Tíminn - 11.08.1977, Page 2
2
Fimmtudagur 11. ágúst 1977
Myndin sýnir litinn hluta hafnarsvæöisins
þarna tæplega 100 löxum. En
eins og áöur segir, er veiðin aö
glæðast aftur, vatniö aö aukast
og Utlit hiö bezta.
Svona á aö
veiða lax!
Svo er það veiöisagan i dag:
Konu nokkra, sem aldrei haföi
veitt lax og vissi raunar heldur
ekki, hvernig átti aö halda á
stöng, langaði þó þessi ósköp til
að prófa. Hún var stödd viö
smáá i Hrútafiröi, sem ekki var
þó mikill lax i, nema i einum
sérstökum hyl. Þar ætlaði hún
að reyna og fékk karlmann einn,
vanan laxveiðum, til að kenna
sér.
— Svona átt þú aö standa,
svona áttu að halda á stönginni
og svona áttu aö kasta, sagði
kennarinn rogginn. Konan,
nemandinn, fór aö sjálfsögðu
eftir öllu, sem kennari hennar
sagði. Flaug nú linan út i
fallegan boga og var varla fyrr
komin i vatnið, en lax var kom-
inn á. Gerðist þá kennarinn hinn
æstastieins og laxveiðimönnum
er tamt og byrjaöi aö fást við
laxinn og steingleymdi nemand-
anum, sem stóö og fylgdist með.
Hann á góða stund i striöi við
laxinn og eftir nokkrar tilfær-
ingar, kemur hann honum þó á
land. Reyndist þetta vera hin
myndarlegasta 12 punda
hrygna. Rennur nú mesti æsing-
urinn af „kennaranum”, sem
skyndilega man eftir nemanda
sinum, snýr sér að konunni og
segir hróðugur: Svona á aö
veiða lax!
Þvi miður fékk konan ekki aö
snerta veiðistöngina eftir þetta,
og kom heim án þess að hafa
lært nokkuð um laxveiði, eöa
hvað?
-gébé-
Siðast þegar minnzt var á
Laxá i Aðaldal i Veiöihorninu
urðu þau mistök, að talið var að
veiöin i allri ánni hefði verið
tekin með, þegar tölur voru
teknar frá veiðihúsinu að Laxa-
mýri og i Arnesi. Þetta er að
sjálfsögðu ekki rétt, eins og
þeir, sem til þekkja vita.
Ain skiptist f mörg veiði-
svæði og veiðibækur eru færöar
á a.m.k. fjórum stöðum, sem
eru: Veiðihúsið við Laxamýri,
Veiðihúsið i Arnesi, Múlasvæð-
iö, Laxárvirkjun og Syðra-Fjall.
Þvi miöur gengur ekki of vel að
fá tölur frá þessum stöðum, til
þess að fá heildarmynd af veið-
inni i ánni i sumar og eru það
þvi vinsamleg tilmæli Veiöi-
hornsins, að þeir, sem hér eiga
hlut að máli, slái á þráðinn og
láti vita um veiðina. Þetta á þó
ekki við um veiöihúsin við
Laxamýri og Arnes, þangað
hefur yfirleitt veriö auövelt að
ná.
Daglega nýjar göngur
i Laxá i Kjós
— Laxveiöin er aftur að byrja
aö glæöast, en að undanförnu
hefur verið of bjart til þess að
kallast mætti að veiðin væri
mjög góð, sagði Troels Bendt-
sen veiðivörður i veiðihúsinu við
Laxá i Kjós i gær. Troels kvaö
meiri lax vera i ánni en á sama
tima i fyrra og að daglega
kæmu nýjar laxagöngur. Þá er
einnig farið að bera nokkuö á
sjóbirtingi og hefur t.d. tæplega
sex punda sjóbirtingur veiðzt i
sumar. Vatnið er aftur að auk-
ast i ánni eftir hitana og þurrk-
ana aö undanförnu.
Ekki hafði Troels handbærar
tölur um fjölda laxa, sem veiðzt
hafa i sumar, en kvað töluna
vera rétt undir þvi sem var á
sama tima i fyrra og munar
Útlit fyrir
metveiði i Selá
— Laxveiðin gengur mjög vel
i Selá i Vopnafirði og að sögn
Þorsteins Þorgeirssonar, Nýp-
um, var laxatalan orðin um 780 i
gær, en þaö er hvorki meira né
minna en um þrjú hundruð löx-
um fleira en á sama tima i
fyrra, skv. bókum Veiöihorns-
ins. Veiðinni i Selá lýkur ekki
fyrr en 15. september n.k. svo að
mikiö er enn hægt að veiða. Að
sögn Þorsteins er nóg af laxi i
ánni, en að undanförnu hefur
farið aö bera nokkuð á smærri
laxi, en það eru alltaf nokkrir
stórir innan um. Sá stærsti, sem
veiözt hefur i Selá i sumar,
reyndist vera 21 pund.
Sumarið 1975 veiddust alls 711
laxar i Selá i Vopnafirði, og
siðast liöiö sumar urðu þeir 845
sem landað var, og var
meöalþungi þeirra 6,3 pund.
Samkvæmt útlitinu núna, er
ekki að efa, að laxatalan nær
þeirri sömu og i fyrra, þ.e. 845
löxum og jafnvel nokkru betur
en þaö.
Rosaveiði í
Miðf jarðará
— Héöan er allt ljómandi gott
að frétta og óhætt að segja, að
rosaveiði hafi verið aö undan-
förnu, sagði Una ráðskona i
veiðihúsinu við Miðfjarðará i
gær og var hin hressasta. Ekki
hafði hún nákvæma tölu yfir
fjölda laxa, sem veiðzt hafa i
sumar, en kvaðst telja að hún
væri komin hátt i fimmtán
hundruð.
Sem dæmi um hina góöu veiði
i Miöfjaröará aö undanförnu
sagði Una, að Reykvikingar,
sem nýlega voru við veiði i þrjá
daga og veiddu á niu stangir,
hefðu fengið alls 288 laxa. Þar af
veiddust 122 laxar á aöeins ein-
um degi, nánar tiltekið frá kl. 16
s.l. sunnudag til hádegis á
mánudag. Þyngd þessara laxa
er frá sex til ellefu pund, en
mikið bar á 8-9 punda löxum.
Fremur litiö vatn er i
Miöfjarðará þessa dagana,
enda hefur ekki rignt þar um
tima. 1 gær var ágætisveiðiveö-
ur við ána, skýjaö og svo til
kyrrt.
Mikið vatn í
Laxá í Aðaldal
Að sögn Helgu Halldórsdóttur,
ráðskonu i veiðihúsinu við
Laxamýri i gær er mikiö vatn i
ánni þessa dagana og hún frek-
ar köld. Veiöin hefur þvi dottið
heldur niöur siöustu þrjá daga,
en yfirieitt hefur veiðin verið
mjög góð i allt sumar og kvað
Helga um 1550 laxa vera komna
á land.
bátar
veiðihornið
BSRB:
Fyrsti sáttafundur
eftir nokkra dasa
Hvað má
hafa í tek
gébé Reykjavik — Við búumst við
að sáttasemjari rfkisins muni
boöa til fyrsta sáttafundarins um
miöjan þennan mánuö, sagði
Baldur Kristinsson hjá Bandalagi
starlsmanna ríkis og bæjar i gær.
Scm kunnugt er, var samninga-
viöræðum frestaö þangaö til nú,
m.a. vegna sumarleyfa. Samn-
ingar opinberra starfsmanna
runnu út þann 1. iúli s.l.
— Við höfum verið og erum
reyndar enn, ásamt fulltrúum
fjármálaráðuneytis, að útbúa
skýrslu um launakjör starfs-
manna rikisins annars vegar og
einkarekstrar hins vegar. Við
viljum með þessari skýrslu sýna
fram á, hvernig opinberir
starfsmenn eru launaðir i saman-
burði við aðrar sambærilegar
stéttir, sagði Baldur. Einnig hef-
ur verið unniö aö ýmsum útreikn-
ingum varðandi væntanlega
samningagerð hjá Hagstofu
íslands, en allt er þetta gert til að
flýta sem mest fyrir viðræðunum.
tekjutryg
2 bátar við
kolmunnaleit
gébé Reykjavik — Vestmanna-
eyjabátarnir tveir, Bylgjan og
Bjarnarey, eru aö nýju komnir á
kolmunnamiöin fyrir austan land.
Eins og skýrt var frá I Timanum
nýJega, tóku áhafnir bátanna sér
þjóöhátiöarfri um siöustu helgi og
þvi var enginn viö kolmunnaveið-
ar i tæpa viku.
Bátarnir höfðu i gærdag verið
rúman sólarhring á miðunum,
þar sem þeir höfðu verið við veið-
ar áður, þ.e. á Héraðsflóadýpi, en
engan kolmunna fundið þrátt
fyrir itrekaöa leit. Samkvæmt
upplýsingum frá Birni Dag-
bjartssyni, forstjóra
Rannsóknarstofnunar fiskiðnað-
arins, höfðu skipstjórar bátanna
ákveöið að reyna leit að kol-
munna nokkru sunnar og voru á
leið þangað er siðast fréttist i
gær.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá, eru þessir tveir bátar að gera
tilraunir með svokallað tveggja
báta troll. Reyndist það of þungt
svo að þvi var breytt og þaí
minnkað. Engin reynsla er komin
á þessa breytingu enn sem komiC
er, þar sem enginn kolmunni hef
ur fundist enn.
