Fréttablaðið - 07.04.2006, Side 11

Fréttablaðið - 07.04.2006, Side 11
FÖSTUDAGUR 7. apríl 2006 11 ÍRAN, AP Stjórnvöld í Íran upplýstu á miðvikudag að þau hefðu giftu- samlega skotið á loft þriðju leyni- legu sprengiflauginni á einni viku. Frá þessu var greint í frétt- um íranska ríkissjónvarpsins. Samkvæmt fréttinni voru tvö öflug tundurskeyti prófuð á sama tíma. Í fréttinni kom fram að hægt væri að skjóta sprengiflauginni frá öllum herþyrlum og -þotum, og sást stutt mynd af flauginni þar sem henni var skotið frá þyrlu og lent á haffleti. Alþjóðasérfræðingum kemur ekki saman um áreiðanleika fréttanna frá Íran, en þær koma á sama tíma og spennan milli Írans og Bandaríkjanna vegna kjarn- orkuáætlunar Írana fer vaxandi. Íranar segjast eingöngu ætla sér að nýta kjarnorku til raforku- framleiðslu, en leiðtogar á Vest- urlöndum, ekki síst í Bandaríkj- unum, telja að þeir undirbúi smíði kjarnorkuvopna. Deilunni um kjarnorkuáætlun Írana hefur verið skotið til örygg- isráðs Sameinuðu þjóðanna, en það hefur vald til að ákveða refsi- aðgerðir. Eftirlitsmenn frá Alþjóðakjarnorkumálastofnun- inni ætla til Írans í dag, föstudag, til að skoða búnað Írana til kjarn- orkurannsókna. - smk Íranar halda áfram vopnatilraunum: Þriðja sprengiflaugin prófuð á einni viku SPRENGIFLAUG Önnur sprengiflaugin af þremur sem Íranar segjast hafa skotið í tilraunaskyni í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SUÐUR-AFRÍKA, AP Margir Suður- Afríkubúar eru æfir yfir orðum fyrrverandi varaforseta landsins, en hann sagði fyrir dómi á mið- vikudag að hann hefði „farið í sturtu“ til að minnka líkurnar á HIV-smiti eftir að hann hafði sam- farir við HIV-smitaða konu á heimili sínu í nóvember. Konan kærði Jacob Zuma fyrir nauðgun, en hann neitar sök og segir hana hafa leitað eftir kynlíf- inu, sem var óvarið. Orð Zuma þykja færa ungum Suður-Afríkumönnum röng skila- boð, því karlmenn þar í landi eru þekktir fyrir að eiga marga bólfé- laga og stunda óvarið kynlíf þrátt fyrir mikla útbreiðslu HIV-smits. - smk Varaforseti um alnæmi: Fór í sturtu til að forðast smit MÓTMÆLI Margir eru reiðir fyrrverandi varaforsetanum Jacob Zuma, sem ákærður er fyrir nauðgun. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FINNLAND Framkvæmdastjórn Evr- ópusambandsins hefur óskað eftir útskýringum frá sjö ríkjum vegna einokunar á veðmálum og fjár- hættuspili. Meðal annars hefur verið óskað eftir útskýringum frá finnskum stjórnvöldum á því hvort einokunarreglurnar hindri frjálst flæði þjónustu á innri markaði Evrópu. Í vefútgáfu dagblaðsins Hels- ingin Sanomat segir að fyrirspurn- in nái aðeins til íþróttaveðmála og að framkvæmdastjórnin sé ekki að draga lögmæti einokunarfyrir- komulagsins í efa. Grunur leiki hins vegar á að reglurnar séu í trássi við reglur ESB. - ghs Veðmálaeinokun rannsökuð: ESB krefur Finna skýringa INNBROT Lögreglan á Akranesi rannsakar nú innbrot á hár- greiðslustofu og í tískuvöruversl- un, en brotist var inn á staðina í fyrri nótt. Skiptimynt var stolið af hár- greiðslustofunni, auk snyrtivara, en óverulegar fjárhæðir voru í kassa inn á stofunni. Úr tískuvöruverslunni hafði innbrotsþjófurinn lítilræði af peningum á brott með sér, auk fatnaðar. Innbrotsþjófurinn er ófundinn en þeir sem geta ein- hverjar upplýsingar veitt um málið er beðnir um að hafa sam- band við lögregluna á Akranesi. - mh Tvö innbrot á Akranesi: Stal fatnaði og snyrtivörum ÍRAK, AP Lögmenn Saddams Huss- ein segja nýbirtar ákærur gegn einræðisherranum fyrrverandi um þjóðarmorð þjóna pólitískum markmiðum Bandaríkjanna. Nú er verið að rétta yfir Sadd- am og sjö öðrum vegna drápa á 148 sjíamúslimum, en nýju ákær- urnar eru af mun alvarlegri toga. Um 100.000 Kúrdar fórust í hern- aðarlegum árásum sem saksókn- arar segja Saddam hafa fyrirskip- að árið 1988. Saddam hefur viðurkennt að hafa fyrirskipað drápin á sjía- múslimunum, en ber því við að nægar sannanir hafi verið fyrir því að fólkið hafi staðið að morð- tilraun gegn honum. Undir þetta tók í gær einn hinna sakborninganna, Awad al-Bandar, dómarinn sem á sínum tíma dæmdi fólkið til dauða. - smk Lögmenn Saddams Hussein: Segja ákærur þjóna óvininum SADDAM HUSSEIN Fyrrverandi einræðis- herra Íraks í réttarsal. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.