Mánudagsblaðið - 20.10.1969, Page 2
2
Mánudagsblaðið
Mánudagur 20. október 1969
Dagbók CIANOS greifa
af Spoleto. Hann heldur áfram
að drasla í Króatíu og vi'll bara
fá peninga, peninga og aftur pen-
inga“.
Örólciki í Þýzkaílandi
11. janúar: „Menn eru óróleg-
Fregimar um sigra Japana á
sjó halda áfram að berast En bar-
dagarnir á landi í Libýu og Rúss-
landi ganga ekki eins vel“.
Mussolini heidur ræðu
11. desember: „Mussolini hefur
Jítinn áhuga fyrir samræðum
minum við Darlan. Það er ame-
ríska Stríðið, sem hugur hans
snýst allur um. Klukkan 14-30 tek
ég á móti sendifulltrúa Banda-
ríkjanna (George Wadsvorth);
góður maður, næstum því feim-
inn, sem ég haf ekki skipt mikið
við-
Hann hélt, að ég hefði beðið
hann að koma til þess að tala um
komu nokkurra blaðamarma, en
ég lét hann víst verða fyrir von-
brigðum. Hann hlustar á stríðs-
yfirlýsinguna (Italía til Banda-
ríkjanna) og fölnar. Hann segir:
„Það er mjög sorglegt"
Mussolini hélt ræðu frá svöl-
unum....... Yfirleitt var honum
ekki tekið með neinni hrifningu.
Við megum ekki gleyma, að það
var kl. 15, að fólkið var svangt og
það var kaldur dagur.
Um kvöldið óskaði Ribbentrop,
að við, ásamt Þýzkalandi, heimt-
uðum að þau lönd, sem skrifa
undir þríveldasáttmálann (aðal-
lega Balkanlöndin), segi Banda-
ríkjunum stríð á hendur- En
Spánn?“
13- desember: „Hinar vanalegu
ófarir á sjónum. Við höfum misst
tvö beitiskip og tvö stór skip, sem
voru hlaðin skriðdrekum, á leið-
inni til Líbýu. .. Mér dettur í
hug, hvort stríðið muni ekki
standa lengur heldur en floti okk-
ar endist
Sendiherra Kúbu kom til þess
að segja okkur stríð á hendur.
Hann var mjög æstur og virtist
mislíka, að ég komst ekki í neina
geðshræringu. En eftir að ég hef
verið með í ævintýrinu, eða ég
mætti kannski heldur segja því
óhappi, að segja Frakklandi, Stóra
Bretlandi, Rússlandi og Bandaríkj
unum stríð á hendur, gat þá sá
góði maður virkilega haldið, að
ég mundi blikna við að fá að vita
að herra Battista (einræðisherra
Kúbu) sé um það bil að hervæðast
á landi, sjó og í lofti? Jafnvel
Ecuador hefur sagt okkur stríð á
hendur, en ég lét ritara minn taka
á móti sendiherranum-
Mussolini geðjast ekki
að jólunum
14- desember: „Cavallero afsakar
ófarir okkar á sjónum með ó-
svífni, sem er dæmalaus.
Mussolini er rólegur. 1 morgun
gerði hann að gamni sínu. Hann
lét það ganga út yfir jólin, jóla-
gjafir og skemmtanir á öllum há-
tíðisdögum yfirleitt. Hann segir,
að siðurinn að gefa gjafir sé af-
sökun hins ríka til þess að rétt-
læta auðæfi hans í augum fátæk-
linganna"
16- desember: „Dapurt í Vene-
zía, tómt og þreytulegt. Tóm
gistihús, tómar götur. Myrkur. Fá-
tækt. Ég minnist aðeins óljóst,
14
hvemig Venezía leit út i fyrra
stríði, en það var ekkert líkt
þessu-
17- desember: „Mussolini lízt
mjög illa á þróun málanna í Kró-
atíu. En hann er samt ánægður
yfir því, að Þjóðverjarnir hafa
beðið okkur að taka að okkur
hemaðareftiríitið í landinu. Að
þeir gera það, stafar vafalaust af
því, að Þjóðverjanrir verða að
draga her sinn til baka, vegna
þess að veturinn lítur út fyrir að
verða harður í Rússlandi, og
Serbía veldur þeim allt of miklum
erfiðleikum. .. Okkur gengur ekki
vel í Líbýu. .. Mussolini kennir
Rommel urn, sem að áliti Musso-
linis spillti fyrir okkur með fram-
hleypni sinni“.
19- desember: „Fregnimar frá
Líbýu era alltaf slæmar þrátt fyr-
ir bjartsýni þá, sem kemur fram
i skýrslum herráðs okkar. Niður
með alla menn, sem era bjartsýn-
ir a/f þrælsótta! Þeir hafa steypt
okkur í glötun. Rommel segir, að
hann og skriðdrekar hans geti
brotizt inn í Túnis til þess að
sleppa við að komast í brezkar
fangabúðir“.
