Mánudagsblaðið - 23.02.1970, Blaðsíða 1
‘Blaðfyrir alla
22. árgangur.
Mánudagur 23. febrúar 1970
7. tölublað.
Erlent fjármagn til Islandsi
EFTA-þátttakan getur leyst fjölda vandamála í viðskiptalífinu
Miklar og margvíslegar fyrirspurnir erlendra fyrirtækja og
fjármálastofnana hafa borizt hingað vegna hlutdeildar íslands
í EFTA. Flestar eru ennþá á rannsóknarstigi, þótt erlendir að-
ilar hafi þó komið undir sig fótunum i efnahagslifi íslands.
Margir telja réttilega, að ýmsir glæsilegir möguleikar séu á
iðnrekstri á íslandi, en innlenda aðila skortir bæði reynslu og
fé.
Þótt ríkisstjórnin láti í veðri
vaka, að gerðar hafi verið ráðstaf-
anir til að stemma stigu við að
erlent fjármagn verði allsráðandi
í nýjum atvinnurekstri eða fyrir-
tækjum almennt, þá er þó vel vit-
að að slíkt er tilhæfulaus ósann-
indi. Til er fjöldi ráða til að snið-
ganga hinar svokölluðu ráðstafanir
og engin hætta á, að stjórnin fái
þar við nokkuð ráðið.
Það er vitanlega bæði þörf og
nauðsyn að erlent fjármagn og
framtakssemi haldi hér innreið
sína. ísland hefur ótal möguleika
á sviðum, sem lítt eða ekki hafa
verið reynd til þessa, og þá eink-
um varðandi frekati og betri nýt-
ingar í sjávarafurðum og landbún-
aði. Nokkrar greinar iðnaðar bjóða
einnig upp á möguleika, en þar
skortir fjármagn.
Sú staðreynd, að ríkið er komið
í hörkusamkeppni við einstak-
lingsframtak, er ömurleg sönnun
þess hve neikvæð öll þróun er að
verða í framkvæmdalífi þjóðarinn-
ar. Einstaklingum sem „faktískt"
eru farnir á hausinn er haldið uppi
eins og próventukörlum, þó þann-
ig, að eftir að ríkissjóður eða
Seðlabankinn hafa komið fyrirtækj-
um þeirra á lappirnar, náð aftur
lánsfé sínu komið öðrum heil-
brigðum fyrirtækjum fyrir kattar-
nef, eða lamað rekstur þeirra, þá
Albert á þing?
Prófkosningar Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík verða
birtar nú eftir helgina. Eins og
kunnugt er þá vilja Sjálfstæð-
ismenn með þessu sýna ein-
hvern lit — þ.e. að kjósendur
þeirra fái einhverju ráðið um
kjör og framboð manna þeirra
er þeir vilja hafa í forsvari fyr-
ir sig á þingi — jafnvel í borg-
arstjórn.
Allmikil óánægja er innan
raða Sjálfstæðismanna, enda
ekki að undra því einveldi eitt
og ofbeldi hafa þar jafnan ráð-
ið ríkjum, og menn óvinveittir
kjósendum íhaldsins, verið all-
mjög í fararbroddi og í efstu
sætum þar sem miðstjórn
flokksins hefur talið þá ör-
ugga.
Fréttir herma nú, að ýms ný
andlit hafi skotið upp kolli í
þessum prófkosningum. Með-
al þeirra, sem hátt ber af ný-
liðum er Albert Guðmundsson,
heildsali, sem gerist nú all á-
berandi í opinberum, vinsæl-
um málum, og hefur hann hlot-
ið geysilegt fylgi í prófkosn-
ingunum.
Það er timi til kominn að
Albert Guðmundsson fái hlut-
deild á þingi. Albert er ennþá
ungur maður, frískur í skoðun-
um og heilbrigður i málefna-
flutningi. Persónulega er hann
einarður og fylginn sér, til-
lögugóður og fullhugi í öllum
málflutningi. Kjósandinn hefur
enga ástæðu til annars en
ætla, að þessir kostir myndu
fylgja honum á þing. Við höf-
um nóg af já-mönnum og af-
s;:rengjum „Heimdallarkálf-
ana“ á þingi, og meiri skammt
gamalmenna þar, en góðu hófi
gegnir. Það er sannarlega ósk
okkar, að Albert sé stillt upp
á kjörlista, og ýmsir málsmet-
andi Sjálfstæðismenn óska
þess eindregið að flokkurinn,
sjálf sín vegna, hafi vit fyrir
framtíð sinni og gefi þeim
mönnum tækifæri, sem þorri
kjósenda óskar eftir að komi
fram fyrir þeirra hönd.
er gæðingum fengin aftur þau
fyrirtæki, sem komin voru að gjald-
þroti.
