Mánudagsblaðið - 23.02.1970, Qupperneq 3
Mánudagur 23. febrúar 1970
Mánucbgsblaðið
3
MYSTICUS:
JARÐARFÖRIN
Hann er formfastur maður og
virðulegur, hann Sigurður, forstjcri
SJeggjunnar h.f., hins kunna og
grunnmúraða vélainnflutningsfyr-
irtækis. Það er talið, að hann eigi
meiri hluta hlutabréfanna í félag-
inu og liann er talinn stórauðugur
maður. Og það leynir sér ekki, að
liann vill láta telja sig , liópi hinna
fremstu aristókrata hér á landi. í
kJæðaburði stælir hann enskan Iá-
varð eða það, sem almenningur
heldur að sé klæðaburður enskra
lávarða. Og hann reynir einnig
að stæla settlegt og virðulegt fas
enskra aristókrata. Þá er ekki vafi
á því, að hann lieldur, að þetta veki
almenna aðdáun og virðingu. Eg er
nú ekki alveg viss um, að svo sé.
Háðfuglarnir segja, að þetta sé allt
svona sprottið af minnimáttar-
kennd. Sigurður var bláfátækur í
æsku, en ruddi sér braut til auðs
og frama með dugnaði og reglu-
semi. Hann er svo fjarri því að
vera neinn aristókrat að uppruna
og ætterni. En það er honum við-
kværrit mál að vera minntur á sín
fátæku æskuár og það þorir enginn
að gera, sem þekkir. Við, undirtyll-
urnar á skrifstofunni hjá honum
erum dauðhræddir við hann, því
að hann er strangur húsbóndi. Það
cr þara J^egar við vitum, að hann er
hvefgi nálægur, að við þorum að
gér?l dálítið gys að honum. En það
ggjyr vqúiS hættulegur leikur
fékk hanri að reyna hann Brynjólf-
ur. Hanri er frábær hermikráka, og
einu sinni, þegar við vissum ekki
betur en að Sigurður forstjóri væri
að veiða lax norður í landi fór hann
að herma eftir húsbónda sínum.
Harin gekk um gólfið hægt og
virðulega eins og Sigurður var van-
ur að gera og hermdi eftir töktum
lians og málfari. En í því bili birtist
Sigúrður og hafði auðsjáanlega séð,
hvað um var að vera. Hann var
auðvitað sjokkeraður yfir því, að
nokkur skyldi dirfast að hæða það
skurðgoð á stalli, sem hann taldi
sjálfan sig vera. Og við sáum, að
undir niðri var hann trylltur af
bræði. Hann rak Brynjólf úr starfi
þarna á stundinni og sagði honum
að koma aldrei framar fyrir sín
augu. Okkur hinum á skrifstofunni
þótti þetta hart. Brynjólfur var
roskinn maður og búinn að vinna
á skrifstofunni hjá Sigurði í aldar-
fjórðung eða meira. Og hann var
bráðflinkur skrifstofumaður og á-
reiðanlegur í starfi. Og við vissum,
að hann mundi aldrei fyrirgefa
þetta. Brynjólfur var að eðlisfari á-
kaflega heiftrækinn og þykkjuþung
ur, hann átti eiginlega ómögulegt
með að fyrirgefa neinar mótgjörðir.
Brynjólfur er einn þeirra manna,
sem ég vildi sízt af öllum eiga að
óvinum. Og ekki bætti það úr, að
hann var ættaður úr Arnarfirðinum
og Arnfirðingar hafa löngum þótt
kunna ýmislegt fyrir sér. Hann
hafði stundum sagt við okkur í
hálfkæringi, að amma sín gamla
hefði kennt sér ýmislegt þegar
hann var ungur.
Brynjólfur sagði ekki neitt, þeg-
ar Sigurður rak hann úr vistinni:
En ég gleymi ekki þeim heiftaraug-
um, sem hann renndi til forstjórans
síns, þegar hann gekk út. Það var
morð í því augnaráði.
Það var talsverður urgur í okk-
ur á skrifstofunni fyrst eftir brott-
rekstur Brynjólfs. Það ympruðu
jafnvel sumir á því, að það þyrfri
að gera eitthvað í þessu máli. En
auðvitað þorðum við ekki að gera
neitt. Við vorum hræddir um okkar
eigin skinn. Það var að mörgu leyti
ekki sem verst að vinna hjá Sigurði.
