Fréttablaðið - 07.04.2006, Side 55

Fréttablaðið - 07.04.2006, Side 55
Er í boði Nú getur þú fengið ATLAS kreditkort hjá öllum bönkum og sparisjóðum ATLAS korthafar fá bíómiða í Smárabíó, Regnbogann, Laugarásbíó og Borgarbíó Akureyri á aðeins 600 kr. Tilboðið gildir í apríl og maí. FRÉTTIR AF FÓLKI Demi Moore og barnungi kærasti hennar Ashton Kutcher munu væntanlega feta í fótspor leikkonunnar Angelinu Jolie og ættleiða barn en þetta upplýsti Kutcher í viðtali við The Sun. Ashton sagði að þau væru ekki að reyna eignast barn en myndu hugleiða ættleið- ingu. Samkvæmt breska götublaðinu á Kutcher að hafa sagt að það væri í tísku að ættleiða börn frá Kambódíu eða öðrum fátækum ríkjum. „Eng- inn eignast sín eigin börn um þessar mundir,“ bætti hann við en söngkon- urnar Jessica Simpson og Queen Latifah hafa báðar lýst því yfir að þær vilji fara sömu leið. Höfundur Harry Potter, J.K Rowling, segir stjörnur dagsins í dag líta út fyrir að vera tannstönglar. Rithöfundurinn segir að hún vilji ekki að dætur sínar tvær alist upp með „heimskar, sjálfhverfar og horaðar mjónur“, svo vitnað sé til orða hennar, sem fyrirmyndir. Á opinberri vefsíðu Rowling ræðst hún á leggjalöngu fyrirsæturnar sem styðji við okur á handtöskum og vinsældir rottuhunda auk þess sem hún hrósar söngkonunni Pink fyrir lagið Stupid Girls en þar ræðst Íslandsvinkonan á Jessicu Simpson, Paris Hilton og Lindsay Lohan. Knattspyrnuhetjan Wayne Rooney hefur ráðið sér gæludýraþjálfara vegna þess að hann nennir ekki að þrífa upp eftir hundana sína þrjá, samkvæmt The Mirror. Tveir þeirra, Fizz og Bella, eru aldir upp við venjulega „mannasiði“ en sá þriðji hefur ekki alveg náð því hvar hann eigi að gera stykkin sín í rándýrri villu Rooney og unnustu hans. Samkvæmt The Mirror er kúkurinn farinn að skilja eftir greinileg merki á parkettinu og hefur Rooney þurft að ganga hreint til verks.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.