Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 09.03.1970, Blaðsíða 4

Mánudagsblaðið - 09.03.1970, Blaðsíða 4
4 Mánudagsblaðið Mánudagur 9. marz 1970 Ritstjórl og ábyrgðarmaður: Aguar Bogason. Slmi ritstjómar: 13496- — Auglýsingasimi: 13496. Verð í lausasölu kr. 25,00. — Áskriftir ekki teknar. Prentsmiðja Þjóðviljans. Prófkjör eða gamanmál Prófkjör Sjálfstæðisflokksins hefur vakið mikla athygli kjós- enda hans. Þetta er í fyrsta skipti, sem hinn almenni kjósandi hefur fengið nokkru að ráða um val frambjóðenda og hyggja margir á að nýta sér þessa nýung. Það kann að hafa verið ofsagt hér í síðasta blaði, að fáir væru til nefndir, sem væru undir þrítugu. Stafaði það af vanþekkingu og athugunarleysi. Hinsvegar er þó hér farið í þær öfgar, sem gera prófkosning- arnar að einskonar viðrini. Flokkurinn hefur farið út í hreina vitleysu er hann tilnefndi unglinga, rösklega tvítuga, nem- endur, hljómlistarmenn og annan unglingalýð, sem mögulega frambjóðendur eða fulltrúa. Sá tækniski möguleiki er fyrir hendi, að einhver þessara unglinga næði einhverskonar fylgi og yrði þá, samkvæmt leikreglum, að koma honum á listann. Þetta er fjarstæða og flokknum hollast, að hafa ekki borgar- málin að fíflskaparmálum eða glettingarmálum almennt. Ungir menn eiga að hafa hlutdeild í flokknum. En algjörlega reynslulausir krakkar, i skóla eða vart komnir yfir tvítugt eiga þar enga ábyrgðarstöðu að hafa. 011u öðru máli skiptir um menn, sem náð hafa t.d. 25 ára aldri eða árum þar yfir. Flokks stjórnin virðist hafa farið úr einum öfgunum í aðrar. Margir þeir, sem skipa prófkjörslistana hvort heldur í Reykjavík eða Hafnarfirði, eiga þangað ekki erindi enn, og ætti því að vera tómt mál um að tala, að hleypa þeim'lnn rhéðal fólks, sem al- mennir kjósendur eiga að velja um. Það er meiri alvara en svo í málum borgarinnar, að svpaa ggman|eiki|iverði þolaðir og mætti flokkurinn vel athuga, að nóg er óánægjan, þótt for- ustan hafi ekki hana að gamanmáli. „Innrás" Japana á meginland Asíu Minnimáttarkennd — Auðævi — Kyn- órar — llla liðnir ferðalangar Japönum hefur tekizt að selja heiminum næstum allt frá transis- tor-radíóum upp í heilar stálverk- smiðjum, allt nema sjálfa sig. Ein- hverskonar stormur — „hötum Japana" — eins og þeir kalla það í Tókíó, hefur verið að myndast í Asíu, jafnframt því, sem stækk- andi fylkingar japanskra kaupsýslu- manna og túrista hafa vaðið yfir álfuna. „Einu sinni var það ljóti Ameríkaninn, sem hér bar mest á", segir japanskur blaðamaður í Ban- kok, „nú er það Ijóti Japaninn". Og allstaðar sem hann fer fylgja honum mútur, baktjaldagreiðslur, dumping-viðskiptakerfið, golf og kynóravitleysur. Japanir eru að framleiða stál í Malasíu, bora eftir olíu undan strönt Indónesíu, framleiða bif- reiðar í Filippseyjum og setja sam- an sjónvarpstæki í Taivan. Hálf milljón Honda, Yamaha og Suzuki mótorhjóla þeytast um götur Suð- ur-Víetnam, og lítil Sony radíó eru allsstaðar. „Fólkinu finnst að það hafi orðið fyrir innrás", segir Bunchana Atthakor, viðskiptamála- ráðherra Thailands, „en í þetta skipti viðskiptalega". Önnur lönd Asíu eru óróleg og vegna hraðans, stærðarinnar og kostnaðar innrás- arinnar. Þau hafa tilhneigingar til þess að gera lítið úr eða skipta sér ekki af vaxandi hjálp Japans á þessum svæðum. Tókíó-stjórnin greiðir 1,5 billjónir dollara í stríðs- skaðabætur og hefur lagt fram 220 milljónir dollara í þróunarbanka Asíu og hefur lánað Wórld Bank 100 milljónir dollara. Erlend að- stoð Japans, en mestur hluti henn- ar gengur til Asíulanda, nemur 