Mánudagsblaðið - 06.10.1969, Page 2
2
Mánudagsblaðið
Mánudagur 6. október 1969
Dagbók CIANOS greifa
6. júlí: „Skrifaðu í dagbók þína”,
segir II duce, „að ég sjái fram á
óhjákvæmilega baráttu milli Ítalíu
og Þýzkalands. Eg hef litla trú á
þjóð okkar. Við fyrstu sprengjuárás
irnar sem eyðileggja frægan turn
eða málverk eftir Biotto, munu
ítalarnir fá kast af listamannsvið-
kvæmni og láta undan".
11. júlí: „Loftárás á Napóli og
hún mjög svæsin. Ekki svo mikið
vegna þess, hve margir lémst, held-
ur vegna þess, hve efnalegt tjón
varð mikið, og það alvarlegasta var
bruninn, sem brauzt út í olíuhreins-
unarstöðvum Standard Oils. . . II
duce sagði: „Mér þykir vænt um,
að Napoli skuli reyna þessar hörm-
ungar á næturnar. Það verður til
þess að herða fólkið. Stríðið mun
breyta Napoli-mönnum í norrænan
kynstofn". Eg er mjög efins um
það".
17. júlí: „Eins og vanalega talar
Mussolini með beiskju um liðsfor-
ingjana og segir, að það sé aðeins
einn herforingi sem sér líki við. Eg
hef gleymt hvað hann heitir, en sá
maður sagði við hermenn sína í
Albaníu: „Eg hef heyrt að þið séuð
góðir heimilisfeður. Það er ágætt
heima, en hér dugar það ekki. Hér
getið þið aldrei verið nógu miklir
þjófar, morðingjar eða ræningjar".
18. júlí: „Anfuso hefur talað í
trúnaði við frú Mollier, konu þýzka
blaðafulltrúans. Hún Ijóstraði upp
fyrir honum, að rúsneska herförin
al ráðandi stétta í Þyzkalandi. Hitler
fór út í stríðið við Rússa vegna
þess, að han hélt, að styrjöldin gegn
bolsévismanum mundi koma Eng-
ilsöxum til þess að draga sig út úr
styrjöldinni. . . Hún sagði, að Hitl-
er væri auli".
22. júlí „Tilefnislaus loftvarna-
merki í Rómaborg. Það er Musso-
lini, sem persónulega hefur gefið
skipun um að vekja höfuðborgina,
í hvert skipti sem árásarmerki er
gefið í Napólí. Hann vill láta land
sitt vita, að það sé raunverulega í
stríði. Hann hefur skipað loftvarna
stöðvunum að skjóta við fyrsta tæki
færi til þess að gera það allt sam-
an meira spennandi".
24. september: „Eg las í skýrslu
frá Cecchi, sem athugar þjóðfélags-
mál okkar í Berlín, um meðferðina
á verkamönnum okkar í Þýzka-
landi. Á sumum vinnustöðum kem-
ur það fyrir — fyrir utan barsmíð-
ar — að stórir varðhundar eru æfð-
ir í að bíta í fæmrna á verka-
mönnunum, ef þeir gerast sekir um
minniháttar yfirsjónir".
25. september: „Ástandið í Mið-
jarðarhafinu er slæmt og versnar
stöðugt vegna þess, hversu mikið
við missum af skipum. Bigliardi,
sem er alvörugefinn sjóliðsforingi,
sem fylgist vel með því. sem gerist,
segir, að meðal ábyrgra manna í
sjóhernum sé rætt um, hvort ekki
mundi vera skynsamlegt að draga
sig góðfúslega út úr Líbýu .. . ."
26. september: „Einnig annars
staðar frá höfum við fengið tilkynn
ingu um, að þýzkir varðhundar hafi
bitið verkamenn okkar í Þýzka-
landi, og II duce hefur fengið vitn-
eskju um það. Hann er æstur og
gramur út af þessu og sagði: „Slíkt
getur aðeins leitt til langvinns hat-
urs. Eg get beðið í mörg og löng
ár, en einhverntíma kemur að því,
að ég geri þennan reikning upp.
Eg get ekki leyft, að synir þjóðar,
sem hefur gefið heiminum Caesar,
Dante og Michelangelo, séu bitnir
af hundum Húnanna".
Stolnar skóreimar
30. september: „Mussolini er
stoltur og upp með sér yfir fram-
sókn hers okkar í Rússlandi. . .
Phillips (sendiherra Bandaríkjanna
í Rómaborg) er tilbúinn að fara af.
stað. Hann talaði lengi og vel um
þá óánægju, sem væri ríkjandi með
al ítala, og fullyrti hvað eftir annað
að í Ameríku væri samúð með
landi okkar. . .