Hann var að vísu strangur hús-
bóndi og heimtaði fullkomna stund
vísi og reglusemi af starfsfóiki
sínu. Allt varð að ganga eins og
eftir snúru, ekkert fór eins í taug-
arnar á Sigurði og það, sem truflaði
virðuleik og slétt yfirborð. En kaup
ið var gott, og að ýmsu leyti var
ekki sem verst að vinna þarna, þeg
ar maður fór að venjast andanum,
sem Sigurður hafði skapað í þessu
fyrirtæki sínu.
Það var eitthvað hálfu ári eftir
þetta, að hann Sigurður forstjóri
missti konuna sína, hana frú Sig-
urlaugu. Honum þótti víst ósköp
vænt um hana, enda hagaði hún
sér í einu og öllu eins og mikil-
mennið eiginmaðttr hennar vildi.
Hún lagaði sig í einu og öllu eftir
honum, tamdi sér hátterni yfirstétt-
arfrúar. Og ekki var neinn vafi á
því, að hún dýrkaði og tilbað mann
sinn, þótti hann guðum líkari en
mönnum. Hún mátti svo sem vera
honum þakklát, hún, sem var alin
upp í stórum barnahóp á rýrðarkoti
í Kjósinni. En sá uppruni var
gleymdur, alveg eins og uppruni
manns hennar. Auðmannalýðurinn
í Reykjavík er ekki að spyrja að
slíku, ef milljónirnar eru annars
vegar.
Auðvitað vildi Sigurður ekkert
til spara að gera útför konu sinnar
sem hátíðlegasta og virðulegasta.
við þá athöfn skyldi ríkja aristó-
kratískur virðuleiki, röð og regla,
þar skyldi ekki sjást neinn blettur
eða hrukka. Útför slíkrar höfðings-
konu skyldi vera samboðin þeim
eðli, sem hún var af. Til þess skyldi
Sleggjan h.f ekkert til spara.
Auðvitað fórum við starfsfólk
fyrirtækisins til útfararinnar, Qg
við vissum vel, í hvaða stellingar
við áttum að setja andlitin. í svip
okkar skyldi ríkja djúp og virðuleg
alvara, þegar kvödd skyldi ein
fremsta og göfugasta kona þessa
lands. Kirkjan var troðfull, og þar
mátti sjá flesta máttarstólpa þjóð-
félagsins og framámenn í athafna-
lífinu. Tónlistin var óvenjulega
íburðarmikil. Og ekki spillti ræða
prestsins. Hann fór hjartnæmum
orðum um hina miklu höfðingsfrú,
sem staðið hafði við hlið manns
síns, hins valinkunna og þjóðkunna
athafnamanns, átt verulegan þátt í
sigrum hans í lífinu og búið hon-
um yndislegt heimili, þar sem hann
gat notið hvíldar þegar hann kom
dauðþreytmr heim frá sínu fórn-
fúsa og óeigingjarna starfi fyrir
land og þjóð.
Svo leið að lokum athafnarinnar.
Átta líkmenn gengu að kistunni til
að bera hana út. Þeir voru allir
kjólklæddir og sumir þeirra voru
með orður. Eg sá, að þetta voru allt
saman framámenn í athafnalífinu.
