Mánudagsblaðið - 01.12.1969, Qupperneq 3
Mártudagur 1. desember 1969
Mánt&agsEtlac&ð
3
NÝJAR BÆKUR
Magnús „Stormur“
Syndugur segir frá
Það kemur skjótt í Ijós við lest-
ur bókarinnar „Syndugur segir frá"
eftir hinn kunna Magnús Magnús-
son, Manga Storm, eins og hann er
þekktastur undir um land allt, að
maðurinn er alls ekki syndugur.
Ekki er þó það, að hann dragi neitt
undan eigin líferni, en um hann,
eins og aðra stormasama menn í líf
inu hafa myndazt þjóðsagnir, frem
ur byggðar á óskhyggju almenn-
ings og illgirni einstaklinga, en
Út er komin, á vegum bókaút-1
gáfunnar Skuggsjár, nýtt sögusafn,
Aftur í aldir, sögur og sagnir úr
ýmsum áttum, eftir Oscar Clausen,
hinn aldna og kunna sagnahöfund.
Er þetta, að mestu, endurprentanir
samnefnds sagnasafns er út kom
fyrir tveim áratugum, undir sama
nafni, og er fyrir löngu uppselt. í
þesari útgáfu eru þó ýmsir nýir
þættir, sem skráðir eru á árunum
1930—1940, sem þó var í raun-
inni ætlað, að kæmu ekki út fyrr en
að höfundi látnum.
Eins og fyrri bækur þessa höf-
undar þá fjalla þættirnir um ýmsar
persónur, sem höfundur þekkti
sjálfur auk sögusagna um þekkta
mepn ,og,kopur frá ýmsum tímabil-
um þjóðarinnar.
Oscar Clausen er skemmtilegur
höfundulf tílálið hispurslaust og án
allrar væmni eða tæpimngu, þætt-
irnir ferskir og lifandi, einkum
beir, er han sjálfur hefur frá að
segja og þekkir gleggst til.
Þau ýmsu atvik úr sögu landsins,
sem höfundur drepur á, gefa ljósa
og oft óhugnanlega mynd af lífinu
áður fyrr, harðneskju og óskiljan-
legri grimmd út af smámunum,
sem ekki þættu umtalsverðir nú á
dögum. Höfundur, nú um áttrætt
hefur og Iifað margt og séð, því
ekki er ýkja langt síðan þjóðin bjó
við allt önnur kjör og almennan
sannprófuðum frásögnum þeirra,
er bezt til þekkja.
Þetta er ævisaga Magnúsar, sögð
af honum sjálfum í eigin stíl, án
undanbragða eða fagurgala, minn-
ingar um æskudaga, býli og búend
ur í Húnaþingi, kynni við menn,
málefnafrásögur, persónuleg við-
skipti hans allt frá æsku til þessa
dags, en um þessar mundir lifir og
býr gamla kempan hér í höfuð-
staðnum.
viðurgerning en nú. Heimildir
hans eru traustar og að mestu
fengnar á söfnum, víða kömið við
og að jafnaði vitnað til þeirra er
þörf gerist.
Hér er um að ræða lesefni, sem
íslendingum er hugstætt, og vissu-
Iega er þetta holl áminning uni
hversu stutt er en síðan þau lífs-
■kjör þóttu góð, sem enginn vildi
líta við nú. Jafnt ungir sem gamlir
munu finna þarna sjóð af gömlum
fróðleik um næstu kynslóðir á und-
an okkur, því þeir tína nú ört töl-
unni, sem muna þessi ár og þær
hörmungar sem þjóðin þjó við.
Frágangur útgefanda er með af-
brigðum góður, bókin falliga
prentuð, skýr og í handhægu broti
og læsileg. Óþarfi er hér að telja
upp einstaka kafla henar en full-
yrða má, að þessi bók Clausens
svíkur engan þann, sem ann þess-
ari tegund hollra bókmenta.
Allir þeir, sem nú eru miðaldra
eða eldri muna Magnús, hafa séð
hann, þó ekki þekkt. Hann var
einn af þeim, sem settu vissan svip
á borgina, einn af fáum, sem lifðu
tíma breytinga og umsvifa, nákunn
ur öllum þekktustu mönnum sam-
tíma síns, harðskeytmr blaðamað-
ur, illvígur og tók mikinn en sér-
stæðan þátt í öllum dægurmálum
og deilum síns tíma. Ekki skal dval
ið í hugleiðingum um áhrif hans
á samtíðina né heldur samtíðamenn
ina, hann átti sér vini og harð-
skeytta óvini, deildi á þá, varð
þeim jafnvel sammála, þó heldur
oftar hið fyrra.
Þótt Magnús sé ekki gamall
maður miðað við aldur nútíma-
manna, fæddur er hann 1892, að
næst verður komizt, þá er hann
enn sagður ern, bók hans ber vitni
um öruggt minni, enn ber við him-
in glæður gamals skaphita og ákaf-
lega ákveðinna „meininga" um
suma samtíðarmenn. Flestar etu
góðar, hann ber mönnum vel sög-
una, segir kost og löst, að bezt verð
ur séð, en sleppur alveg við, að
mestu, þann óskaplega fleðublæ
flestra þeirra er minnast „afreks-
manna", en þeim hættir heldur við
að sjá aðeins björtu ljósin, ekki
skuggana og sízt það mannlega,
sem margar stjörnur aldamótanna,
hafa verið gæddar.
Kaflarnir í bókinni eru ýmsir og
ber hver heiti. Skólaár, æska, utan-
för, mannleg náttúra, spilamennska
og mennirnir sem ég drakk með
eru meðal kaflaheita og erfitt fyrir
þá, sem ekki þekkja vel né muna
glöggt að dæma um verðgildi þess-
ara frásagna. Það er þó sameigin-
legt með þeim, að þeir eru allir
skemmtilegir, vel ritaðir og-einkar
lifandi.
Stormur, blað Magnúsar er það,
sem sennilega gerir hann ódauðleg
an og palladómarnir hafa verið ap-
aðir upp af seinni tíma mönnum,
en vart með þeim ágætum og hin
upprunalega mynd var.
Hér er er á ferðinni bók, sem
hver einasti maður mun hafa gam-
an af, bók sem eflaust á eftir að
vekja forvitni og umtal, því margir
þeirra, sem hér koma við sögu, lifa
enn, aðrir nýdauðir, og eftir nær
öllum muna menn.
Það er prentsmiðjan Leiftur, sem
séð hefur um útgáfuna, sem er
mjög vönduð og forlaginu til sóma-
Ný bók Oscars Clausens
AFTUR í ALDiR
LÁGMÚLA 9 — SÍMI 81400 — SÍMNEFNI: SAMÁBYRGÐ
Auk þess að annast endurtryggingar á skipum skildutryggðum hjá bátaábyrgðarfélögun-
um og skyldutryggingu tréfiskiskipa gegn bráðafúa, tekur Samábyrgðin að sér eftirfarandi
tryggingar:
Frumtryggingar á skipum yfir 100 rúmlestir.
Vélatryggingar á fiskiskipum undir 100 rúmlestum.
Ábyrgðartryggingar útgerðarmanna.
Slysatryggingar sjómanna.
Farangurstryggingar skipshafna.
Athygli bráðafúatryggðra fiskiskipa er vakin á'því, að Samábyrgðin lánar þeim endur-
gjaldslaust rakaeyðingartæki til þurrkunar á innviðum skipanna.
DÍSAHLEG MÝJUIV©!
NÚ GETIÐ ÞÉR FENGIÐ LÖNG, LENGRI
OG ENNÞÁ LENGRI, SILKIMJÚK AUGNHÁR
Ultra+Lash er fyrsti augnháraYitur'nm sem lengir og' þétt-
ir augnahárin án þess að gera þau stíf. Þessi einstaka
efnablanda lengir án gerviþráða. Allt sem þér þurfið að
gera er að bera Ultra+Lash á með hinum hentuga Duo-
Taper Brush sem byggir upp um leið og hann litar hvert
augnhár. Ekkert auka erfiði og ekkert ergelsi út af gljáa-
lausum og klístruðum augnhárum. Sérstaklega auðvelt
að hreinsa á nokkrum sekúndum með Maybelline Mas-
cara Remover. Kemur í þrem góðum litum: VELVET
BLACK SABLE BROWN og MIDNIGHT BLUE.
PÉTUR PÉTURSSON
umboðs- & heildverzlun
Suðurgötu 14 Reykjavík. — Símar 19062 & 11219.
AÐVÖRUN
UH STÖÐVUN ATVINNUREKSTRAR
VEGNA VANSKILA Á SÖLUSKATTI
Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavík og heim-
ild í lögum nr. 10, 22. marz 1960, verður atvinnu-
rekstur þeirra fyrirtækja hér í umdæminu, sem enn
skulda söluskatt 3. ársfjórðungs 1969, svo og sölu-
skatt fyrri ára, stöðvaður, þar til þau hafa gert full
skil á hinum vangreiddu gjöldum, ásamt áföllnum
dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir, sem vilja komast
hjá stöðvun, verða að gera full skil nú þegar til
tollstjóraskrifstofunnar, Arnarhvoli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 24. nóvember 1969.
Sigurjón Sigurðsson.