Mánudagsblaðið - 23.02.1970, Side 2
2
Mánudagsblaðið
Mánudagur 23. febrúar 1970
Parísardiktatúrinn:
Þunglamaleg,
drungaleg og
óþægileg tízka
en ætli við beygjum okkur ekki enn?
Parísartízka sumarsins 1970: Örlítið sígaunaútlit Lanvins — Courreges á grímuballi? — „óskaplega
játask" stúlka Bobans í 125 þúsund króna kjól.
Oj bara.
Það virðist útséð um það, að von bráðar neyðist maður til
að fara aftur að slaksast um í síðum pilsum með öllum þeim
óþægindum sem því fylgja: festa sig í bíldyrum, sópa stigana
með faldinum, þurfa einlægt að slétta og laga kjólinn þegar
maður sezt og s. frv. og s. frv. svo ekki sé minnzt á þvingun
eðlilegra hreyfinga, sem ekki verður sízt erfitt að aðlaga sig
nú eftir frelsi pínupilsanna, eða þá kostnaðinn, — hvað skyldi
þurfa mörgum sinnum meira efni í maxipilsin en bleðlana sem
hafa nægt okkur undanfarin ár?
En þó við kvörtum og kveinum,
þá vimm við svosem að við mun-
um beygja okkur fyrir duttlung-
um tízkunnar eins og aðrir, og að
þessu sinni voru allir tízkufrömuðir
Parísarborgar — undantekningar-
laust — sammála um að faldurinn
skyldi færður niður. (Skyldu vefn-
aðarvöruframleiðendur hafa mútað
þeim?) — Hve langt niður kom
þeim þó ekki alveg saman um og
því enda Parísarpilsaldar sumartízk
unnar 1970 ýmist undir hnénu, á
kálfanum, yfir öklanum eða niðri
á rist.rAð þeir endi.uppi.áí.lærurs.
kemur varla fyrir og þá aðeins til
að rugla eða í stríðni að því er virð-
ist. Enda kvartaði tízkufréttaritari
„Herald Tribune" við sýningarnar:
„Eg hefði átt að hafa með mér
málband en ekki skrifblokk."
„Þetta var erfið framleiðsla"
r
burdá
Freude am
Schneidem
stundi stjarna Dior-hússins, Marc
Bohan, kinnfiskasoginn og horaðri
en nokkru sinni fyrr eftir að hafa
létzt um fimm kíló fyrir sýningarn-
ar. Og erfiðleikarnir fólust náttúr-
lega í að gjörsigra pínupilsin og
ryðja þeim síðu örugga braut, — og
það fljótt, því vei, vei, ef þau
skyldu ekki seljast ....
Bohan glæðir skinhoraðar sýn-
ingarstúlkur sínar drungalega
mynztruðum mjúkum þungum efn-
um niður á kálfa, dökkum sokkum
og flötum lakkskóm. Hárið streng-
ir háfi'n' afrLír'á' hrttikfe'a'í 'áitláhnúta,
sem skteyttir eru mjóum fléttum
á kvöldin, og augabrúnirnar eru
nærri plokkaðar af. „Stúlkurnar
eiga að líta óskaplega fátæklega út"
segir Bohan (Verðið á módelkjóln-
um frá honum er sem næst 125
þús. kr. ísl.).
Saint-Laurent ætlar dömunum
enn þunglamalegar víðar buxur
með síðum kápum eða síð fellinga-
pils með tvíhnepptum karlmanna-
jökkum. Aðeins Lanvin getur unað
þeim dálítið liðskrúðugt sígauna-
útlit — hálf- og alsítt. Síðdegis-
blaðið „París-presse" lýsti nýju lín-
unni þjóðræknislega: „Eins og
Eiffel-turninn — löng, mjó að of-
an, breið að neðan."
Nýjustu síddirnar höfðu þegar
í stað geysileg, en kannski ekki sem
þægilegustu, áhrif á tízkufréttarit-
arana 400, flest konur, sem komnar
voru víðsvegar að til að fylgjast
með sýningunum. Þær iðuðu á gull-
stólum sínum og þær sem ekki
voru svo heppnar að vera með
maxíkápur toguðu taugaóstyrkar í
pilsfaldana og reyndu að hylja hnén
með töskum og slæðum. „Pínupils-
ið er búið að vera" spáði fulltrúi
Lundúna-„Times", sem sjálf var
enn stuttklædd. „Það hverfur fljót-
Iega úr stórborgunum og sést ekki
nema úti á landi".
