Fréttablaðið - 07.04.2006, Side 27

Fréttablaðið - 07.04.2006, Side 27
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. GÓÐAN DAG! Í dag er föstudagurinn 7. apríl, 97. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 6.25 13.30 20.37 Akureyri 6.05 13.15 20.26 Það er ekki tekið út með sitjandi sældinni hjá bragðlaukunum í munni vaxtarræktarmannsins enda er fæðu- valið undir smásjá meðan vöðvar eru hnyklaðir þegar dregur að stórmótum. Magnús Bess Júlíusson er á fullu þessa dag- ana við að undirbúa sig fyrir Íslandsmótið í vaxtarrækt sem fram fer um páskana. Magnús æfir allan ársins hring, en undir- búningstíminn fyrir mótið er um tólf vikur og á meðan honum stendur er fæðuvalið undir smásjánni og valið er vandað. „Þetta er stíft prógramm,“ segir Magnús stoltur. „Á meðan ég er að undirbúa mig borða ég mest fitusnauðan mat eins og kjúklingabringur, grænmeti og allan fisk, túnfisk, lax og ýsu. Ég þarf að hækka prót- ínmagnið í líkamanum því við það eykst brennslan. Svo er maður duglegur að hreyfa sig og ég æfi í um þrjá tíma á dag.“ Eftir keppnina hér heima tekur Magnús þátt í nokkrum grand prix-mótum á Norður- löndunum. „Eftir mótin þá fer maður smátt og smátt aftur í gamla mataræðið og fer að borða venjulegan mat. En á meðan á undir- búningnum stendur tek ég alltaf einn nammi- dag í viku í sárabætur,“ segir Magnús spenntur. „Á laugardögum má ég fá mér allt sem mig langar í. Ég fæ mér stundum ís en finnst best að fá alvöru steik með sósu og öllu tilheyrandi.“ Magnús segist einnig borða mikið af heilsuréttum frá Nings og er svo stálhepp- inn að fá góðan mat í mötuneytinu í Alcan þar sem hann vinnur. „Það skiptir miklu máli að geta borðað vel í vinnunni,“ segir Magnús. „Fyrir mér er hádegisverðurinn undirstaða dagsins. Kvöldmaturinn skiptir mig ekki eins miklu máli. Á kvöldin fæ ég mér léttara fæði eins og ávexti og prótín- hristing.“ Magnús segir góðan kalkún með öllu til- heyrandi vera í miklu uppáhaldi hjá sér. „Ég er líka voða hrifinn af kjúklingabringum og nota Georg Forman-grillið mitt mikið við eldamennskuna. Uppskriftin sem ég valdi að þessu sinni er einmitt kjúklingaréttur sem er hollur og fljótlegur.“ Uppskrift Magnúsar má finna á síðu 2. johannas@frettabladid.is Steik á nammidögum Magnús Bess Júlíusson og Hildur Eggertsdóttir með Viktoríu Rós dóttur sinni. Magnús brosir breitt enda er nammidagur á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM MORGUNAHANAR NJÓTA SÉRTILBOÐA Í VERSLUNUM FLUGSTÖÐVAR LEIFS EIRÍKSSONAR TIL 19. APRÍL. Þeir farþegar sem mæta til innritunar fyrir klukkan sex að morgni munu njóta sértilboða í verslunum Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar fram til 19. apríl. Til dæmis býðst þeim að geyma bílinn frítt í tvo sólarhringa á langtímabílastæði Securitas. Þeir sem panta sér gleraugu hjá Optical Studio fá par af sólglerjum í kaupbæti með réttum styrkleika. Allt frá 15 til 30 prósenta afsláttur er veittur í ýmsum verslunum flugstöðvarinnar. Til dæmis er 30 prósenta afsláttur á flugfreyjutöskum í Eymundsson og 25 prósenta afsláttur á gjafakassa frá Kaffitári. Innritun hefst klukkan fimm um morguninn en farþegar eru minntir á að framkvæmdir standa yfir í flugstöðinni og fólk því hvatt til að gefa sér góðan tíma fyrir flug. Morgunstund gefur gull í mund Á leið til útlanda Húsasmiðjan býður til helg- arsprengju á öllum minni raftækjum og öllum búsáhöld- um og páskavörum. Veittur er 30 prósenta afsláttur af brauðrist- um, blöndurum, samlokugrillum, diskum, bollum, brauðbrettum og ýmsu fleira. Tilboðið gildir fram á mánudag. Hereford gleður bragðlaukana í apríl. Á mánudögum og þriðju- dögum er parísarbuff á tilboði hjá þeim. Alla miðvikudaga frá 17 til 20 er boðið sérstakt tilboðsverð á rifjasteikum og alla fimmtudaga er boðið upp á tvo fyrir einn í mat á milli 17 og 20. Alla daga býður Hereford tvo fyrir einn af fordrykkjum fyrir matargesti milli 17 og 20. iPod afspilari er á fermingartil- boði hjá Duka í Smáralindinni. Afspilarinn kostar 29.900 á tilboðinu sem er kostaboð enda stórgott tæki. ALLT HITT [MATUR TILBOÐ] VIÐLEGUBÚNAÐUR Í FERMINGARGJÖF Nokkrar verslanir bjóða upp á fermingartilboð á viðlegubúnaði. TILBOÐ 5 KRYDDLEGIÐ PÁSKALAMB Það er ævaforn siður að hafa lambakjöt á páskum. Það má matreiða á ýmsa vegu. MATUR 2

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.