Það er því ekki annað en full
ástæða til að þakka það að erlent
fjármagn berist til landsins, ekki
aðeins okkur til hagsbóta og fram-
dráttar heldur og til að stöðva það
óeðli, sem farið er að ríkja á við-
skiptasviðinu almennt.
í blaðinu
/ dag
KONUR —
Hver verður tízkan að vori?
Frægustu tízkufrömuðir Pa-
rísar og Lundúna segja álit
sitt í blaðinu í dag.
Mysticus skrifar um jarðarför
merkrar konu.
KAKALI: skrifar um öfga og
íhlutunarstarfsemi ýmissa
minnihlutaaðila.
OFDRYKKiA í Rússlandi —
10 milljón ofdrykkjumenn.
Yfirþjóð Gyðinga — sjá 8.
síðu.
PRESSAN — Fr.S. gullvægur
fuglavinur— Mama mía!
Ymislegt fleira, sem allir hafa
áhuga á að kynnast.
Vaxandi eiturlyf janeyzla
Æskufólk og pop-músíkk—
stjörnur vara við hættunni
S.l. sunnudag buðu nokkrir fulltrúar æskufólks blaðamönn-
um á fund í Glaumbæ, en tilefnið var eiturlyfjaneyzla á Islandi
meðal ungs fólks. Allt það unga fólk, sem þarna mætti hefur
daglegan samgang við æskuna á skemmtistöðum, en eins og
segir hér á eftir, þá taldi fyrirsvarsmaður þeirra upp nöfn
hinna áhugasömu um þetta mál. Nokkrar umræður urðu um
vandamálið, en bezt er að gefa unga fóikinu orðið og kenna
það. Talsmaður þess sagði eftirfarandi:
Ég býð ykkur öll velkomin til
þessa fundar. Málefnið, sem hér
verður rætt, er mjög alvarlegt:
„Eiturlyfjaneyzla ungs fólks á h-
landi".
Ég vildi byrja á því að kynna
fyrir ykkur þetta unga fólk, sem
hér er statt:
Jónas Rúnar Jónsson, söngvari.
Kristín Waage, fulltrúi „Ungu
kynslóðarinnar 1967", skrifstofu-
stúlka.
Björgvin Halldórsson, söngvari.
Helga Möller, danskennari.
Sveinn Guðjónsson, hljóðfæraleik-
ari.
Henný Hermannsdóttir, danskenn-
ari.
Sævar Baldursson, verzlunarstjóri
í Karnabæ.
Veigar Sumarliði Óskarsson,
verzlunarmaður.
Ragnar Hall, nemandi.
Öll vitið þið, hvað hér er um
að ræða, en ég hef tekið að mér
Nordek-„ástin' blómstrar
Ekkert nema yfirborðið
„Brennivínsfundurinn“ mikli, sem ísland hélt hinum Norður-
löndunum, með „frábærum árangri“ í samskiptum frændþjóð-
anna virðist vera meiri i orði en á borði. Danir og Finnar eru
hættir að talast við út af flugmálum, íslendingar eru enn von-
biðlar Svía í sömu málum, og Rússar hafa tekið Finna í karp-
húsið vegna væntanlegrar þátttöku þeirra í Nordek.
Hálf-komminn Palme forsætis-
ráðherra Svía, sem mestan þátt hef-
ur átt í þessu brölti Norðurland-
anna, hefur dyggilega þjónað hlut-
verki sínu í þjónustu Rússa og svo
til að bjarga skinni Svíanna sjálfra,
sem eru að einangrast frá allir vest-
rænni samvinnu.
Samvinna Norðurlanda er hvorki
né verður annað en orðin tóm og
þátttaka íslands í frekara samstarfi
en orðið er, einkum fjárhagslega,
alveg út í bláinn. íslendingar geta
því einu treyst, að því betur sem
við flækjumst í neti „norrænnar
samvinnu" því verri verður okkar
hlutur.
