Fréttablaðið - 07.04.2006, Side 62
7. apríl 2006 FÖSTUDAGUR50
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
opið alla laugardaga 10-14
GLÆNÝ LÚÐA
SKÖTUSELUR
LAXAFLÖK
STÓR HUMAR
SIGINN FISKUR
Úrslitakvöld Idol Stjörnuleitar fer
fram í Vetrargarðinum í kvöld og í
lok kvöldsins mun því verða ljóst
hver verður Idol stjarna Íslands
árið 2006. Ína Valgerður Péturs-
dóttir og Snorri Snorrason munu
takast á um titilinn. „Keppendurn-
ir hafa verið undir miklu álagi og í
stífum æfingum þessa síðustu viku
fyrir lokaþáttinn,“ segir Þór Freys-
son framleiðandi Idol stjörnuleitar.
„Þau voru á síðustu æfingunni í
gær með restinni af tólf manna
hópnum sem kemur allur fram á
morgun. Snemma í dag fara þau
svo í viðtal á FM 95.7 og síðan
verða þau bara í Smáralindinni að
æfa. Í gærkvöld fóru þau reyndar
til Jóhanns Inga Gunnarssonar sál-
fræðings sem hefur unnið með
okkur í Idolinu síðastliðin tvö ár.
Hann hefur tekið hópinn reglulega
í viðtöl þar sem þau fara í
djúpslökun sem nær úr þeim öllu
stressi og hjálpar þeim að höndla
álagið.“
Ína og Snorri syngja þrjú lög
hvert. Eitt lag völdu þau sjálf, eitt
var valið af dómnefnd og það
þriðja var sérstaklega samið fyrir
þau af einum eftirsóttasta og far-
sælasta popplagahöfundi í heimi. Í
úrslitaþættinum fyrir ári síðan
bárust um 130 þúsund atkvæði
sem var met og verður spennandi
að sjá hvort metið verði slegið.
Einnig verður efnt til auka síma-
kosningar um fyndnasta og eftir-
minnilegasta keppandann eða
atriðið þar sem allur ágóði mun
renna óskiptur til Barnaspítala
Hringsins.
„Það voru nokkrir keppendur í
upphafi sem vöktu mikla athygli og
þóttu áhugaverðir og það kviknaði
sú hugmynd hjá okkur að leyfa
þeim að láta ljós sitt skína með
þessum hætti. Þessir keppendur
eiga það inni hjá okkur. Einnig var
tilgangurinn að safna peningi fyrir
Barnaspítala Hringsins en við
höfum unnið svolítið með honum í
þættinum. Það er hins vegar mikil-
vægt að rugla þessum tveimur
kosningum ekki saman,“ segir Þór.
ÚRSLITAKVÖLD IDOL STJÖRNULEITAR Í KVÖLD:
Rokkarinn og söngdívan
keppa um titilinn
ÍNA VALGERÐUR PÉTURSDÓTTIR Hún flytur meðal annars lög með
Janis Joplin og Celine Dion í kvöld.
SNORRI SNORRASON Hann flytur meðal annars lög með Robbie
Williams og Hollies í keppninni í kvöld.
Venni Páer er enginn venjulegur
gaur, hann er einkaþjálfari með
meiningar sem dreymir um frægð
og frama. Venni er hugarfóstur
Vernharðs Þorleifssonar fyrrum
júdókappa og verðandi sjónvarps-
stjörnu því nú í sumar hefjast
tökur á átta þátta seríu um líf og
störf þessarar óvenjulegu hvers-
dagshetju.
„Þessi hugmynd er búin að vera
í vinnslu í eitt og hálft ár,“ segir
Vernharð en bætir við að ýmislegt
hafi breyst síðan þá. „Þetta verða
gamanþættir en aðalpersónan,
einkaþjálfarinn Venni Páer, hefur
frekar einfalda sýn á hlutina.
Hann skilur ekki hvers vegna allt
þarf að vera flókið í lífinu.“
Vernharð segir að fimm
persónur verði í aðalhlutverki í
þáttunum en sögusviðið sé æfinga-
stöð þar sem Venni Páer starfar.
