Tíminn - 11.08.1977, Síða 8

Tíminn - 11.08.1977, Síða 8
8 Fimmtudagur 11. ágúst 1977 var aílavonin, þvi að þá var súluungi seldur i Vestmanna- eyjum á kr. 0.50. Árið 1939 voru súluungar seldir á kr. 5.00 Ein ástæðan fyrir þvi aðHjalti Jóns- son flytur til Hafna, er að þaðan gat hann betur nytjað Eldey. Eldeyjarferðir hafa siður en svo verið allar gamanferðir, hvort sem þar eiga i hlut harð- fengir dugnaðarmenn úr Eyjum eða Höfnum. Rétt er að geta þess, að til súlna var farið úr Eyjum i lok ágúst og aðeins „sleginn” súlu-imgi. Um þetta leyti er þriðjungur unga floginn, þriðjungur ófullgerður (skerl- ingar) en þriðjungur nýttur til matar (sleginn).Kjötið var étið. Hausar sviðnir. tJr lifur gerð lifrarpylsa. Paran brædd til við- bitseða smyrsla. Hamur og inn- yfli sett saman við'eldivið og nýtt sem slikur. Þannig voru súluungar Eyjaskeggjum mikl- ar nytjar. Siðasta Eldeyjarferð Vest- mannaeyinga 1939 varð þeim sem i þeirri ferð voru litt til gamans. Ferð Hafnarmanna 1898 á tveim skiþum til Eldeyjar varð mikil hrakningaför. Fleiri ferðir til aðdrátta úr Eldey munu hafa boðið upp á grátt gaman. I feröabók þeirra Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar (1752-1757) er tekið fram um Eldey: „Fyrrum hafa menn haft reipstiga upp á Eldey, og sjástenn naglarmiklirf berginu sem stigarnir hafa verið festir við.” Stefán Gislason annar bræðr- anna sem klifu Eldey með Hjalta Jónssyni 1894 sagði mér ýtarlega frá bjarggöngu þeirra félaga og tók þá fram, að þeir hefðu rekizt á mjög ryðgaða bolta í berginu. Nytjar Eldeyjar og Fugla- skerja við Reykjanes voru tald- ar liggja undir Hafnarhrepp. Þegar þeir þremenningar undirbjuggu Eldeyjarför sina sóttu þeir um leyfi til hrepps- nefndar Hafnarhrepps. Ég hygg að blaðamaður sá, er skráði viðtalið við Agnar hafi misskiliö hann, er hann telur smokkfisk vera uppáhaldsrétt hafsúlunnar. Hún eins og kunn- ugt er stingur sér af flugi eftir fiski, sem húnsér nærri yfir- borði sjávar, svo sem síld, loðnu, smáufsa o. s. frv. Þegar komið er i súlubreiðu verður mjög vartvið kjörrétti súlunnar og er sild mest áberandi. Rétt mun það hjá dr. Sigurði Þórarinssyni, aö: ,,.... úthafið mun granda henni með kröftug- um faömlögum sinum.” Við þetta eyðingarafler réttað bæta jarðskjálfta. 1 þau skípti sem ég hefi komið aðEldey hefurmérvirzthún við sjávarborð gerð úr harðara efni en ofar. Hin klauflaga flá til noröausturs úr þessu lagi styður þetta álitmitt. Að þessari flá er lagt þegarfara skal upþ i Eldey. Samanburður eldri mynda af Eldey við nýrri, sýnir að litlar breytingar hafa orðið á eynni. Sá stallur sem þeir félagar 1894 náðu af upþ á brún með þvf að standa á öxlum hvers annars, er hruninn. Vonandi fá súlurnar enn um langt skeið að eiga sér stærsta samfellda byggð veraldar i Eldey og við menn að njóta út- sýnis til þessa mjög svo mélaða móbergsstapa. Sunnudaginn 3. júli s.l. birtist i Timanum viðtöl viö þá Sigurð Þórarinsson og Agnar Ingólfs- son undir fyrirsögninni: „Ein- hvern tima verður Eldey öll — hún er leifar talsvert stórrar eyjar” og birtust með viðtölun- um f jórar myndir með skýring- um. 1 þessum viðtölum eins og þau eru birt svo og f skýringum und- ir myndum koma fram nokkur atriði, sem ekki eru rétt. Þvi vildi ég meö þessum linum koma á framfæri við blaöið nokkrum leiðréttingum. Eftir prófessir Agnari er þetta haft: „Eldey er a.m.k. ein mesta súlubyggö i veröldinni, en hvort hún er stærst er nokk- urtálitamál....Sþurningin i þvi máli