Eg sagði ekkert, því að upplýs-
ingaskrifstofa hers okkar hefur
ameríska leynistafrófið, og allt, sem
Phillips símar, er lesið af liðsfor-
ingjum okkar, sem lesa úr dul-
málaskeytum þeirra. Það gæti auð-
veldlega leitt til rangra þýðinga.
1. október: „Mótsetningarnar
milli Prússa og Bayara eru að áger-
ast. Trúmálin hafa mikið að segja,
en við megum ekki gleyma, að
miklu hefur verið sóað í Bayern,
síðan ríku Prússarnir fóru að flýja
þangað (undan ensku loftárásun-
um)“.
4. október: „Musolini segir:
„Þjóðverjarnir hafa meira að segja
stolið skóreimunum frá Grikjum,
hagsástandinu í landinu (það er að
verða hungursneyð í Grikklandi).
Við getum tekið á okkur ábyrgð-
ina, en því aðeins, að Þjóðverjarn-
ir hafi sig á brott úr Aþenu og
öllu Grikklandi".
6. október: „Aðdrættir til Líbýu
verða stöðugt erfiðari. Aðein 20%
af þeim sendingum, sem áttu að
fara í september, hafa komizt þang-
að. Af hersveitunum kemst meira,
nálægt 50%.
9. október: „Ástandið í Grikk-
landi er að verða svo óskaplegt, að
liætt er við, að fólkið geri upp-
reisn. Brauðskammturinn er kom-
inn niður í 90 gr. á dag. Annars
hafa þeir alls ekki neitt. . . Mat-
vælaástandið í Aþenu versnar
vegna þess, hve afskaplega mikið
er af matgráðugum, þýzkum liðs-
f oringj a-ræningj um".
11. október: „Ghigi hefur átt
hreinskilið samtal við II duce um
ástandið í Grikklandi, því er hægt
að lýsa með einu orði: Hungur. Allt
getur komið fyrir, frá farsóttum til
hamslausrar uppreisna. . . Musso-
lini hefur gefið skipun um að láta
senda 7.500 smálestir af hveiti þang
að. . . Við getum ekki gert meira.
ítalir eru að herða sultarólina upp
í síðasta gat, sem þeir kalla „Musso-
linigatið".
„Fylkisstjóri á Ítalíu“
13. október: „II duce hefur frétt,
að Þjóðverji hafi látið þetta út úr
sér, meðan hann var í heimsókn á
rússnesku vígstöðvunum (í ágúst):
„Þarna gengur fylkisstjórinn (Gau-
leiter) okkar á Ítalíu". Hann skrif-
aði Alfieri (ítalska sendiherranum
í Berlín) til þess að fá þetta stað-
fest".
17. október: „Hertaka borgarinn-
ar Ódessa (sem rúmenskar hersveit-
ir tóku) hefur fallið Mussolini illa,
og hann sér nú sjálfan sig koma í
annari röð, á eftir Rúmenum. ..
Miðdegisveizla fyrir frú Goebb-
els, sem er hér ásamt mágkonu
sinni hjá Attolica (ítalska sendiherr
anum í Páfagarði). Bismarck sagði
við Anfuso (ritara Cianos):
„Frú Goebbels er ágætt dæmi
um konur hinna æðstu nazistafor-
ingja. Fyrst giftist hún þorpara og
þénaði fé með auðveldu móti. Síð-
an varð hún vinkona Goebbels, en
það þýddi ekki, að hún yfirgæfi
aðra. Goebbels giftist henni eina
nótt, þegar hann var fullur. Þau
eiga mörg börn saman, eða kannski
ekki saman, því að frú Goebbels
hefur haldið áfram fyrra líferai
sínu. Nú gengur hún á veiðar eftir
mönnum, og ef þörf er á tveimur
konum þá hefur hún mágkonu
sína til taks. Eg skammast mín fyrir
að kona mín skuli hafa nokkur af-
skipti af slíku fólki".
12
20. október: „Alfieri hefur sent
skýrslu um langt viðtal, sem hann
átti við Robbentrop. Hann söng sitt
gamla viðkvæði: „Sigurinn er þegar
fenginn, rússneski herinn er sigr-
aður, England syngur sitt síðasta
vers".
Og þrátt fyrir þetta standa skrið-
drekasveitirnar fyrir utan Moskvu
án þess að geta hreyft sig úr stað,
og margir þýzkir hermenn eiga eft-
ir að deyja, áður en þýzki fáninn
blaktir yfir Kreml".
