Fréttablaðið - 07.04.2006, Síða 44
7. apríl 2006 FÖSTUDAGUR32
timamot@frettabladid.is
Meira en hundrað manns
flytja í dag Sálumessu Moz-
arts á tónleikum í Selfoss-
kirkju í dag og Breiðholts-
kirkju á morgun. Fjórir
kórar ásamt einsöngvurum
og hljómsveit hafa æft
verkið undanfarnar vikur.
Keith Reed er einn for-
svarsmanna verkefnisins
ásamt því að syngja ein-
söngshlutverk en hann
segir að þátttakendur hafi
notið æfinganna á Sálu-
messunni og hlakki til að
koma verkinu frá sér í
kvöld og á morgun.
„Sálumessa Mozarts er
búin að festa sig mjög í sessi
vegna þess að þetta er mikið
verk með mikla sögu. Tón-
list Sálumessunnar er mjög
vinsæl og kraftmikil. Fólk
tekur eftir stefjunum og til-
finningunni í tónlistinni svo
það þekkti andann áður en
við fórum að æfa verkið,“
segir Keith. Sjálfur segir
hann að verkið sé í uppá-
haldi hjá honum eins og
mörgum öðrum og verður
þetta í annað sinn sem hann
tekur þátt í eiginlegum
flutningi þess. „Kammerkór
Austurlands flutti verkið
árið 1999 en ég stofnaði kór-
inn og stjórnaði honum þá.
Svo komst ég nálægt því að
syngja einsöng með Fíl-
harmóníunni fyrir þremur
eða fjórum árum síðan en
þá var ég veðurtepptur fyrir
austan svo ég komst ekki á
tónleikana.“ Tækifærið er
því hans núna að flytja ein-
sönginn sem hefur í raun-
inni verið undirbúningi
síðan fyrir síðustu tónleika.
„Parturinn minn er orðinn
vel æfður,“ bætir Keith við
og hlær mikið.
En Keith er ekki bara
einsöngvari í Sálumessunni
heldur átti hann hugmynd-
ina að verkefninu. Hann
kemur að að starfi allra
fjögurra kóranna sem
syngja í kvöld og á morgun,
stjórnar Landsvirkjunar-
kórnum, Samkór Selfoss og
Kirkjukór Breiðholts og sér
um raddþjálfun Samkórs
Reykjavíkur. Keith segir að
messan sé ekki mjög löng í
flutningi en þeim mun stór-
brotnari og geri miklar
kröfur til kóranna sem
flytja hann. „Ég stakk upp á
þessari hugmynd til að láta
þessa fjóra kóra fá verkefni
sem þeir hefðu ekki fengið
að takast á við annars. Þeir
voru meira í flutningi á
dægurlagatónlist og íslensk-
um kórlögum áður.“ Fyrstu
viðbrögð sumra kór-
meðlimanna voru að verk-
efni á borð við Sálumessu
Mozarts væri eitthvað sem
aðrir ættu að sjá um. „Þau
sögðu að við ættum að bara
leyfa Mótettukórnum eða
Langholtskirkjukórnum að
gera þetta. En ég sagði bara
nei! Þetta er alveg týpískt
íslenskt því allt svona tal
um að vera ekki nógu góður
er alveg rosalega ríkt í
ykkur.“
Óttinn hvarf þó um leið
og búið var að ákveða að
takast á við verkefnið. „Allir
fóru þá að hugsa bara eins
og ófrískar konur. Barnið
okkar vex með tímanum,
við vitum ekki alveg hvern-
ig það á eftir að líta út en við
vitum þó að eitthvað er í
gangi. Það er spennandi að
finna að eitthvað er að þró-
ast og við erum búin að bera
verkið í maganum alveg
síðan í janúar. Núna erum
við virkilega tilbúin og ofsa-
lega gaman að eiga von á
heilbrigðri fæðingu.“
Tónleikarnir í kvöld
verða haldnir klukkan hálf
níu í Selfosskirkju og hefj-
ast þeir seinni í Breiðholts-
kirkju á morgun klukkan
17.