Frumhlaup íslenzkra forustu-
manna í öllu Nordek-málinu, skála
ræður og lofsöngur aðila, var ekki
annað en hismið eitt, ísland — og
hugsanleg þátttaka þess — fjar-
lægir þjóðina frá eðlilegum og
sjálfsögðum viðskiptum við aðrar
þjóðir. Það er tímabært að þjóðinni
sé kynnt, hvaða öfl krefjast og
vinna af alhug að þátttöku ís-
land í Nordek.
að útskýra málið fyrir hönd okk-
ar, eins og það lítur út frá okkar
bæjardyrum séð, eftir að við höfum
kannað það rækilega. Við teljum:
að hass og marijuana neyzla sé
meiri en nokkurn grunar hér
á landi.
að hún er ennþá bundin við vissa
hópa, en breiðist ört út.
að þekking ungs fólks á lyfjum
þessum er næstum engin, enda
mjög útbreidd skoðun, að hass
og marijuana sé ekki hættu-
meira í sjálfu sér en áfengi.
að yfir 90% af öllu hass og mari-
juana, sem hér er á markaðn-
um er blandað með ópíum og
sú staðreynd ein er skelfileg og
hlýmr að hafa í för með sér
ófyrirsjáanlegar afleiðingar.
að þeir sem standa fyrir dreifingu
á lyfjum þessum hér eru að
öllu jöfnu fávíst ungt fólk sem
veit ekki, hvað það er að gera,
enda er það aðferð glæpahringa
þeirra, sem stunda sölu eitur-
lyfja, að fá ávallt fólk úr hópi
þess fólks, sem á að dreifa til.
Aðferðin er yfirleitt að útvega
„eitthvað" spennandi og þá í
vinarlíki.
að vitað er að hass er allt að helm-
ingi ódýrara á heimsmarkaðin-
um en ópíum vegna vinnslu-
mismunar. Ópíum er einnig
meira vanalyf en hass og vegna
þessa er vitað að glæpahringir
þessir blanda ópíum í hass til
að fá ódýrari framleiðslu og
fastari markað.
að mest af þessum lyfjum kemur
frá Danmörku og Bandaríkj-
unum með pósti og í farangri
. fólks, sem kemur bæði með
flugvélum og skipum. Einnig
eru dæmi um að vissir aðilar
selja. þessi lyf hér.
að þessi þróun er vægast sagt mjög
hættuleg fyrir íslenzkt þjóðfé-
lag, en við höfum þá óbifan-
legu trú að ef skjótt og vitur-
lega er-við brugðið, þá gætum
við íslendingar vegna fólks-
fæðar og vissrar einangrunar
bægt þessu eiturskýi frá okkur.
Við förum þess á leit við ykk-
ur að hjálpa okkur til að ná valdi
á þessari öfugþróun og afhjúpa
„svindlið", ef svo mætti að orði
komast.
Við vonum af heilum hug, að
þið hefjið ykkur hátt yfir alla dæg-
urpólitík og fréttasamkeppni og
takið málið föstum tökum.
Æskilegar gagnráðstafanir.
1.
2.
Mótmæli gegn slíku vandamáli
ungs fólks á tvímælalaust að
koma frá ungu fólki.
Tilgangurinn helgar meðalið.
Ungt fólk er mjög áhrifagjarnt
og er gjarnt á að túlka um-
mæli, sem eru vafasöm sér í
vil. Þess vegna er mjög mikil-
vægt að fjölmiðlunin hafi mjög
stranga ritskoðun á þessu máli.
Dæmi eru: Ummæli í blöðum
um lækningarmátt hass í viss-
um sálrænum tilfellum.
3.
Að viðurkenndum meðmælend-
um og neytendum þessara lyfja
sé ekki hampað heldur fái þeir
fyrirlitningu og hreint áhuga-
leysi að launum, en ef þeir vilja
hjálp, þá sé hún ávallt fyrir
hendi. Áríðandi er þó að ráðast
ekki á einn eða neinn persónu-
lega, því að þá mundi vor-
kunnsemi brjótast út og eyði-
leggja fyrir málstaðnum. eins
og dæmi er um núna nýlega.
4. Höfða verður mjög sterkt til
ábyrgðartilfinningar fólks í
sambandi við þetta mál. Hér
getur enginn stungið höfðinu
í sandinn og sagt „ekki ég",
„ekki mín börn", og „kemur
mér ekki við" o.s.frv.
Mjög áríðandi er að almenn
fræðsla fari fram alls staðar,
þar sem hægt er að koma henni
við og eru blöð, sjónvarp og
hljóðvarp tvímælalaust sterk-
asta vopnið hér. Áríðandi er
hér að muna að tilgangurinn
helgar meðalið.
Við þetta þarf raunar engu að
bæta. Öll opinber málgögn bæði
taka undir og þakka þessu unga
fólki áhugann og framtakið og tel-
ur, eins og það sjálft, að bezt sé,
að unglingar þessi, sem margir eru
áhrifaríkir, einbeiti sér að því að
tala um fyrir krökkunum, sem
sækja skemmtanir og neyta þessara
lyfja. Má vera, að blaðið ræði þessi
mál nokkuð nánar á næsttumi
5.