Tíminn - 11.08.1977, Side 7
Fimmtudagur 11. ágúst 1977
7
ur i brezka sjónvarpinu)
heitir Bonita Langford, og er
kölluð Bonnie. t bókunum
um Just heitir hún Violet
Elizabeth Bott, en þættirnir
heita i sjónvarpinu: „Just
William”. Við sjáum hérna
myndir af Bonnie þar sem
hún er að leika f þessum
þáttum. A annarri myndinni
situr hún hjá brúðunum sin-
um, og er sjálf fin eins og
dúkka, en svo er smámynd
af henni, þar sem Just hefur
fengið hana til að leika við
sig — og á sinn sérstaka hátt,
og þar eru mestu finheitin
farin af henni. Hún er úfin og
óhrein og kjóllinn verður
sjálfsagt aldrei aftur hvitur!
— en hún virðist hafa
skemmt sér vel. Bonita
Langford er ekki nema 12
ára, en hún hefur skotizt upp
á stjörnuhimininn á mjög
stuttum tima. Hún þykir
hafa mjög mikla hæfileika,
bæði sem leikkona og fyrir-
sæta. Ljósmyndarar segja
að það sé sérstaklega gaman
að taka af henni myndir. Hún
hefur gaman af fötum, og
heitir fatahönnuður hennar
Brian Castle, þvi að hún hef-
ur sérstakan tizkuteiknara
eins og stórstjörnurnar! Viö
sjáum hér sýnishom úr fata-
skapnum hennar Bonnie.
Fínu kjólarnir eru eftir Bri-
an Castle, en svörtu fötin
með perlusaumuðu fiðrild-
um eru saumuð hjá klæö-
skera Liberace pianóleikara,
sem alltaf kemur fram i
perlusaumuðum fötum.
Hviti kúrekabúningurinn er
frá Texas og fylgir honum ó-
svikinn „stetson hattur” frá
Fort Worth. Stjörnurnar eru
giitrandi á hvitum bdningn-
um. — Ég hugsa að hann sé
ekki mjög hentugur I hesta-
mennsku, en hann er óneit-
anlega fallegur, sagöi
Bonnie, og sveifiaði fótunum
upp i stólinn um leið og sljós-
myndarinn smellti af.
í spegli tímans
Við skuluml
skiptast á
að halda
vörð I
Ef hann reynir eitthvað,
ætla ég að taka á móti
honum með vopnum og
iræður hér engu um!-------
Tíma-
spurningin
Hvað er þér efst i huga á
afmælisári KRON?
Asta Kjartansdóttir, KRON,
Tunguvegi: — Ja, ég óska KRON
alls hins bezta i framtiðinni og að
það megi dafna sem bezt.
Berglind Gestsdóttir, KRON,
Tunguvegi: — Ég er aðeins búin
að vinna stutt hjá KRON, en llkar
starfið vel. Hér er mikið verzlað
og ég vona bara að verzlunum
KRON komi til með að ganga
jafnvel i framtiðinni.
Hólmfriöur Kristins dóttir,
KRON, Snorrabraut: — Já, ég
veit varla hvað segja skal, ég er
svo tilnýbyrjuð hjá KRON og lik-
ar starfið mjög vel. Hér er mikið
verzlað hjá okkur.
Sigriöur Jónsdóttir, KRON,
Snorrabraut: — Mér likar vel að
starfa hér og ég óska KRON bara
til hamingju með 40 ára afmælið.
Björg Guðmundsdóttir, KRON,
Snorrabraut: — Ég óska þeim
alls hins bezta i framtiðinni.