Fréttablaðið - 07.04.2006, Side 58
7. apríl 2006 FÖSTUDAGUR46
BORÐTENNIS Guðmundur Stephen-
sen kom brattur til leiks með liði
Malmö sem bar sigurorð af Eslöv í
öðrum leik liðanna um sænska
meistaratitilinn í borðtennis. Guð-
mundur hefur verið veikur og gat
ekki tekið þátt í fyrsta leik liðanna
sem núverandi meistarar í Eslöv
unnu 5-2.
Guðmundur sýndi mátt sinn og
megin þegar hann kom aftur í liðið
í öðrum leiknum og lagði andstæð-
ing sinn, Mikael Zöögling, örugg-
lega 3-0. Malmö sigldi síðan til sig-
urs í viðureigninni og vann
sannfærandi 5-0.
Liðin eigast við að nýju í dag en
þrjá leiki þarf til að vinna Svíþjóð-
armeistaratitilinn þar sem ljóst er
að hart verður barist. - hþh
Malmö jafnaði gegn Eslöv í baráttunni um titilinn í Svíþjóð:
Guðmundur í ham
GUÐMUNDUR STEPHENSEN Kom, sá og sigraði eftir veikindi og vann sinn leik örugglega í
gær. Spennan verður mikil í lokaleikjunum um titilinn. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
EIGN CHEP
CHEP bretti og gámar (CHEP búnaður) eru og
verða ætið einkaeign CHEP UK Limited eða eins
af tengdum fyrirtækjum þess (CHEP). Aðeins
CHEP, leigutakar CHEP búnaðar og viðkomandi
umboðsaðilar CHEP hafa lögmætan rétt til að
nota CHEP búnað.
Ólögmætt er að kaupa eða breyta CHEP
búnaði eða skipta á honum fyrir aðra tegund
búnaðar, selja eða losa sig við hann á annan
hátt.
Eignaupptaka í leyfi sleysi, notkun eða sala
á CHEP búnaði er stranglega bönnuð.
Vinsamlegast hafi ð samband í síma 568-5000
eða fax 568-5002 til að láta sækja CHEP búnað.
HANDBOLTI Ísland lá í valnum fyrir
Hollandi, 24-22, á æfingamótinu
sem fer fram í Tékklandi um þess-
ar mundir. Þetta er annað tap liðs-
ins en Slóvakía vann leikinn gegn
Íslandi í gær 25-21. „Við spiluðum
yfirhöfuð mjög góðan leik og
vorum óheppin að vinna hann ekki
þegar upp var staðið. Það var mikil
bæting frá leiknum gegn Slóvakíu
og þegar allt kom til alls var sárt
að vinna ekki leikinn,“ sagði Stef-
án Arnarson landsliðsþjálfari við
Fréttablaðið í gærkvöld.
Leikurinn var mjög jafn og
spennandi en liðin skiptust á að
vera yfir, þó aldrei meira en tveim-
ur mörkum. Þegar tvær mínútur
voru til leiksloka var jafnt en hið
gríðarlega sterka hollenska lið var
sterkara á endasprettinum og
vann að lokum tveggja marka
sigur.
„Ég er mjög ánægður með að
hafa rifið okkur upp eftir mjög
slakan leik í gær þar sem liðið
spilaði heilt yfir illa. Dæmið sner-
ist við í þessum leik og allir spil-
uðu vel. Varnarleikurinn var
góður, sóknarleikurinn var skyn-
samur en vissulega skoruðum við
ekki nema 21 mark. Við misnotuð-
um fjögur vítaköst, sem kostaði
okkur mikið á endanum,“ sagði
Stefán.
„Liðsheildin var að virka vel
hjá okkur en þegar við vorum með
leikinn í höndunum okkar misstum
við dampinn. Þetta er samt sem
áður bara æfingamót og við lítum
björtum augum á framhaldið,“
sagði Stefán en Ísland mætir
Tyrkjum í dag.
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir,
Hrafnhildur Skúladóttir og Jóna
Margrét Ragnarsdóttir skoruðu
allar fjögur mörk í leiknum en
þær Drífa Skúladóttir, Guðbjörg
Guðmannsdóttir, Ragnhildur Guð-
mundsdóttir og Sólveig Lára
Kjærnested skoruðu allar tvö
mörk hver. Hanna Guðrún Stef-
ánsdóttir og Harpa Eyjólfsdóttir
skoruðu svo sitt hvort markið.
Helga Torfadóttir varði fimmtán
skot í markinu. - hþh
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði 24-22 gegn Hollandi í gær:
Herslumuninn vantaði
HANNA G. STEFÁNSDÓTTIR Skoraði eitt mark í leiknum og stóð vaktina í vörninni með
stakri prýði. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
HANDBOLTI Valsmenn lögðu Sel-
fyssinga í Laugardalshöll í gær í
leik sem hafði alla burði til að
verða spennandi undir lokin. Stað-
an var 18-18 þegar leikur Selfyss-
inga hrundi og Valsmenn fóru með
öruggan fimm marka sigur af
hólmi, 26-21.
„Þetta var hörmulegur leikur
að okkar hálfu. Við vorum alltaf á
undan en það vantaði grimmdina
til að afgreiða leikinn strax. Sel-
fyssingar börðust gríðarlega vel
og börðust eins og hetjur. Það
vantaði sterka leikmenn í þeirra
lið en við höfðum þetta að lokum.
Sigur er sigur,“ sagði Óskar Bjarni
Óskarsson, þjálfari Valsmanna,
eftir leikinn.