1,4 billjónum dollara á þessu ári og ganga þeir næst aðstoð Bandaríkj- anna, sem nemur 1,8 billjónum. Á síðasta ári seldu Japanir bíla, vöru- bifreiðir og vélakost fyrir 4,6 bill- ónir dollara til Austur Asíu landa, en eyddu aðeins hálfri þeirri upp- hæð til kaupa á timbri, maís og öðrum hráefnum. Hinum heitu og sofandi borgum Asíu finnst, að Japanir hafi fært hið hraða og óróasama Iíf Tókíóar til sín og það er að kæfa þá. „Eng- inn getur keppt við japanskan sölu- mann", segir kínverskur kaupsýslu- maður í Taivan", ef þeir klára ekki að ræða kaupmennsku á daginn, þa ræða þeir viðskipti á nóttinni". Malaiskur kaupsýslumaður kvartar biturlega — „Alltaf þegar við seg,- um Japönum, að verðið hjá þeim sé ekki rétt, þá hafa þeir skyndi- lega gleymt enskunni sinni og Iát- ast ekkert skilja". Stundum kemur fyrir, að þessi viðbrögð eru ávöxtur leiðinda reynslu; oftar þó sýna þau einungis öfund í garð japansks dugnaðar og skipulags. Mitsui, geysilega stórt japanskt firma „er liprara að sanka ali sér upplýsingum en CIA", seg- ir einn stjórnarfulltrúi í Singapore. „Þeir senda 20 menn til að at- huga fjárfestingar. Þeir Iesa allt og skrifa allt niður — jafnvel skopið, sem sagt er á fundunum". Japanir eru frægir fyrir það, að taka á sig stórtap til þess að vinna markaði — sem er ástæðan fyrir því, að Framhald á 5. síðu Franco — bjargvættur gymnga •’.ríwfc..... • j .:tuT — Óvænt sönnunargögn frá USA - Barg 60 þúsundum Kaupsýslumenn eða þjófastétt Kaupsýslumenn hafa undanfarnar vikur setið undir einni svívirðilegustu árás, sem um getur í sögu þeirra. Blað komm- únista, Þjóðviljinn, hefur beinlínis og grímulaust kallað þorra þeirra þjófa og yfirgangsmenn, sem til alls sé trúandi. Til þessa hafa kaupmenn ekki verðskuldað slíkt aðkast. ( heiid er þetta heiðarleg stétt, sem á margan hátt hefur orðið fyrir ómaklegum árásum. Innan hennar eru ekki aðeins kunnir held- ur vel virtir borgarar, sem ekki mega vamm sitt vita. Þjóðvilj- inn fullyrðir, dag eftir dag, að meirihluti þessa fólks séu þjófar eða braskarar og skiptir litlu í daglegu máli hvor nafngiftin er við höfð. Innan kaupsýslumanna eru margir kommúnistar, sem veita stórum fyrirtækjum forstöðu og „græða á tá og fingri", enda flestir umboðsmenn fyrir ríkisfyrirtæki í ýmsum kommúnistaríkjum. Má vera, að Þjóðviljinn eigi við þá, þegar hann talar um „fáar heiðarlegar undantekningar" frá þjófa- hópnum. Menn, sem stela hvort heldur söluskatti, eins og blaðið fullyrðir eða öðru, eru þjófar. Það er undarlegt, ef kaupsýslumenn ætla að sitja þegjandi undir þessum ásök- unum. Ef þeir meta eigið mannorð ekki meira en svo, þá er þeim mátulegt, að allur almenningur trúi ásökunum blaðsins. Ef þeir, hinsvegar, hafa snefil af sjálfsvirðingu, þá ber þeim, að krefja blaðið sagna, ella refsa því og flokknum, eins og þeim þykir hentast. Það er aðeins hægt að refsa kommum á einn hátt, og kaupsýslumenn vita fullvel hvaða ráð eru þeim handhægust. Það er nú aldarfjórðungur síðan sex miljómjum gyðinga var útrýmt í fangabúðiuim nazista á stríðsárunum. Þetta er sikoðun gyðin-ga sjálfra, en dregin mjögí efa af síðari tíma mönmuim. Enn skyggir þessi atburður á mann- orð manna eins og t.d. Píusar páfa XII, FranMins D. Roose- velts og annarra heimsleiðtoga þeirra tíma. Nú er svo komið að vellmetinn raibbi í Bandaríkjun- um hefur birt undraverðar sann- anir um það, að tugum þúsunda gyðinga hafi persónulega verið bjargað af mjög ólíiklegum bjarg- vætti, sjálfum Generalliissimo Francisco Franco, sem í mörg- um öðrum tilfellum var