ungfrú Penrose settist upp. — Þér að hjálpa mér!
endurtók hún og horfði á hana grátbólgnum augum. Svo
sagði hún eilítið vingjanlegar: — Ó, eruð það þér, frú
Harris. Enginn í öllum heiminum getur hjálpað mér. Ó,
ég gæti dáið! Ef þér endilega viljið vita það, þá var mér
boðið til kvöldverðar á Caprice með herra Korngold,
kvikmyndaframleiðandanum. Það er eina tækifærið
sem mér gefst til að hafa áhrif á hann og komast áf ram.
Nær allar stúlkur Korngolds — ég á við vinkonur — hafa
orðið stjörnur....
— En það er þó ekkert til að gráta yfir. sagði frú
Harris. — Ég er alveg viss um að þér eigið skilið að verða
stjarna.
Sorg ungfrú Penrose breyttist í reiði. — Æ, verið ekki
svona heimsk! sagði hún með áherzlu. — Skiljið þér
ekki? Ég get ekki farið. Ég á ekkert til að vera í. Eini al-
mennilegi kjóllinn minn er í hreinsun og það er blettur á
þeim næstbezta. Korngold tekur mjög vel eftir, hverju
stúlkurnar klæðast, sem hann fer út með.
Hver gæti í sporum frú Harris stillt sig um að leika
hlutverk hjálparandans, þar sem í töskunni frammi á
stigapallinum var nákvæmlega það sem vantaði? Sér-
staklega þegar viðkomandi fyndi ennþá töfra Natösju
hinnar fögru og innileika frú Colberts og allra hinna og
vissi hvernig það var að óska sér einhvers af líf i og sál?
Áður en f rú Harris gerði sér alveq grein fyrir því sem
„Þrlr tlkarlegir kjötbitar og
ellefu gulrætur... er þaö þetta
scm þiö kalliö rétt samsetta
fæöu?”
DENNI
DÆMALAUSI;
hún sagði, var hún búin að sleppa orðunum: — Ég get ef
til vill hjálpað yður. Ég gæti lánað yður Dior-kjólinn
minn.
— HVAD ÞÁ????? Ó, skammizt þér yðar ekki!
Hvernig vogið þér yður að gera grín að mér? Ungfrú
Penrosegeif laði fallega munninn og augun voru svört af
reiði.
— En ég er ekki að gera grín að yður. Það er satt, ég
sver það. Ég er að koma beint frá París, þar sem ég
keypti mér Dior-kjól. Þér megið fá hann lánaðan i kvöld,
ef það getur hjálpað eitthvað upp á Korngold.
Ungfrú Penrose, fædd Snite, náði einhvern veginn
valdi á sjálfri sér aftur, því einhver innri rödd sagði
henni, að þegar um hreingerningakonur væri að ræða,
gæti maður aldrei vitað, á hverju væri von. — Fyrirgef ið,
sagði hún — en auðvitað getið þér ekki....hvar er hann?
— Hérna, sagði frú Harris og opnaði töskuna. Aðeins
undrunar- og gleðisvipurinn á andliti stúlkunnar var
dásamlegur sigur. — Ó, ó,! hrópaði hún. — Ég trúi þvi
ekki! Áandartaki reif hún silkipappírinn utan af kjóln-
um, hélt honum upp að sér og þrýsti honum að sér, með-
an ákafir fingur hennar þreifuðu eftir merkinu. — Ó,
þetta er raunverulega Dior. Má ég máta hann strax, f rú
Harris? Við erum nokkurn veginn jafn stórar, ekki satt!
Ó, ég gæti dáið af hrifningu!
Á næsta andartaki var hún f arin að klæða sig úr fötun-
um og frú Harris hjálpaði henni í kjólinn, og nokkrum
mínútum síðar gegndi hann aftur því hlutverki, sem
höfundar hans höfðu ætlað honum. Með fagrar berar
axlirnar og Ijóst hárið yfir siffon- og tjullpifunum var
ungfrú Penrose bæði Venus sem steig upp úr öldum
hafsins og ungfrú Snite, sem birtist milli rekkjuvoðanna.
Frú Harris og stúlkan horfðu bergnumdar.á myndina i
stóra speglinum í skápshurðinni. Leikkonan sagði: — Ó,
þér eruð enqill að vilja lána mér hann. Ég skal fara af-
skaplega varlega með hann. Þér vitið ekki, hvað hann
skiptir mig miklu máli.
En frú Harris vissi það mætavel. Það var eins og for-
lögin vildu umf ram allt, að þessi kjóll væri á manneskju,
en hengi ekki gagnslaus i skáp. Þess vegna bað hún nú:
— Væri yður það á móti skapi, ef ég færi að veifingahús-
inu, þar sem þér ætlið að borða kvöldverð, og stæði fyrir
utan, svo ég gæti séð yður fara inn? Auðvitað myndi ég
alls ekki tala við yður...
Ungfrú Penrose svaraði náðarsamlegast: —Auðvitað
hef ég ekkertá móti þvi. Ef þér standið hægra megin við
dyrnar, þegar ég stíg út úr Rolls-Royceinum hans Korn-
golds, get ég snúið mér að yður, svo þér sjáið mig betur.
— Ó, það er fallegt af yður, sagði f rú Harris og meinti
það.
Ungf rú Penrose stóð við loforð sitt, að minnsta kosti til
hálfs, þvi það var komið illviðri og hellirigning, þegar
bifreið Korngolds renndi uppað innganginum að Caprice
klukkan hálf tíu. Frú Harris stóð hægra megin, nokkurn
veginn í skjóli fyrir regninu undir tjaldinu.
i*
$
í, 1
r■V.t
v&'
>J>
É
a-.
S
>w*
r .-
VS
Ráðningarstofa Reykjavikurborgar
óskar eftir að
róða fuiltrúa til að
annast atvinnumól
öryrkja
Umsóknir um starfiö skulu sendar Ráöningarstofu
Rcykjavikurborgar, Borgartúni 1, og skal I umsókn til-
greina menntun og fyrri störf.
Nánari upplýsingar um starfiö eru gefnar á Ráðn-
ingarstofu Reykjavíkurborgar.
Umsóknarfrestur er til 25. júni n.k.
Ráðningarstofa Reykjavíkurborgar.
%
k
%
4
é
$
$
w.
•í-'l
•y-’
'fyC