Hættulegt ástand í Þýzkalandi
21. desember: „Bismarck segir,
að Brauchitsch hafi verið vikið
frá embætti. Þetta bendir á alvar-
legt ástand. .. Ávarpi Göbbels og
Hitlers hefur ekki verið vel tekið.
Hin auðmjúka og eindregna bæn
þeirra um hlý föt handa hersveit-
unum á austurvígstöðvunum er í
beinni mótsetningu við hinn hroka
fulla tón, sem hingað til hefur
verið yfir máli þeirra“.
22. des-: „Mussolini hefur enn
ráðizt á jólin. Hann lætur í ljós
undran sína yfir þvi, að Þjóðverj-
ar skuli ekki hafa afnumið þessa
hátíð enmþá, sem minnir Okkur
aðeins á fæðingu eins Gyðings,
sem gaf heiminum heilmikið af
kenningum, sem hafa veiklandi
áhrif á mennina og sem einkurn
veiklaði Italíu vegna páifavaldsins,
sem verkaði uppleysandi á þjóð-
ina! Hann hefur bannað blöðun-
um að neflna jólin — en hann
þarf ekki annað en líta út um
gluggann til þess að sjá fólkið,
sem man eftir þeim og elskar
þau“.
24. desember: „Athyglin beinist
nú að Serena (flokksritara fas-
istaflokksins) og því, að hainn hef-
ur ekki fengið viðtal hjá Mussd-
lini í tvo daga. Serena fullyrðir,
að þetta sé undirróður frá Buffar-
ini, sem nú hafi völdin yfir II
duce og noti bæði löglegar og ó-
leglegar aðferðir til þess að ná
tilgangi sínum. Það sé fullvíst, að
Buffarini greiði yfir hundrað þús-
und lírar (rúmlega þrjátíu þúsund
krónur) ti'l þessarar Petacci (vin-
konu Mussolinis) með þeirri átyllu
að greiða henni skaðaibætur, og
hafi áhrif á hana í gegnum mann
nokkurn að nafni Donado, sem
mér er ekki kunnugt um í hverju
era fólgin".
25. desember: „Alfieri skrifar
og segir, að óslgrarnir á Austur-
vígstöðvunum séu nú orðnir svo
miklir, að þeir séu ekki lengur
til góðs fyrir okkur.
Páfinn hefur samið jólaboðskap,
sem Muissolini líkar ekki, þvi af
fjóram atriðum, sem nefnd era
í honum, beinast öll fjögur á móti
einræðisríkjunum. .. Isabella
Colonna sagði mér í gær, að hún
hefði talað við Maglione kardinála
(ríkisritara páfans), og hann hefði
sagt, að í Vatíkaninu tækju menn
Rússana fram yfir nazistaná“.
27. desembcr: „1 bréfi til mín
fullyrðir Cambara, að unnt væri
að bjarga Trípóli og ken-nir
Rom-mel um, „en han-n sé óþokki
sem hershöfðingi“.
28. desember: „Indelli tilkynnir
frá Tokyo, að forsætisráðherrann
(Tojo) hafi með gætilegu móti gef-
ið í skyn möguleika um sérfrið
milli möndulveldanna og Sovét-
ríkjanna- .. Ég held, að það sé
ekki mögulegt".
1942
5- janúar: „Mussolini hælir
ræðu minni (þann 3. janúar í
Bologna), en sýnir mér blaðaúr-
klippu frá Resto del Carlio, þar
sem blaðið fettir fin-gur út í fas-
istakveðju mína — hún var víst
ekki alveg samkvæmt reglunum.
Er virkilega ekkert meira áríð-
andi að rífast um?
Vidussoni (vararitari fasista-
flokksins) hefur lagt fram ljóta
áætlun út af Slóvenum. Hann vill
drepa þá alla. Ég benti á, að það
séu til rúmlega ein milljón Slóv-
ena- „Það gerir ekkert“ svaraði
hann rólega. „Við verðum að
fara að eins og Ascari (ítölsku ný-
lendusveitirnar i Abessíníu-stríð-
inu) og uppræta þá“. Ég vona, að
hann jaifni sig.
6. janúar: „Mussolini er reiður
út í Þjóðverja, vegna þess að
Schmidt hensihöfðingi, sem tekinn
var til fanga í Bardíu (í Líbýu),
sagði, að han-n hefði ekki getað
haldið stöðvum sínum vegna þess,
að það vora ítalir, sem hann
stjómaði, og Þjóðverjarnir í Rúm-
eníu hefðu tekið þá olíu, sem
okkur var ætluð.
Ravasio (annar vararitari fas-
istafllokksins) hefu-r orð á sér fyr-
ir að vera nýr Savonarola ■.. sem
þrumaði á móti þeim smituðu •..
en hverjir era þeir smituðu?
Ég lagði þessa spurningu fyrir
hann, og hann gat ekki nefint
neitt annað dæmi heldur en
slátrara, sem hefur grafið upp
og selt smitaðan gris“.