Eg hugsaði með mér, að enginn
þeirra mundi verða metinn á minna
en 30—40 milljónir. Alvarlegir og
virðulegir tóku höfðingjarnir að
bera kistuna út. Sigurður gekk á
eftir með dóttur sinni og tengda-
syni, höfðinginn í sorg uppmálað-
ur. Þegar búið var að bera kisr-
una um það bil hálfa leiðina út
að dyrunum skeði það. Þetta skeði
svo leiftursnöggt að ég áttaði mig
í fyrstu ekki á því, hvað var að
gerast. Það kváðu við brak og
brestir. Líkmennirnir hnigu allir í
I senn til jarðar, og kistan skall í
gólfið og heyrðist brothljóð frá
henni. Hvað hafði skeð? Sigurður
starði á þetta eins og hann tryði
ekki sínum eigin augum, jafnvel
virðuleikinn hvarf af andliti hans
og hann varð eins og hræddur
drengur í framan. Sumir kirkju-
gestir ráku upp óp, en aðrir voru
eins og steini lostnir. Og þarna
lágu líkmennirnir á gólfinu um-
hverfis kistuna og bærðu ekki á
sér. Einhver hrópaði á lækni. Og
það kom í Ijós, að margir læknar
voru í kirkjunni. Þeir fóru að
stumra yfir líkmönnunum. Svo iitu
þeir alveg forviða hver framan í
annan. Sumir þeirra hristu höfuð-
in. Og einn þeirra kvað upp úr
með það, að líkmennirnir mundu
allir vera. látnir. Og það reyndist
vera svo. Þeir höfðu orðið bráð-
kvaddir allir á sama augnabliki,
átta talsins, fremsnt athafnamenn
þjóðarinnar. Þvílí,kt óbætanlegt
tjón! En hvernig í ósköpunum gat
þetta skeð? Það var skiljanlegt, að
einn hefði orðið bráðkvaddur, en
allir átta í einu? Nei, þetta var
ráðgáta, sem aldrei mundi leysast,
og enginn hefur fundið á þessu
neina skynsamlega skýringu. Sig-
urður hefur verið brotinn maður
síðan þetta skeði. Það er sök sér
að missa hana Sigurlaugu, en að
útförin skyldi enda með skandala
og ósköpum, það var ekki unnt að
bera. Þessi jarðarför, sem átti ao
verða útför ársins að öllum glæsi-
brag.
Það skyldi þá aldrei vera eitt-
hvað til í því, að þeir þarna í Arn-
arfirðinum viti jafnlangt nefi sínu?
Mysticus.
ORÐSEND/NC
til félagsmanna
Félagið hefur samið við eftirtalin þjónustufyrirtæki um
afslátt fyrir félagsmenn:
LUKAS-VERKSTÆÐIÐ, Suðurlandsbraut 10,
20% afsláttur af ljósastillingum,
20% afsláttur af sjálfsþjónustuaðstoðu,
10% afsláttur af bifreiðaskoðun.
DEKK H.F., Borgartúni 24.
10% afsláttur af allri viðgerðarvinnu,
5% afsláttur af sólningu.
BÓN- OG ÞVOTTASTÖÐIN, Sigtúni 3,
10% afsláttur af allri þjónustu.
HJÓLBARÐAVIÐGERÐIN, Reykjavikurv. 56, Hafnarfirði
10% afsláttur af allri viðgerðarvinnu,
nema sólningu og suðu.
GÚMMIVIÐGERÐIN, Hafnargötu 86, Keflavik
10% afsláttur af allri viðgerðarvinnu,
nema sólningu og suðu.
(Opið alla virka daga frá 8-21 og sunnu-
daga 8-18).
BIFREIÐAÞJÓNUSTA GARÐARS ÓLAFSSONAR
Suðurlandsvegi 5. — Hveragerði
10% afsláttur af allri viðgerðarvinnu,
nema sólningu og suðu.
HJÓLBARÐAVIÐGERÐIN H.F. Suðurgtitu -41 Akranesi
10% afsláttur af allri viðgerðarvinnu,
nenia sólningu og suðu.
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTAN Glerárgötu 34, Akureyri,
10% afsláttur af allri viðgerðarvinnu,
nema sólningu og suðu.
BÍLALEIGAN VEGALEIÐIR, Hverfisgötu 103,
15% afsláttur af þjónustu
NÝJA BIFREIÐALEIGAN, Ilafnarbakkanum, Akureyri,
15% afsláttur af þjónustu.
BÍLALEIGAN BRAUT, Hringbraut 93B Keflavík,
15% afsláttur af þjónustu.
Munið að afsláttur eða iinnur fyrirgreiðsla á vegum F.Í.B.
fæst eingiingu með framvísun félagsskírteinis hverju sinni.
Félagsskírteini 1970 gilda frá 1. jan. 1970 til 1. febr. 1971.
Þeir félagsmenn sem ekki hafa fengið fréttabréf F.Í.B.
(sem út kom um síðustu mánaðamót) góðfúsiega látið
skrifstofuna vita í símum 33614 eða 38355.
FÉLAG ÍSLENZKRA BIFREIÐAEIGENDA.
Eiríksgötu 5.
UPPABUINN EÐA I SLOPP
EKKERT JAFNAST Á VIÐ TOP !
TOP tóbah
. er
ttpp topp tobak
fra
CAMEL
verhsmiðjunum
TOP TOBAK I VINDLINGANA
TOP TÓBAK í PÍPUNA