Fréttablaðið - 07.04.2006, Page 48
7. apríl 2006 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Kl. 12.00
Dr. Hans Blix, fyrrum yfirmaður
vopnaeftirlits Sameinuðu þjóð-
anna, ræðir um þróun reglna
alþjóðasamfélagsins um vald-
beitingu, tilraunir til að hefta
útbreiðslu gereyðingarvopna
og umbætur í starfi Sameinuðu
þjóðanna í Hátíðarsal Háskóla
Íslands.
> Ekki missa af...
Singapore Sling á Grand Rokk um helg-
ina. Suddarokk í félagi við Halta hóru og
Gavin Portland.
Gjörningi Sigríðar Dóru Jóhannsdóttur
í Gallerí Dvergi á Grundarstíg 21 kl. 18.
Síðasta sýningarhelgi.
Sýningu á verkum Gunnlaugs Blön-
dal og Snorra Arinbjarnar í Listasafni
Íslands. Leiðsögn verður um sýninguna
nú um helgina og aðgangur er ókeypis.
Magnús Ragnarsson er nýr
söngstjóri Söngsveitarinnar
Fílharmoníu og á sunnudag-
inn stýrir hann sínu fólki í
fyrsta sinn á vortónleikum í
Langholtskirkju.
„Ég tók við sveitinni í janúar og
þetta er búið að ganga svakalega
vel. Ég held að við kunnum bara
vel hvert við annað, ég við kórinn
og kórinn við mig,“ segir Magnús
og getur þess í framhjáhlaupi að
starfsandinn sé léttur því hann
hafi meira að segja fengið kórinn
til að hlaupa apríl á síðustu laugar-
dagsæfingu og syngja afturábak.
„Það er gott að finna að þau treysta
mér,“ áréttar hann hlæjandi.
Magnús er nýfluttur heim frá
Svíþjóð þar sem hann stundaði
nám í orgelleik, kór- og hljóm-
sveitarstjórn. „Ég valdi verkin
síðastliðið haust. Þá mundi ég að
lærimeistarinn minn í Svíþjóð
hafði flutt annað verkið, Stabat
mater eftir Haydn, en sagt að það
væri mjög sjaldan flutt þótt það
væri ofboðslega fallegt og flott.
Ég kynnti mér verkið og varð
alveg heillaður af því. Þetta er eitt
af fyrstu stóru hljómsveitarverk-
unum eftir Haydn en hann semur
það 1767 þegar hann er að fikra
sig áfram með svona stórar tón-
smíðar. Þetta var verkið sem kom
honum á kortið í Evrópu og stærsta
verkið hans meðan hann lifði en
það hefur aldrei verið flutt hér-
lendis.“
Til mótvægis við tregafullt og
dramatískt verk Haydns þar sem
mest mæðir á einsöngvurunum,
Huldu Björk Garðarsdóttir, Nönnu
Maríu Cortes, Jónasi Guðmunds-
syni og Davíð Ólafssyni, valdi
Magnús krefjandi kórverk. „Ég
valdi verk eftir Mozart, meðal
annars að því að nú er 250 ára
fæðingarafmæli hans í ár. Verkið
heitir Vesperae solennes de Con-
fessore sem útleggst: „Hátíðar -
aftansöngur til heiðurs hinum
mikla játara“ en það er ekki vitað
til hvaða dýrlings það er ort.“
Verkið byggir á textum úr Davíðs-
sálmunum en Magnús segir að
verkið sé fremur erfitt bæði fyrir
söngfólk og hljómsveit því text-
inn sé mikill og Mozart noti aldrei
sömu tónhugmyndina tvisvar en
útkoman sé góð.
Á næstunni fer Söngsveitin Fíl-
harmonía síðan að æfa Carminu
Burana. „Við erum á leið til Búlg-
aríu í haust, þar er hljómsveit sem
vill vinna með okkur og við ætlum
í heimsókn til þeirra en þau munu
síðan líklega koma hingað til
okkar í september,“ segir Magnús
en bætir við að Fílharmonían hafi
ekki oft sungið utan landstein-
anna en í þau skipti hafi þau oft
stefnt í austur. „Ég hlakka til að
fara til Búlgaríu,“ segir Magnús
að lokum. „Það er alltaf gaman að
kynnast nýjum borgum og nýrri
menningu.“
Vortónleikarnir verða haldnir í
Langholtskirkju á pálmasunnu-
dag 9. apríl og þriðjudaginn 11.
apríl kl. 20.00. kristrun@frettabladid.is
Veglegir vortónleikar
MAGNÚS RAGNARSSON STÝRIR SÖNGSVEITINNI FÍLHARMONÍU Í FYRSTA SINN Á VORTÓNLEIKUM UM HELGINA Flytja krefjandi og hádrama-
tísk verk eftir Haydn og Mozart. FRÉTTABLAÐIÐ/ VILHELM
!
��������������������������������������������������� � ������ ��� �� ������� ��� ���
����������� ���������������������������
��������������������������������������
���������� �������������������������������������������������
������������������
������������ �������������� �� �����������
��������������������
�������������������������������
������ ������������������������� ����������� ��
��������� ������� ������������
KRINGLUKRáIN
fyrir leikhúsgesti
Tilboðsmatseðill
KRINGLUK ÁIN
VIÐTALIÐ
eftir Lailu Margréti
Arnþórsdóttur
Fimmtud. 6. apríl kl. 20.00
Föstud. 21. apríl kl. 20.00
Fimmtud. 27. apríl kl. 20.00