Tíminn - 27.08.1977, Qupperneq 3
Laugardagur 27. ágúst 1977
3
Einar Agústsson, utanrlkisráöherra, flytur ræöu slna viö setningu ATA-þingsins Igær. Tímamynd: Róbert
ATA-þingið sett í gær
MÓL-Reykjavík. — 1 umræöum
um NATO og hlutverk íslands i
NATO, veröur aöhafa Ihuga, aö á
tslandi rikir annar hugs-
unargangur varöandi hermál og
þarfir fyrir varnir en i öörum
rikjum. Fólk hér á landi er yfir-
leitt óvant hernaðarlegum um-
svifum og samþykkir ekki eins
ákveöiö, að þeirra sé þörf eins og
aörar þjóöir, sem öldum saman
hafa ekki þekkt annaö ráö til aö
vernda frelsi sitt og sjálfstæöi
nema meö hernaöarlegum
vörnum.sagöi Einar Agústsson,
utanrikisráöherra, m.a. viö setn-
ingu 23. ársþings A.T.A. á Hótel
Loftleiöum I gærdag.
Þingið igærvarsettkl. 14.30 af
Guömundi H. Garðarssyni, for-
manni islenzku samtakanna um
vestræna samvinnu, en síöan tóku
til máls Geir Hallgrimsson, for-
sætisráöherra, dr. Joseph Luns,
framkvæmdastjóri NATO, Einar
Agústsson, utanrikisráöherra,
H.F. Zeiner Gundersen, norskur
hershöfðingi og formaöur her-
málanefndar NATO, Isaac C.
Kidd, flotaforingi, og dr. Karl
Mommer, núverandi forseti
A.T.A.
Ræður þeirra voru flestar mjög
almenns eölis, um alþjóöamál og
gildi vestræns samstarfs, nema
ræöa Einars Agústssonar, utan-
rikisráöherra, sem öll fjallaði um
þau mál,sem okkur standa nærri.
þ.e. þátttöku Islands I NATO og
ööru vestrænu starfi. 1 ræöu sinni
rakti utanrikisráöherra þær
sögulegu ástæður og forsendur ,
sem liggja aö baki veru okkar i
vestrænum hernaðarsamtökum,
þrátt fyrir, aö hér væri enginn
innlendur her.
I ræöu sinni sagöi Einar
Agústsson einnig: Auövitaö
vonum vö, aö ástandiö muni
breytast þannig, aö varnar-
bandalög veröi óþörf. Sjálfur
mundi ég vilja vinna glaöur aö
þvi takmarki eöa svo langt, sem
mitt takmarkaöa vald nær. En ég
er þó ekki þeirrar skoöunar, aö
einhliöa aögerðir af hálfu íslands
eða einhvers annars bandalags-
rikis sé skref i rétta átt, Það sem
við þörfnumst er alþjóöleg sam-
vinna.
Slöan lýsti utanrlkisráöherra
yfir þeirri ánægju sinni, aö marg-
visleg skref heföu veriö tekin til
þess að ná þessu takmarki, svo
sem SALT umræöurnar og
fundirnir i Vin, enda þótt þeir
hefðu verið takmarkaðir við
afvopnun I Miö-Evrópu. Þaö væri
skoöun sin, aö sú umræöa ætti
einnig aö ná til svæöanna um-
hverfisokkur, sagöi utanrikisráð-
herra.
Hátt á þriöja hundraö manns
sitja þing A.T.A., sem lýkur um
hádegi á mánudag.
KVIKMYND UM LAX
— eigendur ísfilm ætla að láta reksturinn bera sig
KEJ-Reykjavik — Fyrirtækið
tsfilm hefur nú selt 18 eintök af
hinni nýju kvikmynd sinni Lax-
inn og auk þess hafa 3 eintök til
veriö pöntuö hjá þeim. Eigend-
ur þessa nýja kvikmyndafyrir-
tækis eru þeir Indriöi G. Þor-
steinsson, rithöfundur og Jón
Hermannsson, kvikmyndagerö-
armaöur. Hyggjast þeir reka
þetta fyrirtæki sitt meö þaö I
huga, aö þaö standi undir sér
fjárhagslega, en lifi ekki á opin-
beru styrktarfé.
Laxamýndin nýja var sýnd
nokkrum áhugamönnum og
blaöamönnum á Hótel Loftleiö-
um á fimmtudag. Myndin er 22.
mimitna löng og fjallar um lax-
inn á Islandi, meöhöndlun hans,
ræktun og veiði, og likaöi yfir-
leitt vel þeim, sem á horföu.
Indriöi G. Þorsteinsson samdi
sjálfur handrit og var þulur i
myndinni, en Jón Hermannsson
stjórnaöi upptöku og haföi alla
umsjón meö gerö hennar. Auk
hans störfuöu aö kvikmynda-
tökunni þeir Þrándur Thorodd-
sen og Siguröur Sverrir Páls-
son.
Aö sögn Indriöa G. Þorsteins-
sonar er hann nú aö undirbúa
handrit aö annarri mynd Isfilm,
og kemur hún til með aö fjalla
um ferö Daniels Bruun um Kjöl
árið 1898. Sú ferö var aö mörgu
leyti merkileg, og þá ekki síöur
hugmyndir hans um Kjalarleiö
sem ferðamannaleiö, en haföi
hann þá erlenda feröamenn i
huga. Þessi för Bruun varö auk
þess til þess, aö Alþingi ákvaö
aö láta varöa leiöina og svo var
gert.
Sovézk sýningardeild
MÓL-Reykjavík — Viöskipti
Sovétrikianna og tslands hafa
þróazt viö góöum árangri og
hefur verzlun millilandanna fariö
stööugt vaxandi á undanförnum
árum. Sem dæmi um þaö má
nefna, aö áriö 1970 nam hún 1862
milljónum króna, en á siðasta ári
nam hún rúmum 14 þús. milljón-
um króna.
A þessa leið fórust fram-
kvæmdastjóra sovézku
sýningadeildarinnar á sýningunni
Heimilið ’77 orð, er hann kynnti
deildina á fundi meö blaöamönn-
um i fyrradag.
I sovézku deildinni má finna
margvislegar upplýsingar um
sovézk heimili og heimilishald,
sem aö sögn framkvæmdastjór-
ans, hefur stóraukizt og batnað.
Sem dæmi um þaö nefndi hann,
aö á hverju ári væru teknar I
notkun I Sovétrikjunum meir en 2
milljónir Ibúöa, sem eru samtals
um 100 milljón fermetrar aö
stærö, og aö á árum niundu fimm
ára áætunarinnar heföu 56 millj-
ónirmanna bætthúsnæöisaöstæö-
ur sínar, en sú áætlun stóö yfir ár-
in 1971-75.
|f
,r ' i§ ]
Wm rrTn i.' )
- 1
Jm.
STETTARSAM
BANDSÞIN G
AÐ EIÐUM
áþ-Reykjavík. Næst-
komandi mánudag og
þriðjudag verður aðal-
fundur Stéttarsambands
bænda haldinn að Eiðum
i Suður-Múlasýslu Þeg-
ar hafa verið kosnir 46
fulltrúar til að mæta á
fundinum. Það eru tveir
úr hverri sýslu landsins,
flestir þeirra hafa setið
aðalfundi áður.
Gert er ráö fyrir, að mörg mál
veröi tekin fyrirá fundinum aö
þessu sinni, þar sem fjölmargar
ályktanir hafa borizt stjórn
Stéttarsambandsins frá hinum
almennu bændafundum, sem
haldnir voru á siöastliðnum vetri,
einnig frá aðalfundum kaup-
félaga, kjörmannafundum, svo og
búnaðarfélagsfundum. Fundinn
setur Jón Helgason, varaformaö-
ur Stéttarsambandsins.
BHM styður
verkfræðinga
Kás-Reykjavík. 1 gær sendi
Bandalag Háskólamanna frá sér
fréttatilkynningu vegna kjara-
deilu Stéttarfélags verkfræöinga
og Reykjavikurborgar, og bendir
þeim tilmælum til sinna félags-
manna, að þeir gangi ekki inn i
störf þeirra verkfræöinga hjá
Reykjavikurborg, sem nú eru i
verkfalli.
Jafnframt lýsir Bandalag
Háskólamanna yfir fullum stuðn-
ingi við Stéttarfélag verkfræð-
inga i baráttu þeirra fyrir bættum
kjörum.
Asatrúarmenn:
Hjónavígsla
— yfirlestur
úr Eddu
kás -Reykjavik. Um siöustu
helgi gaf Sveinbjörn Beinteins-
son, allsherjargoöi Asartrúar-
manna, búsettur aö Draghálsi,
saman fyrstu Asartrúamennina
I hjónaband, siöan þessi siður
var aftur upp tekinn aö nýju.
Athöfnin fró fram I Reykjavlk,
en bæöi hjónaefnin eru safn-
aöarmeölimir Asatrúarsafnaö-
arins.
Viö giftingarathöfnina las
Sveinbjörn allsherjargoði úr
Eddu-kvæöum yfir höföum
hinna tilvonandi brúöarhjóna,
og haföi ýmsar serimoniur um
hönd.
Eins og kunnugt er, þá fékk
Asartrúasöfnuðurinn löggild-
ingu sem trúarsöfnuöur fyrir
nokkrum árum, og hefur Svein-
björn þvi sem forstöðumaöur
safnaöarins fulla heimild, sam-
kvæmt landslögum, til sllkra
framkvæmda. Hann mun m.a.
hafa framkvæmt skirn.
Til aö geta oröið Asartrúar-
maöur þarf maöur aö segja sig
úr Þjóökirkjunni og skrá sig i
Asartrúarsöfnuöinn hjá Hag-
stofunni. Svona auövelt er'þaö.
Til sölu
nálægt Laugavegi —
laust strax!
Ný lúxus saunabaöstofa,
Tyle ofn pantaöur og 3ja til
4ra herbergja Ibúö I stein-
húsi, nýstandsett, tvöfalt
gler. Verö 8,5 millj. útb. 6.
Veöleyfi 2-4 millj.
Yöar fasteignasali eöa
KJARAVAL
Slmi 1-98-64.
Hilmar Björgvinsson hd.
Harry Gunnarsson sölustj.
Allsherjargoöinn, Sveinbjörn
Beinteinsson.
wmmmmmMMM—^^—mm.*
Fyrir
vörubíla
LANDVÉLAR H.F.
Keflavik
Blaðberar óskast,
upplýsingar í síma 1373.
Sovézku fulltrúarnir, sem kynntu deildina.