„Það verður svona pínu Office-
blær á þessu en samt ekki,“ segir
Vernharð og viðurkennir að
gaurinn dragi ef til vill dám af
skapara sínum sem einnig kemur
til með að leika kappann.
Vernharð skrifar handritið að
þáttunum en hann hefur einnig
fengið Filmumennina Kristján
Kristjánsson og leikstjórann Sævar
Guðmundsson til samstarfs. „Það
eru strákar að norðan sem byrjuðu
að fást við stuttmyndagerð á unga
aldri og hafa verið að vinna í
þessum bransa í mörg ár,“ segir
Vernharð. Vernharð lætur af
stöfum sem pistlahöfundur á
Fréttablaðinu vegna þessa. „Mig
langar að þakka lesendum fyrir öll
partýin sem mér hefur verið boðið
í vegna pistlaskrifanna minna,“
segir hann að lokum. - khh
Skapar einkaþjálfara Íslands
VERÐHARÐ ÞORLEIFSSON Skrifar og leikur í
þáttum á Skjá einum. FRÉTTABLAÐIÐ/ E.ÓL
LÁRÉTT:
2 fangi 6 tveir eins 8 arinn 9 stormur
11 til 12 ráðagerð 14 fíflagangur 16
nafnorð 17 mas 18 mælieining 20
guð 21 málmur.
LÓÐRÉTT:
1 listi 3 klaki 4 balar 5 landspilda 7
kista 10 bergtegund 13 þrep í stiga
15 áætlun 16 tangi 19 gelt.
LAUSN:
LAGALISTI ÍNU
SMS: idol1 sími 900-9001
1. Piece Of My Heart - Janis Joplin.
2. Because You Loved Me - Celine Dion.
3. Allt sem ég á.
LAGALISTI SNORRA
SMS: idol2 sími 900-9002
1. He Ain‘t Heavy, He’s My Brother - Hollies.
2. Feel - Robbie Williams.
3. Allt sem ég á.
LÁRÉTT: 2 gísl, 6 kk, 8 stó, 9 rok, 11
að, 12 áform, 14 flipp, 16 no, 17 mal,
18 erg, 20 ra, 21 stál.
LÓÐRÉTT: 1 skrá, 3 ís, 4 stampar, 5
lóð, 7 koffort, 10 kol, 13 rim, 15 plan,
16 nes, 19 gá.
HRÓSIÐ
...fær Ármann Reynisson sem
hefur gengið frá samningum við
þýska bókaútgáfu um útgáfu á
bók sinni Vinjettur V.
Ég lá uppi í rúmi eitt kvöldið og vorkenndi sjálfri
mér að þurfa að vera í prófum. Mér fannst eins
og ég væri eina manneskjan í heiminum sem
þyrfti að húka heima hjá sér heila helgi án þess
svo mikið sem stinga litlu tá út á lífið. Þrátt fyrir
að vera ekki sú duglegasta að halda mér við
lestur lagabókanna hef ég samt sem áður ekki
samvisku í að gera neitt annað. Þá húki ég innan
dyra með bækurnar við hliðina á mér, kveiki á
sjónvarpinu stöku sinnum og gef mér tíma til að
elda fínan mat. Reyndar hef ég tíma fyrir ótrúleg-
ustu hluti þegar ég á að vera að lesa. Einhvern
veginn finnst mér ég vera tilneydd að taka til í
skúffunum, taka góða rispu á straubunkann og
raða reikningunum í möppu.
En þegar ég lá þarna í rúminu fékk ég
fjörfisk á þann einkennilega stað sem ilin er.
Hef aldrei upplifað það áður. Þá fattaði ég hvað
málið var, vorið var að koma í kroppinn á mér. Í
gegnum endalausa doðranta og að því er virðist
óendanleg lögfræðipróf, sá ég glitta í eitthvað
bjart og betra. Ég áttaði mig á því að vorið er á
næsta leiti og því engin ástæða til að horfa í það
sem erfitt er. Ég hef gengið í gegnum allmargar
prófatíðir og einhvern veginn taka þær alltaf
enda og enda svona líka vel í hvert skipti, annað
hvort með jólum eða sumri.