KEITH REED: FLYTUR SÁLUMESSU MOZARTS
Von á heilbrigðri fæðingu
KEITH REED, SÖNGVARI OG KÓRSTJÓRI Fjórir kórar syngja Sálumessu Mozarts á tvennum tónleikum um helgina ásamt einsöngvurum og hljómsveit. Keith
Reed kemur að starfi allra kóranna auk þess sem hann er einn fjögurra einsöngvara. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
HENRY FORD (1863-1947)
LÉST ÞENNAN DAG
„Fyrirtæki sem gerir ekkert
annað en að græða peninga
er lítilfjörlegt fyrirtæki.“
Bílaframleiðandinn Henry Ford lét
framleiða bíla á færibandi í
verksmiðju sinni og gerði almenningi
mögulegt að eignast bíl.
Á þessum degi, klukkan 1.00 árið
1968, öðluðust gildi ný lög um
tímareikning. Lögin eru einföld
og bara í einni grein: Hvarvetna á
Íslandi skal telja stundir árið um
kring eftir miðtíma Greenwich.
Miðtími Greenwich er alþjóð-
legur staðaltími sem miðaður er
við Greenwich núllbaug en hann
liggur í gegnum Konunglegu
stjörnuskoðunarstöðina í Green-
wich í Englandi. Á Alþjóðlegu
núllbaugsráðstefnunni árið 1884
ákváðu öll lönd heimsins meðal
annars að taka upp samræmdan
staðartíma og á staðarvalið á
Greenwich rætur sínar að rekja til
þeirrar ráðstefnu.
Ákveðið var að tímabeltin
skyldu miðast við lengdarbauga og
í hverju belti væru fimmtán baug-
ar. Miðtíminn eða staðaltíminn
gildir því á belti sem liggur sjö og
hálfa gráðu til austurs og vesturs
frá Greenwich.
Reyndar leyfist ákveðið frelsi
í þessum efnum eins og ákvörð-
un Íslands sýnir glöggt og er
samræming á tíma innan landa
oft látin ganga fyrir raunverulegri
staðsetningu á lengdarbaugunum.
Til skýringar má til dæmis nefna að
þriggja klukkustunda tímamismun-
ur er á Íslandi og Grænlandi þó
að hluti af Grænlandi sé á sama
lengdarbaugi og Ísland.
ÞETTA GERÐIST: 7. APRÍL 1968
Miðtími Greenwich gildir á Íslandi
KLUKKUTURNINN Á GARÐATORGI
MERKISATBURÐIR
1795 Frakkar taka upp metrann
sem lengdareiningu.
1906 Fjallið Vesúvíus gýs og veld-
ur eyðileggingu í borginni
Napólí.
1943 Stjórnarskrárnefnd Alþingis
skilar samhljóða áliti um að
leggja til að 17. júní 1944
skuli valinn til stofnunar
lýðveldisins.
1943 Laugarnesspítali í Reykjavík
brennur til kaldra kola.
1946 Sjálfstæði Sýrlands frá
Frökkum er opinberlega
viðurkennt.
1948 Alþjóða heilbrigðisstofn-
unin (WHO) er stofnuð af
Sameinuðu þjóðunum.
1998 Söngvarinn George Michael
er handtekinn á almenn-
ingssalerni í Beverly Hills
fyrir ósiðlegt athæfi.
ANDLÁT
Gunnar Einarsson, fyrrverandi
stöðvarstjóri Pósts og síma, Hörgs-
hlíð 8, Reykjavík, lést á Landspít-
alanum, hjartadeild, aðfaranótt
þriðjudagsins 4. apríl.
Bragi Melax, kennari, Skúlagötu
40, Reykjavík, lést á líknardeild
Landspítala Landakoti sunnudag-
inn 2. apríl.
Lúðvík Alfreð Halldórsson, Birki-
mel 9, Varmahlíð, Skagafirði, lést
af slysförum sunnudaginn 2. apríl.