9. janúar: „Acquarone( hirð-
meistari Viktors Emanuels) hef-
ur talað við mig um hertogann
ir í Þýzkalandi. •. Alfieri (ítalski
sendiherrann í Berlín) skýrir frá
því, að þýzkar hersveitir, sem
hafa verið sendar heim frá rússn-
esku vígstöðvunum, séu sendar til
herteknu landanna og fái ekki að
snúa aftur til Þýzkalands, vegna
þess að menn óttist, að þeir muni
breiða út óþægilegar frétir. 1
Vtnarborg hafa margir hermenn
frekar drýgt s-jálfsmorð heldur en
snúa aftur til rússnesku vígstöðv-
anna“-
12. janúar: „II duce mótmælir
framkomu þýzkra hermanna á
Italíu, og einkum mótmælir hann
framkomu liðsforingjanna, sem
líta stórt á sig, era rifrildisgjarnir
og drykkjurútar í tilbót.
I gærkvöldi bratust tveir þeirra
inn á heimili í Foggia. Húsráð-
andinn var um það bil að fara
að hátta. Liðsforingjamir hróp-
uðu til hams: „I nótt ætlum við
að taka konuna þína!“ — Þessu
svaraði maðurinn: „Þið getið tek-
ið allan heiminn, en ekki konuma
mína — því að ég er pipar-
sveinn!" Áðu-r en þeir fóra burt,
bratu þeir öll hús-gögn í íbúðinni
til þess að fá útrás fyrir von-
brigði sín“.
15- janúar: (I Búdapest). „Hor-
ty aðmíráll sagði við mig: „Þjóð-
verjamir eru hraustir, en þeir
eru lfka óþolandi, siðlausir þrjót-
ar“.
17. janúar: „Veiði-för hjá Mes-
ohegays. Það var góð veiði en
ekki nærri eins góð og við höfð-
um 1938. Ribbentrop var þegar
búinn að skjóta flest dýrin“.
20- janúar: „Mussolini færir
mér s-íðustu fréttimar . •.
Frafckland: Hitler vill ekki
ganga inn á skilmála Vichy-
manna fyrir því að afhenda hafn-
imar í Túmis okkur til notkum-
ar (eins og ítölsku hernaðaryfir-
völdin höfðu farið fram á). Hann
hefur rétt fyrir sér. Skilyrðin era
þvingandi-
Rio de Janeiro: Bandaríkin
heimta, að Suður-Ameríkuríkin
slíti stjómmálasambandi við okk-
ur. Ef þetta skyldi koma fyrir
þá áljtur II duce, að við neyð-
umst til að segja þeim stríð á
hendur og þvinga Bandaríkin á
mjög stóra svæði. „Þeir vilja hafa
hvítt stríð", segir Musolini, „en
þeir skulu fá rautt“.
(Af 21 amerískum lýðveldum
vora 19 anmað hvort í stríði eða
höfðu silitið sjálf stjórnmálasam-
bandi við möndulveldin, þegar
ráðstefnunni í Rio de Janeiro var
lokið 29. janúar 1942).
Líbýa: Ástandið er alvarlegt“.
22. janúar: „Osio, sem stofnaði
Banca del Lavoro, hefur verið
vikið frá embætti.. • Memn vita
ekki nákvæmlega um orsökina, en
það virðist svo, sem hann hafi
gert einihverjar óheppilegar at-
hugasemdir, og sumir fullyrða, að
hann hafi orðið ósáttur við bróð-
ur Clöra Petaccis út af viðskipt-
um. Osio hefur verið heldur of
bersögull og kallað þennan mann
„Lorenzino de Medici“ (einm af
mestu harðstjóranum í Flórenz
á endurreisnartímumum).
Dulbúinn fasisti
Grandi (dómsmálaráðherra og
seinna sendiherra í London) gat
ekki lemigur á sér setið og sagði
í dag: „Ég skil ekki, hvernig ég
hef getað dulbúið mig eins og
faisista í tuttuigu ár saim£leytt!“
Jólaferð Gullfoss
Feröizt í jólaleyíinu. - Njóliö hátiöarinnar og áramólanna um borö'
i Gullfossi. - Áramótadansleikur um borö í skipinu á siglingu
í Kielarskuröi. - Skoöunar- ög skemmlilcröir i hverri viökomuliöfn.
16 DAGA FERÐ - FARGJALD FRA KR.13.008,oo TIL KR. 21.393,00
Söluskattur.íæbi og þjónustugjakl innifaliö.
FERÐAAÆTLUN:
FRÁ REYKjAVÍK
23. des. 1969
í AMSTERDAM
27. og 28. des.
f HAMBORG
29., 30. og 31. des.
I KAUPMANNAHÖFN
1., 2. og 3-'jan. 1970
TIL REYKJAVIKUR
7. jan. 1970
Njótið þess að ferðast
Feröizt ódýrt - Feröizl meö Gullfossi
ALLAR NÁNARI UPFLySINGAR VUTIR:
FERÐASKRIFSTOFA EIMSKIPS, SÍMI 21460
H.E EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
)
f.