Veturinn er þó ekki mín uppáhalds árstíð
og því engin furða að ég hafi upplifað ómælda
gleði af því einu að átta mig á því að hann væri
senn á enda. Fyrir mér er veturinn næstum jafn
“minningaríkur” og sumarið þrátt fyrir að vera
rúmlega tvöfalt lengri. Ég horfði yfir veturinn
sem leið. Hann var að sjálfsögðu mjög góður
en það er þó staðreynd að það er lengra á milli
brjálæðislega skemmtilegu kvöldanna sem ein-
kenna sumarið. Með haustinu förum við smátt
og smátt að hægja á púlsinum. Ég held að við
getum alveg sagt að við leggjumst í hýði að
vissu leyti. Vikan líður, við hringjumst jú á á
hverju kvöldi til að athuga hvort eitthvað
sé að gerast, en einhvern veginn er
það aldrei fyrr en á föstudags- eða
laugardagskvöldum að við látum
verða af því að koma okkur út
fyrir bæjardyrnar til að hrista
upp í hlutunum. Þetta er jú
andstæðan við sumarið þar
sem hver dagur er gleðidagur.
Hvað sem öðru líður þá er vet-
urinn búinn og tími til kominn að skipta
um gír. Framundan er vor og sumar sem
býður upp á lítið annað en endalaust
fjör og æðislegheit. Sumarbústaða-
ferðir, góðan mat í dinnerpartíum á
pallinum, útilegur, kæruleysi og kreisí
fjör. Gangi ykkur vel í prófunum!
REYKJAVÍKURNÆTUR: HARPA PÉTURSDÓTTIR SÉR BETRI OG BJARTARI TÍMA
Vorið er komið í kroppinn á mér
FRÉTTIR AF FÓLKI
Veðmála - og spilavítissíðan Betsson.com hefur verið töluvert í umræð-
unni að undanförnu en þar geta menn
lagt undir á kappleiki og spilað póker
að hætti erlendra fyrirmynda. Mikið
spilaæði hefur gripið landann á síðustu
misserum og varla neinn maður með
mönnum nema hann eigi spilapeninga
ofan í skúffu. Sigurður G. Guðjónsson,
hæstaréttarlögmaður, er talsmaður
vefsíðunnar og hann ætti að geta glaðst
yfir tíðindum sem bárust frá frændum
vorum Dönum. Þar vann hún Nina frá
Fjóni rúmar tólf milljónir íslenskra króna
í svokölluðu Gullæði Betsson.com. „Fjöl-
skyldan hefur alltaf farið í tjaldferðalag
á sumrin en ætli við
gerum ekki eitthvað
aðeins skemmti-
legra núna,“ sagði
hin kampakáta
Nína aðspurð
hvernig hún
ætlaði að eyða
þessari dágóðu
summu og bætti
því við að hún hefði
aðeins unnið
35 danskar
krónur í
lottóinu.
Bloggstjarna sjónvarpstöðvarinnar
Sirkuss verður kynnt í Kastljósþætti
kvöldsins og verður fyrsta videoblogg-
inu hleypt af stokkunum í framhaldinu.
Aðstandendur stöðvarinnar hafa heldur
betur þurft að spýta í lófana eftir að
hnakkavæðingin gekk nánast af stöð-
inni dauðri og virðist Árni Þór Vigfússon
vera staðráðinn í að hreinsa aðeins
til eftir frekar dapurt gengi. Partí 101
er horfinn af dagskránni og hnakka-
bræðrunum í Köllunum hefur verið
gefið kærkomið frí. Meðal annars hefur
Árni keypt þætti tveggja plötusnúða
sem fylgjast með hljómsveitum og svo
munu nokkrir rapparar fjalla um menn-
ingu á stöðinni. Menn binda
hins vegar miklar vonir við
að bloggstjarnan eigi
eftir að reisa stöðina
upp úr öskustónni enda
þykir sú ansi skrautleg og
samkvæmt heimildum
blaðsins á hún eftir að
láta mikið að sér kveða
í íslensku
þjóðlífi.
- fgg
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI