Tíminn - 11.08.1977, Page 15

Tíminn - 11.08.1977, Page 15
Fimmtudagur 11. ágúst 1977 LiiS'liI' 15 Uhro Kekkonen stigur inn 1 for- setabifreiöina á leið til ráö- herrabústaðarins i Tjarnargötu, en þar mun hann dvelja, á meðan á heimsókn hans stendur. A Reykjavíkurflugvelli i gær- morgun. Fimm ár eru nú liöin frá þvi aö forseti islands dr. Kristján Eldjárn kom i opinbera heimsókn til Finnlands. F.I. Reykjavik. — Veðurguð- irnir tóku ágætlega á móti Uhro Kekkonen forseta Finnlands, er hann kom i opinbera heimsókn til Islands i gær ásamt fylgdar- liði, þ.a. meðal nýkjörnum utanrikisráðherra. Falkon flug- vél forsetans lenti á Reykja- vikurflugvelli á slaginu 11:30, og voru þar fyrir forseti Islands dr. Kristján Eldjárn, forseta- frúin Halldóra Eldjárn, finnski sendiherrann á Islandi Lars Lindeman, ráðherrar, ráðu- neytisstjóri utanrikisráðuneytis og fleiri. Þetta er í annað sinn, sem Uhro Kekkonen kemur i opinbera heimsókn til Islands, en fyrri heimsókn hans var árið 1957. Tuttugu ár virðast ekki langur timi fyrir mann eins og Kekkonen, og er hann jafn létt- stigur og sólbrúnn sem fyrr. Finnski forsetinn er mikill lax- veiðiáhugamaður og hefur komið hingað til lands i fjölda einkaheimsókna. Þegar islenzku forsetahjónin höfðu gengið til móts við Uhro Kekkonen og boðið hann vel- kominn lék Lúðrasveit Reykja- vikur þjóðsöngva beggja land- anna og ljósmyndarar kepptust Þau voru broshýr við mot tökuna forsetahjónin, dr. Kristján Eldjárn og frú Hall- dóra ásamt sendiherra Finna á tsiandi Lars Lindeman. Gengið ut rauöa dregilinn. Ljós- myndir Timinn Róbert. Forseti tslands kynnir ríkisstjórnina og aöra embættismenn. Hér sést Kekkonen heilsa Ólafi Jóhannessyni, dómsmálaráðherra. Viö hliö hans stendur Einar Ágústsson, utanrikisráöherra og l.t.v. Geir Hallgrimsson, forsætisráöherra. A meðan leiknir voru þjóösöngvar Finnlands og islands. Timamynd Róbert. við að mynda. I athöfnum sem þessum er ekki ætlast til að blaðamenn ryðjist að og fékk Kekkonen fri frá þeim. Var siðan ekið sem leið lá til ráð- herrabústaðarins við Tjarnar- götu og fóru forsetarnir fremstir. Við Tjörnina mátti sjá nokkra fána blakta við hún, og i Tjarnargötunni beið dátitill hópur barna með litla islenzka bréffána. Þau voru sæt og feimin eins og litlu islenzkum börnum ber, veifuðu fánum sinum kyrfilega, á meðan for- sesinn renndi upp að, en leizt ver á, þegar hann tók að veifa á móti. Þá duttu litlu fánarnir niður aftur. Hádegisverð snæddu gestir að Bessastöðum og i gærkvöldi héldu forseta- hjónin Kekkonen veizlu á Hótel Sögu. Sjálfur tók finnski forset- inn á móti sendimönnum er- lendra rikja i ráðherrabústaðn- um um miðjan daginn i gær. Hinni opinberu heimsókn Uhro Kekkonens lýkur föstu- daginn 12. ágúst, en eftir það mun hann fá tækæifæri til að anda léttar i boði rikisstjórnar- innar fram á sunnudag. I dag er ætlunin, að Uhro Kekkonen heimsæki stofnun Arna Magnússonar kl. 10:15, Norræna húsiðkl. 10:40 ogKjar- valsstaði kl. 12:30, en á Kjar- valsstöðum verður hádegis- verður framreiddur. Finnsku fólki á Islandi býðst siðan að koma i ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu kl. 17:00, og ‘kl. 19:30 heldur Kekkonen islenzku forsetahjónunum samsæti á Hótel Holt. Sérlegur fylgdarmaður Uhro Kekkonens á meðan á heimsókn hans stendur er Guðlaugar Þor- valdsson, háskólarektor, en Ólafur Egilsson, deildarstjóri I utanrikisráðuneytinu verður i fylgd með finnska utanrikisráð- herranum Paavo Vayrynen. Uhro Kekkonen á íslenzkri grund FINNSKI FORSETINN JAFN LÉTTSTÍGUR OG SÓLBRÚNN SEM FYRR Litil stúlka Katrin Sverrisdóttir færöi forsetanum fagran blóm- það er enn löng ganga eftir fyrir forseta Finnlands. A myndinni tekur hann i hönd Ingva Ingvarssonar, vönd viö komuna. Timamynd Róbert. sendiherra. Ljósmyndir Timinn, Robert.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.