Gordiskur hnútur
22. október: „Cavallero hers-
höfðingi bítur höfuðið af allri
skömm í ábyrgðarlausri Iéttúð.
Hann segir, að hann hafi leyst
vandann við að vélbúa herinn, ekki
með því að útvega hersveitunum
vörubíla, heldur með því að auka
gönguhraða liðsins. Þvílíkur erki-
bjáni. Hann fullvissaði mig um, að
við mundum hafa 92 herdeildir til-
búnar. Þetta er ósvífin lýgi. . ."
25.—30. október: „Eg kem til
höfuðstaðar þýzka hersins. Á stöð-
inni er tekið á móti mér af Ribben-
trop og Hitler við innganginn til
húss hans, sem er víggirt. . . Hann
var í bezta skapi. . . Hann er mjög
kurteis, eða ég ætti frekar að segja
kumpánlegur. . .
Ribbentrop talar í einkennilega
alúðlegum tón. . . Hann lætur sér
svo annt um mína persónulegu vel-
Iíðan, að hann Iætur senda mér
heita mjólk í rúmið til þess að
lækna hóstann í mér. 1 Toscana
segja menn, að þegar einhver er
venju fremur gestrisinn, þá hugsi
hann til að svíkja þig, eða að hann
sé þegar búinn að svíkja þig.
Veiðiförin gekk ágætlega og allt
var prýðilega skipulagt. Veiðin var
tínd upp af 400 hermönnum undir
stjórn liðsforingja sinna, og þeir
tóku starf sitt allir alvarlega, rétt
eins og þeir væru að flæma Rússa
úr skógunum í Vyasma eða Deby-
ansk. . . Ef einhver flokksforingi á
Ítalíu hefði notað hermenn í slík-
um tilgangi, þá hefði það orðið
meiriháttar hneyksli. . .
Ræða Roosevelts ( á flotadaginn
þann 27. október, þegar hann sagði,
að byrjað yrði að skjóta) hafði mik-
il áhrif. Þjóðverjarnir höfðu ákveð-
ið að gera ekki neitt, sem gæti flýtt
fyrir eða hrundið Ameríku út í
stríðið. Við hádegisverðinn sagði
Ribbentrop: „Eg hef gefið blöðun-
um skipun um að skrifa stöðugt
Gyðingurinn Roosevelt. Eg ætla að
koma með einn spádóm: Sá maður
mun verða grýttur í Hvíta húsinu
af sinni eigin þjóð". Persónulega
held ég, að hann mun deyja úr elli.
Reynslan hefur kennt mér, að spá-
dómar Ribbentrops rætast aldrei. ..
Meðan við vorum á leiðinni til
stöðvarinnar, þá endurtók Ribben-
trop setningu, sem ég hafði oft
heyrt: „Nýsköpun Hitlers í Evrópu
mun tryggja friðinn í næstu þús-
und ár". Eg gerði þá athugasemd,
að þúsund ár sé nokkuð Iangur
tími. . . Ribbentrop lauk með því
gefa eftir og sagði: „Látum okkur
þá segja hundrað ár. . ."
Dörnberg (skrifstofustjóri Hitl-
ers) var dálítið kenndur og sagði
við einn förunauta minna: „Næsta
nýlenda okkar verður Ungverja-
land. Eg hef góða von um, að verða
landsstjóri þar". Þrátt fyrir vínið
held ég, því miður, að honum hafi
verið alvara".
„Hver Þjóðverji
hefur sinn Frakka“
„Eg hitti lest, sem var fullhlaðin
ítölskum verkamönnum: Með langt
skegg, opnar skyrtur, vínflöskur og
nokkra gítara. Þeir líktust nákvæm-
lega þeim útflytjendum, sem ég var
vanur að sjá fyrir sextán árum síðan
í Suður-Ameríku. . . í Þýzkalandi
er samúð og virðing fyrir okkur í
öfugu hlutfalli við fjölda ítalskra
verkamanna í hverju héraði.
Það er sorgleg sjón að sjá alla
stríðsfangana. Maður rekst alls stað-
ar a þa í landinu, og þeir vinna
meðal annars á bændabýlunum, þar
sem karlmennirnir eru fjarverandi.
Dörnberg segir: „Hver Þjóðverji
hefur sinn Frakka" — og það þýðir
sama og að hann hafi sína eigin
kú og sinn eigin hest. Þeir eru þjón
ar, þrælar. Ef þeir snerta nokkra
konu, þá eru þeir skotnir. Og
samt eru þeir af sama blóði og Vol-
taire og Pasteur".
30. október: „Mussolini sagði í
morgun, að hann yrði minna og
minna sannfærður um, að Banda-
ríkin færu í stríðið. „Nú er orðið
greinilegt, að Rosevelt ætlar ekki
að láta bíta sig", sagði hann".
31. október: „Las rétt í þessu, að
ameríski tundurspillinum „Reuben
James" hefði verið sökkt í gær-
kvöldi vestan við ísland. Margir
virðast hafa farizt (amerísku flota-
yfirvöldin skýrðu frá því, að 98
hefði verið saknað og hefðu að Iík-
indum farizt).
Eg hef fengið að vita, að mark-
greifafrúin-----------muni verða
tekin föst fyrir njósnir. Hún er
hefði vajdið.alvarleguistandirjcneð-. «g nú ákæta.þeir okkux 4t afjjár.-
fædd í Ameríku og mjög vel þekkt
í Rómaborg fyrir ástarævintýri sín
og sitt ljósa hár. Og hún er vinkona
amerísks liðsforingja. Þetta hefur
komið illa við Sherlock Holmes
okkar upplýsingaskrifstofu. Verið
getur, að þeir hafi rétt fyrir sér. Allt
er mögulegt. En ég held, að sam-
band hennar við Ameríkumanninn
standi ekki á pólitískum grunni,
heldur sé miklu frekar afleiðing af
löngun hennar eftir glöðu og
skemmtilegu Iífi, nú þegar hún er
farin að eldast og getur ekki leng-
ur haldið sama hraða og á yngri
árum sínum".
1. október: „Komið er nýtt bréf
frá Hitler. . . Það sem vekur eftir-
tekt Mussolini frekar öllu öðru, er
að foringinn talar næsmm því ekk-
ert um hersveitir okkar. . . Hann
hefur sýnilega áhyggjur út af okk-
ur. . . Han er hræddur við innrás
Englendinga á Korsíku, Sikiley og
Sardíníu og býður okkur alla þá
hjálp, sem hann gemr veitt, strax
frá deginum x dag. Hann skrifar
eins og maður, sem veit ekki hvað
sigursæl orrusta Englendinga muni
þýða fyrir okkur".
5. nóvember: „Cavallero (her-
ráðsforinginn) talar um, að Kessel-
ring marskálkur muni koma til
Ítalíu. Hann á að taka að sér yfir-
stjórn yfir hersveimm möndulveld-
anna á Suður-Ítalíu og á eyjunum,
sem þýðir raunverulega öllum her-
aflanum. . .
Mussolini hefur gleypt hina
beisku pillu. Honum er Ijóst, hvaða
áhrif þetta hefur á heildarmynd
styrjaldarinnar og eins fyrir okkar
eigið land, en hann tekur við áfall-
inu eins og góður leikari og þykist
ekki vita um það".
6. nóvember: „Anme-Maríe
Bismarck sagði við Anfuso (ritara
Cianos), að þegar Rintelen hers-
höfðingi (foringi þýzku hernaðar-
nefndarinnar á Ítalíu) fór til aust-
ur-vígstöðvanna til að hitta Foringj
ann, þá hefðu þýzku hermarskálk-
arnir og hershöfðingjarnir komið til
hans og hafi einskonar fundur orð-
ið með þeim.
Á þessum fundi báðu þeir hann
að reyna að finna einhverja leið til
þess að koma Hitler í skilning um,
að það væri hreint brjálæði, hvern-
ir styrjöldin í Rússlandi væri rek-
in. Þýzki herinn eyddist meira en
hann þyldi, og að hann, Hitler, væri
á Ieiðinni að steypa Þýzkalandi út
í glötun. Þetta virtist vera sam-
hljóða álit hernaðarleiðtoganna, en
enginn þorir að minnast á það við
Hitler. Jafnvel Rintelen lagði ekki
út í það."
Meðal vina
8. nóvember: „Skýrsla sú, sem
sendiherra okkar í Washington hef
ur sent okkur, sýnir, að hernaðar-
framleiðsla Ameríku hefur vaxið
Musolini í augum, því að hann bað
um, að hliðstæð skýrsla yrði gerð
fyrir mánuðina þar á undan. Aukn-
ing hernaðarframleiðslunnar er
ægileg.
von Plessen (sendisveitarráð með
ráðherratitil við þýzku sendisveit-
ina í Róm) spurði hreint út konu
nokkra í miðdegisveizlu: „Hvenær
byrjar stjórnarbyltingin á Ítalíu?"
Konan svraði rólega: „Eins og þér
vitið, þá förum við í öllu eftir Þjóð
verjunum. Stjórnarbyltingin byrjar,
þegar hún hefur brotizt út í yðar
landi. . ." Þetta er vingjarnlegt and
rúmsloft!"