„Miðað við hvernig við spiluð-
um þennan leik mætti halda að
mínir menn hefðu ekki komið til-
búnir í þennan leik. Kannski van-
mátum við Selfyssinga, ég held þó
ekki, en síðustu tveir leikir hjá
okkur hafa ekki verið nógu góðir.
Við þurfum að rífa okkur upp,“
sagði Óskar Bjarni, sem hefur
gefið allar vonir um Íslandsmeist-
aratitil upp á bátinn.
„Nú snýst þetta bara um að
bæta leik okkar, baráttan er á
milli Fram og Hauka. Nú kemur
páskafrí þar sem við þurfum að
æfa vel áður en við leikum gegn
Þór á Akureyri. Svo verður gaman
að spila í deildabikarnum,“ sagði
Óskar Bjarni að lokum. - hþh
Valur vann 26-21 sigur á Selfyssingum í DHL-deild karla í handbolta í gær:
Lélegur leikur hjá okkur
ATLI RÚNAR STEINÞÓRSSON Brýst hér í
gegnum vörn Selfoss í leiknum í gær. Atli
skoraði tvö mörk í leiknum. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
KÖRFUBOLTI „Ég bjóst alls ekki við
þessu, satt best að segja stefndi ég
að því að hjálpa liðinu að komast í
úrslitin. Félagið hefur aldrei kom-
ist svona langt, við höfum ekki
hugsað um það sem blöðin hafa
skrifað um okkur og látið verkin
tala inn á vellinum,“ sagði George
Byrd eftir óvæntan sigur í Kefla-
vík í gær. Ótrúlegur viðsnúningur
frá seinustu heimsókn Borgnes-
inga til Keflavíkur þegar þeir töp-
uðu með fimmtíu stigum.
Flestir bjuggust við Keflavík-
ursigri í gær en Skallagrímsmenn
komu gríðarlega ákveðnir til leiks.
Borgnesingar komust mest fjór-
tán stigum yfir í fyrsta leikhlutan-
um og voru 22-13 yfir þegar farið
var í annan leikhluta.
Þeir virtust koma heimamönn-
um í opna skjöldu, spiluðu hreint
út sagt frábæra vörn og Hafþór
Gunnarsson var sjóðheitur með
fjórar þriggja stiga körfur í fyrsta
leikhlutanum. Hann fékk síðan
sína fjórðu villu í öðrum leikhluta
en þá steig Pétur Sigurðsson upp
með þrjár þriggja stiga körfur og
staðan í hálfleik óvænt 42-28, gest-
unum í vil. George Byrd spilaði
stórt hlutverk og tók hann fimmt-
án fráköst í fyrri hálfleik.
Allt annað var að sjá til Kefla-
víkurliðsins eftir hléð, það fékk
góðan meðbyr og fór að saxa á for-
skot heimamanna. Alls skoruðu
heimamenn 32 stig í þriðja leik-
hlutanum, sem var fjórum stigum
meira en í hinum tveimur á undan
til samans. Skallagrímur hafði
reyndar 61-60 yfir eftir þriðja
leikhlutann en liðið var í miklum
vandræðum.
Gestirnir voru farnir að ókyrrast
en voru ekki á þeim buxunum að
hleypa Keflvíkingum fram úr. Þeir
byrjuðu fjórða leikhlutann vel og
komust fljótt sex stigum yfir en
heimamenn sýndu hins vegar seiglu
og reynslu, náðu að jafna 78-78
þegar skammt var eftir. Strax í
næstu sókn tókst Jóni Nordal að
blaka boltanum ofan í eftir þriggja
stiga skot Magnúsar Gunnarssonar
og heimamenn voru komnir yfir, 80-
78 þegar rúm mínúta var eftir. Við
tók mögnuð mínúta; Skallagríms-
menn komu boltanum inn í teig á
Byrd og Arnar Freyr Jónsson braut
á honum. Það sem fylgdi í kjölfarið
gerði nánast út um leikinn.
Arnar fékk dæmt á sig tækni-
víti fyrir orðaskak við dómara
leiksins. Byrd fór því á vítalínuna
en setti hvorugt vítið niður. Pétur
Sigurðsson fór því næst á vítalín-
una og setti bæði vítin niður og að
auki fékk Skallagrímur boltann
þegar 28 sekúndur voru eftir.
Skynsamur Dimitar Karadzovzki
hélt boltanum fyrir gestina áður
en Jovan Zdravevski setti niður
tveggja stiga körfu og Skallagrím-
ur var kominn í úrslit í fyrsta
skipti í sögu félagsins.
„Keflvíkingar voru frekar
kraftlausir og maður hafði það á
tilfinningunni að þeir hefðu búist
við frekar auðveldum leik og það
nýttum við okkur. Það bjóst eng-
inn við því að við næðum svona
langt en það er kominn tími á
Borgarnes í úrslitin. Njarðvíking-
ar hafa allt með sér en ég vonast
eftir skemmtilegum leikjum,“
sagði Valur Ingimundarson í leiks-
lok. elvar@frettabladid.is
AJ MOYE Góður leikur hans í gærkvöldi var ekki nóg fyrir lánlausa Keflvíkinga, sem lutu í
gras fyrir baráttuglöðum Skallagrímsmönnum. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
Sögulegur sigur Skallanna
Skallagrímur vann sögulegan 84-80 útisigur á Keflavík í oddaleik í gær. Borg-
nesingar unnu sinn fyrsta leik í Keflavík og leika til úrslita í fyrsta skipti.