væri, hvort telja eigi, að á- kveðnar erlendar súlubyggðir séu ein eða fleiri. t Eldey eru um 11 þúsund súluhjón og sér vart i eyjuna að ofan svo þétt situr fuglinn. Siöast var talið i eyjunni 1949.... að rannsóknir eða talning á súlu i Eldey hafi ekki farið fram siðan.” Rétt er, að Eldey er stærsta einstök súlubyggð I veröldinni, eða á henni ofan og neðan brúna verþa fleiri súlur en i nokkurri annarri einstakri súlubyggð hafsúlu (sula bassana). Þegar ritað er um heimkynni súlunnar, þá er Island eitt þeirra og hefur 6 súlu-varp- stöðvar. Ein þeirra t.d. Vest- mannaeyjar meö 5 súlubyggðir, þ.e. byggðir i 5 eyjum. Eyjaklasinn St. Kilda vestur af Skotlandi er ein varpstöö súlna við Bretlandseyjar. Súlu- varpið er þar á 3 eyjum, Stac an Armin, Boreray og Stac Lee. Varpiðá Boreray er stærst, en á Stac Lee er stærst samfelld súlubreiða talin hafa 2474 hreiö- ur 1942, en 1939 voru i breiðunni ofan á Eldey 8700. Eldey hefur ávallt haft vinningin, þegar súluvarp hennar hefur verið borið saman við varpið á Borer- ay, og breiðan ofan á Eldey bor- ið langt af hreiðursfjölda i breiðu Stac Lee. Einn fremsti fuglafræðingur Breta, James Fisher, sem ásamtfélaga sinum H.G. Vevers hafa athugaö byggðirhafsúlunnar hefur löng- um taliö Boreray stærstu súlu- byggð i veröldinni. (bls. 283, The Shell Bird Book, 1966). Prófessorinn segir i viðtalinu að i Eldey séu um 11 þúsund súluhjón og þar hafi eigi fariö Þorsteinn Einarsson: Eldey var aðsótt til ny tj a en ekki gamans fram súlutalning siðan 1949. Ár- ið 1939 i júni fór H.G. Vevers til Eldeyjar. Taldi hann af sjó hreiður neðan brúnar, en GIsli Guðmundsson taldi ofan á eynni. Niðurstöður: 628 utan i, 8700 ofan á, alls 9328 hreiður. 1 júni 1949 fórum við dr. Finn- ur Guðmundsson ásamt James Fisher, H.G. Vevers og Julian Huxley til Eldeyjar. Með I ferð- inni voru færustu fjallamenn Vestmannaeyja, sem ætlunin var að klifu eyna og teldu ofan á. Eigi gaf til lendingar við eyna, svo að við töldum neðan brúnar, en áætluðum fjölda hreiðra ofan á. Niðurstöður: 1177 utan i, 97 00 ofan á (áætlað) alls 1Ö877 hreíð- ur. í júli 1953 framkvæmdu flug- menn og ljósmyndari úr sjóher Bandarikjanna myndatökur úr sex áttum af Eldey. Agúst Böðvarsson forstöðumaður landmælinga framkvæmdi stækkanir frummynda. Sam- kvæmtþeimskýru myndum var unnt að telja súluhreiður á eynni. Niðurstöður: 3544 utan I, 11.634 ofan á, alls 15.178 hreiður. 1 júli 1960 endurtók sjóher Bandarikjanna myndatökur af Eldey og i júli 1961 fór sá er þetta ritar til Eldeyjar og taldi súlubyggðina utan i eynni: Niðurstöður: 2400 utan i, 13.900ofan á, alls 16.300 hreiður. Ég álit að samkvæmt þessum talningum megióhikað telja, að nú byggi Eldey um 17.000 súlu- hjón. Hin samfellda súlubreiða ofan á Eldey á hvergi sinn lika. 1 Boreray er súlubyggðin dreifð á 7 staði. 1 viðtalinu við Agnar prófess- or segir: „Þó hefur stöku sinn- um borið við að menn hafi farið upp i eyna, mest að gamni sinu, en ekki til þess að hafa not af henni.” Frá þvi að þeir þremenn- ingar, Agúst og Stefán Gfsla- synir og Hjalti Jónsson klifu Eldey i mai 1894 var eyjan aö- sótt nær árlega fram til þess að hún var alfriðuð i febrúar 1940. Tengdafaðir minn, séra Jes A. Gislason hélt skrá yfir súlur teknar i Eldey 1910 til 1939. A þessu timabili er farið 21 sinni i Eldey. Meðaltali aflaðra súlu- unga er 3257. Aðalástæðan til þess að þeir þremenningar freistuðu að leggja „veg” upp á Eldey 1894

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.