Fjóla Gunnlaugsdóttir, frá
Víðinesi í Hjaltadal, lést á Heil-
brigðisstofnuninni á Sauðárkróki
mánudaginn 27. mars.
Sigurður Jóhannesson, dvalar-
heimilinu Felli, Reykjavík, er látinn.
Freyr Steingrímsson, Hömrum
10, Djúpavogi, varð bráðkvaddur
laugardaginn 1. apríl.
JARÐARFARIR
13.00 Greta María Jóhannsdóttir,
frá Skógarkoti í Þingvalla-
sveit, Skólabraut 3, Seltjarn-
arnesi, verður jarðsungin frá
Seltjarnarneskirkju.
13.00 Júlíana Matthildur Isebarn,
Hringbraut 43, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni í Reykjavík.
13.00 Helga Þorsteinsdóttir,
Droplaugarstöðum, áður
til heimilis í Hörgshlíð 10,
Reykjavík, verður jarðsungin
frá Grafarvogskirkju.
13.30 Þóroddur Eiðsson, frá
Þóroddsstað, Eyrarvegi 13,
Akureyri, verður jarðsunginn
frá Akureyrarkirkju.
14.00 Gunnlaugur Sigurðsson,
Sæbakka 8, Neskaupstað,
lést á Fjórðungssjúkrahús-
inu í Neskaupstað þriðju-
daginn 28. mars.
14.00 Gunnar Magnús Kristjáns-
son verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju.
15.00 Vigfús Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri, Fjóluhvammi
5, Hafnarfirði, verður jarð-
sunginn frá Hallgrímskirkju.
AFMÆLI
Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir borgarstjóri
er 41 árs.
Andrea Jónsdóttir
poppfræðingur er
57 ára.
Magnús Þór Jónsson
(Megas), tónlistar-
maður er 61 árs.
PARÍS SKARTAR SÍNU FEGURSTA
Vorið hefur hafið innreið sína í
þessa höfuðborg rómantíkurinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Verndun og sjálfbær nýt-
ing líffræðilegs fjölbreyti-
leika hafsins verður við-
fangsefni Málstofu
Hafréttarstofnunar Íslands
í dag. Sérfræðingur frá
Hollandi, Erik Jaap Molina-
ar, flytur framsöguerindi
og í kjölfarið verða fyrir-
spurnir og umræður, en
Molinaar starfar hjá Haf-
réttarstofnun Hollands og
Háskólanum í Utrecht.
Leitað verður svara við
spurningum um hvernig
standa eigi að verndun við-
kvæmra vistkerfa hafsins.
Allsherjarbanni við botn-
vörpuveiðum á úthafinu
verður gerð skil auk ann-
arra áríðandi viðfangsefna.
Tómas H. Heiðar, for-
stöðumaður Hafréttar-
stofnunar Íslands stýrir
fundinum og hefst hann
klukkan 11.30 í stofu 101 í
Lögbergi. Allir áhugasamir
eru velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
Fjölbreytileiki hafsins
HAFIÐ Hafréttarstofnun heldur
fyrirlestur í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Óskars Vigfússonar
Álfaskeiði 3, Hafnarfirði.
Nicolina Kjærbech Vigfússon
Valborg Kjærbech Óskarsdóttir
Óskar Ásbjörn Óskarsson Hjördís Ólöf Jónsdóttir
Ómar Óskarsson Erla María Kristinsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Gunnar Einarsson
fyrrverandi stöðvastjóri Pósts og Síma,
Hörgshlíð 8, Reykjavík,
lést aðfaranótt þriðjudagsins 4. apríl á
Landspítalanum, hjartadeild. Jarðarför auglýst síðar.
Ólöf Hólmfríður Sigurðardóttir
Þór Gunnarsson Sigrún Ása Sturludóttir
Hrafnhildur Gunnarsdóttir Anita Bowen
Embla Þórsdóttir Klaus Wallberg Andreasson
Sturla Þórsson Ólöf Tara Smáradóttir
Guðlaug Ýr Þórsdóttir