Fréttablaðið - 07.04.2006, Qupperneq 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
����������
���������������������
Það verður að viðurkennast að ég er ein af þessum vísindalega vit-
lausu. Varð ofsalega glöð þegar ég
fékk þrjá í eðlisfræði. Fannst ég alger
ofviti að fá ekki núll í þessu undna
fagi sem leit eins út hvort sem maður
sneri bókinni rétt, á hvolf, eða á hlið.
Augun störðu sig þurr á hugtök og for-
múlur sem fóru aldrei lengra. Heilinn
hafnaði þeim. Vildi ekkert hafa að
gera með svona fyrirbæri sem hétu
eitthvað án þess að hægt væri að
tengja heitið þeirri fúnksjón sem þau
höfðu. Það vantaði allt táknrænt. Það
var ómögulegt að finna nokkurn und-
irtexta eða dulda merkingu. Ekkert
hægt að túlka, uppgötva nýja frum-
lega hugsun. Það var bara ein rétt
útkoma og það fannst mér svo mikið
frat að ég fór bara að prjóna.
ENGU að síður bar ég alltaf mikla
lotningu fyrir þeim sem voru góðir í
raungreinum. Mig hefur ávallt sett
hljóða í návist fólks sem hefur slíka
heila að þeir eru taldir öðrum heilum
fremri. Sem sést best á því að það er
alltaf verið að gera alheimskannanir á
því hverra nemendur eru bestir í
stærðfræði, eðlisfræði, efnafræði.
Það er eitthvað minna verið að skipta
sér af því hverjir séu góðir í bók-
menntafræði, sagnfræði og félags-
fræði.
EN nú hefur lotningarstuðull minn
skekkst svo mikið að óvíst er hvort
hann muni nokkurn tímann rétta sig
við. Það hefur nefnilega haffræði-
prófessor í Ameríku tilkynnt allri
heimsbyggðinni að Jesús hafi alls ekki
gengið á vatni, heldur ísfleka. Hér er
þessi ræfill búinn að liggja yfir ofur-
heilafræðum frá barnsaldri, puða í
gegnum þau í háskóla, streða við að
kenna þau svo lengi að hann er orðinn
prófessor – og dettur svo ekkert betra
í hug en að reikna út vötn og vinda
fyrir tvö þúsund árum, bara vegna
þess að í formúlum hans er líkamlega
útilokað að framkvæma göngu á
vatnsfleti.
ER karluglan eini maðurinn á jörðinni
sem hefur ekki frétt að auðvitað gekk
Jesús aldrei á vatni; auðvitað turner-
aði hann aldrei vatni í vín eða fjölfald-
aði brauð og fiska. Hann var ekki
galdrakarl. Vissulega segir Biblían að
hann hafi gert þetta, en Biblían er líka
einhver magnaðasta bók sem tákn- og
túlkunarfrík komast í. Hún fjallar um
leið sálarinnar (sem margir vísinda-
menn hafna vegna þess að þeir hafa
ekki fundið hana). Kristur var hrein
sál (eins og við öll) þegar hann fædd-
ist (tákngert með meyfæðingu). Hann
eyddi lífi sínu í að boða þeim sem
höfðu laskast í uppvexti á leiðina til
hreinleikans og fegurðarinnar og allar
sögur af honum eru táknrænar fyrir
þá boðun. Hverjum er ekki sama hvort
hann raunverulega gekk á vatni?
Sagan, með öllum sínum túlkunar-
möguleikum, er jafn góð. Og það geta
allar sálir gengið á vatni.
Jesú og vatnið
BESTI FERÐAFÉLAGINNEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR
FAXE
Á FERÐ
OG FLUGI
Kipptu með þér FAXE ROYAL
í handhægri ferðatösku
í ferðalagið eða sumarbústaðinn
Mp3 spilari
U1X 512mb: Tilboðsverð: 12.990
U1Z 1 GB: Tilboðsverð: 17.990
MJU-700
7.1 milljón pixla myndavél
3x Optical aðdráttur
Tilboðsverð: 22.900
SMÁRALIND SÍÐUMÚLI 9 AKUREYRI KEFLAVÍK
530 2900 530 2800 461 5000 421 1535