Fréttablaðið - 23.02.2006, Side 18
23. febrúar 2006 FIMMTUDAGUR
Þriggja daga vitnaleiðslum
í Baugsmálinu lauk í gær,
en í dag hefst málflutn-
ingur setts saksóknara og
verjenda í Héraðsdómi
Reykjavíkur. Tekist er á
um það annars vegar hvort
málsgögn eru nægjanlega
trúverðug til sakfellingar
vegna tollsvika og rang-
færslna skjala við innflutn-
ing á nokkrum bifreiðum
frá Bandaríkjunum. Hins
vegar er verkefni dómara
að skera úr um sekt eða
sakleysi fjögurra sakborn-
inga sem gefið er að sök
að hafa brotið gegn lögum
um ársreikninga og refsi-
verða háttsemi um bókhald,
ársreikninga eða tilraunir
til að fela auðgunarbrot
samkvæmt ákvæðum hegn-
ingarlaga.
Fjöldi vitna hefur verið til kallað-
ur um síðarnefndu ákæruatriðin.
Þar er Jóni Ásgeiri Jóhannessyni,
forstjóra Baugs, og Tryggva Jóns-
syni, þáverandi aðstoðarforstjóra,
í fjórum ákæruliðum gefið að sök
að hafa lagt fram rangar og vill-
andi upplýsingar um kröfur í efna-
hagsreikningi Baugs, sem ákæru-
valdið telur meira og minna vera
ólögmæt lán til þeirra. Sömuleiðis
er endurskoðendunum Stefáni
Hilmari Hilmarssyni og Önnu
Þórðardóttur gefið að sök að hafa
brotið lög um ársreikninga með
því að árita án fyrirvara ársreikn-
inga án þess að gerð væri grein
fyrir meintum lánveitingum til
starfsmanna eða stjórnenda, jafn-
vel svo hundruð milljónum króna
skiptir.
Innri starfsreglur Baugs
Óskar Magnússon var stjórnarfor-
maður Baugs árið 1998 og 1999 og
kom að gerð ársreikninga fyrir
fyrra árið. Hann var höfundur
innri starfsreglna Baugs sem á
þeim tíma heimiluðu allt að 25
milljóna færslur á viðskiptareikn-
inga stjórnenda.
Óskar kom fyrir réttinn í gær
og kannaðist við að færslur hefðu
farið fram meðal annars milli
Gaums og Baugs. Baugur hefði átt
í viðskiptum við félög sem eigend-
urnir áttu jafnframt og reynt hefði
verið að tryggja að eigendurnir
sætu ekki beggja vegna borðsins.
Sem dæmi hefði Gaumur annast
verkefni, eins og leigusamning í
Smáralind, sem Baugur hefði
síðan tekið við. Ekki kannaðist
Óskar við heimild til að hækka
viðskiptaheimildir stjórnenda og
starfsmanna upp fyrir 25 milljón-
ir króna í sinni tíð, en Óskar hætti
hjá Baugi í árslok 1999.
Guðfinna Bjarnadóttir, rektor
Háskólans í Reykjavík, og Þorgeir
Baldursson, prentsmiðjustjóri í
Odda, sögðu sig bæði úr stjórn
Baugs snemma árs 2003 eftir að
upplýsingar af stjórnarfundi
Baugs komust í fjölmiðla. Þau
báru bæði vitni í Baugsmálinu í
gær. Þau könnuðust bæði við
skýrslur sem kynntar voru í stjórn
Baugs fyrri hluta ársins 2002 um
uppgjör á viðskiptamannareikn-
ingum stjórnenda. Aðspurð sagði
Guðfinna að ekki væri algengt að
ræða stöðu á viðskiptamanna-
reikningum á stjórnarfundum.
Glögg mynd
Ólafur Kristinsson, löggiltur end-
urskoðandi hjá endurskoðunarfyr-
irtækinu PricewaterhouseCoopers
kom fyrir réttinn, en hann hefur
unnið greinargerð fyrir verjendur
sakborninga. Á honum mátti skilja
að ákærðir endurskoðendur Baugs
hefðu gefið glögga mynd af efna-
hag félagsins. Glögg mynd væri
sú sem nægði upplýstum lesanda
ársskýrslu til að taka ákvörðun og
gæti lesandinn treyst því að ekki
væru þar skekkjur sem yrðu til
þess að hann tæki aðra ákvörðun
ef hún yrði honum ljós.
Í lögum um ársreikninga segir
að tilgreina skuli sundurliðað fjár-
hæðir lána sem veitt hafi verið
stjórnendum félags eða móður-
félags vegna tengsla þessara aðila
við félögin. Ólafur sagði að 104.
grein laga um hlutafélög styddi að
viðskiptalán til stjórnenda gætu
talist eðlileg viðskipti og því ekki
skylt að sérgreina sem lán í árs-
skýrslu.
Tekist er á um þetta í réttar-
höldunum. Fyrir réttinn kom Sig-
urður Einar Steindórsson, endur-
skoðandi hjá Deloitte og Touche,
en hann og fleiri hjá Deloitte hafa
unnið fyrir embætti Ríkislög-
reglustjóra varðandi Baugsmálið.
Í réttinum sagði Sigurður að kröf-
ur á viðskiptamannareikningum
stjórnenda gætu flokkast sem lán
ef þær féllu ekki undir regluleg
viðskipti.
Málflutningur í dag
Meðal vitna í gær voru Linda
Jóhannsdóttir og Jóhanna Waag-
fjörð, fyrrverandi fjármálastjórar
Baugs. Hvorug þeirra kannaðist
við að staða Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar á viðskiptamannareikn-
ingi Baugs hefði þótt óeðlileg.
Linda sagði að í lögregluyfir-
heyrslu hefði henni ekki verið
kynnt efni 104. greinar bókhalds-
laga um undanþágur til lánveit-
inga.
Málflutningur í Baugsmálinu
verður í dag og að honum loknum
verður málið tekið í dóm. Það er
tvískipt; annars vegar meint toll-
svik og rangfærsla skjala en hins
vegar meint brot á lögum um árs-
skýrslur og bókhald samkvæmt
hegningarlögum. Afar ólíklegt
verður að teljast að málinu verði
vísað frá dómi, enda hefur Hæsti-
réttur komist að því að ákærulið-
irnir átta séu tækir til efnislegrar
meðferðar og dóms.
Ólögleg lán eða lögleg
viðskipti sakborninga
ÓSKAR MAGNÚSSON, FYRRVERANDI
STJÓRNARFORMAÐUR BAUGS Óskar samdi
upphaflega innri starfsreglur fyrir stjórn-
endur Baugs, sumpart til þess að tryggja
að þeir væru ekki beggja vegna borðs í
viðskiptum félaga í eigu þeirra sjálfra.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÞORGEIR BALDURSSON PRENTSMIÐJU-
STJÓRI Þorgeir gengur úr réttinum eftir að
hafa borið vitni. Hann gekk úr stjórn Baugs
líkt og Guðfinna 2003 eftir að gögn af
stjórnarfundi birtust í fjölmiðlum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GUÐFINNA BJARNADÓTTIR, REKTOR HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK Guðfinna bar vitni í Baugsmálinu í gær en hún sagði sig úr stjórn félagsins í
mars 2003. Í baksýn sést Pétur Guðgeirsson dómsforseti og skjalamöppurnar í Baugsmálinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BAUGS M Á L I Ð
FRÉTTASKÝRING
JOHANN HAUKSSON
johannh@frettabladid.is