Ellilifeyrir fyrir einstakling er kr. 30.497 á mánuði
JH-Reykjavik. — Hluti þess sam-
komulags, sem stuðlaði að lausn
kjaradeilunnar I sumar ogkjara-
samningum þeim, sem undir-
ritaðir voru 22. júni, fjallaöi um
Ufeyrismál og hét rlkisstjórnin aö
beita sér fyrir þvi, að tekin yrði
upp sérstök heimilisuppbót á llf-
eyri allra einhleypra einstakl-
inga, sem búa einir á eigin
vegum.
1 framhaldi af þessu fól heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytið tryggingarráöi að gera til-
lögur um úthlutun slikra bóta. Að
fengnu áliti þess hefur forseti Is-
lands, samkvæmt tillögu heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra, sett bráðabirgðalög um
þetta efni.
Meginákvæði bráðabirgðalag-
anna eru þessi:
Einhleypyr maður, sem nýtur
óskertrar uppbótar, það er að
segja tekjutryggingar, og er einn
um heimilisrekstur, án þess að
njóta fjárhagslegs hagræðis af
sambýli eða samlögum við aðra
um húsnæði eöa fæði, skal að auki
fá heimilisuppbót, sem nemur tiu
þúsund krónum á mánuöi. Eigi
hann réttá skertri tekjutryggingu
lækkar heimilisuppbótin I sama
Atvinnulausum |
fækkar
Norræn menningar-
vika á Norðurlandi
Kás-Reykjavik. Samkvæmt nýj-
um tölum, frá 31. júli, yfir fjölda
atvinnulausra á öllu landinu, þá
hefur þeim fækkaö nokkuð frá
lokum júnimánaðar. Atvinnu-
lausir eru samtais 133 á landinu,
en voru á sama tima i júlilok 172.
Þannig að þeim hefur fækkað um
nær 40.
Þar af eru 107 manns á atvinnu-
leysisskrá i kaupstöðum, en 126 i
fyrra mánuði. 1 kauptúnum með
1000 ibúa eru aöeins 8 á atvinnu-
leysisskrá miöaö viö 19 i fyrra
mánuði.
Flestir eru atvinnulausir i
Reykjavik, eða nær helmingur 64,
miöaö við 81 I júni, þar af eru 33
konur.
I kaupstöðum og stærri
kauptúnum hefur atvinnuleysi
minnkaö nokkuö, en stendur hins
vegar I stað i minni kauptúnum.
KS-Akureyri. — Norræn
m enningarvika hefst á Norður-
landi á laugardaginn, og verður
hún sett þann dag i iþrótta-
skemmunni á Akureyri. Henni
lýkur á sama stað laugardaginn
20. ágúst með jasshátiö þar sem
finnskirog sænskir tónlistarmenn
koma fram, ásamt Ingimar
Eydal og félögum hans.
Allir kaupstaðir á Norðurlandi,
nema Sauðárkróksbær, taka þátt
i þessari menningarviku, hver
með sinum hætti, og hefur verið
prentuð dagskrá, sem dreift verð-
ur þar, eftir þvi sem viö á.
Listafólkið sem er frá flestum
Norðurlandanna, mun heimsækja
Akureyri og aðra bæi, sem þátt
taka I norrænu menningarvik-
unni, auk islenzkra listamanna.
Málverkasýning veröur I iðn-
skólanum á Akureyri, þar sem
finnskir listamenn sýna verk sin.
auk fjölmargra norðlenzkra list-
málara. Alþýðuleikhúsið á Akur-
eyri mun sýna Skollaleik eftir
Böðvar Guðmundsson, danski
leikflokkurinn Smiðjan skemmtir
með leik og söng og pianóleikar-
arnir Philip Jenkins og Guðný
Guðmundsdóttir leika norræn lög.
Norræni menningarsjóðurinn
hefur lagt fram nokkurt fé til
styrktar þessari menningarviku,
en framkvæmdastjóri hennar er
Ólafur Rafn Jónsson. Að öðru
leyti sjá deildir Norrænu félag-
anna um framkvæmdina á hverj-
um stað fyrir sig. Formaður Nor-
ræna félagsins á Akureyri er
Bárður Halldórsson mennta-
skólakennari.