allná- inn samstarfsmaður Hitlers. „Ég hefi fuillkomnar sannanir, að Franco bjargaði meira en 60.060 Gyðingum í heimsstyrjöldinni síðari“, segir Chaim Lipschitz, rabbí frá Brooikilyn „og enn eru rannsoknir mínar eikiki fullkomn- ar“. Til að færa sönnur á miáfl sitt ræddi Lipsohitz við leiðtoga gyðinga í Madrid og Baroelona, rannsakaði skjöl spönsku stjóm- arinnar frá styrjaldarárunum, og las gaumgaeifilega slkýrslur frví stríðsárunum. „Sögumar um það hvemig Franco gekk úr vegi til að bjarga lífi gyðinga eru stórkostlegar“ segdr hann. Ein af dramatískari sögum um hvem- ig Franco fókk Hitler til að miakka rétt er um upphri-ngingu Francos tiil Hitlers 8. jan. 1944 Leiðtogi Spánar krafðist þess, að 1.242 gyðingar, sem útrýmia átti í Bergen-Belsen fangabúðunum, yrðu látnir lausir til Spán-ar. — Mánuði seinna komu gyðingam- ir, sem margir voru grfskir, yfir spönsku landaimærin og Franco tók persónulegia á móti þeim. „Þegar þeir sögðu Franco, að nazistar hefðu gert eigur þeirra upptækar”, segir Lipschitz „hringdi hann aftur í Hitler og kom því til leiðar að eignum þeirra var skilað“- Lipschitz prestur segir, að umhyggja Francos fyrir júðum sé lengra sótt en til styrjaildar- áranna. 1 október 1923, þegar Franco var 30 ára og yfirmað- ur spönsku útlendingahersveitar- innar í Marokkó, þá rigndi yfir spönsku stjómina kröfUm frá honum um að hjálpa þúsunduim af Sepharic-júðum — afkom- endum spánskra gyðinga og portúgalskra, sem flutt höfðu til Marokkó. Vegna þeirrar áherzlu, sem Franco lagði þá á málefni gyðinga, þá áfcvað spánsfca stjómin árið 1924, að ailir Seph- ardiskir júðar ættu rétt á spönskum borgararétti ef þeir æs-ktu þess. Sem fyrirsvarsmaður spönsku stjórnarinnar á sitríðsárunum notfærði Franco sér þessi lög til að gefa gyðingum þeim, sem ótt- uðust urn líf sitt s-pönsk vega- bréf, ti-1 að komast frá Bvrópu og Norður-Afríku. Flestir notuðu pappírana sína til að flýja bein- ustu leið til Bandarikjanna, S- Aimerfku eða Palestínu, þótt sumir þeirra færu um Spán á leið sinni til þessarra landa. Ekki voru þó allir þeir gyð- ingar, sem þjargað var, af Seph- ardiskum kynþætti, segir Lipsch- itz, sem er sannfærður um að Franco hafi reynt að bjarga öll- um júðum án tillits til forfeðra þeirra. Franco skipaði sendi- ráðum sínum í Evrópu, að spyrja einskis, þegar Gyðingar sóttuum vegab-réf, auk þess, sem spönsk- um laindiamiæravörðum var fyrir- skipað að hleyp-a Gyðingum yfir landamærin tafairlaust. Leiðtogar Gyðinga á Spáni samþykkja niðurstöður Lipschitz „Það voru margir Rosenbergs, Mendeibaums og Meyersons, sem fenigu spönsk vegabréf" segir yfir- prestur júða á Spáni, Carlos Ben- a-rroch, sem ieggur áherzlu á, að þeir hafi ekki aJitir verið afSep- hardískum uppruna Og Carios Tayvy, ritari Gyðingasamfélags- ins í Barcö'.ona minnist þess, hvernig þúsundir af ræfilslega klæddum júðum hafi komið yfir landamærin í Pyrenea-fjölluan, sem skilja miRi Frakklands og Spánair. „Enginn þeirra“, segir Talvy, „hafði pappíra”. Hversvegna hafði Franco svona miklar áhyggjur vegma júðamna? Lipschitz sjállfur er ekki viss. Það gæti verið, segir hann, vegna hins gaimíla, en ósannaða orð- róms, að gyðingaib-lóð renni í æð- um Francos, frá forfeðruim móð- ur hans. Bða það getur líkaver- ið að hann hafi haft áhuga á að bæta fyrir hinn skyndálega brottrekstur gyðinga frá Spáni 1492. Ef til vill réði mannúðin ein þar um. Hver sem ástæðan kann að vera, segir Lipschitz, — „þá er tími til kominn, að ein- hver þaikkaði Franco“.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.