Og taugaóstyrkur ríkti einnig í
kaupendaskaranum sem kominn
var til Parísar úr öllum áttum
heims. Að vísu höfðu þeir gert sér
vonir um tízku, sem gerði nauð-
synlegt að endurnýja fataeignina
gjörsamlega, skrifaði rit bandaríska
fata- og vefnaðarvörukaupmanna.
„Women’s Wear" „en skyldu tízku-
kóngar Parísar samt ekki hafa geng
ið of langt að þessu sinni?"
Síðan í fyrri viku sveima inn-
kaupastjórar stórfyrirtækjanna
ruglaðir og æstir um aðalveitinga-
hús sitt í París, Relais Plaza- At-
hénée, þar sem hvert borð er fyrir
fram pantað frá morgni til kvölds
tízkuvikurnar tvær. Þeir pöntuðu
strax ákafir fyrstu kálfasíðu káp-
urnar og sendu skeyti með fyrirmæl
um um síkkun falda yfir heimshöf-
in, en þeir hika greinilega við að
gera pantanir á hálfsíðum midi-
kjólunum Ástæðan er einföld, seg-
ir Women's Wear: „Þeir sitja enn
uppi með heilmiklar birgðir mini-
kjóla."
Innkaupastjórarnir efast að vísu
ekki um að ungu stúlkurnar verði
fúsar og fijótar til að skipta úr
mini yfir í midi og maxi, — en
þeir óttast að mæðurnar hiki. „Þeg-
ar þær eru ekki vissar hvort sigrar,
sítt eða stutt, gæti svo farið að
fyrst um sinn kaupi þær bara ekki
neitt", barmaði innkaupastjóri New
Yorkar vöruhússins „Bonvit Teller"
sér.
Þvf síða pilsið hefur sínar tak-
markanir. Það gerir ungar konur
ekki eldri en þær eldri ekki ung-
legri, pilsfaldinn verður að laga og
færa til mjög einstaklingsbundið
fyrir hverja og eina og, eins og í
Parísarfötunum, verður pilsið að
vera úr mjúku og helzt þungu efni,
sem mun erfiðara er að nota í fjölda
framleiðslu; en eins og tízkukóng-
urinn Balmain sagði: „Úr stífu
efni verður midi-pilsið eins og
tankur".
Og sé pilsið síkkað alla leið
niður í maxi er hætt við miklum
óþægindum í leigubílum og rúllu-
stigum. Yfirhlaðin þungum skóm,
höttum og töskum skelfir nýja lín-
an jafnvel upphafsmenn sína. „Eg
vil ekki vera ábyrgur fyrir þeim
hryllingi sem mætir mér á götun-
um", lýsti Saint-Laurent yfir.
Þó er það svo, að frönsku tízku-
frömuðirnir fengu kjarkinn í mini
morðið einmitt af götunni Því
mánuðum saman hafa stúlkur í
maxikápum á götum vestrænna
höfuðborga sýnt þannig í verki að
þær væru reiðubúnar að taka á
móti síðu tízkunni, — tæpum fjór-
um árum eftir að Marc Bohan
hafði — að vísu árangurslaust í
byrjun — fyrstur orðið til að hylja
hnén og hálfa kálfana að nýju. Að
þessu sinni, spaugaði Parísarblaðið
„Figaro", hafa tízkufrömuðurnir
beygt sig fyrir vox populi — rödd
fólksins.
Eftir slaginn um pilsfaldinn ligg-
ur einn eftir á vígvellinum gjör-
sigraður í bili a.m.k., Courréges,
sem áður var mest dýrkaður allra,
sá er fyrstur kom með pínupilsið.
Hann bætti að vísu líka tíu senti-
metrum við pilsin sín, en tízku-
skrípalætin hans (nú m.a. handar-
stórt plastlok á buxnarassinum)
sem fyrir hálfu ári var enn fagnað
með lófataki og húrrahrópum, á nú
ekki lengur upp á pallborðið hjá
sérfræðingunum. „Þetta er eins og
á grímuballi," sagði forstöðukona
„Elle" Helene Lazareff, — „hann
ætti að reyna að fá sér vinnu í Ieik-
húsinu."
Tízkusérfræðingarnir spá síða
pilsinu gengi, einkum frá og með
næsta hausti. Þangað til geta hin
sönnu fórnardýr þess, nefnilega
karlmennirnir, notað tímann til að
venja sig af glápinu á læri og fót-
leggi, því að í framtíðinni munu
þeir verða að láta sér nægja að
gera sér mat úr velvöxnum öklum,
spá þeir sem telja sig vita.
Dag- viku- og
mánaóargjald
RAUOARARSTIG 31